Morgunblaðið - 06.12.2022, Síða 22

Morgunblaðið - 06.12.2022, Síða 22
Minningar MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Raðauglýsingar Vantar þig fagmann? FINNA.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning 21x125mm, panill 10x85mm, pallaefni 21x145mm, 21x140, 90x21mm, útihurðir 5,4cmx210cm (80,90 og 100cm) o.fl. Eurotec skrúfur, Penofin og Arms- trong Clark harðviðarolíur. NÝKOMIÐ BANKIRAI HARÐVIÐUR 21X145MM VERÐ 1.950 KR LENGDARMETERINN slétt beggja megin fasað og ofnþurrkað. Lengdir frá 2.44 metrar upp í 5,50 metrar. Upplýsingar hjá Magnúsi á magnus@vidur.is og í símum 6600230 og 5611122, og frá 10-14 á Indus ,Óseyrarbraut 2 Hafnarfirði. Ýmislegt Bílar Nissan Leaf Tekna 40 kWh. 2/2022 ekinn aðeins 4.500 km. Flottasta typa með leður og rússkinssætum og öllum fáanlegu aukabúnaði. Evrópu bíll í ábyrgð. Eini 2022 bíllinn til sölu á landinu í dag ! Verð 4.980.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12, allskonar efniviður í boði. Botsía kl. 10.15. Jafnvægisæfingar kl. 11.15. Postulínsmálun kl. 12.30. Tálgað í tré kl. 13. Kaffi kl.14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411- 2702. Verið velkomin. Árskógum 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Milan kl. 10. Erlent handverksfólk kl. 10-12. Bókakynning kl. 10.45. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45- 15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Boðinn Pílukast kl. 9. Brids og kanasta kl. 13. Sundlaug opin til kl. 16. Bústaðakirkja Opið hús frá kl. 13-16 á miðvikudag. Sagan á bak við sálminn, slökun. Kaffið góða frá Sigurbjörgu á sínum stað. Gestur dagsins er Steinn Kárason rithöfundur og les upp úr bók sinni ,,Glað- lega leikur skugginn í sólskininu”. Fella- og Hólakirkja Eldri borgara starf alla þriðjudaga kl. 12. Byrj- um með helgistund í kirkjunni kl. 12 og eftir það er farið í safnaðar- heimilið í súpu og brauð og dagskrá þar á eftir. Allir hjartanlega vel- komnir. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Bónusrútan kl. 13.10. Dansað með göngugrindurnar kl. 13.15-14.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30- 15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 9 Qi-gong í Sjálandsskóla, kl. 9-12 tésmíði í Smiðju, kl. 10 ganga frá Jónshúsi, kl. 11 stóla-jóga í Sjálandsskóla, kl. 12.15 leikfimi í Ásgarði, kl. 13-16 trésmíði í Smiðju, kl. 13.10 botsía í Ásgarði, kl. 13.45-15.15 kaffiveitingar í Jónshúsi, kl. 14.15 / 15 línudans í Sjálandsskóla. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Listaspírur kl. 13–16. Bókband kl. 13–16. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja Í dag, þriðjudaginn 6. desember verður opið hús kl. 13-15 fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Eldri borgara starfið í Fella- og Hólakirkju kemur í heimsókn. Við munum spila, spjalla og syngja. Að opna húsinu loknu verður boðið uppá kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Kristín Kristjánsdóttir djákni. Kyrrðarstund er kl. 12. Að kyrrðarstund lokinni eru léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Verið vel- komin! Guðríðarkirkja. Félagsstarf eldri borgara og bingó á morgun, mið- vikudaginn 7. desember kl. 12. Helgistund, fyrirbænir og söngur. Hægt verður að koma fyrirbænaefni til prestsins. Matur í Safnaðar- heimiliu 1300 kr. Síðan spilum við bingó, sjaldið kostar 300 kr. stk. Flottir vinningar. sr. Leifur, Lovísa og Helgi. Gullsmári Námskeið í vef- og tæknilæsi: Android kl. 9.30-11.30. Apple kl. 13-15. Myndlist kl. 9. Kanasta kl. 13. Leikfimi kl. 13. Leshópur kl. 20. Guðni Ágústsson les úr bók sinni, allir velkomnir. Hraunsel Billjard kl. 8-16, dansleikfimi kl. 9, Qi-gong kl. 10, brids kl. 13. Korpúlfar Borgum Listmálun kl. 9, botsía kl. 10. Helgistund kl. 10.30. Leikfimihópur í Egilshöll kl. 9.30 og kl. 11. Spjallhópur í Borgum kl. 13. