Morgunblaðið - 06.12.2022, Page 20

Morgunblaðið - 06.12.2022, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 ✝ Hreinn Viðar Ágústsson var fæddur í Reykjavík 17. júlí 1949. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvogi 20. nóvember 2022. Hreinn var sonur hjónanna Ágústs Bjarna Björnsson- ar, fæddum í Neðri- Þverá í Húnaþingi vestra 8. september 1922, d. 24. október 1988, og Unnar Kjartansdóttur, fæddri í Fremri-Langey á Breiðafirði 25. febrúar 1930, d. 23. mars 2011. Systkini Hreins eru: 1) Björn Árni, f. 1950, kvæntur Þuríði Magnúsdóttur. 2) Einar, f. 1953, kvæntur Unni Helgu Péturs- dóttur. 3) Kjartan, f. 1957, kvæntur Þóru Sigríði Ingimund- ardóttur. Þann 19. september 1970 kvæntist Hreinn eiginkonu sinni, Dóru Jónsdóttur, f. í Reykjavík 12. maí 1951. Hún er dóttir hjónanna Jóns Guðjóns- sonar, f. 5. ágúst 1910, d. 6. ágúst 1992, og Sigríðar Sveins- dóttur, f. 20. júní 1914, d. 8. september 1995. Börn Hreins og Dóru eru: 1) Jón Ágúst, f. 6. maí 1970. tengdu, m.a. hjá Ingvari & Gylfa þar sem hann hafði einnig unnið sem nemi. Hreinn stofn- aði og rak fyrirtækið Gásar ásamt vini sínum Ólafi Mort- hens árið 1979. Frá árinu 1989 vann hann þá við ýmis störf tengd byggingariðnaðinum, m.a. hjá Scanex og Húsasmiðj- unni. Árið 2005 gekk Hreinn til liðs við son sinn Örn við rekstur Hamborgarabúllunnar á Geirs- götu. Saman ráku þeir feðgar síðar fleiri útibú fyrirtækisins, meðal annars í Kaupmanna- höfn. Árið 2013 stofnaði hann ásamt Jóni syni sínum Kaffi- brennsluna á Laugavegi, auk þess sem þeir ásamt fleirum komu nýlega að stofnun veit- ingastaðarins Ráðagerðis á Sel- tjarnarnesi. Hreinn og Dóra hófu búskap sinn á Hraunteign- um og bjuggu síðar í Háaleiti. Árið 1985 byggðu þau sér íbúð- arhús að Vesturási í Árbænum þar sem þau bjuggu æ síðan og ræktuðu garðinn sinn. Hreinn hélt alltaf góðu sambandi við æskuvini sína og mat vinskap- inn mikils. Hittust þeir reglu- lega yfir spilamennsku og fóru í veiðiferðir en Hreinn hafði mik- inn áhuga á veiði. Hann kenndi börnum sínum ungum að una þess að standa úti í á að veiða og öll sumur sameinaðist fjölskyld- an í þessu áhugamáli sem voru Hreini dýrmætar stundir. Útför Hreins fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 6. desember 2022, klukkan 15. Hann er kvæntur Aðalbjörgu Reynis Eðvarðsdóttur, f. 17. maí 1973. Sonur þeirra er Kolbeinn Ágúst, f. 23. ágúst 2010. 2) Örn, f. 23. júlí 1975. Hann er kvæntur Auði Þór- hallsdóttur, f. 6. ágúst 1974. Sonur þeirra er Dagur Nói, f. 16. febrúar 2010. Sonur Arnar og Auðar Guðjónsdóttur er Atli Viðar, f. 22. ágúst 2000. Sonur Auðar er Bjarki Björg- vinsson, f. 21. maí 1992, kvænt- ur Stefaníu Þorsteinsdóttur. Börn þeirra eru Eik, f. 19. júní 2014, og Björk, f. 8. september 2017. 