Morgunblaðið - 28.12.2022, Page 15

Morgunblaðið - 28.12.2022, Page 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 ✝ Bjarni Freyr Bjarnason fæddist í Reykjavík 9. júní 1974. Hann lést á Landspít- alanum þann 10. desember 2022. Foreldrar hans voru Bjarni Ingi- berg Karlsson, f. 31. mars 1939, d. 10. janúar 1991, og Þórunn Adda Egg- ertsdóttir, f. 4. desember 1942. Systkini Bjarna Freys eru Anna Ástveig Bjarnadóttir, f. 23. febr- úar 1967, gift Högna Guð- mundssyni, Arnar Bjarnason, f. 12. júni 1970, sam- býliskona Berglind Karlsdóttir, og Bragi Þór Bjarna- son, f. 9. júni 1974, kvæntur Sonju Hansen. Bjarni átti tvö börn með Ingi- björgu Grétu Mar- teinsdóttur, Mar- tein Sverri Ingi- bjargarson, f. 9. júlí 2000, og Birnu Ósk Bjarnadótt- ur, f. 27. október 2005. Útför Bjarna Freys fer fram frá Seljakirkju í dag, 28. desem- ber 2022, kl. 13. Elsku Bjarni Freyr. Það er þyngra en tárum taki að skrifa þessi kveðjuorð en við ætlum að reyna að gera því skil hér í fáum orðum. Snemma á lífsleið þinni kom í ljós staðfesta og ákveðni og til dæmis ert þú sá eini sem við vit- um um sem straukst af leikskóla á fjórða ári og hættir í grunnskóla á tíunda ári. Þú hins vegar lést undan og hófst nám aftur og fórst alla leið í háskóla þar sem þú laukst námi af viðskiptabraut. Fljótlega eftir nám varstu svo kominn í starf hjá Reykjavíkur- borg og færðist svo til Orkuveit- unnar og varst þar til enda. Þú varst sáttur og sæll í Orkuveit- unni og mikils metinn og ekki síð- ur áttir þú góða vini og vinnu- félaga þar sem mátu þig mikils. Sem mágur og systir hefur verið skemmtilegt að fylgjast með lífs- hlaupi þínu þótt allt of stutt hafi verið. Ljóst var að mikið var í þig spunnið og eftirspurn var eftir aðkomu þinni að því að leysa verkefni bæði í vinnu og einkalífi. Það var oft fyrsta hugsun þegar komu upp spurningar varðandi hin ýmsu mál: „Spyrjum Bjarna. Hann veit svarið.“ Þú varst alltaf grand þegar kom að því að kaupa hluti og vald- ir alltaf það sem var dýrast og best sem kom svo vel í ljós í nýju íbúðinni þinn sem þú keyptir eftir sambandsslitin 2020. Allt var tipptopp og ekkert til sparað. Allt tengt netinu hvort sem það voru gardínur, rúm, ljós eða ryksuga. Þú elskaðir börnin þín enda- laust og varst mjög stoltur þegar þú sagðir okkur frá þeirra sigrum í lífinu og því var það risa hjartas- ár þegar fjölskyldulífið sem þú þráðir svo heitt gekk ekki og upp úr slitnaði. Margar næturnar grétum við saman og reyndum að finna einhverja skýringu eða huggun en án árangurs. Dóttirin varð á hinn bóginn enn skærara ljós í þínu hjarta fyrir vikið og í framtíðaráformum þínum var hún og hennar framtíð alltaf í for- gangi. Tíminn var hins vegar tek- inn frá þér og þú náðir ekki að gera því skil eins og þú vildir. Það var nefnilega þannig að þú varst með mjög stórt hjarta og oftar en ekki varst það þú sem gafst stærstu pakkana í barnaaf- mælum eða tókst að þér að afla aðfanga fyrir fjölskyldusamkom- ur því þú hafðir svo mikið að gefa af bæði kærleika og yl. Alltaf varstu viljugur til að hjálpa þegar kallað var og ekki var haldið teiti eða ferðalög