Morgunblaðið - 06.12.2022, Side 28
MENNING28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Glæpakvöld í Bankastræti í kvöld
Glæpakvöld Hins íslenska glæpafélags verður haldið
á efstu hæð Lofts hostels í Bankastræti í kvöld kl.
19 og er aðgangur ókeypis. „Tólf höfundar brakandi
ferskra gæðakrimmamæta á staðinn til að ræða
bækur sínar og glæpasögur almennt út frá ýmsum
sjónarhornum,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Boðið verður upp á þrjú pallborð. Það fyrsta
nefnist „Lögregla eða ekki lögregla – málið er leyst!“
og hefst kl. 19.30. Annað pallborðið nefnist „Þarf
alltaf að vera morð? Um glæpinn í glæpasögunni“ og
hefst kl. 20.30. Hið þriðja og síðasta er „Spennandi?
Spennandi! Að véla lesendur til voðaverka“ sem hefst
kl. 21.30. Meðal höfunda sem eru með í kvöld eru Ragnheiður Gests-
dóttir, Skúli Sigurðsson, Yrsa Sigurðardóttir, Eva BjörgÆgisdóttir,
Ármann Jakobsson og Jón Atli Jónasson.
Yrsa
Sigurðardóttir
Barbörukórinn flytur hugljúfa jólatóna
Barbörukórinn heldur jólatónleika í Hafnarfjarðarkirkju í kvöld,
þriðjudagskvöld, kl. 20. Á efnisskránni eru „hugljúfir jólatónar“ en
flutt verður „jólatónlist frá endurreisnartímanum til dagsins í dag“,
eins og segir í tilkynningu frá kórnum. Þar kemur fram að sr. Jónína
Ólafsdóttir sóknarprestur flytji aðventuhugvekju. Miðar eru seldir við
innganginn, en aðgangur er ókeypis fyrir börn 12 ára og yngri.
Barbörukórinn er kammerkór, stofnaður vorið 2007 af Guðmundi
Sigurðssyni organista Hafnarfjarðarkirkju. Kórinn kennir sig við
heilaga Barböru en stytta af dýrlingnum fannst árið 1950 við uppgröft í
fornri kapellu í Kapelluhrauni. Kórinn kemur reglulega fram við helgi-
hald Hafnarfjarðarkirkju auk tónleikahalds og söngs við útfarir þar og
víðar. Barbörukórinn hefur lagt sérstaka áherslu á íslenskan tónlistar-
arf og hefur gefið út diskinn Syngið Drottni nýjan söng.
Prúðbúin Barbörukórinn ásamt stjórnanda sínum á tónleikum.
með íslenska skálanum fyrir hönd
menningar- og viðskiptaráðuneyt-
isins. Valferlið var að þessu sinni
með þeim hætti að allir aðilar
fulltrúaráðs Myndlistarmiðstöðvar
fengu boð um að senda allt að þrjár
tillögur um listamann, sýningar-
stjóra eða sýningarhugmynd. Fjöldi
hugmynda barst. Fagráð Mynd-
listarmiðstöðvar, auk tveggja gesta,
fór yfir tillögur og valdi Hildigunni
úr þeim hópi. Fagráðið skipuðu
Starkaður Sigurðarson, fyrir
hönd SÍM, Auður Jörundsdóttir,
forstöðumaður Myndlistarmið-
stöðvar, og Harpa Þórsdóttir, fyrir
hönd listasafna. Gestir fagráðs voru
Una Björg Magnúsdóttir og Sigurð-
ur Guðjónsson.