3) Edda, f. 29. febrúar 1988. Hreinn ólst upp á Kleppsvegi og síðar í Hvassaleiti í Reykja- vík, en varði mörgum sumrum hjá ömmu sinni og afa í Fremri- Langey. Þaðan átti hann æsku- minningar sem hann gjarnan rifjaði upp í frásögnum sínum. Hreinn var lærður húsgagna- smíðameistari frá Iðnskólanum í Reykjavík þaðan sem hann út- skrifaðist árið 1975. Hann vann í mörg ár við hin ýmsu störf því Það ættu allir að eiga pabba eins og þig. Svona er lífið er sagt við mann er einhver deyr en það er samt skrýtið að missa þig. Pabba sem stendur með manni í gegnum lífið, alltaf til í að hjálpa manni í gegnum allt, til í hvað sem er, ýtti mér lengra en maður þorði og alltaf til í að taka slaginn með manni. Allar hugmyndir bakkaðar upp sem settar voru á borðið, bæði slæmar sem góðar og þær rökræddar. Til dæmis þegar ég var strákur á Háaleit- isbrautinni var ég að búa til ára- mótabrennur og þær urðu aðeins of stórar, þá fór hann í málið að sækja um leyfi og koma þeim í gegn. Svona hefur þetta gengið allt okkar líf. Maður gengur í gegnum lífið með pabba sem þú getur rifist við, grátið með og unnið með. Þú bakkaðir mig allt- af upp og því gleymi ég aldrei. Kveðja, Jón Ágúst (Nonni). Elsku besti pabbi minn. Þetta er svo sárt, en það eina sem ég get hugsað um er hvað ég er heppin. Ég er svo heppin að hafa átt þig sem pabba. Síðastliðið ár er búið að vera erfitt, en ekki leiðinlegt. Því það var aldrei leiðinlegt með þér og alltaf stutt í bros og hlýju. Þetta var jú bara eitt verkefni í viðbót sem þurfti að leysa, og við mynd- um gera það saman og gera það vel. Því það var það sem þú gerð- ir; þú leystir vandamálin með þínu einstaka viðhorfi. Hvort sem það var með því að draga fram blað og penna, hringja í mann og annan eða bara einfaldlega benda á að það væri ekkert vandamál til staðar og minna mann á að njóta. Og í því varstu eiginlega best- ur, að njóta þess sem lífið býður upp á. Að standa í Frúarhylnum og kasta aftur og aftur og aftur þangað til hann loksins bítur á. Að hræra í pottinum og bæta við (og smakka!) þangað til sósan er orðin fullkomin. Að rækta fallega garðinn þinn og tína ber beint upp í munn. Að hækka í græj- unum og spyrja: veistu hver syngur þetta? Og syngja svo há- stöfum með og spila á borðið með pennanum. Þú varst besti stuðningsmaður sem hægt er að hugsa sér, og það er nánast óbærilegt að geta ekki lengur hringt í þig og fengið að heyra þína skoðun. Það vita það jú allir sem þig þekktu að þú gafst alltaf hreinskilið svar, og það sem betra var; þú hafðir allt- af rétt fyrir þér. Þú varst fararstjórinn í mínu lífi, og nú veit ég ekki hvert för okkar er heitið. Ég veit samt að þú verður alltaf með mér, í öllum litlu og stóru hlutunum sem þú kenndir mér að taka eftir og njóta. Fyrir það verð ég alltaf óendanlega þakklát. Takk fyrir mig. Þín Edda. Það er erfitt að koma sorginni og söknuði í orð. Heimurinn er tómlegur án þín enda var nær- vera þín stór og mikil. Dagur spurði mig hvort ég vissi hvert afi væri kominn núna. Ég gat ekki svarað því öðruvísi en að það viti jú enginn en svona sjái ég það fyrir mér: Það heyrist söngur og ég heyri ekki betur en það séuð þið Kim Larsen sem syngið, hvor með sínu nefi. Þú hefur hækkað í græjunum svo það heyrist al- mennilega í ykkur félögunum. „Livet er langt, lykken er kort./Salig er den, der tør give det bort,/dúrúrúú rúrúrúúú… Svo setjist þið niður saman yf- ir smørrebrød og ákavíti, tveir sixpensara-kallar sem skilja út á hvað lífið gengur. „Þetta snýst allt um að njóta,“ segir þú og Kim Larsen tekur undir það en bætir við: „Og það verður auðvitað enn skemmtilegra ef spiluð er góð tónlist, kannski Stones eða Bítl- arnir!