plönuð án þess að þú kæmir að skipulagningunni. Þau eru teljandi á fingrum annarrar handar þau jól og áramót sem þú varst ekki með okkur og skapaðir með okkur venjur og hefðir sem við munum halda í heiðri. Sagt er að oft séu menn heppn- ir í spilum og óheppnir í ástum og sennilega á þetta máltæki ágæt- lega við. Samt sem áður varst þú heitt elskaður og dáður af systur og bræðrum þínum og systkina- börnum sem litu upp til þín af virðingu og til eftirbreytni. Þú gegndir mörgum embættum í okkar ranni: endurskoðandinn, mágurinn, frændinn, vinurinn, bróðir og sonur. Við kveðjum þig elsku Bjarni Freyr og minnumst þín með mik- illi virðingu, kærleika og söknuði í hjarta. Anna, Högni og fjölskylda. Það var árið 2000 sem ég hóf störf hjá Reykjavíkurborg og kynntist bræðrunum Bjarna og Braga. Það eru svo margar hlýjar og góðar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa til Bjarna Freys. Þá vissi ég ekki að ég væri að kynnast frábærum bræðrum sem ég og maðurinn minn myndum eiga vegferð með næstu áratugi. Bjarni Freyr var einstakur og yndislegur. Hann hafði ótrúlega yfirsýn og mikinn metnað fyrir þeim verkefnum sem hann sinnti í gegnum árin, hvort sem það var hjá Reykjavíkurborg eða Orku- veitunni. Það var aldrei komið að tómum kofunum hjá honum, en í störfum okkar saman hefur reynt á ótrúlegustu atriði sem jafnan tókst að lenda í góðu samtali við Bjarna. Þar kom fram einn af hans mörgu kostum; að geta séð fyrir hvað máli skiptir og setja það fram með skýrum og mark- vissum hætti. Bjarni var hógvær, frábær fag- maður, góður vinur, umhyggju- samur og sýndi kærleik í verki. Hann var ekki bara einhver sam- starfsmaður, hann var einn af fjöl- skyldunni og mínum bestu vinum sem maður hittir á lífsleiðinni. Bjarni færði sig til Orkuveitunnar og ég kom líka stuttu eftir, en hann var ein af ástæðum þess að ég fór frá Reykjavíkurborg til Orkuveitunnar á sínum tíma. Hann var alltaf tilbúinn að hjálpa öllum, greiðvikinn við alla þá sem þess þurftu. Hann var líka áhugasamur um nýjar áherslur og tækni og fannst ég gamaldags að eiga ekki ryksuguróbot. Auð- vitað fékk ég mér svona hreindýr við næsta tækifæri. Þeir bræður hafa alltaf átt sterka samleið saman og fjöl- skyldur þeirra aldrei langt undan. Bjarni var opinn, félagslyndur og jafnan hrókur alls fagnaðar á góð- um stundum. Í gegnum árin höf- um við höfum haft það sem venju að fagna áföngum í þeim verkefn- um sem við höfum unnið að og þá var aðalatriðið að fá almennilega rækjubrauðtertu. Bjarni var þá jafnan skammt undan og bróðir hans Bragi. Stríðni og glens ein- kenndu Bjarna Frey. Margar sögur koma í hugann, en einu man ég vel eftir þegar hann las yfir drög að skýrslu stjórnar. Hann sagðist hafa séð eina villu, og svo las maður skýrsluna aftur og aft- ur yfir og fann enga villu – því það var engin villa – við hlógum mikið að þessu. Hann var góður vinur í áratugi, en við unnum mikið saman og ómetanlegt að eiga vin sem maður getur talað við um allt milli himins og jarðar og gat alltaf treyst og átt trúnað við. Við fjölskyldan sendum ástvin- um Bjarna Freys innilegar sam- úðarkveðjur. Við