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Kaffispjall í setustofu kl. 9-10. Búta- saumshópur í handverksstofu kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Jólabíó (Love Actually) kl. 12.45-14.30 og síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :) Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. kaffikrókur á Skólabraut kl. 9. Pútt og léttar styrktaræfingar í aðstöðu Nesklúbbsins á Austurströnd 6, kl. 10.30. Allir velkomnir. Karlakaffi í safnaðar- heimilinu kl. 14. Örnámskeið; roð / leður á neðri hæð félagsheimil- isins kl. 15.30. Ath. Næstkomandi fimmtudag 8. desember verður jólabingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Móðir okkar Sig- ríður Dagmar Jóns- dóttir, oftast kölluð Dagga, var fædd í Fagranesi á Langa- nesi 6. desember 1922, en flutti ung að Syðri-Grund (áður Blakksgerði) í Svarfaðardal með foreldrum sín- um, Jóni Þorsteinssyni frá Blika- lóni í Presthólahreppi, og Sigrúnu Sigurðardóttur frá Grund í Svarf- aðardal ásamt systkinum sínum, sem voru sjö talsins. Mamma hafði strax mikinn hug á að mennta sig. Til er frá- sögn af því úr viðtali við Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón í blaðinu Norðurslóð, en þar segir hann frá því þegar bræður mömmu komu með hana í striga- poka í skólann í stórhríðarveðri og hvolfdu úr pokanum inn á borðstofugólfið. Mamma var 12 ára þegar heimili hennar í Blakksgerði brann í jarðskjálftanum mikla 1934 og rétt 17 ára þegar faðir hennar lést úr lungnabólgu. 17 ára fór hún til Reykjavíkur í Verzlunarskóla Íslands og eftir það vann hún í Iðnaðarbankanum Dagmar Jónsdóttir ✝ Dagmar Jóns- dóttir fæddist 6. desember 1922. Hún lést 5. maí 1983. á Akureyri. Eftir því sem við best vitum var hún fyrst kvenna þar til þess að starfa sem bankamaður. Gam- all samstarfsmaður hennar kvað svo fast að orði þegar hann sagði: „Hún mamma ykkar braut á bak aftur karlaveldið í bankanum.“ Mamma flutti síðan til Reykja- víkur, kynntist og giftist pabba okkar, Haraldi Ágústssyni húsa- smíðameistara, og stuttu seinna fæddist Rannveig, 1954, síðan Sigrún, 1955, Helga 1957 og svo Dagmar árið 1964. Í dag eru af- komendurnir orðnir 36. Þau byggðu hús á Rauðalæk 22 og þar ólumst við systurnar upp. Rauðilækurinn var yndislegt hverfi og ófáar ferðirnar með mömmu í gömlu sundlaugarnar og seinna meir nýju. Á veturna var farið upp í Heið- mörk eða Bláfjöll um helgar með heitt kakó, smurt brauð og sleða og skíði og ófáar veiði- og tjald- ferðir til Þingvalla í pakkfullu rúgbrauðinu hans pabba. Mamma var jólabarn. Húsið var skreytt hátt og lágt, allir veggir og loft þvegin og svo voru bakaðar smákökur, tertur og laufabrauð. Heimili okkar var alltaf opið, oft kátt á hjalla og góðu vöfflurn- ar hennar mömmu landsþekktar. Mamma var heimavinnandi meðan við eldri systurnar vorum að komast á legg eins og tíðarand- inn