Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 18

Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 ✝ Björg Einars- dóttir fæddist í Hafnarfirði 25. ágúst 1925. Hún lést 28. nóvember 2022. Foreldrar Bjargar voru hjón- in Ólafía Guð- mundsdóttir, f. 18.5. 1889, d. 9.10. 1929, og Einar Þorkelsson, skrif- stofustjóri Alþingis og rithöf- undur, f. 11.6. 1867, d. 27.6. 1945. Alsystkini Bjargar voru Arn- kell Jónas, f. 1920, d. 1985; Ás- kell, f. 1923, d. 2005; Ólafía, f. 1924, d. 2017; Hrafnkatla, f. 1927, d. 1982; Þorkell, f. 1929, d. 2013. Eftir lát móður sinnar fór Björg í fóstur til hjónanna Sig- urjóns Oddssonar, f. 1888, d. 1937, framkvæmdastjóra, og Maríu Elísabetar Coghill Jóns- dóttur, f. 1887, d. 1971. Uppeld- isbróðir Bjargar var Guðjón Þórir Tómasson, f. 1923, d. 2001. Björg giftist 18. ágúst 1950 Harald Guðmundssyni, f. 11.12. 1921, d. 27.8. 2002, rafverk- taka. Foreldrar hans voru Guð- mundur Sveinsson, f. 1886, d. 1952, skipstjóri og skipaskoð- unarmaður, og kona hans Ingi- björg Björnsdóttir, f. 1886, d. 1973, verslunarmaður. Börn Bjargar og Haralds eru: 1) Guðmundur Ingi, f. 8.8. 1951, jarðfræðingur, kvæntur Bjarnfríði Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðingi. Þeirra börn eru: a) Haraldur, f. 1978, kona hans er Cecilia Rose Collins. stofustörf til 1978. Eftir það starfaði hún sjálfstætt að ritstörfum og útgáfumálum. Björg tók virkan þátt í fé- lagsstörfum og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Hún starfaði meðal annars í Rauðsokka- hreyfingunni árin 1971-1975. Björg hefur verið í Kvenrétt- indafélagi Íslands frá 1975, varaformaður þess 1976-1980 og í ritnefnd ársritsins 19. júní. Hún sat í stjórn Alþjóðasam- taka kvenréttindafélaga (IAW) 1976-1979 og stýrði einni af fastanefndum þess 1979-1981. Björg var einn átta flutnings- manna tillögu á Kvennaársráð- stefnu á Loftleiðum í Reykjavík 1975 um kvennafrí á degi Sam- einuðu þjóðanna 24. október það ár. Hún var einn ræðu- manna á Lækjartorgi á Kvennafrídeginum 1975. Björg var heiðursfélagi Kvenréttinda- félags Íslands. Björg hóf að starfa í Sjálf- stæðisflokknum 1946, fyrst í Heimdalli, en síðar í stjórn Hvatar, kvenfélags Sjálfstæð- isflokksins, og var formaður fé- lagsins 1978-1981. Hún sat í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1981-1987. Hún var í stjórn Menningarsjóðs útvarpsstöðva og í stjórn Þjóðhátíðarsjóðs um skeið. Hún sat einnig um árabil í stjórn Blindrafélags Íslands. Björg var sæmd hinni ís- lensku fálkaorðu 1988 fyrir störf að jafnréttismálum og rit- störf um málefni kvenna. Björg flutti fjölmarga útvarpsþætti árin 1983-1985 um ævi og störf íslenskra kvenna og gaf síðar meðal annars út rit í þremur bindum sem byggðust á efni þáttanna. Björg verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 20. desember 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. Synir þeirra eru Guðmundur Philip og Magnús Ben- jamin. b) Kristín, f. 1983. c) Björg, f. 1987. Maður henn- ar er Ármann Guð- jónsson. Synir þeirra eru Rúnar Ingi og Björn Ein- ar. 2) Einar Hrafn- kell, f. 26.7. 