Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 4
FRÉTTIR
Innlent4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Skipulagsstofnun telur að notkun
ásætuvarna á sjókvíar Arctic Fish
í Arnarfirði sé líkleg til að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfisáhrif
og því skuli aðgerðin háð mati á um-
hverfisáhrifum.
Ásætur eru lífverur sem setjast
á yfirborð eldiskvía og neta í sjó og
er kostnaðarsamt að fjarlægja þær.
Ásætur geta einnig stuðlað að sýk-
ingum í fiskum. Sjóeldisfyrirtæki hafa
brugðist við með því að bera efni á
kvíarnar, svokallaðar ásætuvarnir.
Þau efni sem nú eru best talin duga
innihalda koparoxíð. Í greinargerð
Arctic Fish vegna áforma um að
nota ásætuvarnir á kvíum í Arnar-
firði kemur fram að með því móti sé
hægt að dragamjög úr þörf á þvotti á
eldisnótum og draga þannig úr álagi
á nætur og fisk. Einungis sé þörf á
þvotti nóta í sjó með lágþrýstingi á 8
til 12 mánaða fresti þegar ásætuvarnir
eru notaðar en nætur án koparoxíð-
húðunar þurfi að þvo á sex vikna
fresti.
Arctic Fish hefur leyfi til að nota
þessar ásætuvarnir á kvíar sínar í
Dýrafirði, Tálknafirði og Patreksfirði
og Arnarlax hefur slíkt leyfi fyrir kví-
ar í Arnarfirði. Nú bregður svo við að
Artctic Fish þarf að láta fara fram
umhverfismat ef fyrirtækið hyggst
halda til streitu áforum sínum um að
nota ásætuvarnir í Arnarfirði.
Í rökum Skipulagsstofnunar fyrir
því að umhverfismat skuli fara fram
segir að lífríki Arnarfjarðar sé á krefj-
andi svæði vegna þröskuldar í mynni
fjarðarins, sem dregur úr endurnýjun
og blöndun sjávarins, auk þess sem
það er undir álagi vegna losunar líf-
ræns úrgangs og ítrekaðrar notkunar
lúsalyfja. Segir Skipulagsstofnun að
notkun kopars í sjókvíum bæti við nýj-
um álagsþætti á botndýralíf fjarðar-
ins en kopar geti haft langvarandi
eitrunaráhrif á lífverur og sé mjög
eitraður þörungum og hryggleysingj-
um. Langvarandi notkun ásætuvarna
sem innihalda kopar sé líkleg til að
stuðla að því að ástand Arnarfjarðar
versni og umhverfismarkmiðum verði
ekki náð. Ekki er talið víst að vöktun
komi í veg fyrir uppsöfnun kopars í
firðinum og óafturkræf skaðleg áhrif
á lífríki fjarðarins.
lKopar í vörnum á sjókvíum er talinn auka álag á botndýralíf í Arnarfirði og geti haft varanleg
eitrunaráhrif á lífverurlSlíkar varnir eru og hafa verið notaðar í flestum fiskeldisfjörðumVestfjarða
Ásætuvarnir fari í umhverfismat
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
PatreksfjörðurÁsætuvarnir eru leyfðar á sjókvíum víða á Vestfjörðum og
hafa sjóeldisfyrirtækin þar til nú ekki verið látin gera umhverfismat.
Herramannsmatur
á Þorláksmessunni
Skata og annað slíkt fiskmeti var víða á borðum í gær, Þorláksmessu.
Sú var tíðin að sjálfsagt þótti á aðventu að gæta hófs í öllu og hafa
daginn fyrir jól á borðum fiskmeti heldur lakara en annað, svo sem
skötuna sem veiddist ágætlega á Vestfjarðamiðum á þessum tíma árs.
Þetta er hin einfalda ástæða þess að skötuhefðin kemur að vestan;
aflabrögð.
Í fiskbúðinni Hafbergi við Gnoðarvog í Reykjavík var fólki sem
var sólgið í kæsta skötu hleypt inn í hópum, slík var eftirspurnin og
áhuginn. Skata er nefnilega herramannsmatur!
Á vegum Faxaflóahafna var svo í gær skötuveisla um borð í hafnsögu-
bátnumMagna, sem var í Reykjavíkurhöfn. Þar sá Ingimar Finnbjörns-
son um að elda skötuna og annað sem þurfti, sem starfsfólk fyrirtækis-
ins og fleiri gerðu góð skil. sbs@mbl.is
Skötuveislur voru víða í gær og sjávarfanginu gerð góð skil fyrir jólin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sjómenn Gestir tóku vel til matar síns í skötuboðinu um borð í Magna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veisla Biðraðir mynduðust í fiskbúðinni Hafbergi. Allir fengu þó sitt af rammsterkri skötunni en henni fylgdi meðlæti eins og grænmeti og rúgbrauð.
sjóðsins árið 2020 um 16,4 millj-
arðar króna, 20,2 milljarðar króna
í fyrra og á fyrstu ellefu mánuðum
yfirstandandi árs eru útgreiðslur
úr sjóðnum orðnar 22,5 milljarðar
króna. Svo bætist desember við
svo útgjöld ársins gætu endað
í u.þ.b. 24,5 milljörðum. Í þessu
sambandi minnir Leó Örn á að
orlofsréttur foreldra 2019 og fyrr
var níu mánuðir, 2020 var hann 10
mánuðir og frá 2021 heilt ár, eða 12
mánuðir.
