Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
Söfnum as nn s y u p s ands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á
bankareiknin 4 -2 - k . 60903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, rsgötu 14 í Reykjanesbæ.
Jólasöfnun
Guð blessi ykkur öll
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
JÓLASÖFNUN
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
S. 551 4349, netfang:maedur@maedur.is
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Allar almennar bílaviðgerðir
Vill laun fyrir sölu
sem gekk til baka
lMál gegnDalabyggð fyrir dómstóla
Fasteignasalan Frón krefst 10,6
milljóna króna frá Dalabyggð vegna
útlagðrar vinnu við sölu á eignum
í Laugum í Sælingsdal. Málavextir
eru þeir að lengi stóð til að selja
mannvirki og lóðir að Laugum, það
er skólabyggingu, íþróttahús, hótel,
íbúðir, lóðir og fleira. Málið komst
á nokkurn rekspöl árið 2017 þegar
fyrir lá kauptilboð frá Arnarlóni
ehf. Gengið var að því tilboði, en í
eftirleiknum kom til ágreinings milli
sveitarfélagsins og Arnarlóns svo
kaupin gengu aldrei í gegn. Eftir
stóð þá að hjá Fróni hafði verið lögð
talsverð vinna í málið sem forsvars-
menn fyrirtækisins vilja fá greitt
fyrir. Því neitar Dalabyggð.
Í bréfi lögmannsstofu Dalabyggð-
ar er reifað að sveitarfélagið hafni
kröfum því aldrei hafi verið samið
um þóknun ef eignirnar seldust
ekki. Jafnframt standi enginn reikn-
ingur að baki kröfum sem settar
hafi verið fram. Þeim rökum hafnar
lögmannsstofan Legal fyrir hönd
Fróns og er bent á að fasteigna-
sali hafi lagt mikla vinnu í málið,
setið fundi og fleira slíkt, „allt þar
til störfum hans lauk við einhliða
ákvörðun sveitarfélagsins að hætta
við sölu eignanna,“ eins og segir
í bréfi lögmanns sem birt er á vef
Dalabyggðar. Þar segir að útgefnir
reikningar sæki stoð í gerða samn-
inga og „ógrynni skjala og gagna“
eins og orðrétt segir. Kröfur eru því
réttmætar, segir lögmaður, sem vill
að sveitarfélagið greiði fyrrgreinda
upphæð, ellegar verði farið með
málið lengra.
„Málið er farið til dómstóla og á
meðan er best að ég tjái mig ekki
neitt,“ sagði Eyjólfur Ingvi Bjarna-
son oddviti Dalabyggðar í samtali
við Morgunblaðið. Hann bendir á að
sveitarstjórn hafi þegar samþykkt
að hafna kröfunum og fengið lög-
fræðinga til að leysa úr málinu.
Þess má geta að sala Dalabyggðar
á eignum að Laugum í Sælingsdal
gekk eftir í sumar. Nýir eigendur
eru teknir við í krafti kaupleigu sem
verður að endanlegri sölu í fyllingu
tímans.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laugar Skóli, hótel og íþróttamannvirki. Miklar eignir sem sveitarfélagið
hefur nú selt, eftir ferli sem tók langan tíma og um er deilt nú.
FRÉTTIR
Innlent 11
Áætlað er að afgangur af rekstri Vest-
mannaeyjabæjar á næsta ári verði um
228 milljónir króna, tekjur 7,8 millj-
arðar og útgjöld
7,6 milljarðar
króna. Þetta er
megininntak fjár-
hagsáætlunar
sem samþykkt
var í bæjarstjórn
nýlega. Áætlað-
ar tekjur aukast
um 726 milljónir
króna milli ára
og eru varlega
áætlaðar, verði
verðbólga ekki hærri en gerist í raun
á þessu ári.
Í rekstri bæjarins fara mestir
fjármunir til fræðslumála, en efling
skólastarfs hefur verið áherslumál
bæjaryfirvalda í Eyjum á síðasta ári.
Meðal áhersluverkefna næsta árs er að
stytta Hörgeyrargarð, rannsóknar- og
þróunarverkefni í skólastarfi sem ber
yfirskriftina Kveikjum neistann, sam-
starf í ferðamálum, áframhaldandi
heilsuefling eldri borgara, skipulagning
nýrrar íbúðabyggðar og þá á að efla
upplýsingatækni í Grunnnskóla Vest-
mannaeyja. Til framkvæmda á næsta
ári ver Vestmannaeyjabær tæpum 900
milljónum króna. Stærsta verkefnið
þar er nýbygging við Hamarsskóla.
Álagningarprósenta útsvars í Vest-
mannaeyjum verður óbreytt á næsta
ári eða 14,46%. Álagningarprósenta
fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði lækk-
ar í 0,268% og slík gjöld á fyrirtæki fara
1,4%. Með lækkun er mætt hækkun á
fasteignamati í Vestmannaeyjum. Er
þetta í fjórða sinn á fimm árum sem
álagningarprósenta þessi í Eyjum er
lækkuð.
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri sagði
í framsögu sinni á bæjarstjórnarfundi,
þegar áætlunin var samþykkt, að bjart
væri fram undan í rekstri Vestmanna-
eyjabæjar. Mörg spennandi verkefni
væru í undirbúningi eða komin af stað.
Þá væri í gangi margvísleg uppbygging
á vegum fólks og fyrirtækja.
„Og okkur heldur áfram að fjölga; í
dag erum við Vestmannaeyingar 4.525
og hafa ekki verið fleiri íbúar frá því á
síðustu öld,“ segir bæjarstjórinn.
Minnihluti Sjálfstæðisflokksins í bæj-
arstjórn í Eyjum lét bóka við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar að mikilvægt væri að
stíga varlega til jarðar í útgjaldaaukn-
ingu og þenslu í rekstri sveitarfélags-
ins. Síðustu ár hefði verið gengið á sjóði
þess svo um munar. „Þrátt fyrir vilja til
að veita öfluga þjónustu er mikilvægt
að tryggja sjálfbærni sveitarfélags-
ins til að koma í veg fyrir lántöku til
framtíðar, sem gerir ekkert annað en
íþyngja rekstrinum,“ segir í bókuninni.
lTekjur Vestmannaeyjabæjar á næsta ári 7,8 milljarðar króna
Áætla afgangaf
rekstri bæjarsjóðs
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flugsýn Snjór er yfir öllu í Heimaey þessa dagana og vetrarríkið ráðandi.
Íris
Róbertsdóttir