Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 1
SMÁSAGA
EFTIR RAGNAR
JÓNASSON
MEÐ SYND Á BAKINU 28
MAYENBURG FER INN
AÐ KVIKU Í ELLEN B.
JÓLAFRUMSÝNING ÞJÓÐLEIKHÚSSINS 40
• Stofnað 1913 • 302. tölublað • 110. árgangur •
L AU G A R DAG U R 24. D E S E M B E R 2 0 2 2
Gleðilega hátíð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleðileg jól!
Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar
í verðlagsnefnd búvara telja ekki
forsvaranlegt að kjarasamnings-
bundnum launahækkunum sé velt
út í verðlag enda sé ein megin-
forsenda nýgerðra kjarasamninga
að skapa meiri stöðugleika í hag-
kerfinu með lækkandi verðbólgu
og lækkun vaxta.
Kom þetta fram þegar meirihluti
verðlagsnefndarinnar ákvað að
hækka verð á mjólk til bænda sem
og að hækka heildsöluverð.
Verðlagsnefndin ákvað að lág-
marksverð á mjólk til bænda skyldi
hækka um 2,38% frá 1. desember og
að hækka heildsöluverð um 3,5%
frá áramótum.
Er það vegna aukins kostnaðar
við framleiðslu og vinnslu mjólk-
ur frá því í haust. Þar á meðal eru
launahækkanir í nýsamþykktum
kjarasamningum sem afurðastöðv-
ar meta að leiði til 11,4% aukningar
á launakostnaði á samningstímabil-
inu.
Álagning á mjólkurafurðir í smá-
sölu er frjáls og verðið því nokkuð
mismunandi. Búast má við því að
venjuleg óvítamínbætt mjólk í eins
lítra fernu hjá verslun sem nú verð-
leggur vöruna á 190 krónur hækki í
196 til 197 krónur nú um áramótin
og aðrar afurðir hækki hlutfallslega
svipað.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
sagði við Morgunblaðið að niður-
staða nýgerðra kjarasamninga gæti
að óbreyttu kallað á hærri vexti til
að ná niður verðbólgu. Ein forsend-
an að baki verðbólguspá bankans
var sú að samið yrði um 6% launa-
hækkanir næstu þrjú ár.
„Nú virðist hafa verið samið um
meiri hækkanir, að minnsta kosti
til skemmri tíma litið,“ segir Yngvi
Harðarson. » 2 og 10
lVerð á mjólk hækkar um 3,5% vegna launahækkana
lKjarasamningarnir kalla hugsanlega á hærri vexti
Vara við verðhækkunBíður spenntur eftir
kveðju leynivinar
Bergþór
Pálsson,
söngvari og
skólastjóri,
bíður spenntur
um hver jól
eftir kveðju
frá leynivini,
sem byrjaði að
senda honum
bréf og jafnvel
jólagjöf fyrir tæpum tveimur
áratugum.
Í bréfunum er lof um söngv-
arann og litríkar frásagnir af
fjölskyldu sendanda. Leyni-
jólavinurinn hefur ekki gefið sig
fram og nöfnin sem koma fram
virðast tilbúningur. „Þetta vekur
alltaf mikla kátínu,“ segir Berg-
þór í viðtali í Sunnudagsblaðinu.
Bergþór Pálsson