„Þá hafa foreldrar nú allt að 24
mánuði til að nýta réttinn. Árið
2020 var sjóðurinn því að greiða
með börnum fæddum 2018-20,
árið 2021 var greitt vegna barna
sem fæddust á árunum 2019-
21 og árið 2022 vegna barna
sem fæddust 2020-22. Á þessu
tímabili hefur réttur foreldra
lengst um þrjá mánuði eins og
áður sagði, úr níu í 12 mánuði,“
sagði Leó Örn í samtali við
Morgunblaðið.
Fæðingum fækkar og frjósemi er
minni. Þetta má lesa út úr starf-
semistölum Landspítalans þar
sem um 70% allra barnsfæðinga á
Íslandi eiga sér stað. Á fæðingar-
deild sjúkrahússins fæddust alls
2.863 börn á fyrstu ellefu mánuð-
um yfirstandandi árs. Á sama
tímabili í fyrra voru fæðingarnar
3.221 og 3.030 árið 2020. Fækkun
fæddra barna á spítalanum í ár
miðað við 2021, það er frá janúar
til nóvember, er því um 11,1% og
5,6 sé horft til ársins 2020.
Í ár voru fæðingar á Landspít-
alanum flestar í september, 289,
eða einni fleiri en var í október.
Þessar tölur eru nánast á pari við
hvað var í þessum sömu mánuðum
í fyrra. Þá varð hins vegar nánast
barnasprenging í júlí með alls 334
fæðingum. Ber þá þess að geta að
níu mánuðum fyrr, það er á haust-
dögum 2020, voru mjög stífar
samkomutakmarkanir í miðjum
heimsfaraldri svo margir héldu sig
heima.
Greiðslur Fæðingar-
orlofssjóðs hækka
Tölurnar um fjölda nýfæddra
barna koma eðlilega strax fram
í tölum Fæðingarorlofssjóðs.
Samkvæmt upplýsingum frá Leó
Erni Þorleifssyni sviðsstjóra hjá
Vinnumálastofnun voru útgjöld
l2.853 börn alin á Landspítala á fyrstu ellefumánuðumársinsl3.221 á sama tímabili í fyrra
Barnsfæðingum fækkarmikið milli ára
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Skiptum lokið á búi
Guðmundar á Núpum
Skipum á búi athafnamannsins
Guðmundar A. Birgissonar, oft-
ast kenndum við bæinn Núpa í
Ölfusi, er lokið. Samtals fengust
929 milljónir upp í samtals 2,78
milljarða samþykktar kröfur en
eftir stóðu rúmlega 1,85 millj-
arðar. Fengust veðkröfur að fullu
greiddar upp og 769,3 milljónir
upp í almennar kröfur en það
nemur 29,4% upp í almennar
kröfur. Guðmundur var úrsk-
urðaður gjaldþrota 20. desember
árið 2013 og lauk skiptunum upp
á dag níu árum síðar.
Fjögurra ára fang-
elsi fyrir brot sín
Héraðsdómur
Reykjavíkur
dæmdi í vik-
unni karlmann
í fjögurra ára
fangelsi fyrir
vændiskaup,
frelsissvipt-
ingu, sérstak-
lega hættulega
líkamsárás og
nauðgun. Þá
var honum gert að greiða konunni
sem hann braut gegn þrjár millj-
ónir króna í miskabætur. Málsat-
vikum er lýst þannig í dómnum
aðmaðurinn hafi fengið konuna
til sín í þeim tilangi að kaupa af
henni vændi, en hún starfaði sem
vændiskona. Hann greiddi fyrir
ákveðna þjónustu í ákveðinn tíma
en þegar sá tími var liðinn vildi
maðurinn fá endurgreitt. Konan
sagðist ekki geta endurgreitt
honum þar sem fjárhæðin hefði
verið lögð inn á vinkonu hennar
og hún hefði ekki aðgang að þeim
reikningi. Þegar hún varð ekki
við kröfu mannsins um endur-
greiðslu hóf hann að beita hana
ofbeldi og meinaði henni útgöngu
úr herbergi sem þau voru stödd í.
DómurDæmdur
fyrir gróft ofbeldi.