Magnþrunginn hversdagsleiki
„Þetta er bilað – ég öskraði og
æpti ein í bílnum þegar ég fékk
fréttirnar,“ segir Hildigunnur hlæj-
andi um augnablikið þegar henni
var tilkynnt að hún yrði fulltrúi Ís-
lands í Feneyjum. „Fjölskyldan var
fljót að draga mig niður á jörðina
og spurði hvort ég yrði ekki mikið í
burtu. En auðvitað dreymir okkur
myndlistarmenn um að fá þetta
tækifæri.“
Þegar spurt er hvað hún muni
sýna í Feneyjum svarar Hildigunn-
ur: „Ég ætla að halda áfram að
sinna minni list og vera með góða
sýningu. Það er frábært að fá þetta
boð án þess að hafa þurft að skila
inn tillögu.“ Hún segist venjulega
ekki vinna með neitt eitt stórt
konsept heldur að sínum þemum
og haldi því áfram. „Ég held áfram
að vinna að mínu og fer ekkert að
blása það neitt upp, í einhverjar
áttir sem mögulega færu verkunum
mínum ekki vel.“ Og hún segir að
vissulega séu hugmyndir teknar að
mótast.
„Þetta er alltaf eins og keðja
hjá mér, ég er alltaf með ný verk
á sjóndeildarhringnum þegar ég
vinn að öðrum. Núna er ég farin
að horfa á þau og gefa mér ennþá
meiri tíma með þeim. Til að þau
nái að blómstra í Feneyjum þá
gef ég þeim mikinn tíma og mikla
athygli. Kannski get ég líka tekið
fram einhverjar hugmyndir sem í
öðru samhengi hafa kannski virst of
mikilmennskubrjálæðislegar!“
Hildigunnur segir allar líkur
vera á því að íslenski skálinn verði
áfram í sama húsnæði og sýning
Sigurðar Guðjónssonar var sett upp
í á tvíæringnum sem lauk í síðasta
mánuði en það er við Arsenale-sýn-
ingarhöllina, sem má kalla á allra
besta stað. „Ég skoða hvað ég geti
gert til að setja minn svip á hús-
næðið,“ segir hún. Ekki hefur verið
fastneglt hver verður sýningarstjóri
íslenska skálans – „en viðræður eru
hafnar,“ segir Hildigunnur íbyggin, í
anda stjórnmálamanna.
Hún fagnar því að fá mjög góðan
tíma til að vinna að sýningunni,
í raun um eitt og hálft ár. „Ég er
mjög sopennt fyrir því og held að
það geti orðið til þess að ég taki
næsta þroskaskref, því ég sé fram á
að geta dvalið með verkunum. Ekki
að þau stækki von úr viti, heldur
mögulega bæði dýpki og nái nýjum
hæðum.“
Hildigunnur vinnur iðulega með
hversdagsleikann og nærumhverfi
sitt. Þegar spurt er hvort það sé
ekki í einhverskonar mótsögn við
hátíðleika tvíæringsins, þá hlær
hún. „Ég held nú að innan tvíær-
ingsins rúmist allt,“ segir hún svo.
„Ég held að hversdagleiki geti verið
sérstaklega magnþrunginn í því
samtali. Ég fagna því að fá að sýsla
áfram með hann í nýju samhengi.“
Myndlistarkonan Hildigunnur
Birgisdóttir hefur verið valin
fulltrúi Íslands á næsta Feneyja-
tvíæringi í myndlist, sem haldinn
verður í sextugasta sinn árið 2024.
Hildigunnur er fædd árið 1980 og
býr og starfar í Reykjavík. Á síðasta
ári voru verk hennar á sýningum í
Listasafni Reykjavíkur; listasafn-
inu GES-2, sem rekið er af V-A-C
Foundation í Moskvu og H2H í
Aþenu. Verk hennar má meðal
annars finna í safneign Listasafns
Íslands, Listasafns Reykjavíkur,
Nýlistasafnsins og European Patent
Office. Hildigunnur útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands árið 2003.