“ Og af því að þið sitjið nú þarna saman þá segir þú honum frá því hvernig listáhugi þinn hafi kvikn- að á Kaupmannahafnarárunum hér í denn. Hvernig þú þræddir listasöfnin átján ára gamall og dáðist að verkunum, varðst upp- rifinn. „Já listin er ástríða,“ segir Larsen. En þú hefur reyndar ekki bara ástríðu fyrir listinni heldur fyrir lífinu sjálfu. Þú hefur þetta blik í auga, sem aðeins þeir hafa sem kunna að njóta lífsins. Og þá segir þú honum frá lífs- hlaupi þínu. Frá æskunni, sumr- unum sem þið Bjössi eydduð á Fremri-Langey, þar sem þú fórst á sjó með afa þínum og fékkst saltað selspik og stropuð sjófuglsegg hjá ömmu. Þú talar líka um vinskapinn og ástina. Dóru þína, börnin ykkar og barnabörn sem þið voruð svo stolt af. Fjölskylduna sem var þér allt. Þú gafst fólkinu þínu tíma, sýndir því sem þau tóku sér fyrir hendur áhuga og studdir við þau eins og þér einum var lagið. Og þú segir líka frá því hvernig þér tókst að kenna þeim að meta kyrrðina og njóta stundarinnar við árbakkann. Að lokum dregur þú fram ljósmyndabókina sem Edda þín gaf þér í jólagjöf. „Sjáðu, Kim, this is my life!“ seg- ir þú hreykinn og horfir á hann stíft með augun galopin til að leggja áherslu á orð þín. Og þau blika, augnablikum lífsins. „Vin- ur minn,“ segir Kim Larsen, „this is your time, fylgdu mér inn í ljós- ið, handan þess hefst nýtt ferða- lag líkt og þegar þú gekkst með henni ömmu þinni fjöruna, þar sem töfra getur rekið á land.“ Elsku tengdapabbi. Þannig hefst nýtt tímabil í sögu okkar allra. En þú fylgir okkur áfram í minningunni þar til hverju okkar verður gefinn sinn tími og hver veit hvert töfrarnir bera okkur þá. Með kærleika og þakklæti fyr- ir allt. Auður. Þegar kemur að kveðjustund er mér efst í huga þakklæti. Hreinsi bróðir ruddi fyrir mig brautina, kraftmikill og fjörugur strákur sem sá tækifærin alls staðar. Foreldrarnir kynntust í Reykjavík, pabbi komandi úr Vestur-Hópinu og mamma úr Langey á Breiðafirði, þetta var á þeim tíma þegar flóttinn úr sveit- um landsins var hvað mestur, at- vinnutækifæri eftirstríðsáranna voru mikil. Reykjavík var að breytast úr bæ í borg. Hófu ungu hjónin búskap á Kleppsvegi 108, bernskuár Hreins voru því í nágrenni Klepps ásamt öllu sem honum fylgdi, sem sé fjölbreytt mannlíf. Átta og níu ára gamlir bárum við út Moggann og Þjóðviljann í Kleppsholtinu, nokkuð þungur burður það fyrir litla drengi, en það var bjart fram undan, við vorum að safna fyrir hjóli, sem og gerðist, og verkið varð léttara, Hreinn byrjaði snemma að vinna fyrir sér. Öll sumur æskunnar undi Hreinn glaður í sveit hjá afa og ömmu í Langey á Breiðafirði. Lengi býr að fyrstu gerð er sagt, þar lærði Hreinn að hlutirnir yrðu að ganga hratt og vel fyrir sig, sjávarfallið lætur ekki bíða eftir sér, þannig að það fjari und- an. Eggjataka, leit að dún, sel- og