var þá en eftir að sú yngsta byrjaði í barnaskóla hóf hún störf í Landsbankanum í Austurstræti ásamt því að vera virk í fé- lagsstörfum. Hún var mikil Sjálf- stæðiskona og vann ötullega fyrir sinn flokk. Eitthvað fækkaði útileguferð- unum því nú var haldið í sumarfrí til Spánar með saltfisk í fartesk- inu sem hún var óspör á að gefa stúlkunum sem þrifu herbergin. Það fyrirfundust varla hreinni herbergi eftir herlegheitin. Mamma var svo sannarlega á undan sínum samtíma, metnaðar- full í menntun og starfi og lagði mikið upp úr því að við systurnar værum sjálfstæðar og að við menntuðum okkur. Lífsglöð með bjartan hlátur sem smitaði úr frá sér. Hún var mjög smekkleg og bjó okkur hlýtt og fallegt heimili. Glæsileg kona sem bauð af sér mikinn þokka. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt yndislega æsku og dásamlega foreldra sem alla tíð voru svo ástfangin og samhent, mamma eldhugi og pabbi yfirveg- aður og rólyndur. Til hamingju með afmælið, elsku mamma. Minning þín lifir alltaf sem ljós í hjörtum okkar. F.h. Döggudætra, Sigrún Haraldsdóttir. ✝ Leif Kordtsen- Bryde fæddist 30. apríl árið 1940 á Selfossi. Hann lést 22. nóvember 2022 eftir langvinn veik- indi. Foreldrar hans voru Claus Peter Kordtsen Bryde, mjólkurbússtjóri, f. 1909 á Jótlandi í Danmörku, d. 1985, og Karen Elisabeth Christensen Bryde, f. 1912 á Norðvestur-Sjálandi í Danmörku, d. 2007. Foreldrar Leifs höfðu komið hingað til lands vegna vinnu og kynntust hér á landi. Faðir hans hóf störf sem bústjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna þar til þau fluttu í Hafnarfjörðinn en þar ráku þau Mjólkurbú Hafnar- fjarðar. Systkini Leifs eru Bent Kordt- sen Bryde, f. 1938, Inga Anna Lísa Bryde, f. 1942, og Axel Kordtsen Bryde, f. 1948. Dýrafirði og fór eftir það einn vetur í Menntaskólann í Reykja- vík. Eftir það fór hann í Loft- skeytaskólann þaðan sem hann lauk prófi árið 1959. Leif var loft- skeytamaður á Bæjarútgerðar- togaranum Ágústi frá Hafnarfirði á árunum 1960 til 1962. Þá vann hann við radíóviðgerðir á Kefla- víkurflugvelli á árunum 1962 til 1964 er hann réð sig til Landhelg- isgæslunnar. Þar starfaði hann sem loftskeytamaður á varð- skipum, flugvélum og stjórnstöð til ársins 1987. Árið 1987 var björgunarþyrlan TF-SIF komin í rekstur, sem krafðist sólarhrings vaktar á stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar. Loftskeytamennirnir voru þá teknir í land af skipunum og ráðnir sem varðstjórar á stjórnstöðina og jafnframt sem loftskeytamenn á gæsluflugvélina TF-SYN. Leif flutti með stjórn- stöð Landhelgisgæslunnar í Skóg- arhlíðina þegar hún sameinaðist Vaktstöð siglinga en hann gegndi stöðu vaktstjóra á stöðinni þá. Leif starfaði hjá Landhelgis- gæslunni fram til 67 ára aldurs en þá hafði hann starfað hjá gæsl- unni í 43 ár. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Leif kvæntist Amalíu Stef- ánsdóttur þann 10. nóvember 1962. Amalía er fædd 17. september 1941 í Hafnarfirði. Leif og Amalía náðu því að eiga demantsbrúð- kaup þann 10. nóv- ember 2022. Amalía og Leif eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Stefán, f. 1963, hann er giftur Ásdísi Helgadóttur og eiga þau Kristján Helga, Hákon Atla og Róbert Leif; 2) Anna María, f. 1967. Hún er gift Þórði Ingvarssyni og er sonur þeirra Ásgeir Bragi; 3) Unnur Lára, f. 1971, en hún er