þökkum Bjarna Frey fyrir vináttu og samveru- stundir og kveðjum hann með virðingu og söknuði. Guð blessi þig kæri Bjarni og hafðu þökk fyr- ir allt og allt. Bryndís María og fjölskylda. Kveðja frá Orkuveitu Reykjavíkur Hjálpsamur með afbrigðum, ósérhlífinn, glöggur, glaðvær og hvers manns hugljúfi. Þetta eru orð sem öll lýsa kynnum okkar af Bjarna Frey, sem um árabil var mörgum okkar helsta stoð við að greina fjárhagsleg atriði í starf- semi Orkuveitu Reykjavíkur og segja fyrir um þróun þeirra. Innsæi og skilningi hans á starf- seminni var svo við brugðið að þegar meta þurfti áhrif ákvarðana sem verið var að bollaleggja um sá hann atriði sem var langt frá aug- ljóst að ákvörðunin hefði áhrif á. Slíkur samstarfsmaður er gulls ígildi. Frá því Bjarni Freyr hóf störf hjá Orkuveitu Reykjavíkur, fyrir hálfum öðrum áratug, hefur fyrir- tækið gerbreyst. Alls kyns laga- kröfur og önnur sjónarmið um að þetta skuli rekið sér og hitt skuli vera í sérstöku fyrirtæki hefur skipt því sem var eitt borgarfyr- irtæki í heila samstæðu lagalega sjálfstæðra fyrirtækja. Hlutverk Bjarna Freys við að halda heild- armyndinni en þó svo skarpri sýn á mörg smærri atriði var þannig að nú er ekki bara skarð fyrir skildi heldur skörð. Bjarni Freyr mátti súpa ýmsa fjöru í fjármálum Orkuveitu Reykjavíkur. Hann hóf þar störf haustið 2006 á gríðarlegu fjárfest- ingaskeiði sem stóð hvað hæst þegar Guð blessaði Ísland svo fast að það hrundi. Þá tók við erfitt skeið einhvers konar sorgarferlis í fjármálum fyrirtækisins. Afneitun og doði, svo reiði, síðan skilningur sem varð grundvöllur þess að hægt var að byggja upp á ný. Við samstarfsfólk Bjarna Freys erum á mismunandi stað, hvert og eitt, í okkar sorg. Minn- ingar okkar um eldklára ljúfling- inn munu ylja okkur og lýsa svo við fáum viðspyrnu með sam- starfsfólkinu. Þess á meðal er tví- burabróðir Bjarna Freys, hann Bragi Þór. Okkar hlýjustu hugs- anir eru hjá honum og aðstand- endum öllum. Bjarni Bjarnason, Benedikt Kjartan Magnússon, Berglind Rán Ólafsdóttir, Edda Sif Pind Aradóttir, Ellen Ýr Að- alsteinsdóttir, Erling Freyr Guðmundsson, Hera Gríms- dóttir, Skúli Skúlason, Sólrún Kristjánsdóttir. Elsku Bjarni Freyr er fallinn frá langt fyrir aldur fram og erfitt að sætta sig við að sjá hann ekki aftur. Svona getur lífið stundum verið ósanngjarnt. Það er óhætt að segja að hann skilji eftir stórt skarð í hjörtum okkar en minning- arnar um yndislega manneskju lifa með okkur um ókomna tíð. Þú varst einstakur vinur og samstarfsmaður sem alltaf var hægt að leita til og ef við vorum í vandræðum með eitthvað þá glottir þú alltaf og brostir og sagð- ir „þetta er ekkert mál, ekkert vesen“ og svo var málinu reddað. Það veitti manni því öryggi þegar maður heyrði smellina í aðgang- skortunum þínum þegar þú komst labbandi því þá vissi maður að þú varst ekki langt undan ef við þurftum á þinni þekkingu að halda sem var ótrúlega mikil hvort sem það var tengt vinnunni eða öðru. Þú hafðir nefnilega svo einstakt lag á að lyfta öllum öðrum upp í kringum þig á allan hátt. Í vinnunni töluðum við mikið um fótboltann og