Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022
Vann bug á hárlosinu vegna PCOS
Ég var búin að glíma við mikið hárlos í lengri tíma af völdum
hormónaóreglu, PCOS. Viti menn! Hárlosið minnkaði og var hætt
áður en glasið tæmdist. Ég tek GeoSilica inn núna daglega og
mæli heilshugar með þessari vöru.
— TINNA MILJEVIC
www.geosilica.is
STAKSTEINAR
Fjölmiðlatap
Merki um erfitt rekstrar-
umhverfi fjölmiðla hér á
landi er svokölluð sameining
Kjarnans og Stundarinnar. Óðinn
Viðskiptablaðsins vék að henni
og benti meðal annars á „digur-
barkalega
yfirlýsingu“
sem miðl-
arnir sendu
út vegna
samein-
ingarinnar,
þar sem
fram kom að
reksturinn
ætti „í samkeppni við stærri fjöl-
miðla sem hafa fengið viðvarandi
taprekstur niðurgreiddan af fjár-
sterkum aðilum, meðal annars
eigendum útgerða og kvóta“.
Óðinn benti á að Stundin og
Kjarninn hefðu verið rekin
með tapi nánast frá upphafi, en
tap hins síðarnefnda hefði þó
verið mun meira. Samanlagt tap
Kjarnans á verðlagi hvers árs
væri komið í 85 milljónir, sem er
talsvert þegar horft er til þess
að velta síðasta árs var rúmar
hundrað milljónir króna. Þá segir
Óðinn að „fjársterkir aðilar“ hafi
borið uppi taprekstur Kjarnans
og „[e]kki nóg með það þá var
einn stærri hluthafa félagsins
erfingi kvótaauðs“.
Áfram heldur Óðinn: „Að auki
er annar af tveimur stærstu
hluthöfum Kjarnans í eigu
einstaklings sem stóð á Austur-
velli, barði í tunnu og mótmælti
því að menn geymdu peninga í
aflandsfélögum. Svo kom í ljós að
sá hinn sami átti félagið M-trade
á Tortóla, dótturfélag lúxem-
borgsks félags, rétt eins og hlut-
hafinn Miðeind sem er hluthafi í
Kjarnanum.“
Hvers vegna kom þetta ekki
fram í yfirlýsingunni digur-
barkalegu?
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Víðar lokað en hjá Hagstofunni
lStarfsfólk Menntamálastofnunar
nýtir eigin frídaga milli jóla og nýárs
Nokkuð er um að ríkisstofnanir kjósi
að loka afgreiðslu sinni á milli jóla
og nýárs, en það vakti athygli fyr-
ir jól þegar fregnir bárust af því að
starfsfólk Hagstofu Íslands myndi
fá fjögurra daga frí um hátíðarnar
vegna góðrar frammistöðu í desem-
ber, sem væri mikill álagstími hjá
stofnuninni.
Í samantekt mbl.is á lokunum
ríkisstofnana í kringum hátíðarnar,
sem birtist í gærkvöldi, kom fram
að slíkar lokanir væru víðar en hjá
Hagstofunni, en ekki lægi fyrir hvort
starfsfólk viðkomandi stofnana hefði
fengið aukafrídaga eða væri að nýta
orlofsdaga sína.
Kom þar m.a. fram að Mennta-
málastofnun yrði lokuð á milli jóla
og nýárs, en að starfsfólkið myndi
nýta sína eigin frídaga til þess. Þá er
lokað hjá Rannís fram til 3. janúar,
sem og hjá Hugverkastofnun. Hljóð-
bókasafn Íslands er lokað fram til 2.
janúar. Lyfjastofnun verður opin, en
lágmarksþjónusta veitt á milli jóla og
nýárs, á meðan Neytendastofa var
einungis með lokað á Þorláksmessu.
Þá verða skrifstofur Hæstaréttar
opnar fram til hádegis fram til 6.
janúar og skrifstofur Landsréttar
sömuleiðis fram til 2. janúar. Skrif-
stofur hinna ýmsu héraðsdóma eru
nú allar lokaðar, flestar til 1. janúar,
en skrifstofa héraðsdóms Suðurlands
er lokuð til 30. desember og héraðs-
dóms Austurlands til 3. janúar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lokanir Nokkuð er um að stofnanir
loki afgreiðslu sinni um hátíðarnar.
Helstu viðburðir í stjórnmálum
ársins, sem er að líða, er megin-
viðfangsefni í maraþonþætti
Dagmála, sem birtur er í dag. Þar
fara fjórir blaðamenn Morgun-
blaðsins yfir helstu uppákomur
stjórnmálanna, kosningabarátt-
una í vor og afleiðingar hennar,
formannskjör í Samfylkingu
og Sjálfstæðisflokki, væringar
í verkalýðshreyfingu, umbrot á
fjölmiðlamarkaði og margt fleira.
Ekki er þó látið nægja að ræða
viðburði árins, heldur einnig um
afleiðingarnar og hvers megi
vænta á komandi ári af þeim
völdum. Þar ræðir bæði um
helstu viðfangsefni, sem mörg
voru óleyst á árinu eða frestað til
frekari úrlausnar, að ógleymdum
ýmsum yfirvofandi hlutverka-
skiptum.
Dagmál er streymi Morgun-
blaðsins á netinu, sem er opið
öllum áskrifendum.
lKosningar, forystuátök og kjaramál
Árið í pólitíkinni gert
upp í Dagmálum
Morgunblaðið/Kristófer Liljar
DagmálGísli Freyr Valdórsson, Karítas Ríkharðsdóttir, Andrés Magnússon og Stefán
Einar Stefánsson, blaðamenn Morgunblaðsins, fara yfir stjórnmál liðins árs.