1953, verkfræðingur, kvæntur Guð- rúnu Sigurjónsdóttur sjúkra- þjálfara. Sonur Einars og fyrri eiginkonu hans, Arnfríðar Jón- asdóttur, er: a) Arngrímur, f. 1981. Kona hans er Berglind Sigmundsdóttir. Dætur Guð- rúnar frá fyrra hjónabandi eru: b) Rún Knútsdóttir, f. 1982. Maður hennar er Árni Þór Lár- usson, og er Þórhildur dóttir þeirra. c) Hildur Knútsdóttir, f. 1984. Maður hennar er Egill Þórarinsson. Dætur þeirra eru Rán og Örk. 3) María, f. 8.4. 1957. Eig- inmaður hennar var Ágúst Jó- hannsson húsgagnasmiður, d. 2017. Dætur þeirra eru: a) Ólafía, f. 1982. b) María, f. 1982. Maður hennar er Guðjón Hauksson. Börn þeirra eru Guðríður María og Ágúst Þór. c) Anna, f. 1987. Maður hennar er Andrés Magnússon. Þeirra börn eru Hrafnkatla og Birkir Ágúst. Björg ólst upp í Hafnarfirði til 1929 en flutti þá ásamt fóst- urforeldrum sínum til Akureyr- ar og bjó þar til 1937. Síðan þá búsett í Reykjavík, og einnig í Hveragerði um skeið. Björg nam við Kvennaskólann í Reykjavík og stundaði skrif- Hún amma mín, Björg Einars- dóttir, er látin. Það rann upp fyr- ir mér sem ungum dreng við lest- ur bókanna um þá bræður Jón Odd og Jón Bjarna, eftir Guð- rúnu Helgadóttur, að það voru ekki bara þeir einir sem áttu „Ömmu Dreka“ heldur var ég einnig svo lánsamur að eiga ömmu sem var „Amma Dreki“. Þeirra var erindreki en amma mín rak sín erindi með sömu elju og hugsjón og þeirra bræðra. Ég var svo ljónheppinn að eyða miklum tíma í æsku minni með ömmu og afa. Oft á tíðum var ég meðfylgjandi í þessum er- indum sem amma var alltaf að sýsla í og laukst upp fyrir mér sýn hennar á lífið og það sem hún brann fyrir. Hún trúði statt og stöðugt á frelsið; frelsi einstak- lingsins til orða og athafna – rétt- lætis! Hennar frelsisbarátta snérist um að mölva múra sem stóðu konum í vegi til þess að geta notið til fulls síns einstak- lingsfrelsis. Hún afvopnaði úr- tölumenn með þessum einföldu rökum: „Hvernig tímir Ísland að láta helming þjóðarinnar ekki koma að verðmætasköpun?“ Erf- itt er að mæla gegn þessu og í eyrum mínum ungum að árum var þetta augljóst, svo ljóst að þessi sýn hennar á einstaklings- frelsið hefur mótað mína lífssýn allar götur síðan. Eitt er að sjá órétt og annað er að gera eitthvað í því. Amma hélt ekki þar aftur af sér, hún barðist fyrir þessu á vettvangi Sjálfstæð- isflokksins, meðal annars tók hún þátt í prófkjöri fyrir alþing- skosningar – minnisstætt því ég var fenginn í að stimpla póst- burðargjald á ýmislegt sem var sent út. Jafnframt að skipuleggja kvennafrídaginn árið 1975 til þess að sýna í hagtölum verð- mætasköpun kvenna. Hennar „manifestó“, um her- ferð þessa, var þriggja binda rit- verkið „Úr ævi og starfi ís- lenskra kvenna“, byggt á útvarpserindum sem hún flutti á Rás 1 og ég hlustaði á spenntur áður en ég dreif mig í Ísaksskóla, því ég var eftir hádegi. Hún sagði oft að ef hlutirnir væru ekki skrifaðir þá hefðu þeir ekki gerst. Með þessu vildi hún draga fram framlag íslenskra kvenna til verðmætasköpunar í sinni víð- ustu merkingu og gera henni hátt undir höfði. Enn á ný var stólað á ungan dreng. Eftir leikni mína við að stimpla póstburðar- gjöld í prófkjörsbaráttu varð ég burðarás í að stimpla hið sama á innpakkaðar forpantanir – sem fóru fram úr björtustu vonum. Þetta var tímamótaverk og hlaut hún fálkaorðuna fyrir vikið. Kynslóð ömmu er sú sem kom Íslandi úr því að vera eitt fátæk- asta