sérstaklega þann enska enda varstu mikill United-maður og hafðir gaman af því að koma því á framfæri. Við gleymum ekki bolnum góða sem þú mættir oft í um hvar bikarinn hafði aldrei lent hjá aðalmótherj- unum eða fótboltaferðunum skemmtilegu sem við fórum sam- an í. Einstaka sinnum fórum við út á vegum vinnunnar og þá voru skyldustopp t.d. á Cheers í Bost- on til að svala þorstanum eða næstu Apple-búð til að uppfæra græjurnar. Allt var það vel skipu- lagt fyrir fram enda varstu mikill græjumaður og sparaðir ekkert til. Sérstaklega þegar græja átti nýju íbúðina sem þú hafðir fest kaup á fyrir nokkrum árum. Gardínur, þvottavélar, ryksugur, lýsing og margt fleira var snjall- vætt og hægt að stýra því öllu í gegnum símann. Þér fannst held- ur ekki leiðinlegt að sýna okkur þessi ósköp þegar við komum í heimsókn og borðuðum góðan mat og drukkum drykki en það var nokkuð sem þér þótti gaman. Græjudellan náði líka til farar- tækja en á sumrin þaust þú um á stóru rafhlaupahjóli af flottustu gerð með fjöðrun og fyrir vetur- inn mættirðu svo á nýjum rafbíl sem þú varst einstaklega ánægð- ur með. Við erum þakklát fyrir bjór- smakkið sem hefur staðið yfir í fjölmörg ár, sérstaklega jóla- bjórsmakkið sem þú, Einar og Davíð hafið stýrt og séð um öll þessi ár. Gaman að sjá hversu hröð þróunin hefur verið með bæði fjölda jólabjórtegunda og tæknina, alltaf verið að bæta í og fagmennskan upp á 10 enda ekki við öðru að búast frá þér. Við höfum brallað mikið saman í gegnum árin og allt á mjög skemmtilegan og góðan hátt. Þú varst stór partur af starfseiningu sem var einstök og skarðið sem þú skilur eftir er ekki hægt að fylla því þú varst einfaldlega okk- ar besti maður. Þakklæti er okk- ur efst í huga fyrir að hafa fengið að kynnast svona frábærum vini og samstarfsfélaga sem alltaf hafði tíma og eyra til að hlusta og rödd til að útdeila sinni visku. Hugur okkar er hjá Braga, tví- burabróður þínum, börnum og fjölskyldu. Skrefin eru ótrúlega þung í dag en við munum heiðra þína minningu á hverjum degi og minnumst þín með gleði í hjarta. Takk fyrir allt elsku Bjarni Freyr okkar og hvíldu í friði. Brynja, Einar, Davíð, Gísli, Benedikt, María, Ingvar Þór, Ásgeir, Unnur, Þorgeir og Arna. Það bar skugga á annars fal- legan dag í aðdraganda jólanna þegar ég frétti að Bjarni Freyr hefði óvænt kvatt þetta tilveru- stig. Ég var einn af þeim sem voru svo heppnir að kynnast Bjarna og vinna með honum í mörgum verkefnum hjá Orku- veitu Reykjavíkur. Okkar leiðir lágu fyrst saman í aðdraganda Plansins svokallaða þar sem við unnum mikið og náið saman við greiningar og úrlausn verkefna. Samverustundirnar í tengslum við önnur viðfangsefni og stjórn- arstörf á síðustu árum hafa síðan orðið fjölmargar. Betri samstarfsmann var ekki hægt að hugsa sér. Bjarni Freyr bjó yfir skörpum huga og hafði yfirburðaþekkingu á öllu því sem snerti rekstur Orkuveitunnar. Aldrei var komið að tómum kof- unum hjá honum og alltaf var hann boðinn og búinn að leggja sitt af mörkum. Að auki bjó hann yfir einstaklega léttri lund þar sem hann sá oft spaugilegar hlið- ar á annars alvarlegum málum. Það