Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 2

Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kerti lýstu upp skammdegið Sannkallaður jólaandi sveif yfir vötnum er fólk safnaðist saman og yljaði sér á heitu kakói og ristuðum möndlum í miðborg Reykjavíkur og miðbæ Hafnarfjarðar í gær. Þeir sem enn áttu eftir að klára jólagjafainnkaupin nýttu tækifærið og skoðuðu sig um í búðum á meðan aðrir skelltu sér á skauta og nutu tónlistarinnar sem ómaði um strætin. Jólasveinarnir og Grýla voru heldur ekki langt undan og heilsuðu upp á mannskapinn, og er aldrei að vita nema jólakötturinn hafi slegist í förina. Margir voru með kerti í hönd er friðargangan fór fram á ný víða um land. Samstarfshópur friðarhreyfinga skipulagði gönguna að vanda en hún fór fyrst fram árið 1981. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kerti Friðarganga á Þorláksmessu hefur verið fastur liður í Reykjavíkurborg frá árinu 1981. Í gær var gengið niður Laugaveginn að Austurvelli til að leggja áherslu á kröfu um frið í heiminum. Hlýja Margir gæddu sér á heitu súkkulaði eða jólaglöggi. Hátíð Jólasveinarnir og Grýla heilsuðu upp á mannskapinn. Ganga Fjölnota ljós komu í stað hefðbundnu vaxkyndlanna. Frost Úlpur og vettlingar voru staðalbúnaður í kuldanum. og verðið því nokkuð mismunandi á milli verslana. Búast má við að verslun sem nú selur lítrann á 190 krónur hækki verðið upp í 196-197 krónur, ef hlutfallsleg álagning helst. Verslun sem selur þessa sömu vöru á 200 krónur gæti hækkað fernuna um 7 kr., upp í 207 krónur. Á fundi verðlagsnefndarinnar, þar sem hækkunin var ákveðin, kom fram hjá fulltrúa mjólkuriðnaðarins að eftir hagræðingu undanfarinna ára og miklar kostnaðarhækkanir sé lítið svigrúm í rekstrarumhverfi iðnaðarins. Fulltrúi BSRB lagði fram minnisblað þar sem segir að í ljósi áherslu kjarasamninga, um að verja kaupmátt og skapa forsendur fyrir stöðugleika, sé varhugavert að kostnaðarauka vegna þeirra sé velt út í verðlag. Ágreiningur í nefndinni Fulltrúar BSRB og ASÍ sátu hjá við ákvörðun um að hækka verð til bænda og fulltrúi BSRB greiddi atkvæði á móti hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Fulltrúi ASÍ sagðist hafa skilning á forsendum sem lægju að baki hækkuninni, að því er fram kemur í fundargerð, en taldi ekki forsvaranlegt að kjara- samningsbundnum launahækkun- um yrði velt beint út í verðlag enda væri ein meginforsenda kjarasamn- inganna að skapa meiri stöðugleika í hagkerfinu með lækkandi verð- bólgu og lækkun vaxta. Mjólk hækkar í verði um áramótin. Búast má við að útsöluverð á venjulegri mjólk í eins lítra fernu hækki um sjö krónur. Ástæðan er aukinn kostnaður, ekki síst við vinnslu mjólkurinnar og dreifingu, í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd búvara vöruðu við því að launahækkunum væri velt beint út í verðlag og greiddi fulltrúi BSRB atkvæði á móti hækkun heildsöluverðsins. Verðlagsnefnd búvara ákvað nýlega á fundi 2,38% hækkun lágmarksverðs á mjólk til bænda frá 1. desember. Jafnframt var ákveðið að heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara, sem nefndin verðlegg- ur, hækkaði almennt um 3,5% um áramót. Samkvæmt tilkynningu frá verðlagsnefndinni er verðhækkunin komin til vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólk- ur frá síðustu verðákvörðun sem miðaðist við 1. september. Bent er á að gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hafi hækkað um 2,38% og vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva um 5,06% að meðtöld- um áhrifum kjarasamninga. Verð á mjólk, án viðbættra vítamína, í eins lítra fernum verður 171 króna í heildsölu frá og með 1. janúar. Álagning í smásölu er frjáls lFulltrúar verkalýðshreyfingarinnar í verðlagsnefnd búvara telja ekki forsvaranlegt að launahækkunum sé velt beint út í verðlagið Mjólkin hækkar um 7 krónur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Kýr Kostnaður við rekstur kúabúa hefur aukist töluvert frá því í haust. Fréttaþjónusta mbl.is um jólin Morgunblaðið kemur næst út þriðjudaginn 27. desember. Öflug fréttaþjónusta verður á mbl.is yfir jólin. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónustan er opin í dag, aðfangadag, kl. 8-12. Lokað er á jóladag og annan dag jóla. Netfang áskrifendaþjónustunnar er askrift@mbl.is og síminn er 569-1100. Áskrifendaþjón- ustan verður opnuð aftur mánudaginn 27. desember kl. 7. Auglýsingadeild er lokuð til 27. desember. Netfang hennar er augl@mbl.is. Hægt er að bóka dánar- tilkynningar á mbl.is. Jólamessum streymt á netinu Streymi frá guðsþjónust- um í Hallgrímskirkju verður á mbl.is í kvöld, aðfanga- dagskvöld. Aftansöngur hefst þar klukkan 18 og há- tíðarguðsþjónusta á jólanótt hefst klukkan 23.30.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.