Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 26

Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022 Eiður með ÍBV næstu þrjú ár Knattspyrnudeild ÍBV hefur framlengt samning sinn við fyr- irliðann og miðvörðinn Eið Aron Sigurbjörnsson út tímabilið 2025. Eiður sneri aftur til Eyja eftir sex ára fjarveru fyrir tveimur árum, tók þátt í að koma liðinu aftur upp í úrvalsdeild í fyrra og að halda sæti sínu þar á þessu ári. Eiður er 32 ára gamall og hefur leikið 181 leik í efstu deild með ÍBV og Val og spilaði sem atvinnumaður í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Fyrirliði Eiður Aron Sigurbjörns- son leikur áframmeð ÍBV. Setti Íslandsmet í Bandaríkjunum Langhlauparinn Baldvin Þór Magnússon setti Íslandsmet í 5.000 metra hlaupi innanhúss á Sharon Colyear-Danville-mótinu í Boston í Bandaríkjunum um helgina. Baldvin, sem er 23 ára, kom í mark á tímanum 14:01,29 mínútum og bætti um leið fimm ára gamalt Íslandsmet Hlyns Andréssonar um tíu sekúndur. Baldvin setti einnig Íslandsmet í 5.000 metra hlaupi utanhúss fyrr á árinu þegar hann hljóp á tímanum 13:32,47 mínútum. Ljósmynd/FRÍ Met Baldvin Þór Magnússon bætti Íslandsmetið um 10 sekúndur. Brasilíska listahátíðin AFP/Antonin Thuillier Samba Brasilíumenn fagna eftir að Richarlison skoraði þriðja markið sem var hápunktur sýningarinnar í fyrri hálfleiknum gegn Suður-Kóreu. AFP/Ina Fassbender Hetjan Króatar fagna Dominik Livakovic eftir að hann varði þrjár víta- spyrnur Japana og kom sínu liði í átta liða úrslitin á HM. lBrasilíumenn skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik og afgreiddu Suður-Kóreu lMæta Króötum í 8-liða úrslitumlKróatar nýttu reynsluna í vítakeppni HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eru Brasilíumenn líklegir til að vinna sinn fyrsta heimsmeistara- titil í fótbolta í tuttugu ár? Ef þeir halda áfram á sömu braut og í fyrri hálfleiknum í 4:1-sigrinum gegn Suður-Kóreu í gærkvöld, þegar þeir skoruðu fjögur mörk á 29 mínútna kafla, er svarið einfaldlega já. Þá gæti draumur þeirra um sjötta titilinn í sögunni hæglega ræst. Þeir fá þó mikla prófraun í átta liða úrslitunum á föstudaginn kemur þegar mótherjarnir verða grjótharðir og reyndir Króatar. Nú liggur líka fyrir að sigurliðið í viðureign Hollands og Argentínu mun mæta sigurliðinu í viðureign Brasilíu og Króatíu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í Katar. Brassarnir héldu hreinlega sam- basýningu í fyrri hálfleiknum í gær- kvöld og léku stundum listir sem Pelé og fleiri forverar hefðu verið fullsæmdir af. Sérstaklega þegar Richarlison kom þeim í 3:0 eftir ótrúlega takta sem minntu á gamla brasilíska „Ginga-stílinn“, þar sem hann byrjaði á að halda boltanum þrisvar á lofti með höfðinu. Vinícius Júnior, Neymar úr víta- spyrnu og Lucas Paquetá skoruðu hin þrjú mörkin og þau hefðu getað verið fleiri. Neymar mætti aftur til leiks eftir ökklameiðslin sem hann fékk í fyrsta leiknum og spilaði í 80 mínútur. Í seinni hálfleik stigu Brassar af bremsunni, Suður-Kóreubúar léku fyrir stoltið og náðu að minnka muninn með glæsilegu marki. Þeirra framlag til listahátíðarinnar. Livakovic varði þrjú víti Dominik Livakovic, 27 ára mark- vörður Dinamo Zagreb, var hetja Króata í gær þegar þeir komust í átta liða úrslitin eftir jafntefli gegn Japan, 1:1. Livakovic varði þrjár af fjórum spyrnum Japana í víta- spyrnukeppninni á meðan samherj- ar hans skoruðu þrívegis úr fjórum spyrnum. Óhætt er að segja að Króatar séu þrautreyndir við slíkar aðstæður. Þeir fóru í gegnum þrjár fram- lengingar og tvær vítaspyrnukeppn- ir á leið sinni í úrslitaleik HM fyrir fjórum árum. Mörkin í leiknum komu í venju- legum leiktíma. Daizen Maeda skor- aði fyrir Japan rétt fyrir hlé og Ivan Perisic jafnaði fyrir Króata eftir tíu mínútur í síðari hálfleik. Þar með hefur Perisic skorað fyrir Króata á þremur heimsmeistaramótum í röð. Aldrei tapað í 8-liða úrslitum Króatar eru komnir í átta liða úrslit HM í þriðja skipti og þeir hafa aldrei tapað á því stigi keppninnar. Þeir hrepptu bronsverðlaunin árið 1998, í frumraun sinni, og fengu silfrið á síðasta móti í Rússlandi árið 2018. Að þessu sinni munu þeir eiga í höggi við Brasilíu en Króatar eru öllu vanir eftir að hafa slegið Dani, Rússa og Englendinga út á leið sinni til silfursins í Rússlandi árið 2018. Japanir féllu hinsvegar út í sextán liða úrslitum í fjórða sinn og þeim hefur aldrei tekist að komast lengra á HM. Þeir geta þó farið stoltir heim eftir sigra á Þjóðverjum og Spánverjum og jafntefli gegn Króöt- um. Síðustu leikirnir í kvöld Sextán liða úrslitunum lýkur í kvöld. Marokkó og Spánn eigast við í fyrri leiknum og í þeim síðari mæt- ast Portúgal og Sviss. Sigurliðin í þessum tveimur leikjum mætast í átta liða úrslitum á sunnudaginn og eitt þeirra kemst í undanúrslitin. KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Meistaravellir: KR – Stjarnan............... 