Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Morgunblaðinu barst eftirfarandi bréf frá Bengt Englund, sem er ní- ræður Svíi. Hann bað fyrir kveðju til Morgunblaðsins og Íslendinga allra og er bréfið hér í lauslegri þýðingu: „Sæl! Þegar ég var 18 ára gamall hjálpuðuð þið mér að eignast ís- lenskan pennavin, stúlku. Nú er ég 90 ára gamall! Takk enn einu sinni. Nú hafa Ísland og Svíþjóð hægri umferð. Við tókum hana upp árið 1967 og þið 1968. Ég vona að þið skiljið ljótu hand- skriftina mína. Gangi ykkur vel í lífinu um ókomna tíð. Þið megið vita að Ís- land á sérstakan stað í lífi mínu. Kær kveðja. Bengt Englund, Svíþjóð.“ Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Kveðja frá Svíþjóð Í tvo áratugi, 4-5 daga vikunnar, hef ég gengið yfir stíflugarð Árbæjarlóns til vinnu. Ég naut heilandi áhrifa af veru lónsins í vetrar- og sumar- stöðu og alls þess fjöl- breytilega fuglalífs sem þá var. Lónið var orðið jafn heilagt mér eins og Ganges Ind- verjum. Það gera sér ekki allir grein fyrir hvað vatn og speglun þess hefur góð áhrif á sál- ina. Haustið 2020 var einræðisleg að- gerð forstjóra OR án nokkurs sam- ráðs að hleypa úr tugþúsunda fer- metra lóninu og líka niður úr ánni meira en vant er. Botninn og drull- an standa víða upp úr. Minjar til 100 ára sem heita áttu friðaðar að engu gerðar í ósátt við lög og til- skilin leyfi. Árbæjarvirkjunin var byggð vegna lónsins og má ætla að lítið lón hafi einnig verið þar fyrir í Árbæjarkvíslinni. Ótrúlegt er að borgarstjórinn DBE þóttist ekkert vita af þessum gjörningi þó að borgin eigi rúm 93% í OR. Það var dapurlegt að fylgjast með eft- irleiknum, vinnuflokkar slógu gróð- ur úr hólminum til að setja hann niður í drulluna sem eftir stóð og varúðarskiltin mörg vegna þess að drullan var hættulegri börnum í mínum huga en lónið í 100 ár. Það hefur verið sorglegt að fylgj- ast með fuglalífinu þegar athvarf þeirra breyttist í fáeina fermetra við stífluvegginn, ég kom tvívegis að dauðum gæsum, sá líka máva á flugi með andarunga í kjaftinum og álftarunga sem týndu lífinu. Fylgd- ist með þegar fleiri tegundir komu á sinn gamla stað en fóru jafnan aftur. Hef ekki orðið var við endurnýj- un á vaðfuglum þarna nálægt. Í syðri ánni við stífluna sem var alltaf full af laxi hefur maður varla séð fisk á annað ár þótt það komi auð- vitað fyrir. Aftur á móti sést lax í Árbæj- arkvíslinni en það er svo sem ekkert nýtt þótt þeir geti nú rafvætt seiði og fylgst betur með þar. Þeir nágrannar mínir sem ég hef talað við í Fagrabænum og víðar eru allir á móti þessu. Maður gengur ekki lengur glaður til vinnu eftir svona náttúruspjöll. Ég vil vekja athygli á að áin getur varla talist upprunaleg nú eins og þeir vilja vera láta. Elliðavatn er uppi- stöðulón, stífluvegg við barm vatns- ins (þar sem hægt er að stjórna flæði til árinnar) þyrfti að taka og þá myndi hálft Elliðavatn hverfa við sjálfsagt litla hrifningu nær- staddra. Gjörningur þessi hefur verið kærður fyrir nefnd umhverfis- og auðlindamála. Gjörningurinn var ólögmætur. Samkvæmt niðurstöðu ber OR að skila lóninu í upphaflegu ástandi en meirihlutinn ásamt borgarstjóra þráast við og vísaði tillögu sjálfstæðismanna um að fylla lónið á ný frá. Þeir gerast því lögbrjótar og var málflutningur þeirra sannleikanum til skammar. Við smáborgararnir kæmumst aldrei upp með að brjóta lögin á þennan hátt. En málið fer vænt- anlega lengra og við sjáum hvort einræðið eða lýðræðið sigrar að lokum. Ólögmæt náttúruspjöll í hjarta Elliðaárdals Örn Falkner Örn Falkner » Botninn og drullan standa víða upp úr. Minjar til 100 ára sem heita áttu friðaðar að engu gerðar í ósátt við lög og tilskilin leyfi. Höfundur er organisti, vinur náttúru og fugla. icefalkner@gmail.com Ljósmynd/Örn Falkner Árbæjarlón Séð yfir stíflulónið sem þarna er í hvítum vetrarklæðum. vv.is honnunarlausnir.is Mikið úrval af svörtum hönnunarvörum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.