Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 28.12.2022, Síða 12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 12 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pistill Aðgleymatilgangi sínum É g hafði ætlað mér að vera voða jólalegur í þessum pistli sem er svona haganlega tímasettur mitt á milli jóla og nýárs en stóðst ekki mátið að varpa frekar ljósi á marga furðuna sem virðist lifa góðu lífi í boði ríkjandi stjórnvalda. Glöggur bóndi norður í landi sendi mér hátíðarkveðju á dögunum og benti mér í leiðinni á frétt á vef Landsvirkjunar undir yfirskriftinni „Upprunaábyrgðir fylgja ekki lengur í heildsölu“. Það er að segja, þeir sem kaupa græna orku af Landsvirkjun þurfa nú að kaupa sérstaklega staðfestingu á grænum uppruna (með öðrum orðum aflátsbréf). Ég geymi til betri tíma skrif um sölu Lands- virkjunar á aflátsbréfunum en við lestur þessarar fréttar varð mér hugsað til þess hversu margir hafa algerlega gleymt grunntilgangi sínum í rekstri og látið leiðast út í rétttrúnaðarfenið með tilheyr- andi kostnaði. Væri ekki betra ef fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga hættu að flækja sig í málum sem hafa í raun enga þýðingu – allra síst fyrir skattgreiðandann – og einbeittu sér að því að sinna grunntilgangi sínum. Landsvirkjun gæti til dæmis einbeitt sér að því að fram- leiða græna orku hér heima fyrir. Orkuveita Reykjavíkur gæti tryggt heitt vatn á fullum þrýstingi til fólks á köldustu dögum ársins. Þá væri engin þörf á tilkynningum eins og þeirri sem kom rétt fyrir jól um að fólk þyrfti að hafa jólabaðið stutt nú eða sleppa því. Fólk gæti þá líka farið í sund í kringum jólin en ekki komið að lokuðum dyrum. Sveitarfélagið Reykjavík hefði getað sinnt frumskyldu sinni á nær öllum sviðum en nefnum snjómoksturinn, sorphirðu og lóða- framboð. Reykvíkingar og aðrir sem keyra um höfuðborgina stóðu í ströngu þegar snjór féll af himnum hér rétt fyrir jól – nokkuð sem ætti ekki að koma á óvart en lengi skal manninn reyna á skrifstofu borgarstjóra. Mokstur í lágmarki og allt í klessu. Lausnin var að skipa nefnd og rýna. Malbikunarstöð Reykjavíkurborgar þurfti svo að flytja til Hafnarfjarðar því enga lóð var að finna undir starfsemina í Reykjavík. Síðast en ekki síst þá flæðir ruslið út á snæviþaktar göturnar í höfuðborginni því sorpið er varla sótt. Einn stóru bankanna gæti líka hætt að reyna að skóla alla aðra til þegar kemur að hugðarefn- um bankastjórans – eins og kynjahlutföllum í fjölmiðlum. Bankinn gæti einbeitt sér að betri bankarekstri og til dæmis hætt að hóta fjölmiðlum banni við auglýsinga- kaupum ef þeir fylgja ekki stefnu bankans hvað varðar kynjahlutföll í viðtölum. Allir hafa stjórnendur þessara fyrirtækja og sveitar- félaga gleymt tilgangi þess sem þeir stjórna. Í öllum tilvikum er um að ræða fólk sem situr og stjórnar í skjóli annarra manna peninga. Peninga og eigna skattgreiðenda. Lögum þetta á nýju ári. Og gleðilega hátíð. Bergþór Ólason Höfundur er þingflokksformaður Miðflokksins. bergthorola@althingi.is Ótrúlegur ævintýramaður Elon Musk er ævintýralegur maður sem kem- ur víða við, þótt ungur sé. Hann er oft kynntur til sögu sem „ríkasti maður í heimi“. Því er bætt við síðustu mánuði, að þar sem á ýmsu hafi gengið við framleiðslu á rafmagnsbifreiðinni Teslu og óvænt kaup á „Twitter“ sé nú fjarri því að sá titill sé örugg- ur. En hvað sem fyrrnefnd- um fyrirtækjum líður hefur hann einnig séð um að skjóta geimförum út í geiminn og láta eldflaugina sem flutti þau lenda óskemmda á jörðinni að verki loknu, svo brúka megi hana á ný. Musk keypti óvænt heimsfyrirtækið Twitter og afhjúpaði það síðan sem stórvafasamt fyrirtæki, svo að með ólíkindum var. Alrík- islögreglan FBI, sem