Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 06.12.2022, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 ar við Geirsgötu. Síðan þá hefur búllunum fjölgað um þrjár auk þess sem Kaffibrennslan og Ráðagerði hafa bæst við. Hreinn hafði mjög gaman af þessum rekstri og gengur hann vel. Hreinn var góður drengur og mikill fjölskyldumaður. Hans helstu kostir voru að hann var allt í senn skemmtilegur, dugleg- ur, sanngjarn og mjög hjálpsam- ur. Umfram allt var hann þó ein- stakur vinur til 60 ára. Við Unnur og fjölskyldan öll vottum Dóru, Jóni Ágústi, Erni, Eddu og þeirra fjölskyldum okkar dýpstu samúðarkveðjur og vonum að þau geti yljað sér yfir öllum þeim góðu minningum sem þau eiga um Hrein og líf þeirra saman. Ég mun sakna Hreins svo lengi sem ég lifi en hugga mig við ótal minningar um góðan dreng og einstaka vináttu. Vertu sæll minn besti vinur. Ólafur Morthens. Öðlingurinn, vinurinn okkar kæri, Hreinn Viðar Ágústsson, hefur lokið göngu sinni og kvatt jarðvistina svo alltof fljótt. Það er sárt að fá slíkar fréttir en um leið fyllist hugur skemmtilegum minningum frá áratuga samferð og vináttu. Hreinn bjó yfir litríkum per- sónuleika, var gleðigjafi mikill, eldhugi sem fylgdi hugmyndum sínum eftir alla leið, staðfastur, leiðtogi góður, listhneigður og hreinskiptinn. Hann kunni og fór vel með allar þessar ríkulegu vöggugjafir. Það er mikið lán að eiga góðan vin og félaga í áratugi. Þannig er og hefur vinátta þeirra félaga, Hreinsa, Óla, Bjössa og Einars, verið allt frá árunum 1965, 1967 til þessa dags. Fyrir 55 árum hóf- ust bridge-spilakvöld þeirra fé- laga og fimmtudagskvöld urðu fyrir valinu, sem í þá daga voru sjónvarpslausir dagar. Til að byrja með var spilað bridge hvern fimmtudag, síðar annan hvern en seinni árin lengdist á milli spilahittings eftir aðstæð- um. Spilakvöldin hafa alltaf verið á sama vikudegi eða fimmtudegi öll þessi ár og ávallt verið glatt á hjalla hjá þeim félögum. Hreinn var vinur, vinnufélagi, spilafélagi og veiðifélagi. Nokkr- um sinnum á lífsleiðinni unnum við (Einar) Hreinn saman og þeim tíma fylgja góðar minning- ar sem aldrei bar skugga á. Kynni okkar vinkvenna, Þurýjar, Unnar, Dóru, Jessýjar, hófust á árunum 6́5 til 6́9, þegar leiðir okkar lágu saman inn í stráka- hópinn góða. Eitt af öðru festum við ráð okkar, hófum búskap og börnin komu í heiminn eitt af öðru. Börn okkar vina þekkjast vel allt frá barnæsku og margir gleðidagar koma upp í hugann frá langri samleið okkar allra. Öll erum við lánsöm hvort með ann- að og afkomendur okkar. Hreinn hefur lengi haldið eins konar dagbók yfir hina ýmsu dagsviðburði. Bókin er hið besta uppflettirit til staðfestingar ým- issa samskipta, vinnutengdum og ekki síst í veikindaferli og spítalalegum. Frásagnir hans úr bókinni mögnuðu eru margar bæði fróðlegar og bráðskemmti- legar, eins og vænta má frá hon- um. Hann var hreinskiptinn og þannig vildi hann hafa svörin sem hann leitaði eftir. Hann var vel að sér í öllu sem viðkom veik- indaferlinu. Hreinn hefur barist af miklu æðruleysi við illvígan vágest í rúmt ár. Hann stóð ekki einn í baráttunni, en Dóra hefur staðið sem klettur við hlið hans og vart hægt að minnast á annað án hins svo þétt stóðu þau saman. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra elsku Dóra, börn, tengdabörn og barnabörn. Vertu kært kvaddur mikli gleðigjafi. Einar Jónsson, Jensína R. Ingimarsdóttir (Jessý), Jón, Sigríður Erla og Einar Markús. ✝ Stefán Hinrik Stefánsson fæddist í Reykjavík 4. júní 1959. Hann varð bráðkvaddur á vinnustað sínum 24. nóvember 2022. Foreldrar hans voru hjónin Krist- jana Ragnarsdóttir, f. 24. október 1930, d. 6. maí 1990, og Stefán Guðmunds- son, f. 6. ágúst 1927, d. 19. októ- ber 2003. Systkini Stefáns eru Sveinbjörn, f. 1948, maki Ásta B. Eðvarðsdóttir, f. 1948. Arn- þór, f. 1949, maki Sigurrós, f. 1961. Ragnheiður, f. 