Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 1
SMÁSAGA EFTIR RAGNAR JÓNASSON MEÐ SYND Á BAKINU 28 MAYENBURG FER INN AÐ KVIKU Í ELLEN B. JÓLAFRUMSÝNING ÞJÓÐLEIKHÚSSINS 40 • Stofnað 1913 • 302. tölublað • 110. árgangur • L AU G A R DAG U R 24. D E S E M B E R 2 0 2 2 Gleðilega hátíð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleðileg jól! Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd búvara telja ekki forsvaranlegt að kjarasamnings- bundnum launahækkunum sé velt út í verðlag enda sé ein megin- forsenda nýgerðra kjarasamninga að skapa meiri stöðugleika í hag- kerfinu með lækkandi verðbólgu og lækkun vaxta. Kom þetta fram þegar meirihluti verðlagsnefndarinnar ákvað að hækka verð á mjólk til bænda sem og að hækka heildsöluverð. Verðlagsnefndin ákvað að lág- marksverð á mjólk til bænda skyldi hækka um 2,38% frá 1. desember og að hækka heildsöluverð um 3,5% frá áramótum. Er það vegna aukins kostnaðar við framleiðslu og vinnslu mjólk- ur frá því í haust. Þar á meðal eru launahækkanir í nýsamþykktum kjarasamningum sem afurðastöðv- ar meta að leiði til 11,4% aukningar á launakostnaði á samningstímabil- inu. Álagning á mjólkurafurðir í smá- sölu er frjáls og verðið því nokkuð mismunandi. Búast má við því að venjuleg óvítamínbætt mjólk í eins lítra fernu hjá verslun sem nú verð- leggur vöruna á 190 krónur hækki í 196 til 197 krónur nú um áramótin og aðrar afurðir hækki hlutfallslega svipað. Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, sagði við Morgunblaðið að niður- staða nýgerðra kjarasamninga gæti að óbreyttu kallað á hærri vexti til að ná niður verðbólgu. Ein forsend- an að baki verðbólguspá bankans var sú að samið yrði um 6% launa- hækkanir næstu þrjú ár. „Nú virðist hafa verið samið um meiri hækkanir, að minnsta kosti til skemmri tíma litið,“ segir Yngvi Harðarson. » 2 og 10 lVerð á mjólk hækkar um 3,5% vegna launahækkana lKjarasamningarnir kalla hugsanlega á hærri vexti Vara við verðhækkunBíður spenntur eftir kveðju leynivinar „Bergþór Pálsson, söngvari og skólastjóri, bíður spenntur um hver jól eftir kveðju frá leynivini, sem byrjaði að senda honum bréf og jafnvel jólagjöf fyrir tæpum tveimur áratugum. Í bréfunum er lof um söngv- arann og litríkar frásagnir af fjölskyldu sendanda. Leyni- jólavinurinn hefur ekki gefið sig fram og nöfnin sem koma fram virðast tilbúningur. „Þetta vekur alltaf mikla kátínu,“ segir Berg- þór í viðtali í Sunnudagsblaðinu. Bergþór Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.