Morgunblaðið - 06.12.2022, Page 15

Morgunblaðið - 06.12.2022, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Í frostinu Veður hafa skipast nokkuð í lofti og eftir hlýindin í nóvember er frostið farið að bíta og ísnálar höfðu í gær myndast á styttunni af Jónasi í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Eggert Jóhannesson Hagræðing er nauðsynlegur þáttur af opinberum rekstri. Síðan Viðreisn kom í meiri- hluta borgarstjórnar árið 2018 hefur verið árleg hagræðing- arkrafa upp á 1% af launa- kostnaði ásamt því að hætta að verðbæta rekstrarkostnað. Með þessu setjum við á okkur stöðuga pressu, bæði á að velta við hverri krónu og að hafa það ætíð í huga að við sem stýrum opinberum rekstri er- um með almannafé í okkar vörslu. Nú er svo komið að grípa verður til enn sterkari aðgerða. Aldrei skemmtilegt, en afar nauðsynlegt Fram undan er óvissa og engin góð- ærisár virðast sjáanleg. Í þeirri fjárhags- áætlun sem til umræðu er í borgarstjórn í dag gerum við ráð fyrir vexti en við stígum einnig ákveðin á bremsuna hvað varðar reksturinn. Rekstur langflestra sveitar- félaga hefur verið afar þungur. Reykjavík er þar engin undan- tekning en hér hefur verið haldið uppi öflugri grunnþjón- ustu á undanförnum misserum þrátt fyrir erfiðleika. Þjón- ustustig borgarinnar hefur ver- ið það hæsta sem gerist á land- inu. Við leggjum nú áherslu á verkefnamiðaða hagræðingu. Það þýðir að við höfum velt við hverri krónu, skoðað hvað við getum hætt að gera, hvað við viljum leggja niður, sameina eða endur- skipuleggja. 12 milljarða breyting Með þeim 92 tillögum um hagræðingu og umbótatillögum sem við leggjum fram í dag, ásamt þeirri föstu hagræðingarkröfu sem hefur þegar verið ákveðin, munum við draga úr rekstrarkostnaði um rúmlega þrjá milljarða. Fjárfestingaráætlun næsta árs hefur einnig verið lækkuð um níu milljarða frá fyrri áætlunum. Samanlagt er þetta breyting upp á 12 milljarða. Minnihlutanum í borgarstjórn hefur orðið tíðrætt um að hagræðingartillögurnar séu takmarkaðar og dugi ekki til. En lítið hefur heyrst af góðum sparnaðartillögum frá þeim, nema endurnýttar og fyrirsjáanlegar hugmyndir um að fækka starfsfólki í mið- lægri stjórnsýslu og lækka laun borgarfull- trúa. Þegar aðgerðir meirihlutans eru skoðaðar má sjá þó nokkrar tillögur sem draga úr kostnaði við miðlæga stjórnsýslu. En það er ekki á dagskrá hjá okkur að lækka hvort heldur laun starfsmanna borgarinnar né borgarfulltrúa. Það sem við höfum hins veg- ar gert er að setja skýr markmið um hvern- ig við drögum úr launakostnaði í samræmi við markmið fjármálastefnu borgarinnar. Aðgerðir í ráðningarmálum eiga þó ekki við störf í framlínu, svo sem í skóla- og frí- stundaþjónustu eða í velferðarþjónustu. Hlúum að grunnþjónustunni Um leið og farið er í hagræðingu og að- hald í rekstri verður lögð áhersla á lög- bundin verkefni sveitarfélaga, þeim sýnd al- úð og athygli með það að markmiði að fjármögnun og stjórnun sé sem réttust og í góðu jafnvægi. Það eykur stöðugleika og fyrirsjáanleika í rekstrinum sem hefur bein áhrif á starfið og gæði þjónustunnar hvort sem það eru menntamál, velferðarmál eða uppbyggingarmál. Við munum nú sem áður hlúa að grunnþjónustu sveitarfélagsins, það er þar sem kjarnaverkefni sveitarfélaga liggur. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir » Við leggjum áherslu á verk- efnamiðaða hagræðingu. Við höfum velt við hverri krónu, skoðað hvað við getum hætt að gera, sameinað eða endurskipulagt. