Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 38
ÍÞRÓTTIR38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
NBA-deildin
New Orleans – San Antonio ............... 126:117
Utah – Washington............................... 120:112
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 22/9, Boston 22/10, Cleveland
22/11, Brooklyn 20/12, Philadelphia 18/12,
New York 18/14, Indiana 16/16, Atlanta 16/16,
Miami 16/16, Toronto 14/18, Chicago 13/18,
Washington 12/21, Orlando 12/21, Charlotte
8/24, Detroit 8/26.
Staðan í Vesturdeild:
Memphis 19/11, Denver 19/11, New Orleans
19/12, Phoenix 19/13, LAClippers 19/14, Sacra-
mento 17/13, Utah 19/16, Portland 17/15, Dallas
16/16, Minnesota 16/16, Golden State 15/18,
Oklahoma City 14/18, LA Lakers 13/18, San
Antonio 10/21, Houston 9/22.
Í nótt fóru fram 14 leikir í deildinni (sjá mbl.
is/sport). Liðin eiga frí í kvöld en fimm leikir
fara fram á jóladag og jóladagskvöld.
landi og í ofanálag er hann að spila
hverja einustu mínútu líka. Það tók
smá tíma fyrir okkur að finna bestu
stöðuna hans Guðlaugs Victors inn-
an hópsins en hann hefur blómstrað
sem hægri bakvörður í landsliðinu
og verið algjörlega stórkostlegur.
Að fá Alfreð inn var líka frábært
og þegar horft er á tölfræðina hans
á æfingum og hlaupatölur til dæmis
þá sér maður mjög glögglega af
hverju hann var að spila í efstu
deild Þýskalands öll þessi ár. Birkir
Bjarna hefur svo verið frábær á
meðan við vorum að róa í gegnum
þennan ólgusjó og stutt vel við bak-
ið á ungu strákunum. Vissulega eru
þeir orðnir eldri en á EM í Frakk-
landi og HM í Rússlandi en á sama
tíma þá er jafnvel nóg fyrir okkur
að fá jafnvel 60 mínútur frá þeim
í hverjum leik. Hlutverkið breytist
því eftir því sem árin líða. Þessir
eldri leikmenn fá líka ákveðna orku
við að vera í kringum þessa ungu
leikmenn og það er áhugavert að sjá
hvernig sumir þeirra breytast aftur
í hvolpa þegar þeir koma til móts
við landsliðið, á jákvæðan hátt.“
Lifir og lærir
Þjálfarinn viðurkennir að öll þau
kynferðis- og ofbeldismál sem upp
komu í kringum karlalandsliðið
á síðasti ári hafi tekið á hann og
Knattspyrnusambandið í heild
sinni.
„Það er ekkert launungarmál að
þetta var hvorki einfalt, skemmti-
legt né auðvelt á sínum tíma. Ég
Neikvæðar
fyrirsagnir
selja best
lLandsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðars-
son horfir sáttur til baka yfir árið 2022
Það hefur gengið á ýmsu hjá
íslenska karlalandsliðinu í
knattspyrnu síðan Arnar Þór
Viðarsson tók við þjálfun liðsins í
desember árið 2020.
Á árinu sem er að líða lék liðið
14 leiki; tveir þeirra unnust, átta
enduðu í jafntefli og fjórir þeirra
töpuðust. Reyndar unnust tveir
leikjanna, sem enduðu sem jafntefli,
eftir vítaspyrnukeppni gegn Lit-
háen og Lettlandi í Eystrasaltsbik-
arnum. Liðið gerði hins vegar fjögur
jafntefli í B-deild Þjóðadeildarinnar,
gegn Albaníu og Ísrael, og það voru
þeir leikir sem skiptu mestu máli
á árinu.
„Heilt yfir þá er ég og við sem
störfum í kringum liðið ánægð
með árið 2022,“ sagði Arnar Þór í
samtali við Morgunblaðið.
„Í lok árs 2021 misstum við yfir
700 A-landsleiki úr hópnum af
hinum ýmsu aðstæðum. Það tekur
alltaf tíma að byggja upp nýtt lið og
fyrst þarf að finna ákveðinn grunn.
Með góðum grunni er svo hægt að
byggja upp nýtt lið og við höfum
talað um það, alveg frá síðasta ári,
að við séum að vinna í því jafnt og
þétt. Það hafa hins vegar ekki bara
orðið breytingar á leikmannahópn-
um því það hafa líka orðið miklar
breytingar á teyminu sem starfar
í kringum liðið. Þegar ég horfi til
loka árs 2021 og hvar ég vildi vera
með liðið í lok ársins 2022 þá held
ég að við getum verið nokkuð sáttir.
