Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 27
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
27
WWW.MINIPLAY.IS
fallegar
og vandaðar
vörur fyrir
börnin
Eins og stundum áður hefur
pistlahöfundur tekið saman
nokkur skákdæmi fyrir jólin.
Lausnir verða birtar í blaðinu eftir
viku.
Fimm fyrstu dæmin snúast um
að knýja fram mátstöðu en í síðasta
dæminu verður hvítur að þræða
einstigið til að vinna. Þess má
geta að fyrsta dæmið var lagt fyrir
heimsmeistarann Magnús Carlsen
og tók það hann innan við tvær
mínútur að leysa það.
1. Höfundur ókunnur.
Hvítur leikur og mátar í 2. leik.
2. L. Kubbel 1923
Hvítur leikur og mátar í 2. leik.
3. V. Golgauzen 1903
Hvítur leikur og mátar í 3. leik.
4. Y. Kupme 1916
Hvítur leikur og mátar í 3. leik.
5. C. Chyrulik 1975
Hvítur leikur og mátar í 5. leik.
6. V. Evreinov 1962
Hvítur leikur og vinnur.
Jólaskákdæmi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Jólasálmur 2022
Son Guðs er oss fæddur!
Gleðiboð jólanna fjalla um fjárhús og Krist;
frelsara borinn ermannkyni þjóna vildi.
Um fæðingu Jesú, fjárhirðar greindu fyrst,
fullir af lotningu sáu þeir alla Guðsmildi.
Heiminum öllum berst jólanna boðskapur núna:
„Barn er oss fætt,“ þá rættist hin lifandi von.
Guð sem er kærleikur kveikir í hjörtunum trúna;
„Kristur oss gefinn, borinn Guðs einkason!“
Kveðjan í Betlehem: „Yður er frelsari fæddur!“
fyllti menn vonum,þá englar í upphæðum sungu.
Spádómar sögðu hann væri guðseðli gæddur,
guðspjöllin lesin og boðuð ámarga þjóðtungu.
Áfram barst fregnin þessi útmeðal þjóða,
þannig fór Orðið um heiminn í Jesú nafni.
Ávallt mun trúin koma til nýrra kynslóða,
kærleikur Guðs í Jesú,æmeðal vor dafni.
Er við lyftum höfði móti hækkandi sól,
horfum þá til framtíðar við komandi nýtt ár.
Þakkir Guði færum, að öll við eigum jól,
ómæld er hans gæska, er þerrar sérhvert tár.
Með gleðiboðskap jóla, hann frelsara oss færir,
og fögnuður og trú vor í gæskunni hans býr.
Í Kristi því við fögnum,hann fátækt andans nærir,
„Fylg þúmér,“ hann segir, – þú verðurmaður nýr.
Ert' í huga þínum ekki eftir Drottins hjarta?
Efst sú regla gildir, að elska náungann.
Hugsa umþinn næsta, að sjái birtu bjarta,
bið að kærleikshendur, leiði sérhvernmann.
Jesús biður okkur að vinna bæði og vaka,
verkin góð oss leiði í fyrirmyndumhans.
Styðja sérhvern bróður ef að þrautir þjaka,
það er leiðin vísustmeð Kristi kærleikans.
Enn í Jesú nafni við höldum hátíð bjarta,
Honumöll við bjóðum að dvelja okkur hjá.
Guðspjallið á jólunum,gleður sérhvert hjarta,
gefurmörgum vonir, sem elska hann og þrá.
Í hjarta þínu býr hann og biður þig að trúa,
boð hans eru þessi: „Ávallt er ég þinn!“
Í öllum raunumþínumþú skalt að honum snúa,
þámuntu finna gleðina, og segja: „Gakk hér inn!“
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
Höfundur er prestur emeritus og
fv. sóknarprestur.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512