Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 2
FRÉTTIR
Innlent2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kerti lýstu upp
skammdegið
Sannkallaður jólaandi sveif yfir vötnum er fólk safnaðist
saman og yljaði sér á heitu kakói og ristuðum möndlum
í miðborg Reykjavíkur og miðbæ Hafnarfjarðar í gær.
Þeir sem enn áttu eftir að klára jólagjafainnkaupin nýttu
tækifærið og skoðuðu sig um í búðum á meðan aðrir skelltu
sér á skauta og nutu tónlistarinnar sem ómaði um strætin.
Jólasveinarnir og Grýla voru heldur ekki langt undan og
heilsuðu upp á mannskapinn, og er aldrei að vita nema
jólakötturinn hafi slegist í förina.
Margir voru með kerti í hönd er friðargangan fór fram
á ný víða um land. Samstarfshópur friðarhreyfinga
skipulagði gönguna að vanda en hún fór fyrst fram árið 1981.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Kerti Friðarganga á Þorláksmessu hefur verið fastur liður í Reykjavíkurborg frá árinu 1981. Í gær var gengið niður Laugaveginn að Austurvelli til að leggja áherslu á kröfu um frið í heiminum.
Hlýja Margir gæddu sér á heitu súkkulaði eða jólaglöggi. Hátíð Jólasveinarnir og Grýla heilsuðu upp á mannskapinn.
Ganga Fjölnota ljós komu í stað hefðbundnu vaxkyndlanna.
Frost Úlpur og vettlingar voru staðalbúnaður í kuldanum.
og verðið því nokkuð mismunandi
á milli verslana. Búast má við að
verslun sem nú selur lítrann á 190
krónur hækki verðið upp í 196-197
krónur, ef hlutfallsleg álagning
helst. Verslun sem selur þessa sömu
vöru á 200 krónur gæti hækkað
fernuna um 7 kr., upp í 207 krónur.
Á fundi verðlagsnefndarinnar, þar
sem hækkunin var ákveðin, kom
fram hjá fulltrúa mjólkuriðnaðarins
að eftir hagræðingu undanfarinna
ára og miklar kostnaðarhækkanir
sé lítið svigrúm í rekstrarumhverfi
iðnaðarins. Fulltrúi BSRB lagði
fram minnisblað þar sem segir að í
ljósi áherslu kjarasamninga, um að
verja kaupmátt og skapa forsendur
fyrir stöðugleika, sé varhugavert að
kostnaðarauka vegna þeirra sé velt
út í verðlag.
Ágreiningur í nefndinni
Fulltrúar BSRB og ASÍ sátu hjá
við ákvörðun um að hækka verð
til bænda og fulltrúi BSRB greiddi
atkvæði á móti hækkun vinnslu- og
dreifingarkostnaðar. Fulltrúi ASÍ
sagðist hafa skilning á forsendum
sem lægju að baki hækkuninni, að
því er fram kemur í fundargerð, en
taldi ekki forsvaranlegt að kjara-
samningsbundnum launahækkun-
um yrði velt beint út í verðlag enda
væri ein meginforsenda kjarasamn-
inganna að skapa meiri stöðugleika
í hagkerfinu með lækkandi verð-
bólgu og lækkun vaxta.
Mjólk hækkar í verði um áramótin.
Búast má við að útsöluverð á
venjulegri mjólk í eins lítra fernu
hækki um sjö krónur. Ástæðan
er aukinn kostnaður, ekki síst við
vinnslu mjólkurinnar og dreifingu,
í kjölfar nýgerðra kjarasamninga.
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
í verðlagsnefnd búvara vöruðu við
því að launahækkunum væri velt
beint út í verðlag og greiddi fulltrúi
BSRB atkvæði á móti hækkun
heildsöluverðsins.
Verðlagsnefnd búvara ákvað
nýlega á fundi 2,38% hækkun
lágmarksverðs á mjólk til bænda
frá 1. desember. Jafnframt var
ákveðið að heildsöluverð mjólkur og
mjólkurvara, sem nefndin verðlegg-
ur, hækkaði almennt um 3,5% um
áramót. Samkvæmt tilkynningu frá
verðlagsnefndinni er verðhækkunin
komin til vegna kostnaðarhækkana
við framleiðslu og vinnslu mjólk-
ur frá síðustu verðákvörðun sem
miðaðist við 1. september. Bent er
á að gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli
kúabús hafi hækkað um 2,38% og
vinnslu- og dreifingarkostnaður
afurðastöðva um 5,06% að meðtöld-
um áhrifum kjarasamninga.
Verð á mjólk, án viðbættra
vítamína, í eins lítra fernum verður
171 króna í heildsölu frá og með 1.
janúar. Álagning í smásölu er frjáls
lFulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd búvara telja
ekki forsvaranlegt að launahækkunum sé velt beint út í verðlagið
Mjólkin hækkar um 7 krónur
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Kostnaður við rekstur kúabúa hefur aukist töluvert frá því í haust.
Fréttaþjónusta
mbl.is um jólin
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 27. desember.
Öflug fréttaþjónusta verður
á mbl.is yfir jólin. Hægt er að
senda ábendingar um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Áskrifendaþjónustan er
opin í dag, aðfangadag, kl.
8-12. Lokað er á jóladag og
annan dag jóla. Netfang
áskrifendaþjónustunnar er
askrift@mbl.is og síminn er
569-1100. Áskrifendaþjón-
ustan verður opnuð aftur
mánudaginn 27. desember kl.
7. Auglýsingadeild er lokuð til
27. desember. Netfang hennar
er augl@mbl.is.
Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is.
Jólamessum streymt á netinu
Streymi frá guðsþjónust-
um í Hallgrímskirkju verður
á mbl.is í kvöld, aðfanga-
dagskvöld. Aftansöngur
hefst þar klukkan 18 og há-
tíðarguðsþjónusta á jólanótt
hefst klukkan 23.30.