Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 13

Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 13
FRÉTTIR Erlent 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 - fallegt fyrir heimilið balika ehf. | Síðumúla 3 108 Reykjavík | Netverslun balika.is herstöðvarnar. Vestrænir hernaðar- sérfræðingar drógu yfirlýsinguna í efa, og rússneskir harðlínumenn voru ósparir í gagnrýni sinni á rússneska herinn á samfélagsmiðlum í gær fyr- ir að hafa teflt öryggi sprengjuvél- anna í hættu, en gervihnattamyndir í fyrradag sýndu að vélunum á Eng- els-vellinum hafði verið stillt upp utandyra í undirbúningi fyrir næstu árás þeirra á Úkraínu. Dmitrí Peskov talsmaður Rúss- landsforseta sagði að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefði verið upp- lýstur um sprengingarnar, en Pútín keyrði í gær bifreið yfir Kertsj-brúna, sem tengir Krímskaga við Rússland. Var bílferð hans sýnd í sjónvarpi, en brúin skemmdist illa hinn 8. október í árás Úkraínumanna. Þá sagði Peskov í gær að nýlegt verðþak sem Evrópusambandið, Ástralía og sjö helstu iðnríki heims hafa samþykkt að setja á olíukaup frá Rússlandi muni ekki hafa nein áhrif á getu Rússa til að ljúka „sérstöku hernaðaraðgerðinni“, sem Rússar kalla innrásina. Verðþakið var sett á 60 bandaríkjadali per olíutunnu, og hafa Úkraínumenn sagt að það sé of hátt og muni ekki hafa nein áhrif á Rússa, en tunnan selst nú á 65 dali. Þá tók nýtt innflutningsbann í gildi í gær innan Evrópusambandsins á hráolíu sem flutt er með skipum frá Rússlandi, en slíkir flutningar nema um tveimur þriðju af olíuinnflutningi ESB-ríkjanna frá Rússlandi. Vetrarstríð í uppsiglingu Ljóst hefur verið um nokkra hríð að komandi vetur yrði erfiður fyrir Úkraínumenn, ekki síst í ljósi stöð- ugra árása Rússa á raforkukerfi og hitaveitu landsins, sem ætlað er að beita Úkraínustjórn þrýstingi þegar vetrarkuldinn fer að bíta. Selenskí Úkraínuforseti skoraði enda á þjóð sína á sunnudaginn að sýna þraut- seigju og þolgæði, nú þegar veturinn færi í hönd. Hernaðarsérfræðingar á Vesturlöndum eru hins vegar ekki sammála um hvaða stefnu stríðið muni taka á næstumánuðum. Þannig sagði Avril Haines, yfirmaður allra leyniþjónustustofnanna Bandaríkj- anna, í fyrradag að hún teldi líklegt að bæði Rússar og Úkraínumennmyndu reyna að leggjast í hálfgerðan dvala til að undirbúa sig fyrir næstu gagn- sókn Úkraínumanna, sem myndi þá hefjast í vor. Hugveitan Institute for the Study ofWar, ISW, sagði hins vegar í gær að líklegra væri að herinn héldi áfram sóknaraðgerðum á næstu mánuðum til þess að byggja ofan á árangur síð- ustu mánaða, og um leið til að koma í veg fyrir að Rússar geti endurheimt frumkvæðið á vígvellinum. Vísaði hugveitan þar m.a. til Serhís Tsjer- evatí, talsmanns Úkraínuhers, sem sagði á sunnudaginn að frosin jörð gæfi bryndrekum, sem ferðast um á beltum, færi á að sækja fram, og að herinn væri að undirbúa skrið- og bryndreka sína fyrir vetraraðgerðir. Þykir veturinn jafnvel betri fyrir slíkar aðgerðir en haustið og vorið í Úkraínu, þegar mikil leðja og for- að neyða sömu bryndreka til þess að halda sig á vegum landsins, en vætutíð í nóvember leiddi af sér að- stæður á vígvellinum, sem minntu einna helst á skotgrafahernað fyrri heimsstyrjaldar. Úkraína með yfirhöndina Dr. Jack Watling, sérfræðingur í landhernaði við RUSI-hugveituna, sagði í greiningu sinni í Daily Tele- graph í síðustu viku, að komandi vetur gæti hins vegar reynst Úkraínumönn- um betur en Rússum á vígvellinum. Sagði Watling að bardagar um vetur kölluðu á ákveðna færni sem þyrfti að þjálfa upp, og ljóst væri að rússneskir varaliðsmenn hefðu hvorki útbúnað né þekkingu til þess að takast á við kuldann. Bendir Watling á að vetrarstríð kalli á að hermenn liggi langdvölum á blautri jörð og skríði í gegnum leðju og snjó. Hermenn eigi því sjaldnast kost á því að halda sér hlýjum og þurrum, og bendir