Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 22

Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 22
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum eignasala@eignasala.is Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári 24. desember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 144.17 Sterlingspund 173.72 Kanadadalur 105.84 Dönsk króna 20.614 Norsk króna 14.723 Sænsk króna 13.873 Svissn. franki 155.6 Japanskt jen 1.0917 SDR 192.09 Evra 153.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.1787 STUTT Áfram samdráttur í útlánum bankanna z Ný útlán bankakerfisins til heimila í nóvember námu tæplega 12,5 milljörðum króna, að frádregnum uppgreiðslum, og drógust lítillega saman á milli mánaða samkvæmt hagtölum Seðla- bankans um bankakerfið. Þar af námu fasteignalán um 8,3 milljörðum króna og bílalán um 2,6 milljörðum króna.Af fasteignalánum námu óverðtryggð lán aðeins um 1,1 milljarði króna, að meginþorranum til með breytilegum vöxtum.Verðtryggð fasteignalán námu hins vegar 7,2 millj- örðum króna. Megnið af óverðtryggðum lánum til heimila í nóvember var vegna bílalána, eða rúmir 2,5 milljarðar króna. Þetta er í takt við fyrri mánuði, þar sem umfang óverðtryggðra lána hefur minnkað. Ný útlán til heimila hafa dreg- ist verulega saman á liðnummánuðum, semætla má að séu afleiðingar af hækkandi stýrivöxtum Seðlabankans. Útlán til heimila nema, það sem af er ári, um 191 milljarði króna. Þar af nema óverðtryggð lán um 160 milljörðum króna, að mestu á föstum vöxtum.Á sama tíma í fyrra námu þau um 314 milljörðum króna. Samtals námu ný útlán um 44,8 millj- örðum króna í nóvember. Þar af námu lán til fyrirtækja um 22,6 milljörðum. Megnið af því, eða um 10 milljarðar, var vegna lána til fasteignafélaga. Útlán til heimila minnka á milli ára. aðgengi að verslunum á höfuðborgar- svæðinu sé gott. Stutt sé í allar áttir og varla nema 15-20 mínútur í allar verslanir. „Maður var samt að vona að þetta háa þjónustustig yrði til þess að netverslun héldist hærri, að fólk nýtti sér í meira mæli og til frambúð- ar þessi þægindi sem netversluninni fylgja.“ Einar segir að mögulega spili inn í að fólk hafi verið orðið langþreytt á samkomutakmörkunum og hafi einfaldlega þráð að hitta annað fólk. „Félagslegi þátturinn spilar því inn í.“ Áhugasamt um virknina Spurður um kauphegðun segir Ein- ar að algengara sé að fólk kaupi dýrari vörur í versluninni sjálfri en ódýrari á netinu. Þá sé fólk óhræddara við að kaupa gjafavörur á netinu. „Við erum að selja fatnað sem er tæknilegur og fólk er áhugasamt um virknina. Þá finnst því gott aðmæta í verslunina og Einar Karl Birgisson fram- kvæmdastjóri útivistarvöruversl- unarinnar Cintamani segir að net- verslun sé komin óþarflega nálægt því hlutfalli af heildarveltu sem hún var í áður en faraldurinn skall á. „Í faraldrinum færðist mjög mikið af verslun yfir á netið. Hjá okkur fór hlutfallið t.d. í um 40% af heildar- veltu. Innst inni höfum við og aðrir á markaðnum verið að vona að þetta hlutfall myndi ná að halda sér hærra en það var fyrir faraldurinn, en því miður hefur það ekki gengið eftir,“ segir Einar Karl. Fyrir faraldur var hlutfall netverslunar af heildarveltu Cintamani um 18%. Það er nú á bilinu 15-20% að sögn Einars. Hátt þjónustustig Hann segir þjónustustig í netversl- un á Íslandi mjög hátt miðað við ná- grannalöndin. Fólk geti fengið vöruna afhenta fljótt og með ýmsum hætti, hvort sem er heimsent eða í póstbox, á pósthús eða næstu bensínstöð, svo dæmi séu tekin. „Við náðum að besta þetta vel í far- aldrinum. Það eru því pínu vonbrigði að þetta skuli ekki halda sér betur til lengri tíma. Það hefur lengi verið talað um að íslensk verslun þyrfti að komast þangað sem nágrannalöndin eru í netverslun. Þau erumun framar en við,“ segir Einar. Hann bætir við að þó sé engin ástæða til að kvarta. Mjög gott sé að fá sem flesta viðskiptavini í verslun- ina sjálfa. „Mér finnst líka áhugavert við Ísland hve margir kaupa á netinu en velja að sækja í verslunina sjálfa.“ Gott aðgengi Ein ástæðan fyrir því að netverslun hefur róast síðan í faraldrinum segir Einar að sémögulega sú staðreynd að máta. Sölumaðurinn er ekki útdauður enn,“ segir Einar og hlær. „Það getur verið erfitt að útskýra flóknari hluti á prenti,“ bætir hann við. GÁP að breytast Spurður um söluna á árinu hjá Cintamani segir Einar að hún hafi verið góð. Hún hafi verið að rétta úr kútnum á síðustu mánuðum ársins og góður kippur hafi komið eftir að kuldakastið hófst í desember. Auk netverslunarinnar er Cinta- mani með verslun í Austurhrauni 3 í Garðabæ. Þá keypti fyrirtækið hjóla- verslun GÁP í Faxafeni fyrr á árinu. „Við höfum jafnt og þétt verið að fjölga Cintamani-vörum þar inni. GÁP er að breytast í útivistarvöruverslun með hjól,“ segir Einar að lokum. zHlutfall netverslunar hjá Cintamani fór í 40% í faraldrinumzKippur í sölu í kuldakastinuzCintamani-vörum fjölgað í GÁPzMargir sækja í verslun Óþarflega nálægt fyrra hlutfalli Netverslun »Aðgengi að verslunum á höfuðborgarsvæðinu er gott. »Fólk vill kaupa „tæknilegan“ fatnað í versluninni sjálfri. »Hlutfall netverslunar var 18% af heildarveltu fyrir faraldurinn. »Nú er hlutfall netverslunar Cintamani á bilinu 15-20%. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Útivist Einar segir það vonbrigði að hlutfall netverslunar úr faraldri haldi sér ekki betur til lengri tíma. Rúmlega 1,4 milljónir ferðamanna sóttu Ísland heim á fyrstu 10 mánuðum ársins, sem er um 16% fækkun frá sama tímabili 2019, samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Fyrstu mánuðir ársins voru enn rólegri en árið fyrir faraldur en bættist svo í þegar leið á árið. Þrátt fyrir þessa fækkun ferðafólks er velta í ferðaþjónustugreinum 3% hærri en fyrir sama tímabil á árinu 2019. Sé veltan hins vegar leiðrétt að teknu tilliti til gengis gjaldmiðla og verðlagsþróunar má greina ríflega 11% raunsamdrátt. Meðal- kortavelta hvers ferðamanns var um 150 þúsund krónur, sem er um 6% aukning. Meðaldvalartími hefur jafnframt aukist og er nú tæpir átta dagar en var tæpir sjö árið 2019. Ferðamenn færri en eyða fleiri krónum Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Ferðalög Meðalferðamaðurinn eyðir um 150 þúsund krónum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.