Krafan er auðvitað alltaf sú að við
vinnum alla þá leiki sem við spilum
en við áttum góða möguleika á því
að enda í efsta sæti okkar riðils í
Þjóðadeildinni og ef það hefði tekist
þá værum við að tala um frábært
ár núna. Við gerðum mörg jafntefli
á árinu og núna þurfum við að
læra að breyta þessum jafnteflum
í sigra. Það tekur um það bil 10 ár
fyrir hvern leikmann að safna 70
landsleikjum og þeir sem kunna að
reikna og skilja fótbolta gera sér
grein fyrir því að verkefnið hefur
verið ansi stórt. Þess vegna er ég
stoltur yfir þeim stað sem liðið er
komið á,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Snýst um reynslu
En hvað þarf liðið að gera til
þess að breyta þessum jafnteflum
í sigra?
„Þetta snýst að stóru leyti um
reynslu. Gegn Venesúela tókst
okkur að snúa jafntefli upp í sigur á
lokamínútunum og það skipti máli
þó um vináttulandsleik hafi verið að
ræða. Svipað var uppi á teningnum
gegn Albaníu í Þjóðadeildinni þegar
við snérum tapi upp í jafntefli, ein-
um manni færri, á síðustu mínútun-
um. Þetta var mjög farsæl reynsla
sem leikmenn öðluðust í þessum
leikjum sem dæmi. Það skiptir
okkur gríðarlega miklu máli að vera
með leikmenn í hópnum sem hafa
spilað yfir 50 landsleiki í bland við
yngri leikmenn.
Við tókum þá ákvörðun í lok
síðasta árs að velja leikmenn í liðið
sem gætu skarað fram úr með
landsliðinu til lengri tíma litið.
Þessir leikmenn þurfa 15-20 lands-
leiki áður en þeir geta farið að ná í
góð úrslit fyrir okkur. Við hefðum
getað valið leikmenn sem eru orðn-
ir 27-28 ára og hafa verið viðloðandi
landsliðið undanfarin ár, en kannski
í aukahlutverki. Okkur fannst það
ekki vera rétta leiðin, til langs tíma
litið í það minnsta, og því þurftum
við stundum að bíta í það súra epli
að úrslitin á árinu voru ekki alltaf
okkur í hag.“
Verða lykilmenn landsliðsins
Margir ungir leikmenn fengu
stórt hlutverk í landsliðinu á árinu
og Arnar Þór er ánægður með þá
vegferð sem þeir eru á.
„Við erum með marga unga
stráka, sem eru fæddir á árinu
2000 eða jafnvel seinna, sem hafa
öðlast mjög dýrmæta reynslu í bláa
búningnum. Leikmenn eins og Ísak
Bergmann, Hákon Arnar, Þórir
Jóhann, Andri Lucas, Mikael Egill
og markverðirnir okkar til dæmis.
Þetta eru allt leikmenn sem ég
reikna með að verði algjörir lykil-
menn í landsliðinu eftir nokkur ár.
Við verðum hins vegar að fara
varlega með þá og við megum
ekki setja þá pressu á þá núna að
þeir þurfi að draga vagninn fyrir
landsliðið, það er algjörlega óraun-
hæft að mínu mati. Þessir leik-
menn þurfa eldri og reynslumeiri
leikmenn sem þeir geta stutt sig
við. Þess vegna horfi ég sáttur til
baka yfir árið því við fengum marga
reynslumikla leikmenn inn á hópinn
á nýjan leik í ár og í raun alla þá
leikmenn sem okkur stóðu til boða
og ég fagna því.“
Fá öðruvísi hlutverk
Alfreð Finnbogason, Aron Einar
Gunnarsson, Jóhann Berg Guð-
mundsson og Sverrir Ingi Ingason
snéru allir aftur í landsliðið á
síðasta ári eftir langa fjarveru.
„Það var frábært að fá þessa
reynslubolta aftur inn í liðið og
þeir hafa margir öðlast nýtt líf með
sínum félagsliðum eins og til dæmis
Jóhann Berg. Hann er allt annar
leikmaður í dag en hann hefur
verið síðustu ár. Aron Einar er að
spila sem miðvörður í Katar og við
getum því notað hann í tvær stöður
í landsliðinu í dag. Sverrir Ingi er
að spila í hæsta gæðaflokki í Grikk-
FÓTBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
LandsliðsþjálfariArnar Þór Viðarsson tók við þjálfun íslenska karlalands-
liðsins í desember árið 2020 þegar Svíinn Erik Hamrén hætti með liðið.
