Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 38

Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 38
ÍÞRÓTTIR38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 NBA-deildin New Orleans – San Antonio ............... 126:117 Utah – Washington............................... 120:112 Staðan í Austurdeild: Milwaukee 22/9, Boston 22/10, Cleveland 22/11, Brooklyn 20/12, Philadelphia 18/12, New York 18/14, Indiana 16/16, Atlanta 16/16, Miami 16/16, Toronto 14/18, Chicago 13/18, Washington 12/21, Orlando 12/21, Charlotte 8/24, Detroit 8/26. Staðan í Vesturdeild: Memphis 19/11, Denver 19/11, New Orleans 19/12, Phoenix 19/13, LAClippers 19/14, Sacra- mento 17/13, Utah 19/16, Portland 17/15, Dallas 16/16, Minnesota 16/16, Golden State 15/18, Oklahoma City 14/18, LA Lakers 13/18, San Antonio 10/21, Houston 9/22. Í nótt fóru fram 14 leikir í deildinni (sjá mbl. is/sport). Liðin eiga frí í kvöld en fimm leikir fara fram á jóladag og jóladagskvöld. landi og í ofanálag er hann að spila hverja einustu mínútu líka. Það tók smá tíma fyrir okkur að finna bestu stöðuna hans Guðlaugs Victors inn- an hópsins en hann hefur blómstrað sem hægri bakvörður í landsliðinu og verið algjörlega stórkostlegur. Að fá Alfreð inn var líka frábært og þegar horft er á tölfræðina hans á æfingum og hlaupatölur til dæmis þá sér maður mjög glögglega af hverju hann var að spila í efstu deild Þýskalands öll þessi ár. Birkir Bjarna hefur svo verið frábær á meðan við vorum að róa í gegnum þennan ólgusjó og stutt vel við bak- ið á ungu strákunum. Vissulega eru þeir orðnir eldri en á EM í Frakk- landi og HM í Rússlandi en á sama tíma þá er jafnvel nóg fyrir okkur að fá jafnvel 60 mínútur frá þeim í hverjum leik. Hlutverkið breytist því eftir því sem árin líða. Þessir eldri leikmenn fá líka ákveðna orku við að vera í kringum þessa ungu leikmenn og það er áhugavert að sjá hvernig sumir þeirra breytast aftur í hvolpa þegar þeir koma til móts við landsliðið, á jákvæðan hátt.“ Lifir og lærir Þjálfarinn viðurkennir að öll þau kynferðis- og ofbeldismál sem upp komu í kringum karlalandsliðið á síðasti ári hafi tekið á hann og Knattspyrnusambandið í heild sinni. „Það er ekkert launungarmál að þetta var hvorki einfalt, skemmti- legt né auðvelt á sínum tíma. Ég Neikvæðar fyrirsagnir selja best lLandsliðsþjálfarinn Arnar Þór Viðars- son horfir sáttur til baka yfir árið 2022 Það hefur gengið á ýmsu hjá íslenska karlalandsliðinu í knattspyrnu síðan Arnar Þór Viðarsson tók við þjálfun liðsins í desember árið 2020. Á árinu sem er að líða lék liðið 14 leiki; tveir þeirra unnust, átta enduðu í jafntefli og fjórir þeirra töpuðust. Reyndar unnust tveir leikjanna, sem enduðu sem jafntefli, eftir vítaspyrnukeppni gegn Lit- háen og Lettlandi í Eystrasaltsbik- arnum. Liðið gerði hins vegar fjögur jafntefli í B-deild Þjóðadeildarinnar, gegn Albaníu og Ísrael, og það voru þeir leikir sem skiptu mestu máli á árinu. „Heilt yfir þá er ég og við sem störfum í kringum liðið ánægð með árið 2022,“ sagði Arnar Þór í samtali við Morgunblaðið. „Í lok árs 2021 misstum við yfir 700 A-landsleiki úr hópnum af hinum ýmsu aðstæðum. Það tekur alltaf tíma að byggja upp nýtt lið og fyrst þarf að finna ákveðinn grunn. Með góðum grunni er svo hægt að byggja upp nýtt lið og við höfum talað um það, alveg frá síðasta ári, að við séum að vinna í því jafnt og þétt. Það hafa hins vegar ekki bara orðið breytingar á leikmannahópn- um því það hafa líka orðið miklar breytingar á teyminu sem starfar í kringum liðið. Þegar ég horfi til loka árs 2021 og hvar ég vildi vera með liðið í lok ársins 2022 þá held ég að við getum verið nokkuð sáttir. Krafan er auðvitað alltaf sú að við vinnum alla þá leiki sem við spilum en við áttum góða möguleika á