fuglaveiði, þetta var spennandi og skemmtilegt í augum Hreins, maður lifandi, þetta mótaði allt líf hans síðar. Stangveiði með fjölskyldu og vinum var hans áhugamál, reynd- ar var hann minn skemmtilegasti veiðifélagi, fiskinn mjög, sá fisk- inn í ánni svo vel að það hálfa væri fullgott; þótt veiðin væri treg varð hann var, eða næstum því var, hélt með því spenningn- um á lífi. Á unglingsárum eftir mikla vinnu um jólin fékk Hreinn þá hugmynd að gaman væri að kaupa sjónvarp, þetta var tveim árum fyrir íslenska sjónvarpið, ég lagði í púkkið, en hvernig hon- um tókst að fá pabba með er mér óskiljanlegt, mann sem las bara Þjóðviljann að horfa síðan á Kanasjónvarpið! Góður! Hreinn hóf störf hjá Reykja- víkurborg eftir gaggó, það fyrsta sem hann fjárfesti í var plötuspil- ari, spilaði allar stundir Rolling Stones, Bítlana og þá frábæru tónlist þess tíma. Það var skemmtileg stund þegar við Þurý fórum með honum og okkar fjöl- skyldum til Köben á tónleika með Stones og síðar Paul McCartney, lifði hann sig inn í þá stund? Hvað heldur þú, maður. Matur og allt í kringum mat var sérstakt áhugamál hjá Hreini, það átti því vel við þegar hann og synir hans Jón Ágúst og Örn fóru í Búllu- og veitingageir- ann. Hreinn var mjög svo hreinskil- inn: „Menn verða að þola að heyra sannleikann, annars breyt- ist ekkert til góðs,“ var hann van- ur að segja, en Hreinn var líka fyrsti maður til að rétta viðkom- andi hjálparhönd. Hann fylgdist vel með öllu sem ættingjar og vinir voru að framkvæma, var hvetjandi, gaf góð ráð og lagði lið ef þess þurfti, allt fyrir ánægjuna og að fá að vera með. Jú, Hreinn var ákveðinn, vildi láta hlutina ganga, hafði líka húmor fyrir lífinu, alltaf tilbúinn að hjálpa, góður maður með stórt hjarta. Elsku Dóra, Jón Ágúst, Örn, Edda og ykkar fjölskyldur, sam- úðarkveðjur sendum við Bjössi bróðir og Þurý. Björn Árni Ágústsson og Þuríður Magnúsdóttir. Elsku Hreinsi frændi er far- inn. Svona sterkur karakter eins og hann er vandfundinn. Hann var með munninn fyrir neðan nefið og sagði nákvæmlega það sem honum fannst, þegar honum fannst. Hann var beinskeyttur og einstaklega góðhjartaður. Þegar ég var yngri var ég heppin að fá að vera af og til í pössun hjá Hreini og Dóru. Ég gisti í margar nætur í Vesturásn- um í góðu yfirlæti. Ég man hvað mér þótti það frábært að það var Hreinsi sem eldaði alltaf matinn, ég man nú ekki hvort mér þótti maturinn góður þá enda var ég sérstaklega matvandur krakki. Ég veit það reyndar í dag að mat- urinn hjá honum var 100% enda matmaður mikill. Ein minning um frænda er sterk, það var þegar Edda dóttir hans fæddist. Ég átti sjálf afmæli og veislan var í fullu fjöri þegar Hreinsi mætir með eina rauða rós handa mér og brosið var svo breitt. Stúlka var fædd. Fyrir ekki svo löngu kom frændi í heimsókn til að láta mig fá gjafir sem ég hafði gefið hon- um þegar ég var yngri. Þetta voru allt gríngjafir sem ég hafði gefið honum eins og t.d. fluga í klaka sem vel að merkja var al- veg nýtt fyrirbrigði þá og þótti einstaklega fyndið. Okkur þótti þetta að minnsta kosti mjög fynd- ið. Það er gaman