18.30 HM í Katar 16-LIÐAÚRSLIT: Japan – Króatía ...................... (1:1) (1:1) 2:4 Daizen Maeda 43. – Ivan Perisic 56. Króatía sigraði 3-1 í vítaspyrnukeppni. Brasilía – Suður-Kórea........................ 4:0 Vinícius Júnior 7., Neymar 13.(v), Richarlison 29., Lucas Paquetá 36. LEIKIR Í DAG: 15.00 Marokkó – Spánn 19.00 Portúgal – Sviss 8-LIÐAÚRSLIT: 9.12. Króatía – Brasilía.................................. 15 9.12. Holland – Argentína ............................. 19 10.12. Marokkó/Spánn – Portúgal/Sviss ... 15 10.12. England – Frakkland.......................... 19 MARKAHÆSTIRÁHM: Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 5 Cody Gakpo, Hollandi.................................... 3 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 3 Lionel Messi, Argentínu................................ 3 Álvaro Morata, Spáni .................................... 3 Marcus Rashford, Englandi ......................... 3 Richarlison, Brasilíu ...................................... 3 Bukayo Saka, Englandi ................................. 3 Enner Valencia, Ekvador .............................. 3 „Hin 19 ára gamla Aldís Kara Bergs- dóttir, besti listskautari Íslands síð- ustu ár, hefur lagt skautana á hilluna, þrátt fyrir ungan aldur. Aldís hefur verið útnefnd íþróttakona Akureyrar síðastliðin þrjú ára. „Listskautar hafa verið allt mitt líf síðan ég steig á ísinn í fyrsta skiptið og nú eftir 15 ára feril hef ég tekið þá ákvörðun að leggja skautana á hilluna,“ skrifaði Aldís á Facebook. Þrátt fyrir að hætta ung að aldri afrekaði Aldís Kara ýmislegt á góðum ferli, en hún varð fyrsti Ís- lendingurinn til að ná lágmörkum inn á HM unglinga og EM fullorðinna. „Brynjar Björn Gunnarsson verður ekki áfram þjálfari sænska knattspyrnuliðsins Örgryte, að sögn Aftonbladet í Svíþjóð, þrátt fyrir að hafa haldið liðinu í B-deildinni í ár. Brynjar tók við liðinu í maí þegar það sat án sigurs á botni deildarinnar. Aftonbladet segir að Jeffrey Aubynn, aðstoðarþjálfari Malmö, verði ráðinn í stað Brynjars. „Knattspyrnukonan Hildur Þóra Há- konardóttir hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til næstu tveggja ára og gildir nýr samningur hennar út keppnistímabilið 2024. Hildur Þóra, sem er 21 árs gömul, er uppalin í Kópavoginum en alls á hún að baki 40 leiki með Blikum í efstu deild. „Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnars- dóttir og sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson voru útnefnd frjálsíþróttafólk ársins á uppskeruhátíð FRÍ í Laugar- dalshöll á dögunum. Bæði kepptu þau á Evrópumeistaramótinu í München í ár en Erna setti meðal annars Íslands- met utanhúss á árinu og H endaði ef Íslending á stigalist Alþjóða- sam- bands- ins eftir tímabil- ið. ilmar stur a a Lisandro Rasio átti stórleik fyr- ir Njarðvík þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum bikar- keppni karla í körfuknattleik, VÍS-bikarsins, eftir sigur gegn Haukum í 16-liða úrslitum keppninnar í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gær. Leiknum lauk með 88:84-sigri Njarðvíkur en Rasio skoraði 20 stig, tók 11 frá- köst og gaf tvær stoðsendingar í leiknum. Mikið jafnræði var með liðun- um í fyrri hálfleik og var staðan 52:51, Njarðvík í vil, í hálfleik. Haukar byrjuðu síðari hálf- leikinn af krafti og leiddu með einu stigi að þriðja leikhluta loknum, 73;72. Áfram skiptust liðin á um að skora og leiddu Haukar með þremur stigum, 84:81, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Dedrick Basile kom Njarðvík yfir, 85:84, þegar tvær mínútur voru til leiksloka og Hafn- firðingum tókst ekki að snúa leiknum sér í vil eftir það. Nicolas Richotti skoraði 19 stig fyrir Njarðvík en Darwi- in Davis var stigahæstur hjá Haukum með 24 stig, tvö fráköst og fjórar stoðsendingar. Njarðvík mætir Keflavík í 8-liða úrslitum keppninnar í Blue-höllinni hinn 11. desember. Suðurnesjaslagur í bikarnum Morgunblaðið/Skúli B. Sig SóknNjarðvíkingurinn Lisandro Rasio sækir að Daniel Mortensen í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.