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er forseti borgarstjórnar og oddviti Viðreisnar. Veltum við hverri krónu Vitnað er í fróðlega grein eftir Steinar Ingimar Halldórsson, „Ávinningur vindmylla er ofmet- inn“, sem birtist í Morgunblaðinu 30.11. sl. Francis-túrbínur Steinar hefur fyrir því að vekja sérstaklega athygli á tegund afl- véla í vatnsaflsvirkjunum sem eru í rekstri hér á landi í dag. Að mínu mati er þarna verið að gelta upp í rangt tré, en ekki þarf að draga í efa getu Francis-véla til að sinna sínu hlutverki. Vissulega er þetta áhugavert atriði, en á verksviði virkjunarhönnuða, sem oftast eru verkfræðistofur, og þær hafa ráðið vel við það hingað til. Orkugeta og framleiðslugeta Ávinningur virkjana á Íslandi hefur jafnan verið mældur með svonefndri orkugetu, sem er sú aukning orkumarkaðar sem tilkoma nýrrar virkjunar gerir kleift. Útreikningur í reiknilíkani (hermunar-/ bestunarlíkani) fer þannig fram að gengið er út frá ákveðnu grunnkerfi, sem í flestum tilvikum er „núverandi kerfi“. Þá er nýju virkjuninni bætt við grunnkerfið og fundin sú aukning á markaði sem tilkoma hinnar nýju virkjunar gefur tilefni til. Kostn- aður kerfisins við að viðhalda stöðluðu öryggi í afhendingu raf- orku er látinn vera sá sami fyrir og eftir aukninguna. Þessi aukning á markaði er kölluð orkugeta. Hafa þarf í huga að með þessari aðferð hefur grunnkerfið ávallt forgang umfram nýju virkjunina, t.d. hvað varðar nýtingu á ómiðl- aðri vatnsorku. Hins vegar er hugtakið fram- leiðslugeta, en þar er átt við fram- leiðslu sjálfrar virkjunarinnar við kerfisálag, sem jafngildir orkugetu. Fyrir hefðbundnar virkjanir vatnsafls og jarðvarma er framleiðslugeta og orkugeta ná- lægt því að vera sama stærðin. Orkugetuhugtakið má nota fyrir aðrar styrk- ingar kerfisins en sjálfar virkjanirnar, t.d. vatnsveitur og vatnsmiðlanir til að efla rekstur virkjana í grunnkerfinu og styrkingu flutnings- kerfisins. Þarna er verið að búa til orku án með- fylgjandi aflaukningar í virkjun, en orkugetan fæst fram með aukinni framleiðslu virkjana sem fyrir eru í kerfinu. Sérstaklega áhugavert er þegar virkjun með mikla möguleika til vatnsmiðlunar er látin koma inn á vanmiðlað grunnkerfi, eins og til- fellið var með Bessastaðaárvirkjun í Fljótsdal á sínum tíma. Þá gat orkugeta virkjunarinnar farið langt fram úr rennslisorku hennar, sem þótti kyndugt og krafðist nákvæmra útskýr- inga. Aflsetning virkjunarinnar tók samt sem áður mið af orkugetu fremur en framleiðslu- getu, en talið var að hin nýja virkjun þyrfti jafnan að skila afli inn á kerfið í samræmi við orkugetu. Notkun á orkugetuhugtakinu hefur gengið mjög vel hér á landi, bæði fyrir vatnsaflsvirkj- anir, jarðvarmavirkjanir og aðrar stækkanir á raforkukerfinu, hvort sem þeim fylgir uppsett afl eða ekki. Orkugeta er skrifuð á stækkunina í hvert skipti, en sjaldnast talið upp sérstaklega í hvaða virkjunum framleiðsluaukningin kemur fram, þótt það væri vissulega hægt. Vindorka Landsvirkjun hefur reist tvær 0,9 MW vind- rafstöðvar ofan Búrfellsvirkjunar og mælt nýt- ingu á notkun þeirra 40-44%. Í grein minni frá 2017, „Wind Power in Ice- land“ á https://veldi.is/reports/, gekk ég út frá 40% nýtingu á uppsettu afli og reiknaði orku- getu vindrafstöðva inn á landskerfið með sam- anlagt uppsett afl á bilinu 0-1000 MW. Kom í ljós að á bilinu reyndist nýting á upp- settu afli vindrafstöðva vera 33% fyrir 0-500 MW og 21% fyrir afl á bilinu 500-1000 MW. Þetta þýðir að 120 MW vindlundur við Búr- fell reiknast með orkugetu 120 * 33% * 8000 / 1000 = 317 GWh/ári ef uppsett afl vindraf- stöðva í kerfinu er minna en 500 MW og 120 * 21% * 8000 / 1000 = 202 GWh/ári ef uppsett afl vindrafstöðva í kerfinu er á bilinu 500-1000 MW. Landsvirkjun reiknar með orkugetu 440 GWh/ári, sbr. heimasíðu fyrirtækisins, en það jafngildir nýtingu upp á 46%. Líklegt er að framleiðendur vindorku sætti sig ekki við að vera meðhöndlaðir sem hver önnur virkjun í kerfinu. Þeir gætu þá leitast við að gera sérstaka samninga um sölu á raforku til stórnotenda sem væru í standi til að taka við breytilegu álagi. Þá hefðu þeir möguleika á meiri nýtingu síns búnaðar. Einnig gætu vind- orkuverin tekið þátt í samkeppni á raforku- markaði, sem mun líta dagsins ljós vonandi á næstunni. Skúli Jóhannsson » Í Morgunblaðsgreininni er fjallað um hugtökin orku- getu og framleiðslugetu og síð- an um vindrafstöðvar í því samhengi. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Um greinina „Ávinningur vindmylla er ofmetinn“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.