1951. Anna Stefán fæddist og ólst upp í Bústaðahverfinu í Reykjavík en fluttist á Akranes 1979 og bjó þar alla tíð síðan. Stefán lauk hefðbundinni skólagöngu og vann ýmis störf áður en tvítugsaldri var náð en lauk síðan námi í rafvirkjun frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi og vann við fag sitt alla ævi. Fyrst hjá Sements- verksmiðju ríkisins á Akranesi, síðan hjá Straumnesi ehf. á Akranesi og eftir það hjá GTT ehf. á Grundartanga við störf fyrir Íslenska járnblendifé- lagið. Árið 2013 byrjaði hann að starfa sem rafvirki í Noregi, fyrst hjá Ístaki og síðan hjá Valdres. Í maí 2022 hóf hann síðan störf hjá Hval hf. í Hval- firði. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju í dag, 6. desem- ber 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. Jóhanna, f. 1953, maki Ólafur J. Pálsson, f. 1958. Erna Dagbjört, f. 1956. Guðmundur Birgir, f. 1957, maki Nanna Björg Benediktz, f. 1959. Hans Helgi, f. 1963, d. 2020. Hólm- fríður, f. 1964. Hrafnhildur, f. 1966, d. 2022. Hinn 29. maí 1991 giftist Stef- án Salvöru Guðmundsdóttur, f. 7. mars 1959, en þau höfðu áður búið í óvígðri sambúð frá árinu 1977. Sonur þeirra er Hafliði, f. 3. apríl 1996. Nú er elsku Stebbi bróðir búinn að kveðja, ekki áttum við von á því að þetta myndi skella á okkur. Við erum nú búin að kveðja tvö yngri systkini á tveimur árum og nú Stebbi. Það eru margar góðar minning- ar sem við fjölskyldan getum yljað okkur við, Stebbi alltaf kátur og svolítið stríðinn. Og þegar stórfjöl- skyldan hittist í Ásgarðinum, sem var nú eins og félagsheimili, þá var mikið hlegið. Stebbi var svo heppinn að hitta hana Söllu sína í Hnífsdal og þau eignuðust Hafliða, þennan flotta strák. En þessa kveðju látum við duga og þökkum Stebba fyrir góð- ar samverustundir. Það er mikill missir hjá Hafliða og Söllu sem sakna föður og eiginmanns. Elsku Stebbi. En komið er að leiðarlokum og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Sveinbjörn og Ásta. Elsku Stebbi frændi. Það er erf- itt að trúa því að þú sért farinn, hláturmildi, skemmtilegi og yndis- lega góði frændi minn. Síðustu daga hafa minningarnar streymt fram og ég ýmist brosað eða jafn- vel hlegið í gegnum tárin. Manstu þegar þú hringdir í mig fyrir ansi mörgum árum og sagðir: Jæja frænka, þú ert mesta pæjan sem ég þekki og mig vantar að kaupa jakkaföt, kemurðu með í Kringl- una? Ég hélt það nú, við fórum saman og dressuðum þig upp en þegar kom að því að borga, þá föln- aðir þú yfir reikningnum en ég bara skellihló. Einhverjum árum síðar hittumst við við hátíðlegt til- efni og þú í fötunum dýru og ég hafði á orði hvað þú værir fínn og hrósaði þér fyrir að vera nota fötin enn. „Eygló mín, ég ætla að nota þau að eilífu því þau voru svo helv… dýr,“ sagðirðu skellihlæj- andi. Þegar kom að því að ég fengi að kjósa í fyrsta sinn fór ég með ykkur Söllu að kjósa og þú laum- aðir því að mér hvað ég ætti að kjósa en ég fussaði og sveiaði yfir vali þínu og sagðist alls ekki kjósa þennan flokk en þegar inn í kjör- klefann var komið þá að sjálfsögðu kaus ég það sem þú lagðir til þótt ég hafi ekki viðurkennt það fyrir þér fyrr en löngu seinna. Þau voru ófá skiptin sem ég lagði leið mína upp á Skaga þegar ég var yngri til ykkar Söllu. Þá var Akraborgin tekin á föstudegi og gist yfir helgi því ferðalagið var langt og tók því ekki að stoppa stutt. Alltaf tókuð þið Salla mér opnum örmum og maður fann hvað maður var vel- kominn til ykkar, enda bæði með eindæmum hjartahlý. Elsku Stebbi, það er væntanlega glatt á hjalla og mikið hlegið í drauma- landinu núna hjá ykkur systkinun- um og ömmu og afa. Ég bið allar góðar vættir að vaka yfir Söllu þinni og Hafliða þín- um. Hvíldu í friði frændi minn. Eygló. Elsku Stebbi frændi. Það er vissulega alltaf erfitt að kveðja fólkið sitt en þegar það er tekið svona fyrirvaralaust þá er það svo óraunverulegt, ósanngjarnt