Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 16

Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifkop.is Allar almennar bílaviðgerðir Kennsluaðferðir eru í stöðugri þróun og mikilvægt er að vinna áætlun með tímasettum deili- markmiðum sem fel- ur í sér þróun kennsluaðferða í ís- lenska skólakerfinu. Einn þáttur þeirrar áætlunar er að koma svo sem kostur er til framkvæmdar einstaklingsmiðuðu námi í leik- og grunnskólum. Það er afar brýnt að miða ávallt nám við þarfir sérhvers nemanda. Þarfirnar eru misjafnar og því mikilvægt að finna leiðir til að hver og einn fái nám við sitt hæfi. Staðan Staðan í íslenskum grunnskólum er áhyggjuefni um þessar mundir. Um síðustu aldamót var staðan við- unandi miðað við Pisa-prófin. Nú um 20 árum síðar er staðan mun verri. Ísland er undir OECD-við- miðum í mörgum greinum. Árlegir fjármunir til grunnskólans eru hér á landi yfir OECD-meðaltali. Hlut- fall þeirra ungmenna sem sækja verkmenntun er afar lágt hér á landi. Samt er mjög margt gott og vel unnið í grunnskólum landsins en er það nóg? Nám við hæfi Nám við hæfi nemandans er mun líklegra til að auka vellíðan í skóla. Sá sem skilur og tengir við verk- efnið sem unnið er finnur líklega til meira öryggis en sá sem glímir við eitthvað sem hann ræður ekki við. Námsráðgjafar vinna afar mikilvæg störf í skólum landsins. Allir nem- endur í öllum skólum landsins verða að geta átt aðgang að þeim. Margir kennarar hafa ráð undir rifi hverju til að gera kennsluna ánægjulega og áhugaverða og er mikilvægt að þeir fái mikla og góða þjálfun og hvatningu til góðra verka. Kostnaður Óhjákvæmilega kosta slíkar breytingar á kennsluaðferðum tölu- verða fjármuni, sérstaklega ein- staklingsmiðuð kennsla. En mikið er í húfi. Við megum ekki láta okk- ur það í léttu rúmi liggja hvernig börnum og ungmennum okkar líður í skólunum og hvernig þeim gengur í mikilvægu námi. Þau eru framtíð okkar lands og þjóðar. Gleymum því heldur ekki að hver einstakling- ur á sér merkilega sögu og afar þarft framtíðarhlutverk fyrir hönd- um. Góð leið er að sveitarfélög stofni þróunarsjóði eins og t.d. Garðabær hefur gert fyrir leik- og grunnskóla. Þar geta skólar og ein- stakir kennarar sótt um styrki til þróunarstarfs. Til greina kemur að fyrirtæki í heimabæ og/eða fjár- sterkir aðilar leggi fé í sjóðinn. Þetta er velferðarmál fyrir allt samfélagið. Þá er eðlilegt að ríki greiði í þróunarsjóð fámennra sveit- arfélaga. Þá er og kostur ef skóla- stjórnendur fá tækifæri til að greiða góðum kennurum bónusa fyrir vel unnin störf. Örfáir hafa haft efasemdir um slíkar aðferðir og halda að ekki sé hægt að leggja mat á góða kennslu. Því er til að svara að ekkert er því til fyrirstöðu að þjálfa nemendur í að vanda svör í ýmiss konar kennslumati. Einnig er hægt að leggja fyrir samræmd próf innan skóla þar sem t.d. nokkrir kennarar kenna sömu námsgrein. Flest góð verk hafa ver- ið sköpuð eftir tilraunir. Þá er rétt að nefna stofnana- samninga sem hafa gefist vel í mörgum framhaldsskólum þar sem skólastjórnendur og nefnd kennara meta störf einstakra kennara. Það er misskilið réttlæti að greiða eigi öllum sömu laun sama hvernig vinnu þeir skila. Kostir Vellíðan nemenda í skóla tryggir betri námsárangur, betri skólasókn og vinnur gegn brottfalli. Kennarar þurfa að fá þjálfun í að greina hvort nemandi þurfi að þjálfa hæfni með hóp- eða samvinnu og hvort hann þurfi sérstakan stuðning í ákveðn- um námsgreinum. Tilgangurinn er að nemandinn fái verkefni við sitt hæfi. Í stórum dráttum hefur þessu ákalli verið svarað í framhaldsskól- um með innleiðingu áfangakerfis þar sem nemendum gefst nokkuð góður kostur á að velja sér náms- áfanga og ákveða námshraða. Gleymum því ekki að það er lítið sem ekkert að börnum okkar. Þau þurfa aðeins fjölbreytt, eðlilegt og heilbrigt umhverfi og skólakerfi til að þroskast vel. Skólakerfið skiptir miklu máli í farsæld ungmenna. Sóknarfæri í skólamálum: Kennsluaðferðir og vellíðan nemenda Þorsteinn Þor- steinsson og Gunn- laugur Sigurðsson »Nám við hæfi nem- andans er mun lík- legra til að auka vellíðan í skóla. Sá sem skilur og tengir við verkefnið sem unnið er finnur til ör- yggis. Þorsteinn Þorsteinsson Þorsteinn er fyrrverandi skólameistari og Gunnlaugur fyrrverandi skólastjóri. thorsteinn2212@gmail.com Gunnlaugur Sigurðsson Í „Vegvísi að vist- vænni mannvirkja- gerð 2030“ frá Hús- næðis- og mannvirkjastofnun segir svo m.a.: „Áætlað er að mannvirkjageirinn sé ábyrgur fyrir um 40% af heildarkolefnis- losun á heimsvísu. Þetta hlutfall sýnir greinilega að bygg- ingariðnaðurinn er mikilvægur hlekkur í að tryggja sjálfbærni kolefnislosunar komandi kyn- slóða.“ Við hjá Hannarr ehf. erum sam- mála þessu og höfum hannað kerfi sem reiknar kolefnislosun bygging- arefna þeirra bygginga sem eru reiknuð í BYGG-kerfinu, bæði við nýbyggingar og viðhald. Að vita það er ein af meginforsendum þess að draga megi úr umhverfisáhrif- um greinarinnar. Samanlagt eru þetta um 2/3 af allri kolefnislosun bygginga. Nýbyggingar á árinu 2020 voru 564.000 m2 samkvæmt „Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 1. hluta“. Þar segir að kolefnislosun byggingarefna þessara bygginga hafi verið 162.472 tonn eða 288 kg CO2/m2 og að það séu að meðaltali 45% af losun þeirra. Alls er þá samkvæmt þessu kolefnislosun ný- bygginga hér á landi um 360.000 tonn á ári. Þegar viðhaldi þessara húsa er bætt við þá bætast við um 170.000 tonn, sem gerir þá alls 530.000 tonn. Mismunandi gerðir húsa losa mismikið kolefni eða allt frá 233 upp í 370 kg CO2/m2 miðað við módelin í BYGG-kerfinu sem eru nú 22. Það er auðvelt að sjá af framansögðu hversu stór þáttur kolefnislosun bygginga er af heild- arlosuninni, og að það má auðveld- lega draga úr losuninni svo um munar. Tíu prósent minnkun los- unar bygginga myndi þýða um 4% minnkun losunar landsins í heild sé miðað við að byggingar losi um 40% af heildarlosuninni. Eitt lítið dæmi má t.d. nefna sem er að ef skipt er út timbur- klæðningu útveggja einbýlishúss að utan á móti bárujárni þá eykst losun hússins í heild um 8-10% og öfugt. Á meðan ekki er tekið á kolefnislos- uninni minnkar hún ekki. Þeir sem byggja horfa í kostnaðinn en ekki í kolefnislosun hússins og ganga má út frá að þeir sem kaupa eignina spyrji ekki um kolefnislos- unina. Þeir sem nota BYGG-kerfið hafa undanfarið ár getað séð kolefnislosun hvers efnis sem þeir hafa notað í byggingar sínar og því getað skoð- að hvað og hvar þeir geta dregið úr losuninni með því að velja annað efni en þeir ætluðu. Um leið hafa þeir getað séð hverju það hefði breytt varðandi byggingarkostn- aðinn. Hafa þeir gert það? Líklega ekki, þar sem það hefur vantað hvatann til að gera það eða kröfur um að það væri gert. Við höfum þannig tapað úr einu ári sem við hefðum getað nýtt í því markmiði að draga umtalsvert úr kolefnis- losun landsins. Til að ná markmiðunum um minnkun á kolefnislosun bygginga í landinu bendum við á að nú eru skráðir notendur BYGG-kerfisins um 475 og verða á næsta ári 5-600. Verkin sem eru unnin í BYGG- kerfinu verða um 1.700 í ár, en þeim hefur fjölgað um 20% á ári að undanförnu. Þessi fjöldi verka er meiri en sá fjöldi húsa sem byggð- ur er á landinu nú. Það þýðir að BYGG-kerfið er hjálpartæki sem nota má til að ná strax til þessa fjölda byggjenda og flýta með því þeim árangri í kolefnisminnkun sem þjóðin vill um einhver ár. Ekki er ólíklegt að þetta sé besta leiðin til að ná miklum ár- angri við að draga úr kolefnislos- uninni á skömmum tíma. Hjálpartækið til að draga úr kolefnislos- un bygginga hefur þegar verið hannað Sigurður Ingólfsson Sigurður Ingólfsson » Á meðan ekki er tek- ið á kolefnislosun- inni minnkar hún varla. Þeir sem byggja horfa í kostnaðinn og þeir sem kaupa spyrja ekki um losunina. Höfundur er framkvæmdastjóri Hannars ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.