því að enda í efsta sæti okkar riðils í Þjóðadeildinni og ef það hefði tekist þá værum við að tala um frábært ár núna. Við gerðum mörg jafntefli á árinu og núna þurfum við að læra að breyta þessum jafnteflum í sigra. Það tekur um það bil 10 ár fyrir hvern leikmann að safna 70 landsleikjum og þeir sem kunna að reikna og skilja fótbolta gera sér grein fyrir því að verkefnið hefur verið ansi stórt. Þess vegna er ég stoltur yfir þeim stað sem liðið er komið á,“ sagði landsliðsþjálfarinn. Snýst um reynslu En hvað þarf liðið að gera til þess að breyta þessum jafnteflum í sigra? „Þetta snýst að stóru leyti um reynslu. Gegn Venesúela tókst okkur að snúa jafntefli upp í sigur á lokamínútunum og það skipti máli þó um vináttulandsleik hafi verið að ræða. Svipað var uppi á teningnum gegn Albaníu í Þjóðadeildinni þegar við snérum tapi upp í jafntefli, ein- um manni færri, á síðustu mínútun- um. Þetta var mjög farsæl reynsla sem leikmenn öðluðust í þessum leikjum sem dæmi. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að vera með leikmenn í hópnum sem hafa spilað yfir 50 landsleiki í bland við yngri leikmenn. Við tókum þá ákvörðun í lok síðasta árs að velja leikmenn í liðið sem gætu skarað fram úr með landsliðinu til lengri tíma litið. Þessir leikmenn þurfa 15-20 lands- leiki áður en þeir geta farið að ná í góð úrslit fyrir okkur. Við hefðum getað valið leikmenn sem eru orðn- ir 27-28 ára og hafa verið viðloðandi landsliðið undanfarin ár, en kannski í aukahlutverki. Okkur fannst það ekki vera rétta leiðin, til langs tíma litið í það minnsta, og því þurftum við stundum að bíta í það súra epli að úrslitin á árinu voru ekki alltaf okkur í hag.“ Verða lykilmenn landsliðsins Margir ungir leikmenn fengu stórt hlutverk í landsliðinu á árinu og Arnar Þór er ánægður með þá vegferð sem þeir eru á. „Við erum með marga unga stráka, sem eru fæddir á árinu 2000 eða jafnvel seinna, sem hafa öðlast mjög dýrmæta reynslu í bláa búningnum. Leikmenn eins og Ísak Bergmann, Hákon Arnar, Þórir Jóhann, Andri Lucas, Mikael Egill og markverðirnir okkar til dæmis. Þetta eru allt leikmenn sem ég reikna með að verði algjörir lykil- menn í landsliðinu eftir nokkur ár. Við verðum hins vegar að fara varlega með þá og við megum ekki setja þá pressu á þá núna að þeir þurfi að draga vagninn fyrir landsliðið, það er algjörlega óraun- hæft að mínu mati. Þessir leik- menn þurfa eldri og reynslumeiri leikmenn sem þeir geta stutt sig við. Þess vegna horfi ég sáttur til baka yfir árið því við fengum marga reynslumikla leikmenn inn á hópinn á nýjan leik í ár og í raun alla þá leikmenn sem okkur stóðu til boða og ég fagna því.“ Fá öðruvísi hlutverk Alfreð Finnbogason, Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guð- mundsson og Sverrir Ingi Ingason snéru allir aftur í landsliðið á síðasta ári eftir langa fjarveru. „Það var frábært að fá þessa reynslubolta aftur inn í liðið og þeir hafa margir öðlast nýtt líf með sínum félagsliðum eins og til dæmis Jóhann Berg. Hann er allt annar leikmaður í dag en hann hefur verið síðustu ár. Aron Einar er að spila sem miðvörður í Katar og við getum því notað hann í tvær stöður í landsliðinu í dag. Sverrir Ingi er að spila í hæsta gæðaflokki í Grikk- FÓTBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Morgunblaðið/Eggert LandsliðsþjálfariArnar Þór Viðarsson tók við þjálfun íslenska karlalands- liðsins í desember árið 2020 þegar Svíinn Erik Hamrén hætti með liðið. „Kamerúnski knattspyrnumarkvörð- urinn André Onana er hættur að leika með landsliði Kamerún. Þetta tilkynnti leikmaðurinn á samfélagsmiðlinum Twitter í gær en Onana, sem er 26 ára gamall, er samningsbundinn Inter Mílanó á Ítalíu. Markvörðurinn var í lokahóp Kamerún á heimsmeistara- mótinu í Katar og