og sárt. Stebbi á sérstakan sess í mínu hjarta. Þannig var það að þegar ég var sjö ára gömul veikist Anna Lísa systir mín og deyr, þá fimm ára gömul, og það er óhætt að segja að þá hafi Stebbi og Salla tekið á móti mér með opinn faðminn. Ég dvaldi hjá þeim í a.m.k. tvær vikur þarna um vorið enda foreldrar mínir að takast á við stórt verkefni. Heim- sóknir á Skagann áttu eftir að verða stór og góður partur af minni æsku. Ég sótti mikið í að komast í hlýjuna á Skagann, hvert tækifæri var nýtt, helgarfrí, skólafrí og sum- arfrí, og alltaf var svarið já þegar ég hringdi og spurði hvort ég mætti koma um helgina. Í þá daga var Akraborgin nýtt til að ferðast til og frá Reykjavík og alltaf stóð Stebbi á bryggjunni með opinn faðminn og tók á móti litlu frænku. Svo tók annað gott faðmlag við þegar Salla kom heim úr bankan- um. Svo innilega góð í gegn bæði tvö. Það er nefnilega einfaldlega þannig að maður man svo vel hverjir láta manni líða vel og faðm- lag frá frænda var engu líkt, sterkt og gott. Minningarnar af Skagan- um eru svo margar góðar og þar kynntist ég líka fjölskyldu Söllu og urðum við Krissa miklar vinkonur. Það kom því ekki annað til greina en að hún fengi líka að gista þegar ég kom á Skagann, og ég gisti hjá henni, keyptum okkur franskar, hlustuðum saman á Madonnu og Whitesnake og ég reyndi að herma eftir töffaranum sem hún vinkona mín var. Þegar leið á unglingsárin leiddist Stebba ekki að koma inn í herbergi með vakningaþjónustu, enda klukkan eflaust að ganga há- degi, kallaði góðan dag á meðan hann barði í pott eða eitthvað sem gaf góðan hljóm og fór svo fram skellihlæjandi okkur vinkonunum til mikils ama. Krissa kvaddi okkur sumarið 1998, blessuð sé minning elsku vinkonu minnar. Á Skaganum var dekrað við mann allar stundir, súkkulaðikaka með bananakremi var í sérstöku uppáhaldi og ísköld mjólk með. Eft- ir að ég varð sjálf fullorðin er alltaf gott að kíkja við á Skagann og finnst mér sumarið hreinlega hálf- ómögulegt ef það ferst fyrir að ná heimsókn til Stebba, Söllu og Haf- liða. Það var gott að ná stund sam- an í sumar þar sem við ræddum saman heima og geima og hann sagði ofur stoltur frá dugnaði Haf- liða í námi. Elsku Stebbi, ég er svo þakklát fyrir dýrmætar minningar, takk fyrir allt. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varst þú kallaður á örskammri stundu í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr en örlög þín ráðin – mig setur hljóða við hittumst ei aftur á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ók.) Elsku Salla og Hafliði, sendi ykkur hlýja strauma og mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Aldís. Stefán Hinrik Stefánsson Amma Elín hef- ur alltaf haft sterka nærveru í mínu lífi. Þegar ég fæddist var hún 50 ára og höfum við því fylgst að á stór- afmælisárum. Af augljósum ástæðum verður þó ekkert af sameiginlegri 100 og 50 ára stór- afmælishátíð árið 2031 eins og við göntuðumst stundum með. Í bernsku varði ég miklum tíma hjá ömmu og afa. Bæði í heimsókn með fjölskyldunni og í pössun hjá þeim. Það var alltaf gaman að heimsækja ömmu í vinnuna á saumastofuna Fasa. Töfrandi var að horfa yfir fullan sal af saumakonum sitja við saumavélar. Það var skemmti- legur gamaldags verksmiðju- blær sem þar sveif yfir vötnum. Ég og aðrir í fjölskyldunni fengum heldur betur að njóta hennar einstaka hæfileika við saumavélina. Mörg sparifötin voru saumuð á okkur bræður. Heimasaumuð föt af öllum gerð- um, bæði á fólk, dúkkur og bangsa. Ólíkt okkur bræðrum pössuðu sumir bangsarnir betur upp á fötin sín, og enn eru til bangsar klæddir í heimasaumuð föt frá ömmu Elínu. Marrið í gömlu saumavélinni í Álftamýri er samofið fallegum minningum mínum um ömmu og þennan tíma. Ekki var nú minni húsmæðra- bragurinn í eldhúsinu. Stálheið- arlegur íslenskur heimilismatur. Sérstaklega verður að fjalla um kjöt í karrí sem amma útbjó. Þetta gamla góða heiðarlega kjöt í karrí upp á gamla móðinn, sem ómögulegt virðist að fá nokkurs staðar í dag. Amma kunni einnig þá list sem nauð- synleg er í allri matargerð; að hafa nóg af sósu. Amma og afi voru líka dugleg að koma í heimsókn á æsku- Elín Magnúsdóttir ✝ Elín Magn- úsdóttir fædd- ist 23. maí 1931. Hún lést 17. nóv- ember 2022. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. heimili mitt. Oft um helgar og var þá alltaf komið við í bakaríi á leiðinni og auðvitað passað að hafa nóg. Snúðar og bakkelsi var ljúfur morgunverður fyrir mig ungan og fé- lagsskapurinn enn betri. Ég minnist þessara helgar- morgna með mikilli hlýju. Eftir að árin færðust yfir og amma var flutt á Lindargötuna var áfram alltaf gott að heim- sækja hana. Við Kata heimsótt- um hana reglulega og alltaf var hún jafn himinlifandi að sjá okk- ur og sérstaklega börnin. Henni fannst ekkert betra en bara að maður liti inn og fengi kaffi og krakkarnir eitthvað óhollt og sætt, sem þau, eins og ég forð- um, kunnu vel að meta. Þó að amma Elín hafi verið saumakona mestalla sína starfs- ævi held ég að hennar sanna ævistarf hafi verið að vera amma. Ég ætla allavega að ganga út frá því. Þessi síðustu fjórtán ár á Lindargötunni voru henni góð. Hún var þá í fullu starfi í ævi- starfinu sem amma, á milli þess sem hún fékk sér göngutúra um miðborgina. Það er söknuður að því að kíkja í kaffi til ömmu Elínar á Lindargötuna þegar maður gengur um miðbæinn, en það voru einstök forréttindi að hafa á því kost fram yfir 91 árs af- mælið hennar og rúmlega það. Það eru forréttindi að hafa átt ömmu Elínu að sem þessa elsku- legu hlýju ömmu fram yfir fer- tugt og að hafa verið þátttakandi í hennar lífi svona lengi, og hún í mínu. Að hafa fengið að kynna eiginkonu og börnin sín fyrir henni og að hún hafi verið þeim sama elskulega amman og hún var mér. Elsku amma mín, við söknum þín. Við erum þér þakk- lát. Minningin um þig mun lifa áfram með okkur alla tíð. Takk elsku amma Elín. Elís Rúnarsson. Ástkær vinur, eiginkona og móðir, systir og mágkona, HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR, fv. söluráðgjafi, lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni 28. nóvember. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 12. desember klukkan 15. Helgi Agnarsson Lísa Dögg Helgadóttir Kristmundur Guðmundsson Margrét Kristjánsdóttir Bryndís Guðmundsdóttir Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa HARÐAR VILHJÁLMSSONAR fyrrverandi fjármálastjóra Ríkisútvarpsins Hegranesi 30, Garðabæ. Hólmfríður B. Friðbjörnsdóttir Hjördís Harðardóttir Örn Sveinsson Margrét Harðardóttir Steve Christer Ragnheiður Harðardóttir Jón Sch. Thorsteinsson Sigrún Harðardóttir Andrew Clarke Hildur Harðardóttir Þórður Orri Pétursson og barnabörn Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, BJÖRN TRYGGVI GUÐMUNDSSON Bjargi, Skólabraut 10, lést mánudaginn 28. nóvember. Útför hans fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 8. desember klukkan 11. Guðrún Guðmundsdóttir Þórir Kristmundsson Steinunn E. Guðmundsdóttir Kristín Guðmundsdóttir Gísli Viggósson Kolbeinn Guðmundsson Árný V. Ingólfsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, STEINUNN JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR, Óðinsgötu 23, lést á Hrafnistu við Sléttuveg miðvikudaginn 23. nóvember. Útför hennar fer fram þriðjudaginn 13. desember klukkan 13 frá Dómkirkjunni. Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Gullfossi fyrir ómetanlega umönnun og kærleik. Ásgeir S. Hallgrímsson Ásgeir H. Ásgeirsson Guðný Rós Sigurbjörnsdóttir Björg A. Ásgeirsdóttir Davíð Örn Ingason Karólína V. Ásgeirsdóttir Majid Zarei Árni S. Ásgeirsson Sigríður Inga Pálsdóttir Sigurrós, Júlíus, Ástrós, Aldís, Elías, Steinþór, Ásbjörn og Freyja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.