Morgunblaðið - 28.12.2022, Qupperneq 10
FRÉTTIR
Innlent10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Nýir bílar
á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Onyx black, svartur að
innan. GMC AT4 2500 með 10
gíra skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á
markaðnum, myndavél í bak-
sýnisspegli, sjónlínuskjár, goose
neck í palli og heithúðun ásamt
mörgu fleira. AT4 premium plus
pakki með Bose premium sound
system, topplúgu, driver alert
system og collision alert system.
Stórglæsilegur bíll.
2023 GMC AT4 2500
Litur: Svartur/ svartur að innan.
10 gíra skipting, auto track
millikassi, sóllúga, heithúðaður
pallur, rafmagns opnun og lokun
á pallhlera. High Country Deluxe
pakki og Z71 off road pakki.
VERÐ aðeins
17.390.000 m.vsk
2023 Chevrolet Silverado
High Country 2500
VERÐ
16.680.000 m.vsk
Litur: Perluhvítur/svartur að innan.
2023 GMC Denali, magnaður bíll
með 10 gíra skipting, auto track
millikassi, multipro opnun á aftur-
hlera, heithúðaður pallur, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleirra. Ryðvörn
innifalin í verði.
2023 GMC Denali 2500
VERÐ
16.990.000 m.vsk
Án vsk. 13.702.000 kr.
Án vsk. 13.450.000 kr.
Nýlegt útboð Vegagerðarinnar um
rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars
hefur verið kært. Því hefur Vega-
gerðin framlengt samning við Andey
ehf. um að halda uppi siglingummilli
Hríseyjar og Árskógssands næstu
þrjá mánuði, eða til 31. mars 2023.
Þetta er gert til að siglingar Hríseyj-
arferju falli ekki niður en það myndi
valda mikilli röskun á samgöngum
við Hrísey, að því er fram kemur á
heimasíðu Vegagerðarinnar.
Þrjú tilboð bárust í rekstur Hrís-
eyjarferjunnar fyrir árin 2023-
2025, en tilboð voru opnuð hjá
Vegagerðinni í byrjun desember.
Lægsta tilboðið átti Eysteinn Þór-
ir Yngvason, fyrir hönd óstofnaðs
hlutafélags, 296,6 milljónir króna.
Var það rúmlega 50 milljónum
lægra en áætlaður verktakakostn-
aður, sem var 347,8 milljónir. Ferry
ehf. Árskógssandi bauðst til að taka
verkefnið að sér fyrir 489 milljónir
og Andey ehf. Hrísey fyrir 534,3
milljónir króna.
Tóku tilboði lægstbjóðanda
Vegagerðin ákvað að taka tilboði
lægstbjóðanda. Bæði Andey ehf. og
Ferry ehf. hafa kært þá ákvörðun til
kærunefndar útboðsmála. Í báðum
tilvikum er kæruefnið í meginat-
riðum að tilboð lægstbjóðanda sé
í andstöðu við kröfur og skilmála
útboðslýsingar og óheimilt sé sam-
kvæmt lögum um opinber innkaup
að taka því. Vegagerðin er því
ósammála og mun taka til varna
fyrir kærunefndinni, samkvæmt
upplýsingum sem Morgunblaðið
fékk hjá Sigríði Ingu Sigurðar-
dóttur, sérfræðingi á samskipta-
deild. Framkomnar kærur valda
sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar
þar til kærunefndin tekur málið
fyrir. Vegagerðin hefur frest til 6.
janúar að leggja fram sín andsvör
og í kjölfarið mun kærunefndin taka
ákvörðun um hvort heimilt sé að
ganga til samninga.
Um er að ræða sérleyfi fyrir Vega-
gerðina á ferjuleiðinni Hrísey-Ár-
skógssandur-Hrísey, þ.e. að annast
fólks- og vöruflutninga til og frá
Hrísey. Bjóðandi skal nota ferjuna
ms. Sævar sem er í eigu Vegagerðar-
innar. Samningstími er þrjú ár með
möguleika á framlengingu allt að
tvisvar, eitt ár í senn.
lSamningur framlengdur svo siglingarnar falli ekki niður
Útboð áHríseyjar-
siglingumvarkært
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ljósmynd/Vegagerðin
Hriseyjarferjan Sævar er 150 brúttótonna stálbátur og tekur 100 farþega. Ferjan er eign Vegagerðarinnar.
Hver og einn erlendur ferðamaður
eyddi að meðaltali 148.800 krónum
á Íslandi á fyrstu tíu mánuðum
ársins, samanborið við 120.700
krónur á sama tímabili árið 2019, ef
litið er til kortaveltu þeirra innan-
lands. Veltan er ríflega 23% hærri
nú en þá, en raunhækkun nemur
5-6%.
Þetta kemur fram í greiningu
Ferðamálastofu á þróun tekna af er-
lendum ferðamönnum innanlands.
Þar kemur einnig fram að ferða-
menn dvöldu að meðaltali einum
degi lengur á Íslandi árið 2022 en
þeir gerðu á árinu 2019.
„Íslensk ferðaþjónusta er að kom-
ast á það plan sem hún var á fyrir
Covid, í fjölda og umfangi greinar-
innar,“ segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson ferðamálastjóri.
Ferðamönnum frá Bandaríkj-
unum og Evrópu hefur fjölgað
en á sama tíma hefur asískum
ferðamönnum fækkað umtals-
vert. Léku takmarkanir í Kína þar
nokkuð stórt hlutverk. „Dollarinn
er sterkur og Bandaríkjamenn fá
mikið fyrir sinn dollara þegar þeir
ferðast til Evrópu. Þá eru einhverj-
ar Asíuþjóðir aðeins farnar að sjást
núna,“ segir hann og nefnir Japan í
því samhengi. Kínverjar sjáist ekki
nema þeir sem búa utan Kína. „Við
gerum ráð fyrir því að á nýju ári
fari í auknum mæli að sjást ferða-
menn frá Asíu,“ segir Skarphéðinn.
Erlendir ferða-
menn eyddu
meira fé í ár
lDvöldu að jafnaði einumdegi
lengur hér á landi en á árinu 2019
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Búist er við að ferða-
mönnum fjölgi áfram á næsta ári.