Kamerúnski knattspyrnumarkvörð-
urinn André Onana er hættur að leika
með landsliði Kamerún. Þetta tilkynnti
leikmaðurinn á samfélagsmiðlinum
Twitter í gær en Onana, sem er 26 ára
gamall, er samningsbundinn Inter
Mílanó á Ítalíu. Markvörðurinn var í
lokahóp Kamerún á heimsmeistara-
mótinu í Katar og stóð á milli
stanganna í fyrsta leik liðsins þegar
Kamerún tapaði 0:1 gegn Sviss í G-riðli
keppninnar. Eftir þann leik kom upp
ósætti milli hans og landsliðsþjálf-
arans Rigoberts Songs sem endaði
með því að Onana var sendur heim
af heimsmeistaramótinu. Onana lék
sinn fyrsta A-landsleik fyrir Kamerún
árið 2016 en alls á hann að baki 34
landsleiki.
Knattspyrnumaðurinn Blaise Matui-
di hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna, 35 ára að aldri. Þetta tilkynnti
hann á samfélagsmiðlinum Twitter en
Matuidi hefur leikið með Inter Miami í
bandarísku MLS-deildinni undanfarin
tvö tímabil. Hann gerði garðinn frægan
með bæði París SG og Juventus en
hann varð fjórum sinnum Frakklands-
meistari með Parísarliðinu og þrívegis
ítalskur meistari með Juventus. Þá
var hann í lykilhlutverki hjá Frökkum
þegar liðið varð heimsmeistari í Rúss-
landi árið 2018.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri
Arsenal, hefur mikinn áhuga á franska
miðjumanninum Adrien Rabiot en
hann er samningsbundinn Juventus.
Það er ítalski miðillinn Repubblica
sem greinir frá þessu en Rabiot,
sem er 27 ára gamall, sló í gegn með
franska landsliðinu á heimsmeistara-
mótinu í Katar. Samningur miðju-
mannsins við Juventus rennur út
næsta sumar og hann hyggst ekki
framlengja samning sinn í Tórínó.
Antonio Conte, knattspyrnustjóri
Tottenham, segir að meiðslin hjá
Richarlison, brasilíska framherjanum,
séu það slæm að hann verði lengur
frá keppni en bara yfir jól og áramót.
Richarlison tognaði aftan í læri þegar
Brasilía mætti Króatíu í átta liða
úrslitum heimsmeistara-
s í Katar. Talið er
n hafi fundið fyrir
ðslunum strax í
pphitun en samt
spilaði hann
í rúmar 80 mín-
útur í leiknum.
Conte sagði að
meiðslin væru
það alvarleg að
hann yrði þrjár
til fjórar vikur
rá keppni til
ðbótar.
mótsin
að han
mei
u
f
vi
Sautján af þeim nítján leikmönnum
sem Guðmundur Þ. Guðmunds-
son þjálfari karlalandsliðsins í
handbolta valdi í hóp sinn fyrir
heimsmeistaramótið 2023 léku með
liðinu á Evrópumótinu sem fram fór
í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar
á þessu ári.
Guðmundur tefldi fram samtals
24 leikmönnum á því móti, sem er
einstakt í sinni röð vegna útbreiðslu
kórónuveirufaraldursins en hann
hjó stór skörð í hóp Íslands og
margra annarra liða á mótinu.
Það kom þó ekki í veg fyrir að ís-
lenska liðið næði frábærum árangri
en það stóð uppi í sjötta sætinu eftir
að hafa sigrað Portúgal, Holland,
Ungverjaland, Frakkland og Svart-
fjallaland en tapað fyrir Danmörku,
Króatíu og Noregi.
Hornamennirnir Hákon Daði
Styrmisson og Óðinn Þór Ríkharðs-
son koma inn í liðið en í þeirra stað
sitja Teitur Örn Einarsson og Orri
Freyr Þorkelsson eftir heima. Aðrir
sem komu við sögu á EM 2022 en
eru ekki í þessum HM-hópi Guð-
mundar eru Daníel Þór Ingason,
Magnús Óli Magnússon, Vignir
Stefánsson, Darri Aronsson og
Þráinn Orri Jónsson. Þeir Magnús,
Vignir, Darri og Þráinn voru allir
kallaðir með stuttum fyrirvara til
Ungverjalands eftir að keppnin
hófst og tóku þátt í einum til fjórum
leikjum.
Hákon Daði hefur leikið einn
landsleik á þessu ári, gegn Eist-
landi í undankeppni EM í haust, en
Óðinn lék með í umspilsleikjunum
fyrir HM gegn Austurríki í júní og
skoraði þá 11 mörk í sigurleikjunum
tveimur.
Ágúst Elí er til taks
Markvörðurinn Ágúst Elí Björg-
vinsson er í raun nítjándi leikmaður
hópsins en Guðmundur útskýrði
á fréttamannafundinum í gær að
þeir Björgvin Páll Gústavsson og
Sautján sem
léku á EM
lGuðmundur valdi 19 leikmenn fyrir
HMlHákon og Óðinn bætast við
Morgunblaðið/Árni Sæberg
62 ára Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynnti HM-hópinn á afmælisdegi
sínum en æfingar liðsins fyrir HM hefjast 28. desember.
HM2023
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is