Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 22
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
eignasala@eignasala.is
Óskum
landsmönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á
komandi ári
24. desember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 144.17
Sterlingspund 173.72
Kanadadalur 105.84
Dönsk króna 20.614
Norsk króna 14.723
Sænsk króna 13.873
Svissn. franki 155.6
Japanskt jen 1.0917
SDR 192.09
Evra 153.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 183.1787
STUTT
Áfram samdráttur í
útlánum bankanna
z Ný útlán
bankakerfisins
til heimila í
nóvember námu
tæplega 12,5
milljörðum króna,
að frádregnum
uppgreiðslum, og
drógust lítillega
saman á milli
mánaða samkvæmt hagtölum Seðla-
bankans um bankakerfið.
Þar af námu fasteignalán um 8,3
milljörðum króna og bílalán um 2,6
milljörðum króna.Af fasteignalánum
námu óverðtryggð lán aðeins um 1,1
milljarði króna, að meginþorranum til
með breytilegum vöxtum.Verðtryggð
fasteignalán námu hins vegar 7,2 millj-
örðum króna. Megnið af óverðtryggðum
lánum til heimila í nóvember var vegna
bílalána, eða rúmir 2,5 milljarðar króna.
Þetta er í takt við fyrri mánuði, þar
sem umfang óverðtryggðra lána hefur
minnkað. Ný útlán til heimila hafa dreg-
ist verulega saman á liðnummánuðum,
semætla má að séu afleiðingar af
hækkandi stýrivöxtum Seðlabankans.
Útlán til heimila nema, það sem af er
ári, um 191 milljarði króna. Þar af nema
óverðtryggð lán um 160 milljörðum
króna, að mestu á föstum vöxtum.Á
sama tíma í fyrra námu þau um 314
milljörðum króna.
Samtals námu ný útlán um 44,8 millj-
örðum króna í nóvember. Þar af námu
lán til fyrirtækja um 22,6 milljörðum.
Megnið af því, eða um 10 milljarðar, var
vegna lána til fasteignafélaga.
Útlán til heimila
minnka á milli ára.
aðgengi að verslunum á höfuðborgar-
svæðinu sé gott. Stutt sé í allar áttir
og varla nema 15-20 mínútur í allar
verslanir. „Maður var samt að vona
að þetta háa þjónustustig yrði til þess
að netverslun héldist hærri, að fólk
nýtti sér í meira mæli og til frambúð-
ar þessi þægindi sem netversluninni
fylgja.“
Einar segir að mögulega spili inn
í að fólk hafi verið orðið langþreytt
á samkomutakmörkunum og hafi
einfaldlega þráð að hitta annað fólk.
„Félagslegi þátturinn spilar því inn í.“
Áhugasamt um virknina
Spurður um kauphegðun segir Ein-
ar að algengara sé að fólk kaupi dýrari
vörur í versluninni sjálfri en ódýrari
á netinu. Þá sé fólk óhræddara við að
kaupa gjafavörur á netinu. „Við erum
að selja fatnað sem er tæknilegur og
fólk er áhugasamt um virknina. Þá
finnst því gott aðmæta í verslunina og
Einar Karl Birgisson fram-
kvæmdastjóri útivistarvöruversl-
unarinnar Cintamani segir að net-
verslun sé komin óþarflega nálægt því
hlutfalli af heildarveltu sem hún var í
áður en faraldurinn skall á.
„Í faraldrinum færðist mjög mikið
af verslun yfir á netið. Hjá okkur fór
hlutfallið t.d. í um 40% af heildar-
veltu. Innst inni höfum við og aðrir
á markaðnum verið að vona að þetta
hlutfall myndi ná að halda sér hærra
en það var fyrir faraldurinn, en því
miður hefur það ekki gengið eftir,“
segir Einar Karl. Fyrir faraldur var
hlutfall netverslunar af heildarveltu
Cintamani um 18%. Það er nú á bilinu
15-20% að sögn Einars.