Watling á að væt- an dragi mjög úr bardagafærni fólks. Hermenn sem verði blautir verði fljótt kaldir og eigi á hættu að deyja úr ofkólnun. Watling segir að hér geti skipt sköp- um að vera með vel þjálfaða lægra setta herforingja, sem viti hvenær eigi að draga herlið til baka úr væt- unni og kuldanum, auk þess sem agi hermannanna sjálfra geti skilið ámilli feigs og ófeigs. „Herlið sem getur ekki sýnt þetta mun missa menn vegna ofkólnunar, kalsára og lítils baráttu- anda,“ sagði Watling og bætti við að Úkraínumenn hefðu yfirhöndina í öllum þeim þáttum sem hann hefði nefnt. Þótti Watling því líklegra að Úkraínumenn myndu vilja neyða Rússa til þess að berjast, því að það eitt og sér gæti leitt til aukins mann- falls hjá hermönnum Rússa. Tveir Úkraínumenn féllu og þrír særðust í Saporísja-héraði í gær, eft- ir að Rússar skutu rúmlega hundrað eldflaugum á skotmörk vítt og breitt um Úkraínu. Volodimír Selenskí for- seti Úkraínu sagði hins vegar í gær að loftvarnarkerfi landsins hefðu náð að skjóta niður flestar eldflaugarnar áður en þær náðu settu marki. Árásirnar ollu engu að síður nokkrum truflunum á rafmagnskerfi landsins, og voru nokkrar borgir raf- magnslausar með öllu í kjölfar þeirra, þar á meðal Míkólaív og Súmí. Maksím Martsjenkó héraðsstjóri Ódessa-héraðs sagði að raforkunet héraðsins hefði skaddast í árásun- um, og að tveir hefðu særst þegar eldflaugar lentu á íbúðarhúsnæði. Þá var algjörlega rafmagnslaust í hafnarborginni Ódessu, auk þess sem vatnsveita borgarinnar varð óstarf- hæf með öllu. Um helmingur raforkukerfis Úkra- ínu hefur skemmst í árásum Rússa síðustu vikur og mánuði, og hafa Úkraínumenn vart undan að gera við skemmdirnar áður en næsta árásarhrina ríður yfir. Úkraínska orkuveitan Ukrenerho sagði í gær að vegna árásanna yrði að taka upp skömmtun á rafmagni í öllum héruð- um landsins. Dularfullar sprengingar Eldflaugaárásir Rússa voru gerð- ar sama dag og sprengingar urðu við tvo herflugvelli í Rússlandi, þar sem langdrægar sprengjuvélar af gerðunumTu-160 og Tu-95 hafa haft bækistöðvar sínar. Slíkar vélar hafa verið nýttar til að skjóta langdrægum flugskeytum áÚkraínu, þar sem þær geta það án þess að fara inn í lofthelgi landsins, sem Rússar hafa ekki náð yfirráðum yfir. Ekki var vitað hvort eldflaugaárásin tengdist árásunum á flugvellina á nokkurn hátt. Sprengingarnar urðu svo til sam- tímis, og hafa því vaknað spurningar um hvað hafi valdið þeim, sér í lagi þar sem báðir flugvellirnir, Engels-2 og Rjasan, eru í um 600 kílómetra fjarlægð frá víglínunum í Úkraínu. Lék grunur á því að um nýjan lang- drægan dróna væri að ræða, en Úkra- ínuher lýsti því yfir í gærmorgun að þeir væru að þróa einn slíkan, sem ætti að draga um 1.000 kílómetra. Að minnsta kosti þrír féllu og átta særðust í sprengingunum tveimur, auk þess sem tvær Tu-95-sprengju- vélar voru sagðar hafa skemmst í árásinni á Engels-flugvöllinn. Þá sprakk eldsneytisflutningabifreið í loft upp á Rjasan-flugvellinum. Rússneska varnarmálaráðuneytið lýsti því yfir í gær að þeir hefðu skotið niður báða drónana, en sprengingarn- ar og mannfallið hefðu orðið vegna braks úr þeim, sem hefði fallið á Ennráðist að orkuinnviðunum lRúmlega hundrað eldflaugum skotið á Úkraínu í gærlNokkrar truflanir á raforkukerfi landsins lDrónaárásir á herflugvellilVerðþak hafi lítil áhrif á RússalStefnir í harða bardaga í vetur Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is AFP/Maxar Technologies ÁrásÁ þessari gervihnattamynd af Engels-2-flugvellinum má sjá tvær Tu-160-sprengjuvélar og þrjár Tu-95-vélar en ráðist var á flugvöllinn í gær. Ljósmynd/Úkraínuher SkotgrafirnarÁ þessari mynd, sem tekin er í skotgröfunum við Bakhmút, sjást vel þær aðstæður sem margir her- menn þurfa nú að glíma við á vígstöðvunum. Minna þær einna helst á skotgrafahernað fyrri heimsstyrjaldar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.