Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 27

Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 27 WWW.MINIPLAY.IS fallegar og vandaðar vörur fyrir börnin Eins og stundum áður hefur pistlahöfundur tekið saman nokkur skákdæmi fyrir jólin. Lausnir verða birtar í blaðinu eftir viku. Fimm fyrstu dæmin snúast um að knýja fram mátstöðu en í síðasta dæminu verður hvítur að þræða einstigið til að vinna. Þess má geta að fyrsta dæmið var lagt fyrir heimsmeistarann Magnús Carlsen og tók það hann innan við tvær mínútur að leysa það. 1. Höfundur ókunnur. Hvítur leikur og mátar í 2. leik. 2. L. Kubbel 1923 Hvítur leikur og mátar í 2. leik. 3. V. Golgauzen 1903 Hvítur leikur og mátar í 3. leik. 4. Y. Kupme 1916 Hvítur leikur og mátar í 3. leik. 5. C. Chyrulik 1975 Hvítur leikur og mátar í 5. leik. 6. V. Evreinov 1962 Hvítur leikur og vinnur. Jólaskákdæmi Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Jólasálmur 2022 Son Guðs er oss fæddur! Gleðiboð jólanna fjalla um fjárhús og Krist; frelsara borinn ermannkyni þjóna vildi. Um fæðingu Jesú, fjárhirðar greindu fyrst, fullir af lotningu sáu þeir alla Guðsmildi. Heiminum öllum berst jólanna boðskapur núna: „Barn er oss fætt,“ þá rættist hin lifandi von. Guð sem er kærleikur kveikir í hjörtunum trúna; „Kristur oss gefinn, borinn Guðs einkason!“ Kveðjan í Betlehem: „Yður er frelsari fæddur!“ fyllti menn vonum,þá englar í upphæðum sungu. Spádómar sögðu hann væri guðseðli gæddur, guðspjöllin lesin og boðuð ámarga þjóðtungu. Áfram barst fregnin þessi útmeðal þjóða, þannig fór Orðið um heiminn í Jesú nafni. Ávallt mun trúin koma til nýrra kynslóða, kærleikur Guðs í Jesú,æmeðal vor dafni. Er við lyftum höfði móti hækkandi sól, horfum þá til framtíðar við komandi nýtt ár. Þakkir Guði færum, að öll við eigum jól, ómæld er hans gæska, er þerrar sérhvert tár. Með gleðiboðskap jóla, hann frelsara oss færir, og fögnuður og trú vor í gæskunni hans býr. Í Kristi því við fögnum,hann fátækt andans nærir, „Fylg þúmér,“ hann segir, – þú verðurmaður nýr. Ert' í huga þínum ekki eftir Drottins hjarta? Efst sú regla gildir, að elska náungann. Hugsa umþinn næsta, að sjái birtu bjarta, bið að kærleikshendur, leiði sérhvernmann. Jesús biður okkur að vinna bæði og vaka, verkin góð oss leiði í fyrirmyndumhans. Styðja sérhvern bróður ef að þrautir þjaka, það er leiðin vísustmeð Kristi kærleikans. Enn í Jesú nafni við höldum hátíð bjarta, Honumöll við bjóðum að dvelja okkur hjá. Guðspjallið á jólunum,gleður sérhvert hjarta, gefurmörgum vonir, sem elska hann og þrá. Í hjarta þínu býr hann og biður þig að trúa, boð hans eru þessi: „Ávallt er ég þinn!“ Í öllum raunumþínumþú skalt að honum snúa, þámuntu finna gleðina, og segja: „Gakk hér inn!“ Sigurður Rúnar Ragnarsson Höfundur er prestur emeritus og fv. sóknarprestur. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.