gift Stefáni Hjaltested og eiga þau Jóhannes og Amalíu. Leif átti fimm langafabörn: Al- exander, Emelíu, Stefán Helga, Fanneyju og Viktoríu. Leif lauk landsprófi frá Núpi í Hvernig skrifar maður minn- ingu um besta pabba í heimi? Orð verða alltaf fátækleg og ná aldrei að lýsa manninum eða þeim for- réttindum að fá að kalla hann pabba. Pabbi var fádæma rólegur og yfirvegaður, víðlesinn um alls kon- ar fróðleik og áhugaverða hluti hvort sem það var úr atburðum mannkynssögunnar eða skrítnar tilgátur og gátum við endalaust rætt saman um hluti sem enginn annar nennti að hlusta á. Ég var mikil pabbastelpa og þegar störfin hans voru þess háttar að hann var fjarverandi svo vikum skipti þá varð söknuðurinn mikill og erfiður enda var starf hans ekki hættu- laust á þeim árum. Pabbi átti far- sælan feril hjá Landhelgisgæsl- unni í yfir 43 ár sem loftskeytamaður og var það starf afar fjölbreytt, bæði á láði, lofti og legi á varðskipum, eftirlitsflugi með TF-SÝN og í stjórnstöð. Fer- illinn hjá Gæslunni var sérstakur á þessum árum og lenti pabbi þar í mörgum sögulegum og erfiðum atvikum, þorskastríðum á varð- skipum Gæslunnar, björgun í sjó- slysum, eldgosum og snjóflóðum ásamt því sem hann sá um vöktun landhelginnar o.fl. Þegar Surts- eyjargosið náði yfirborði sjávar árið 1964 þá náði pabbi einni af fyrstu myndum sem birtust af gosinu frá varðskipi Gæslunnar. Ein minning er mér mjög minn- isstæð úr æsku þegar við tókum á móti pabba á bryggjunni að koma í land eftir viðburðaríkan túr og sáum varðskipið stórlega laskað eftir árekstur við breska freigátu í þriðja þorskastríðinu. Slíkt situr í minninu og ég er alls ekki viss um að þjóðin hafi gert sér grein fyrir þeirri hetjudáð og hættu sem þessir menn lögðu á sig til að vernda fiskveiðilögsögu landsins okkar. Heimili okkar var alltaf opið öll- um og sjaldan vorum við þar ein- göngu við fjölskyldan því að ætt- ingjar og vinir voru alltaf velkomnir. Minnti heimilið stund- um á sveitaheimili með ys og þys sem því fylgdi. Mamma og pabbi voru bestu fyrirmyndir í sínu hjónabandi sem nokkur getur átt. Ást, virðing og jafnrétti eru gildi sem mér finnst best lýsa þeim enda unnu þau bæði mikið og verkaskipting milli hjóna alls ekki eins og ég sá á öðrum heimilum. Pabbi var jafnlíklegur og mamma til að vera með ryksuguna á flugi og hann var mjög liðtækur í eld- húsinu, mikill gourmet maður sem eldaði held ég aldrei sama rétt um ævina! Hann var endalaust að prófa ný krydd, nýtt grænmeti eða eldunaraðferðir. Ef systkini mín myndu fá að koma inn orði hér myndu þau segja að ég hefði verið fordekruð þar sem ég var yngst þeirra. Ég ætla bara að taka undir það enda of margar sannanir til sem sanna það, eins og þegar ég tók upp á mitt einsdæmi að panta hund eftir auglýsingu í DV, en þá bjuggum við á þriðju hæð í blokk. Mamma sagði mér að ég yrði að spyrja pabba, en til að gera langa sögu stutta þá varð púðluhundurinn Keli fyrsti hundurinn minn. Börn- in mín hafa líka verið svo heppin að amma og afi voru óþreytandi að passa þau, sjá um að sækja þau á leikskóla, keyra þau á æfingar og stundum bara flytja inn hjá mér til að sjá um heimilið þegar við þurft- um á að halda. Takk elsku pabbi fyrir að vera langbestur og ég lofa að við pöss- um mömmu fyrir þig. Þín Unnur. Leif Kordtsen Bryde

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.