landið í Evrópu í það að vera eitt það auðugasta, í mínum huga er það ekki síst fyrir þær sakir að konur eins og amma mín unnu rökræðurnar. Þegar ég fór með ömmu þar sem hún kaus í hinsta sinn til Alþingis, eftir að hafa að hennar sið lýst því hátt og snjallt yfir við inngöngu í kjördeildina „að nú riði á að kjósa rétt“, þá ræddi hún um hversu mikið hefði áunnist síðan hún lagði upp í sína baráttu. Hún kvaddi jarðvistina, 97 ára gömul, sæl og sátt vitandi það að í ríkisstjórn lýðveldisins Íslands skipa konur eftirfarandi ráðuneyti: forsætis-, utanríkis-, háskóla-/iðnaðar-/nýsköpunar-, matvæla- og menningar-/við- skiptaráðuneytið. Ef þetta er ekki sigur, hvað er það þá? Haraldur Guðmundsson. Rauðsokkan í Sjálfstæðis- flokknum og konan sem varð- veitti sögu hundraða afburða- kvenna með bókunum Ævi og störf íslenskra kvenna. Þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann við fráfall Bjargar ömmusystur minnar. Ég kynntist henni fyrst er ég var í stjórn Kvenréttindafélags- ins. Samband okkar jókst til muna er frænka mín (í föðurætt), Guð- rún, giftist Einari Hrafnkeli syni Bjargar. Við áttum í framhaldinu ófáar samverustundir þar sem við ræddum sameiginleg hugðar- efni og ekki síst ættfræði og sögu. Björg skrifaði mikið um forfeður sína, en ekki síður um formæðurnar, en um konur frá átjándu og nítjándu öld hefur af- ar lítið verið skrifað. Hún fór í fóstur, eins og svo mörg systkinanna, er móðir hennar lést af barnsförum. Björg lauk námi frá Kvennaskólanum, sem þótt prýðis veganesti á fimmta áratugnum. Tvö af systk- inum hennar urðu doktorar og sá þriðji, Hrafnkell, féll frá er hann var byrjaður í doktorsnámi í fiskihagfræði. Það er ekki nokk- ur vafi í mínum huga að Björg var enginn eftirbátur þeirra með sínu mikla framlagi til kvenna- sögu. Björg var mikill femínisti og langt á undan sinni samtíð. Ég tel að hinn brennandi áhugi Bjargar á jafnréttismálum hafi vaknað er hún hóf fulla þátttöku á vinnumarkaði, eftir að maður hennar veiktist. Hún áttaði sig fljótt á því gríðarlega misrétti sem konur sættu. Björg gekk til liðs við Rauðsokkurnar og var ein af þeim átta sem báru upp til- löguna um Kvennafrídaginn. Hún vann ötullega að því að vekja athygli á framlagi kvenna til þróunar íslensks samfélags og skrifaði til dæmis bæði Ljós- mæðratalið og Sögu Hringsins. Auk fjölmargra greina. Ég hélt nýlega ræðu í tilefni af 150 ára afmæli Þjóðvinafélags- ins. Þar notaði ég Björgu, 97 ára gamla, sem mælikvarða á það hvað tíminn væri afstæður. Ég benti á að faðir hennar hefði ver- ið fjögurra ára er félagið var stofnað og að afi hennar hefði fæðst 1815, árið sem Napóleon tapaði orrustunni við Waterloo. Lagði síðan út frá þeirri byltingu sem hefði orðið í jafnréttismálum á æviskeiði Bjargar. Hún lagði svo sannarlega sitt af mörkum á þeirri vegferð. Það var mér sérstök ánægja að Björg skyldi vilja vera hjá mér í París á níutíu ára afmæl- inu. Sá dagur er mér ógleyman- legur. Björg var í essinu sínu, al- veg tímalaus með passíuhárið sitt, í litríkum fötum og á pinna- hælum. Hún skemmti okkur Ein- ari og Guðrúnu allan daginn með óborganlegum sögum. Sigling okkar á Signu, dýrindis máls- verður og nokkur dansspor þeirra mæðgina vörðuðu henni veginn inn á tíunda