Í tilkynningu frá Myndlistar-
miðstöð segir að á marglaga ferli
sínum hafi Hildigunnur rannsak-
að hugmyndir okkar um fegurð,
notagildi, samhengi hlutanna og
hvetji hún áhorfandann til að efast
um jafnvægið á milli skynjunar
og raunveruleika. „Hildigunnur
skoðar oft fáfengilega hluti líkt og
takka lyklaborðs, plastklemmur og
úðabrúsa, og er hver hlutur valinn
út frá einfaldleika sínum eða tilvist.
Með því að setja fram óskáldlega
hluti í nýjum efnum og stærðum
undirstrikar Hildigunnur kunnug-
lega eiginleika þeirra en samtímis
því dregur hún notagildi þeirra í
efa. Bjögunin undirstrikar skúlp-
túrískt gildi hinna upprunalegu
hluta og fagnar fagurfræði þess sem
fæstir gefa gaum,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Mikilvægur vettvangur
Tvíæringurinn í Feneyjum er einn
mikilvægasti vettvangur samtíma-
listar á heimsvísu. Þátttaka Íslands
á tvíæringnum hófst árið 1960 og
hafa margir fremstu listamenn
þjóðarinnar sýnt þar, meðal annars
Jóhannes Kjarval, Ragnar Kjart-
ansson, Hrafnhildur Arnardóttir,
Rúrí og Egill Sæbjörnsson. Mynd-
listarmiðstöð, áður nefnd Kynn-
ingarmiðstöð íslenskrar myndlistar,
hefur líkt og undanfarin ár umsjón
l HildigunnurBirgisdóttir verður fulltrúi Íslands á næstaFeneyjatvíæringi
l„Auðvitað dreymir okkurmyndlistarmennumað fá þetta tækifæri“
Hildigunnur fer til Feneyja
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valin Hildigunnur Birgisdóttir á sýningu sinni í i8 galleríi árið 2017.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Birt með leyfi listamannsins og i8 gallerís
Skúlptúrísk Frá sýningu Hildi-
gunnar, Friður/Peace, í i8 í fyrra.
Ljósmynd/Paulo Moreira
Viðurkenning Ragnar sýnir mynd
frá Grænlandi á sviði í Aveiro.
Ragnar
heiðraður
lRAX veitt viður-
kenning í Aveiro
Ljósmyndarinn Ragnar Axels-
son – RAX var einn fyrirlesara
á Exodus-ljósmyndahátíðinni í
Aveiro í Portúgal um helgina.
Hlaut hann þar sérstök heiðurs-
verðlaun á lokaviðburðinum, sem
„maður hátíðarinnar“.
Ellefu ljósmyndarar og kvik-
myndagerðarmenn fluttu erindi á
hátíðinni og sýndu verk sín á skjá
fyrir troðfullum sal gesta. Auk
Ragnars voru það meðal annars
Rick Smolan, sem er kunnur
fyrir Day in a Life-bókaflokkinn,
National Geographic-ljósmyndar-
inn Michael Yamashita, Alixandra
Fazzina, Art Wolfe, Pippa Ehrilch
og José Sarmento Matos. Ragnar
var síðastur á dagskrá og sýndi
ljósmyndir frá kunnum heimilda-
verkefnum sínum, einkum af
mannlífi og breytingum í aðstæð-
um fólks á norðurslóðum, og sagði
sögur af ferlinum auk þess að
útskýra þau verkefni sem hann
hefur einbeitt sér að.
„Raxi var með mjög góðan
fyrirlestur í fullum sal gesta í
menningarmiðstöðinni hér og að
honum loknum voru honum afhent
heiðursverðlaun þessarar fínu
hátíðar,“ segir Eyjólfur Halldórs-
son, fyrrverandi forstöðumaður
Ljósmyndasafns Reykjavíkur, sem
var meðal gesta. „Honum var fagn-
að innilega, með standandi lófataki
og húrrahrópum. Þetta var eins og
á rokkkonsert,“ bætir hann við og
segir gesti hafa verið djúpt snortna
yfir myndum og frásögn Ragnars.