var alltaf stutt í brosið hjá honum. Upp í hugann koma mörg hnyttin tilsvör og skondnar at- hugasemdir í gegnum tíðina. Ég mun sakna samverustundanna sem ekki verða. Ég votta fjölskyldu, vinum og samstarfsfélögum Bjarna Freys innilegustu samúð mína á þessum erfiðu tímum. Ágúst Þorbjörnsson. Bjarni Freyr var einn af mín- um bestu vinnuvinum síðastliðin 16 ár. Vinur sem reyndist mér alltaf svo vel. Tryggur haukur í horni í alls kyns verkefnum og ekki skemmdi fyrir hvað það var oft gaman hjá okkur í leiðinni. Hann var alltaf yfirvegaður en líka alltaf aðeins glettinn. Ég er mjög þakklát fyrir að síðasta verkefnið okkar tókst vel sem var að vera með gleðijólastund fyrir vinnufélaga okkar. Þetta kvöld mun alltaf vera ljúfsár minning. Kvöldið sem Bjarni Freyr kvaddi vorum við bæði kát og ánægð og náðum að þakka hvort öðru fyrir góða vináttu. Það er skrítið að hugsa til þessa kvölds og að í okk- ar síðasta skipti saman hafi ég endað kvöldið á að syngja fyrir þennan einstaka vin minn lagið: „Í síðasta skipti“. Mikið sem ég á eftir að sakna míns kæra vinar. Djúp og varanleg vinátta er dýrmætari en veraldlegar viðurkenningar, og allt heimsins gull og silfur. Henni þarf ekki endilega alltaf að fylgja svo mörg orð heldur gagnkvæmt traust og raunveruleg umhyggja. Kærleikur, sem ekki yfirgefur. (Sigurbjörn Þorkelsson) Sólrún Kristjánsdóttir. Tæp tuttugu ár síðan. Um þetta leyti árs. Þá var venjan sú í Ráðhúsi Reykjavíkur að af- greiðslufundur fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar var aðven- tuhátíð fjármálasviðsins. Meðan borgarfulltrúar þrösuðu í borgar- stjórnarsalnum fram eftir nóttu var tekið í spil og dreypt á öli á skrifstofunum í Ráðhúsinu, hin- um megin við gegnumganginn. Ég var hinn pólitíski aðstoðar- maður borgarstjórans og var á hlustunarvaktinni meðan spáð var í hvort þrjú grönd kynnu að standa. Og fjárhagsáætlunar- fulltrúinn, Bjarni Freyr, múltí- taskaði líka. „Þetta er ekki rétt,“ sagði hann þegar einhver mis- skilningurinn var borinn á borð úr ræðustólnum. Aðstoðarmaðurinn tók upp símann, sendi sms til við- eigandi borgarfulltrúa og gröndin stóðu með yfirslag. Stuttu síðar kynnti Bjarni Freyr mig fyrir kúnstugri skepnu; álafleiðunni. Þá vorum við báðir komnir til starfa hér hjá Orkuveitu Reykjavíkur og fyrir lá að þýða árshlutauppgjör yfir á mannamál. Þetta var fyrsta skipt- ið af mörgum tugum sem við Bjarni Freyr tókumst saman á við þetta; að koma saman tilkynning- um til almennings og kauphallar um árshlutareikninga. Oft var það í bjartri tíð í rekstrinum en um hríð í meira dimmviðri. Þá kynnt- ist ég Bjarna Frey sem ná- kvæmnismanninum í rekstrartöl- um, tilfinningamanninum um hvert kynni að stefna, leiðréttandi kurteislega einhvern misskilning sem ég hafði hent fram og segj- andi hreint og beint: Svona er þetta. Hjálpsemi Bjarna Freys við að gera kostnaðaráætlanir fyrir verkefni, sem áttu engin fordæmi og myndu vonandi ekki verða endurtekin, var ómetanleg. Ég þekkti Bjarna Frey nánast ekkert utan vinnunnar. Jú, hann átti einu sinni st. bernharðshund sem ég hitti og fannst í fyrstunni líklegra