Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 2

Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 Til í mörgum stærðum og gerðum Nuddpottar - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Fullkomnun í líkamlegri vellíðan nhöfða 11 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, segir ferðaþjónustufyrir- tæki verða fyrir miklu fjárhagstjóni þegar vegum sé lokað og því sé ávallt reynt að komast á leiðarenda. Ferðaþjónustufyrirtæki reyni þó alltaf að virða fyrirmæli viðbragðs- aðila. Rúta á vegum Hópbíla hunsaði tvisvar fyrirmæli björgunarsveita og festist tvívegis. Jóhannes segir þetta mál vera undantekningu. „Ef það er hægt að fara, þá fara menn. Það er heilmikið fjárhagslegt tjón sem fyrirtæki verða fyrir ef ekki er hægt að fara í ferðir með fólk sem komið er sérstaklega til landsins um langa vegu til að upplifa Ísland.“ Jóhannes tekur dæmi um það að fyrirtæki tapaði þremur milljónum króna í gær þegar Hellisheiði var óvænt lokað í gærmorgun. „Alltaf ákveðinn þrýstingur“ „Það er alltaf ákveðinn þrýsting- ur á það í svona rekstri að reyna að uppfylla það sem búið er að selja. Það er grundvallaratriði í öllum rekstri. Síðan verða fyrirtækin alltaf að reyna að gæta jafnvægis og meta aðstæð- ur, það er bara eins og það er,“ segir hann. Jóhannes segir óskandi að sam- skipti við Vegagerðina verði bætt en mikil þörf sé á meiri fyrirsjáan- leika þegar kemur að lokunum vega. Betra sé að fá vondar fréttir en engar fréttir. „Okkur finnst hérna megin að samskiptin gætu verið betri þótt við berum virðingu fyrir því að það sé ekki hægt að stýra náttúrunni.“ Tilkynningar um mögulegar lokan- ir myndu að sögn hans bjóða ferða- þjónustufyrirtækjum upp á meiri sveigjanleika. Fyrirtæki gætu þá tekið meðvitaða ákvörðun um það hvort eigi að aflýsa ferðum eða taka áhættuna og vona að vegir lokist ekki. Jóhannes segir aðspurður að sam- skipti við björgunarsveitir hafi að mestu leyti verið góð og allir í ferða- þjónustunni beri mikla virðingu fyrir þeim sem sinna því starfi. „Samskipt- in eru alla jafna afskaplega góð, við höfum átt gott samstarf við Lands- björg, til dæmis í gegnum Safetravel- verkefnið.“ lFramkvæmdastjóri SAF segir samskipti mega vera betri Vegalokanir valda miklu fjárhagstjóni Logi Sigurðarson logis@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Fylgdarakstur Starfsmenn Vegagerðarinnar fóru fyrir bílalest eftir að vegurinn var opnaður á ný í gær við Vík. Fannfergi var á höfuðborgarsvæð- inu í gær eftir snjókomu um nóttina og þurfti því að moka snjó víða, þar á meðal á Reykjavíkurflugvelli, þar sem moksturinn var í fullum gangi þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Eiður Fannar Erlendsson, yfir- maður vetrarþjónustu Reykjavíkur, sagði í gærmorgun að gert væri ráð fyrir svipuðum fjölda snjóruðn- ingstækja á götum borgarinnar og í síðasta fannfergi, en það voru um 20 tæki. Áætlaði Eiður að það gæti tekið allt að fjóra eða fimm daga að klára gatnamoksturinn, en gert var ráð fyrir annarri umferð í mokstri á stofnbrautum til að halda þeim við. Þá verða tafir á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu vegna veðurs. Sagði Valur Sigurðsson, rekstrar- stjóri sorphirðu hjá Reykjavík, við mbl.is í gær að stefnt væri að því að tæma almennar sorptunnur fyrir áramót, en að endurvinnslutunnur myndu líklega þurfa að bíða. lSorphirða á eftir áætlun vegna snjós Flugvöllurinn í Reykjavík ruddur Morgunblaðið/Árni Sæberg Vatnsmýrin Snjómokstur var í fullum gangi á flugvellinum í gær. Skiptastjórar hlutafélaga geta framvegis krafist þess að stjórn- endur þeirra verði úrskurðaðir í atvinnurekstrarbann í þrjú ár vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátta til að stemma stigu við kennitöluflakki og annarri misnotkun á hlutafélaga- forminu. Var þetta samþykkt samhljóða með breytingu á lög- unum um gjald- þrotaskipti á Alþingi fyrir jólaleyfi þingmanna. Verkalýðshreyfingin hefur um árabil barist fyrir því að komið verði böndum á kennitöluflakkið og náðu ASÍ og Samtök atvinnu- lífsins samstöðu árið 2017 um tillögur um aðgerðir til að stöðva kennitöluflakk og hafa stjórnvöld unnið að útfærslum á þessum tillögum um atvinnurekstrarbann á umliðnum árum. Skref var stigið í þessa sömu átt árið 2019 með breytingu á hegningarlögunum og með nýju löggjöfinni sem Alþingi samþykkti fyrir jól er útfært hvernig heimilt verði að sporna við misnotkun á hlutafélagaforminu og kennitöluflakki í atvinnurekstri. Verulega jákvæð breyting Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti ASÍ og formaður Rafiðnað- arsambands Íslands, segist ekki sjá betur en að Alþingi hafi með þessu stigið jákvætt skref í þessa átt, þótt verkalýðshreyfingin hafi gjarnan viljað komast enn lengra með þetta mál. „Þetta er vissu- lega verulega jákvæð breyting á lögunum. Við höfum verið að kalla eftir þessum breytingum þannig að ekki verði sífellt hægt að stofna fyrirtæki, setja þau svo í þrot og byrja síðan upp á nýtt og mér sýnist að því sé náð að ákveðnu marki með þessum breytingum,“ segir hann. Samkvæmt lögunum verður mögulegt að leggja atvinnurekstr- arbann á einstaklinga sem hafa komið að stjórnun félags á síðustu 18 mánuðum fyrir svonefndan frestsdag og getur það einnig átt við um skuggastjórnendur, sem starfa í raun sem stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar félags án þess að vera formlega skráðir sem slíkir. Ef einstaklingar hafa verið úrskurðaðir oftar en einu sinni í atvinnurekstrarbann er mögulegt að þeir geti fengið allt að tíu ára bann. Mikið samfélagslegt tjón Talið er víst að samfélagslegt tjón vegna kennitöluflakks og misnotkunar á hlutafélagaforminu hlaupi á verulegum fjárhæðum á hverju ári og því sé til mikils að vinna að stemma stigu við því. Hefur það verið samdóma álit ASÍ og SA að mikilvægt sé að unnt verði „að stöðva kennitöluflakk- ara og aðra vanhæfa einstaklinga frá því að halda áfram að valda samfélaginu tjóni með skjótvirkum hætti“, eins og sagði í sameig- inlegri umsögn samtakanna til Alþingis á sínum tíma. omfr@mbl.is Geta sett stjórnendur í þriggja ára bann lAðgerðir gegn kennitöluflakki hafa verið lögfestar áAlþingi Kristján Þórður Snæbjarnarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.