notið hefur óttablandinnar virðingar vestra, kemur ekki vel frá því. FBI nýtur þeirrar sérstöðu að lögum, að refsivert er að segja lögreglumanni þar ósatt og getur varðað þungri fanga- vist! Fyrrverandi forstjóri FBI montaði sig af því að hafa komið sínum mönnum inn í Hvíta húsið í tíð Trumps „sem hann hefði aldrei vogað sér að gera í tíð Obama“ og leiddi Flynn, öryggisráðgjafa forsetans, í gildru „og segja ósatt“ og hafði af honum eignir og frelsi með klækj- um. Samkrull FBI-manna og Twitter var þó sýnu óþverra- legra, en Musk er aðeins rétt byrjaður að afhjúpa þau verk. Líklegt er að nú eigi þingið þar næsta leik. Almenningur óttast FBI sem nú óttast Musk} Töluvert er skrifað um för Selenskís for- seta Úkraínu til Bandaríkj- anna. Ekki orð var þó sagt um hana fyrr en forsetinn var lagður af stað vestur í bandarískri flugvél og skipt- ust bandarískar herflugvélar á að veita henni sýnilegt skjól. Ekki var þó líklegt að Pútín teldi sig hafa upp úr því að granda flugvél forset- ans og sitja þar með uppi með magnaðasta píslarvott samtímans, og háværar hót- anir og kröfur um að Úkra- ínustríði yrði ekki lokið fyrr en forsetinn í Kreml færi frá. Miklu var tjaldað til, bæði var Hvíta húsið allt með miklum hátíðarbrag og myndarskapur við móttökur var upp á það allra besta. Fjölmiðlar könnuðust við að enginn annar „heimsleiðtogi“ kallaði við núverandi aðstæð- ur fram viðlíka spennu með heimsókn til Bandaríkjanna og forseti Úkraínu, lands í miklum og raunar óvæntum ógöngum, sem kölluðu á mikla samúð. Ekkert vantaði heldur upp á fagnaðarlætin í þinghúsinu er gesturinn gekk í salinn í sínum „herklæð- um“, en Selenskí hefur komið sér upp einkennisbúningi sem er með mun hlédrægari brag en þeir sem liðs- og her- foringjar hans nota. Minnir sá helst á skátaforingja, sem ekki hefur fengið heiðursmerki. En svo vel hefur leiðtoganum tek- ist upp frá fyrsta degi að allir vita hver er á ferð og flugi, og flytjandi ávörp í hverju þing- húsinu af öðru um strengi, og er vafalaust að þessi elja hef- ur skipt sköpum. En sjald- gæft er þó að forseti Úkraínu mæti í eigin persónu. Bandaríska þingið tók svo sannarlega vel á móti Úkra- ínuforseta svo að ekki varð betur gert. Fagnaðareinkunn þessa mikla þings, þegar það tekur á móti gesti og sýnir honum þann heiður að fá að flytja þar ávarp, birtist gjarna í því, að þingmenn rísi þar úr sætum þegar ræðumanninum tekst best til. Og það vantaði ekkert upp á þetta nú. Var fullyrt í fréttum, að mælt á þennan mælikvarða hafi sárasjaldan orðið ríkulegri fagnaðarlæti en núna og getur Selenskí svo sannarlega vel við unað. Því er þó haldið fram að „stríðsþreytu“ gæti nú í Bandaríkjunum og fullyrt er að hún sé nú orðin mun meiri hjá þingmönnum úr röðum Repúblikanaflokks en hinna, þótt í þeim flokki sé enn mikill stuðningur við öflugar vopnasendingar, og þá sérstaklega í forystuliði flokksins. Enn er þó ekki opinberlega um þetta deilt á þingi svo neinu nemi. Selenskí fagnað, en… Selenskí forsetí sló sér upp vestra þótt stríðsþreytu gæti} Í fyrsta sinn fannst mér ég vera sterk og öflug þar sem ég stóð og krafðist réttinda sem Drottinn hefur gefið okkur,“ sagði hin 18 ára Marwa við blaða- menn AFP-fréttaveitunnar, en hún stóð ein frammi fyrir talíbönum úti á götu í Kabúl í Afganistan og mótmælti banni yfirvalda á því að afganskar konur sæktu háskóla í landinu. Hún lét sig hafa háð og spott hermanna talíbananna og hættuna á fangelsun, ofbeldi og félagslegri útskúfun. Systir Mörwu tók upp myndband af mótmæl- unum úr bíl í nokkurri fjarlægð. Marwa bað fréttamenn AFP að halda fullu nafni sínu leyndu vegna hættu á að fjölskylda hennar yrði ofsótt. Ákvörðun talíbana frá 20. desem- ber leggur í rúst drauma og vonir margra