að myndi éta mig en gefa mér koníak úr kúti á hálsi. Tvíbura- bróðir Bjarna Freys – hann Bragi, sem stendur honum jafnfætis um glöggskyggni og hjálpsemi, er dýrmætur vinnufélagi sem ég finn afskaplega til með eins og öllu nánasta fólki þeirra bræðra. Þvílíkur sjónarsviptir að þekk- ingu, innsæi og gleði Bjarna Freys. Eiríkur Hjálmarsson. Skarð er fyrir skildi við fráfall Bjarna Freys Bjarnasonar, við- skiptafræðings og fjármálastjórn- anda hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Ungur að árum réðst Bjarni Freyr til fjármáladeildar Reykja- víkurborgar og gegndi starfi fjár- hagsáætlunarfulltrúa um tíma. Starfinu fylgdu margvísleg sam- skipti við borgarfulltrúa, t.d. varð- andi upplýsingagjöf, útreikninga og síðast en ekki síst útskýringar á því talnaflóði, sem finna má í reikningum borgarinnar og fyrir- tækja hennar. Þegar Bjarni Freyr gegndi starfi fjárhagsáætlunarfulltrúa, var það umtalað hversu vel hann gegndi starfinu, ekki síst þeim þætti þess sem snerist um sam- starf við borgarfulltrúa. Þessari þekkingu miðlaði hann góðfús- lega, skiljanlega og af hógværð til annarra. Heilbrigður metnaður og þjónustulund var í fyrirrúmi. Það var ekki háttur hans að setja fyr- irspurnir „í salt“ heldur svaraði hann þeim oftast samdægurs eða daginn eftir. Þá var oft lærdóms- ríkt að eiga samtöl við hann um stór sem smá álitamál í reiknings- skilum borgarinnar. Var dýrmætt fyrir kjörna fulltrúa að njóta slíkr- ar aðstoðar. Í þessum samskiptum fór ekki á milli mála að Bjarni Freyr var þá orðinn einn helsti sérfræðingur í fjármálum borgarinnar og með góða yfirsýn yfir alla helstu þætti þeirra. Verður seint gert of mikið úr mikilvægi þess að Reykjavík- urborg hafi slíka fjármálamenn í þjónustu sinni. Segja má að slíkir menn verði mikilvægari eftir því sem fjármálin verða erfiðari við- ureignar. Eftir að hafa starfað í ráðhús- inu við góðan orðstír, réð Bjarni Freyr sig til Orkuveitunnar, fyrst við fjárstýringu, greiningu og hagmál en seinna við fjármála- stjórn. Vann hann hjá OR til dauðadags og varði því mestallri starfsævi sinni í þjónustu við Reykvíkinga. Bjarni Freyr varð fljótlega einn af lykilmönnum fjármála hjá OR. Nýttust hæfileikar hans og mann- kostir t.d. vel þegar fyrirtækið tókst á við krefjandi áskoranir í kjölfar bankahrunsins. Oft var hann fenginn til að kynna töluleg- ar upplýsingar fyrir stjórn OR og get ég vitnað um að þar var metn- aður og þjónustulund í fyrirrúmi eins og í fyrra starfi hans hjá borginni. Að leiðarlokum langar mig til að þakka Bjarna Frey fyrir góð kynni og samstarf í tvo áratugi. Fjölskyldu og vinum sendi ég inni- legar samúðarkveðjur. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi. Bjarni Freyr Bjarnason Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN ÞÓRODDUR JÓNSSON rafmagnsverkfræðingur lést á heimili sínu 23. desember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 30. desember klukkan 11. Soffía Ákadóttir Kristín Jónsdóttir Arnaud Genevois Guðlaug Jónsdóttir Helena Ólafsdóttir Áki Jónsson Ásta Karen Kristjánsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.