áratuginn. Blessuð sé minning þessarar merku konu. Berglind Ásgeirsdóttir. Kveðja frá gömlum rauðsokkum Björg Einarsdóttir er látin eftir tæprar aldar lífsgöngu. Björg gekk til liðs við Rauð- sokkahreyfinguna í ársbyrjun 1971 og var þar starfandi í fjögur ár, en hreyfingin hætti störfum 1982. Björg beitti sér fyrir ýmsum málum í ræðum og riti. Hún rit- aði grein í fyrsta tölublað mál- gagns Rauðsokkahreyfingarinn- ar, Forvitin rauð, 1972. Þar dregur hún fram mikilvægi þess að viðhalda íslenskum nafnavenj- um í stað útlendra þar sem konur misstu nafn sitt við hjúskap. Eins lagði hún áherslu á að konur skráðu sig í símaskrána og bættu sínu nafni við nafn makans á dyraskiltum, en þetta tvennt var ekki til siðs á þeim tíma. Ein- hverjum kann að finnast þessi umræða ótrúleg í dag. Áður en Björg hóf sinn sjálf- stæða starfsferil starfaði hún við bókhald. Í launaútreikningum sem á borð hennar komu grunaði hana að hagsmuna lægst launuðu kvennanna væri ekki nægilega vel gætt. Hún tók því að sér að ganga úr skugga um að þær fengju allt sitt samkvæmt kjara- samningum. Þessi reynsla má teljast að hafi markað spor henn- ar hjá Rauðsokkahreyfingunni. Stærsta viðfangsefni Bjargar þar var barátta fyrir vinnuréttindum kvenna og efnahagslegu sjálf- stæði þeirra. Aðgreining í karla- og kvennastörf sem stýrði launa- mun, skattamál þar sem konur duttu út af skattskrá við hjóna- band, en tekjur þeirra bættust ofan á tekjur karlanna fyrir skattlagningu, réttur kvenna til að velja sér hlutverkið heima- eða útivinnandi eru dæmi um þau baráttumál sem Björg lét til sín taka og þau eru mörg fleiri. Söguleysi íslenskra kvenna „sótti á“ Björgu eins og hún orð- aði það sjálf í ritinu Á rauðum sokkum, 2011, frásögnum 14 rauðsokka um störf sín með hreyfingunni. Árið 1984 hóf Björg að flytja vikuleg erindi í útvarpið um eina konu í senn og hélt þeim þáttum úti tvo vetur. Upp úr útvarpserindunum vann hún þriggja binda ritverk, Úr ævi og starfi íslenskra kvenna, 1984-1985. Með útgáfunni vildi Björg „leiða í ljós að hver og ein kona ætti sér sína eigin sögu sem þyrfti að gera skil“. Björg og undirritaðar rauð- sokkur voru frænkur, afkomend- ur séra Páls Pálssonar, prófasts í Hörgsdal á Síðu. Björg var ætt- fróð og hafði staðgóða þekkingu á sinni áhugaverðu ættarsögu. Hún rakti með okkur örlagasög- ur forfeðra og –mæðra okkar og aldagamlan hugsunarhátt sem þeim stjórnaði. Við sem skipuðum Rauðsokka- hreyfinguna á upphafsárunum störfuðum þar mislengi og sumar allt þangað til hreyfingin hætti störfum. Leiðir Bjargar og hreyfingarinnar skildi sumarið 1974 í framhaldi af pólitískri stefnu sem varð ofan á í hreyf- ingunni en Björgu féll ekki. Björg sneri sér í nýjar áttir og hélt áfram að láta til sín taka í þjóðfélaginu. Síðustu áratugi hafa rauð- sokkar komið saman aftur og átt margar góðar og glaðar stundir. Í þeim hópi höfum við meðal ann- ars haft tækifæri til að halda áfram að njóta söguþekkingar Bjargar og þá ekki síst kvenna- söguþekkingar. Við erum þakk- látar fyrir þessar stundir sem og öll störf Bjargar Einarsdóttur í Rauðsokkahreyfingunni. Helga Ólafsdóttir, Rannveig Jónsdóttir. Mikill skörungur er fallinn frá þegar Björg Einarsdóttir er horfin af sviði jarðlífsins. Hvar sem