afganskra kvenna sem sjá framtíðarmöguleika sína verða að engu og réttindi sín fótum troðin í karlaveldi talíbana sem líta á kon- ur sem þræla eingöngu til að þjóna þörfum karlmanna. Nokkrar konur reyndu að mótmæla en talibanar leystu mótmælin samstundis upp. Á aðfangadag var öllum konum sem unnu fyrir hjálparsamtök bannað að mæta til vinnu. Á jóladag fór Marwa ein fram að hliði háskólans í Kabúl með skilti sem á stóð „Iqra“ sem er arabíska orðið fyrir „lestur“. „Þeir sögðu mjög ljóta hluti við mig, en ég ákvað að vera róleg,“ sagði hún. „Ég vildi sýna að styrkur einnar afganskrar stúlku skiptir máli, að jafnvel ein manneskja geti staðið gegn kúgun.“ Fangelsi allra kvenna Réttindi kvenna undir stjórn talíbana í Afganistan eru orðin nánast engin og mótmæli eru fátíð, ekki síst eftir handtökur snemma á árinu. Frá því að talíbanar náðu aftur völdum í ágúst á síðasta ári hafa réttindi kvenna nánast horfið gjörsamlega, þrátt fyrir loforð um að harðlínustefna klerkavaldsins yrði mildari eftir að herlið Banda- ríkjanna fór frá landinu. Fram- haldsskólar fyrir stúlkur hafa verið lokaðir í meira en ár og konum hefur jafnt og þétt verið úthýst úr öllum opinberum störfum landsins. Nú er búið að loka háskólum fyrir konum landsins. Og þar stoppar ekki ofbeldið. Auk þess að hylja sig frá toppi til táar eiga konur líka að vera ósýni- legar á almennum vettvangi. Þeim er nú bannað að fara í lystigarða, líkamsræktarstöðvar og almenn- ingsbaðhús. Talíbanar réttlæta hörkuna með því að konur fari ekki eftir reglum um klæðaburð. „Þegar systur mínar sjá að ein stúlka hefur staðið á móti talíbönunum mun það hjálpa þeim að rísa upp og berjast,“ sagði Marwa og segir að landið sé orðið að fangelsi fyrir konur. „Ég vil ekki vera í fangelsi. Ég á mér drauma, vonir og þrár, sem ég vil að geti ræst. Þess vegna hef ég ákveðið að mótmæla.“ Fordæming umheimsins Alþjóðasamfélagið hefur fordæmt þessar nýjustu árásir á réttindi afganskra kvenna. „Þessi nýjasta aðför (að réttind- um kvenna) er óþolandi,“ segir í yfirlýsingu franska utanríkisráðu- neytisins. Frakkar sögðu líka að þetta myndi hafa áhrif á alla mann- úðaraðstoð til landsins, en landið stendur frammi fyrir alvarlegri efnahagskrísu og hungursneyð. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, sagði afleiðingarnar skelfilegar fyrir afganskar konur og þjóðina alla. „Tilraunir stjórnvalda til að þagga niður í konum og gera þær ósýni- legar með öllu munu ekki takast.“ Réttindi afganskra kvenna fótum troðin FRÉTTASKÝRING Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is AFP AfganistanHin 18 áraMarwa stóð ein á jóladag með mótmælaskilti andspænis hermönnum talíbana vegna banns á menntun kvenna. KONUR Í AFGANISTAN Glæpur að vera kona Síðustu áratugir hafa verið stormasamir í landinu með uppgangi kommúnista á sjöunda áratugnum og síðan innrás Rússa í landið og löngu og erfiðu stríði við skæruliða Afgana, sem fengu aðstoð frá m.a. Bandaríkjunum og Bret- landi. Osama bin Laden stofnaði al-Qaeda til að fara í heilagt stríð, fyrst gegn Rússum, en síðar gegn Vesturlöndum og Bandaríkjunum sérstaklega. Undir stjórn talíbana versn- aði staða kvenna og réttindi þeirra eru tekin af þeim í krafti kennisetninga íslams. Það er því sérstakt að hugsa til þess að konur fengu kosn- ingarétt 1919 í landinu, ári síðar en konur gátu kosið í Bretlandi og ári áður en konur fengu kosningarétt í Bandaríkjunum. En á tíunda áratugnum, undir stjórn talíbana, varð það glæpur að vera kona. Konur máttu ekki mennta sig, vinna utan heim- ilis, fara út úr húsi án fylgdar karlmanns, þær urðu að hylja húð sína, höfðu ekki aðgang að heilsugæslu og var bannað að tala opinberlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.