að grínast, það var alltaf gaman að djóka og hlæja með Hreinsa. Elsku frændi hvíl í friði. Elsku Dóra, Nonni, Öddi, Edda og ykkar fjölskyldur inni- legar samúðarkveðjur. Unnur frænka. Ég get ekki annað en hugsað um Bítlana sem sungu um svart- þröstinn „blackbird fly, blackbird fly, into the light of a dark black night“ þegar þú heimsóttir mig í svefni rétt eftir að þú fórst yfir regnbogabrúna. Ég sé þig fyrir mér kinka kolli með sixpensarann og segja „hæ hæ“ með hljómþýðri röddu, eins og svo oft þegar þú kíktir á okkur á verkstæðið uppi í búð. Það var alltaf svo gaman að spjalla við þig, alltaf svo hress, léttur í lundu og traustur. Þú sýndir öllu áhuga og reddaðir hlutunum, hvort sem það var smíði, eða þú í eldhúsinu heima í Brekkubænum að sjá um matarkræsingarnar fyrir ferm- ingarveisluna mína og fylgdist grannt með byggingarfram- kvæmdum á heimili mínu, sem mér þótti afar vænt um. Margar góðar minningar renna upp í hugann. Það var allt- af svo gaman að koma í heimsókn til ykkar, bæði í Vesturásinn og blokkina á Háaleitisbrautinni, sem ég horfi alltaf til þegar ég keyri þar fram hjá. Þar sem ein krónan var pikkföst og límd kirfi- lega við gluggakistuna í herberg- inu hans Nonna, horfa á Sean Connery í James Bond og fá kók í gleri þegar maður fékk að gista. Þessar litlu alls konar stundir sitja í huga manns og hlýja manni um hjartað. Man líka svo vel eftir því að fá að fara með mömmu upp á fæðingardeild þegar auga- steinninn þinn, Eddan okkar, fæddist, og það á þessum heilla- degi, 29. febrúar, sem þær Unnur systir deila saman. Þvílík lukka að fá svo seinna meir að vera pössunarpía heilt sumar, rölta upp í Vesturás og gæta gullmol- ans þíns, og Öddi á kantinum allt- af að stríða okkur Eddu. Í gamalli 80’s-barnabók um mannslíkamann var hvítu blóð- kornunum lýst sem hvítum her- mönnum. Þessi mynd úr þessari gömlu bók situr alltaf föst í huga mér. Ég hélt alltaf sem barn að þeir væru góðu hermennirnir í líkama okkar. En of mikið af þeim er víst ekki gott eins og var í þínum líkama. En nú fá þeir að hvílast og þú sem yfirhershöfð- inginn ert floginn á burt inn í ljós- ið eins og „blackbird“ Bítlanna. Ég efast ekki um að þar sé Roll- ing Stones á fóninum og spilaðir hátt, þú dansandi eins og ég man svo vel eftir þér í brúðkaupinu hjá Magga bróður og dáðist að því hvað þú varst með taktinn á hreinu, einhver smá Helga Björns-töffara-ára yfir þér alltaf. Þú með pensil í hendi og að stúd- era myndlist. Rolling Stones sungu um villtu hestana „faith has been broken, Tears must be cried, Let’s do some living, After we die. Wild horses, couldn’t drag me away, wild, wild horses, we’ll ride them some day“. Það er þungbært að kveðja, en einhver smá huggun í því að segja bara „við sjáumst síðar hjá regnbogabrúnni“ þegar mínir hermenn, ekki þessir hvítu reyndar, eru orðnir of margir. Þá hækkum við í góðri bluegrass- tónlist. Elsku yndis Dóra mín, uppá- haldsfrændur Nonni og Öddi minn og elsku Eddugullið okkar. Þykir svo vænt um ykkur. Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Sendi ykkur styrk og ljós í hjart- að. Hreinsi ykkar er hjá ykkur í hjartanu, ég veit að hann passar upp á ykkur og fylgist með ykkur eins og honum var einum lagið. Eva frænka. Fallinn er frá minn elsti, besti og kærasti vinur, Hreinn Ágústs- son, og er mér mjög ljúft að minnast hans. Við Hreinn ólumst báðir upp í Hvassaleiti og vissum fyrst hvor af öðrum árið 1962. Á unglings- árum myndaðist svo vinskapur okkar á milli sem þroskaðist og endaði sem mjög kær trúnaðar- vinskapur öll okkar fullorðinsár. Þegar við Unnur mín tókum saman urðu hún og Hreinn einn- ig góðir vinir og var mikill sam- gangur á milli fjölskyldna okkar alla tíð. Hreinn fylgdist ávallt mjög náið með lífi barna minna og fjölskyldna þeirra og mynd- aðist með þeim vinskapur sem þeim þótti afskaplega vænt um og mun aldrei gleymast. Líf okkar Hreins var alla tíð mjög samofið, bæði í leik og starfi. Við stofnuðum saman inn- réttinga- og smíðafyrirtækið Gása árið 1979 og unnum þar saman í tíu ár. Síðar unnum við Hreinn saman hjá H.G. Guðjóns- son í eitt ár. Þegar ég síðan opn- aði innrömmunarverkstæði á Grandanum fyrir níu árum hitt- umst við Hreinn enn á ný í rekstri því hann leigði mér hús- næðið. Betri, skemmtilegri og sanngjarnari leigusala gat ég auðvitað ekki hugsað mér. Ánægjulegast var þó að fá hann nánast daglega til mín í morg- unkaffi á verkstæðið þar sem við fórum yfir málin. Nú er hætt við að það verði tómlegra á morgn- ana hjá mér. Þá höfum við fjórir félagar, ég, Hreinn, Björn bróðir hans og Einar Jónsson, hist reglulega yf- ir vetrartímann í 55 ár. Upphaf- lega spiluðum við vist en breytt- um fljótlega yfir í bridds. Þessir vinafundir spilaklúbbsins voru fastur punktur í lífi okkar allra, treysti vináttu okkar og voru okkur öllum mjög kærir. Til þessara stunda mun ég ávallt hugsa með hlýju. Helstu áhugamál Hreins, utan fjölskyldunnar, voru stangveiði, tónlist og myndlist. Hreinn veiddi í áratugi með Dóru sinni og börnum. Við félagarnir, konur og börn, fórum svo á árum áður í margar góðar veiðiferðir um land allt þar sem gleðin var alltaf við völd. Á hverju sumri bar svo hæst hjá Hreini hinn árlegi veiði- túr í Vatnsá í Vík í Mýrdal með fjölskyldunni, en þar þótti hon- um sérstaklega gaman að kenna sonarsonum sínum réttu hand- tökin. Þá fór hann mikið á tón- leika bæði hér heima og erlendis og sótti myndlistarsýningar og átti Hreinn mikið af góðri mynd- list. Árið 2005 breytti Hreinn um kúrs og keypti, ásamt fjölskyldu sinni, Hamborgarabúllu Tómas- Hreinn Viðar Ágústsson Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HÖGNA ÞÓRÐARSONAR fv. bankaútibússtjóra, áður til heimilis á Ísafirði, fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtu- daginn 8. desember klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Streymi frá athöfninni er hægt að nálgast á www.mbl.is/andlat, eða á https://youtu.be/Xl6QHnbQnwE Kristrún Guðmundsdóttir Hörður Högnason Una Þóra Magnúsdóttir Þórður Högnason Jolanta Högnason Kristín Högnadóttir Sigurður A. Þóroddsson Guðmundur Kr. Högnason Judy-Ann Norton barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.