Hátt þjónustustig
Hann segir þjónustustig í netversl-
un á Íslandi mjög hátt miðað við ná-
grannalöndin. Fólk geti fengið vöruna
afhenta fljótt og með ýmsum hætti,
hvort sem er heimsent eða í póstbox,
á pósthús eða næstu bensínstöð, svo
dæmi séu tekin.
„Við náðum að besta þetta vel í far-
aldrinum. Það eru því pínu vonbrigði
að þetta skuli ekki halda sér betur
til lengri tíma. Það hefur lengi verið
talað um að íslensk verslun þyrfti að
komast þangað sem nágrannalöndin
eru í netverslun. Þau erumun framar
en við,“ segir Einar.
Hann bætir við að þó sé engin
ástæða til að kvarta. Mjög gott sé að
fá sem flesta viðskiptavini í verslun-
ina sjálfa. „Mér finnst líka áhugavert
við Ísland hve margir kaupa á netinu
en velja að sækja í verslunina sjálfa.“
Gott aðgengi
Ein ástæðan fyrir því að netverslun
hefur róast síðan í faraldrinum segir
Einar að sémögulega sú staðreynd að
máta. Sölumaðurinn er ekki útdauður
enn,“ segir Einar og hlær. „Það getur
verið erfitt að útskýra flóknari hluti
á prenti,“ bætir hann við.
GÁP að breytast
Spurður um söluna á árinu hjá
Cintamani segir Einar að hún hafi
verið góð. Hún hafi verið að rétta úr
kútnum á síðustu mánuðum ársins
og góður kippur hafi komið eftir að
kuldakastið hófst í desember.
Auk netverslunarinnar er Cinta-
mani með verslun í Austurhrauni 3 í
Garðabæ. Þá keypti fyrirtækið hjóla-
verslun GÁP í Faxafeni fyrr á árinu.
„Við höfum jafnt og þétt verið að
fjölga Cintamani-vörum þar inni. GÁP
er að breytast í útivistarvöruverslun
með hjól,“ segir Einar að lokum.
zHlutfall netverslunar hjá Cintamani fór í 40% í faraldrinumzKippur í sölu
í kuldakastinuzCintamani-vörum fjölgað í GÁPzMargir sækja í verslun
Óþarflega nálægt fyrra hlutfalli
Netverslun
»Aðgengi að verslunum á
höfuðborgarsvæðinu er gott.
»Fólk vill kaupa „tæknilegan“
fatnað í versluninni sjálfri.
»Hlutfall netverslunar var
18% af heildarveltu fyrir
faraldurinn.
»Nú er hlutfall netverslunar
Cintamani á bilinu 15-20%.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útivist Einar segir það vonbrigði að hlutfall netverslunar úr faraldri haldi sér ekki betur til lengri tíma.
Rúmlega 1,4 milljónir ferðamanna
sóttu Ísland heim á fyrstu 10
mánuðum ársins, sem er um 16%
fækkun frá sama tímabili 2019,
samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálastofu. Fyrstu mánuðir
ársins voru enn rólegri en árið
fyrir faraldur en bættist svo
í þegar leið á árið. Þrátt fyrir
þessa fækkun ferðafólks er velta í
ferðaþjónustugreinum 3% hærri
en fyrir sama tímabil á árinu 2019.
Sé veltan hins vegar leiðrétt að
teknu tilliti til gengis gjaldmiðla
og verðlagsþróunar má greina
ríflega 11% raunsamdrátt. Meðal-
kortavelta hvers ferðamanns var
um 150 þúsund krónur, sem er
um 6% aukning. Meðaldvalartími
hefur jafnframt aukist og er nú
tæpir átta dagar en var tæpir sjö
árið 2019.
Ferðamenn
færri en eyða
fleiri krónum
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Ferðalög Meðalferðamaðurinn
eyðir um 150 þúsund krónum.