hún lagði hönd á plóg lét hún að sér kveða á sinn hófstillta en ákveðna hátt. Ég átti því láni að fagna að kynnast henni á vett- vangi Kvenréttindafélags Ís- lands á miklum mótunarárum jafnréttisbaráttunnar í kjölfar stóra kvennafrídagsins árið 1975. Hún hafði mikil áhrif á mig með eldmóði sínum, sannfæringar- krafti og rökfestu í málflutningi. Þegar Björg tók til máls var á hana hlustað. Við Björg áttum gott samstarf um langt árabil í KRFÍ og rit- stjórn 19. júní en líka utan fé- lagsins þegar hún fékk mig um tíma til starfa við smíði ritsins Ljósmæður á Íslandi, sem kom út 1993 og var eitt af stórvirkjum Bjargar á sviði ritstjórnar. Það var lærdómsríkt fyrir mig sem unga konu að kynnast vinnu- brögðum hennar, metnaði og vandvirkni. Stjórn KRFÍ ákvað í upphafi árs 1993 að stofna til leshrings meðal félagskvenna, með áherslu á lestur kvennabókmennta. Ragnhildur Vigfúsdóttir, sem þá sat í stjórn félagsins, var valin til að veita hópnum forystu. Hún boðaði til fyrsta fundar 29. jan- úar 1993, en á hann mætti aðeins ein önnur félagskona. Sú var Björg Einarsdóttir. Fljótt bætt- ist þó í hópinn og hefur hann starfað allar götur síðan, að und- anskildum covid-árunum. Þarna lágu vegir okkar Bjargar saman á ný. Björg var alla tíð meðal virkustu þátttakenda í leshringn- um þar til allra síðustu mánuði ævinnar að heilsa hennar kom í veg fyrir að hún gæti sótt fundi. Þau tæp 30 ár sem leshringur KRFÍ hefur starfað mætti Björg á nær alla fundi, kom ævinlega vel undirbúin og lagði sitt af mörkum til umræðunnar á sinn virðulega hátt. Minni hennar var við brugðið og hægt að fletta upp í henni þegar minni okkar hinna brást. Við yngri konurnar litum upp til hennar og hlustuðum grannt á það sem hún hafði til mála að leggja. Þessi lífseigi félagsskapur hef- ur haldið sig við upphaflegt markmið að mestu, að lesa bæk- ur eftir konur og um konur. Les- hringurinn hittist mánaðarlega yfir veturinn og oftast lýkur starfsárinu með skemmtiferð út fyrir borgina. Að auki hefur sú venja skapast að fara saman í leikhús eða kvikmyndahús. Björg lét sig ekki vanta þar fremur en á fundina. Hápunktur menningarviðburða leshringsins var þegar drjúgur hluti hópsins fór í fimm daga ferð til Englands í júní 1999 á slóðir skáldkonunn- ar Jane Austen, eftir að hafa les- ið nokkrar af skáldsögum hennar veturinn á undan. Björg kom með í þessa ógleymanlegu ferð ásamt Maríu dóttur sinni. Af framansögðu má ljóst vera að Björg hefur verið órjúfanleg- ur hlekkur í starfi leshringsins allt frá byrjun. Fram yfir alda- mót var algengt að halda fundi okkar í heimahúsum fé- lagskvenna og þá lá Björg heldur ekki á liði sínu. Ótal fundir fóru fram á heimili hennar og þar reiddi hún fram veitingar af mik- illi rausn og gestrisni. Þannig er ótal margs að minn- ast frá kynnum okkar af Björgu. Fyrir það allt þökkum við af al- hug nú þegar leiðir skilur. Henn- ar verður sárt saknað. Fjöl- skyldu Bjargar sendum við innilegar samúðarkveðjur. F.h. leshrings KRFÍ, Jónína Margrét Guðnadóttir. „Einstaklingsfrelsi er jafnrétti í reynd“. Þetta voru einkunnar- orð Bjargar Einarsdóttur vin- konu okkar og flokkssystur. Við kynntumst í flokksstarfi Sjálf- stæðisflokksins á 8. áratug síð- ustu aldar. Mikil gerjun átti sér