stóð á milli stanganna í fyrsta leik liðsins þegar Kamerún tapaði 0:1 gegn Sviss í G-riðli keppninnar. Eftir þann leik kom upp ósætti milli hans og landsliðsþjálf- arans Rigoberts Songs sem endaði með því að Onana var sendur heim af heimsmeistaramótinu. Onana lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Kamerún árið 2016 en alls á hann að baki 34 landsleiki. „Knattspyrnumaðurinn Blaise Matui- di hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 35 ára að aldri. Þetta tilkynnti hann á samfélagsmiðlinum Twitter en Matuidi hefur leikið með Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni undanfarin tvö tímabil. Hann gerði garðinn frægan með bæði París SG og Juventus en hann varð fjórum sinnum Frakklands- meistari með Parísarliðinu og þrívegis ítalskur meistari með Juventus. Þá var hann í lykilhlutverki hjá Frökkum þegar liðið varð heimsmeistari í Rúss- landi árið 2018. „Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur mikinn áhuga á franska miðjumanninum Adrien Rabiot en hann er samningsbundinn Juventus. Það er ítalski miðillinn Repubblica sem greinir frá þessu en Rabiot, sem er 27 ára gamall, sló í gegn með franska landsliðinu á heimsmeistara- mótinu í Katar. Samningur miðju- mannsins við Juventus rennur út næsta sumar og hann hyggst ekki framlengja samning sinn í Tórínó. „Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að meiðslin hjá Richarlison, brasilíska framherjanum, séu það slæm að hann verði lengur frá keppni en bara yfir jól og áramót. Richarlison tognaði aftan í læri þegar Brasilía mætti Króatíu í átta liða úrslitum heimsmeistara- s í Katar. Talið er n hafi fundið fyrir ðslunum strax í pphitun en samt spilaði hann í rúmar 80 mín- útur í leiknum. Conte sagði að meiðslin væru það alvarleg að hann yrði þrjár til fjórar vikur rá keppni til ðbótar. mótsin að han mei u f vi Sautján af þeim nítján leikmönnum sem Guðmundur Þ. Guðmunds- son þjálfari karlalandsliðsins í handbolta valdi í hóp sinn fyrir heimsmeistaramótið 2023 léku með liðinu á Evrópumótinu sem fram fór í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar á þessu ári. Guðmundur tefldi fram samtals 24 leikmönnum á því móti, sem er einstakt í sinni röð vegna útbreiðslu kórónuveirufaraldursins en hann hjó stór skörð í hóp Íslands og margra annarra liða á mótinu. Það kom þó ekki í veg fyrir að ís- lenska liðið næði frábærum árangri en það stóð uppi í sjötta sætinu eftir að hafa sigrað Portúgal, Holland, Ungverjaland, Frakkland og Svart- fjallaland en tapað fyrir Danmörku, Króatíu og Noregi. Hornamennirnir Hákon Daði Styrmisson og Óðinn Þór Ríkharðs- son koma inn í liðið en í þeirra stað sitja Teitur Örn Einarsson og Orri Freyr Þorkelsson eftir heima. Aðrir sem komu við sögu á EM 2022 en eru ekki í þessum HM-hópi Guð- mundar eru Daníel Þór Ingason, Magnús Óli Magnússon, Vignir Stefánsson, Darri Aronsson og Þráinn Orri Jónsson. Þeir Magnús, Vignir, Darri og Þráinn voru allir kallaðir með stuttum fyrirvara til Ungverjalands eftir að keppnin hófst og tóku þátt í einum til fjórum leikjum. Hákon Daði hefur leikið einn landsleik á þessu ári, gegn Eist- landi í undankeppni EM í haust, en Óðinn lék með í umspilsleikjunum fyrir HM gegn Austurríki í júní og skoraði þá 11 mörk í sigurleikjunum tveimur. Ágúst Elí er til taks Markvörðurinn Ágúst Elí Björg- vinsson er í raun nítjándi leikmaður hópsins en Guðmundur útskýrði á fréttamannafundinum í gær að þeir Björgvin Páll Gústavsson og Sautján sem léku á EM lGuðmundur valdi 19 leikmenn fyrir HMlHákon og Óðinn bætast við Morgunblaðið/Árni Sæberg 62 ára Guðmundur Þ. Guðmundsson tilkynnti HM-hópinn á afmælisdegi sínum en æfingar liðsins fyrir HM hefjast 28. desember. HM2023 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.