þá stað í kvenfrelsisbaráttunni. Í flokksstarfinu var Björg mjög öflug í þeim málaflokki, skelegg, réttsýn, hvetjandi og hafði yfir- burða þekkingu og yfirsýn á málaflokknum. Það var við þess- ar aðstæður að við tókum okkur saman nokkrar Sjálfstæðiskonur og hittumst reglulega til skrafs og ráðagerða og einkunnarorð Bjargar urðu nokkurs konar ein- kunnarorð þessa hóps. Það var gefandi og lærdóms- ríkt að vinna með Björgu. Hún var róleg og yfirveguð í fasi, sýndi ávallt mikla stillingu og hækkaði aldrei róminn þótt hiti færðist í umræðuna. Hún hlust- aði gaumgæfilega á alla umræðu, hugsaði um stund og dró síðan fram aðalatriðin. Hún var sér- deilis glögg á aðalatriði og, í raun, allt það sem skipti máli. Það var einstaklega gott að vinna með henni og njóta leiðsagnar hennar og hún var viljug að miðla þekkingu og vinna saman að lausnum. Okkur fannst ávallt mikil reisn yfir Björgu. Þar sameinaðist lundarfar, sterkur vilji, mikil þekking, skilningur á málefnum, sterk réttlætiskennd, trú á mál- staðinn og um fram allt virðing jafnt fyrir samherjum sem and- stæðingum. Björg lét jafnréttismál mjög til sín taka og var virk í hreyf- ingum sem unnu að kvenfrelsi bæði innan lands og utan. Hún gegndi mörgum trúnað- arstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, var meðal annars formaður Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, 1978-80. Hún var varaformaður Kven- réttindafélags Íslands 1976-1980 og átti síðan sæti í varastjórn fé- lagsins allt til ársins 1985. Hún átti sæti í stjórn Alþjóð- legu kvenréttindasamtakanna, IAW, 1976-1982 og sat m.a. fund IAW í Teheran í september 1978 skömmu áður en klerkastjórnin náði völdum í Íran og gjörbreytti mannréttindum kvenna þar. Uppreisnarraddir gegn þeirri kúgun enduróma um heims- byggðina enn þann dag í dag. Björg var í hópi þeirra sem undirbjuggu kvennafrí á kvenna- árinu 1975 og vann ötullega að því að sá viðburður yrði sameig- inlegt verkefni allra kvenna á Ís- landi og það tókst að tryggja þverpólitíska samstöðu. Björg var einn ræðumanna á fundinum. Björg var alla tíð einlægur baráttumaður fyrir réttlæti og frelsi og lagði sig fram um að kynna líf kvenna á Íslandi á ólík- um tímum. Í tilefni kvennaára- tugar Sameinuðu þjóðanna flutti hún fjölmörg útvarpserindi undir heitinu Úr ævi og starfi íslenskra kvenna. Erindin voru gefin út í þremur ritum undir sama heiti. Einstakt verk og mikilsvert framlag til kvennasögu. Konur á Íslandi eiga Björgu mikið að þakka fyrir eljuna að afla gagna og rita sögu kvenna fyrir okkur og komandi kynslóð- ir. Við undirritaðar þökkum Björgu Einarsdóttur einstakt samstarf og sanna vináttu. Fjöl- skyldu hennar vottum við ein- læga samúð. Bessí Jóhannsdóttir, Halldóra Rafnar, Inga Jóna Þórðardóttir, Linda Rós Michaelsdóttir. Af öllum þeim sem maður kynnist á lífsleiðinni skilja örfáir eftir sig dýpri spor í lífi manns en aðrir. Það á klárlega við um Björgu Einarsdóttur. Ég kynnt- ist Björgu fyrir um 40 árum þeg- ar við tengdust fjölskyldubönd- um. Þó að það hafi síðar breyst héldum við meira og minna sam- bandi alla tíð. Allt frá byrjun fannst mér mikið til hennar koma enda var hún skemmtileg með afbrigðum, Björg Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.