Morgunblaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 22
ÍÞRÓTTIR22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022 EFSTAR Í HELSTU TÖLFRÆÐIÞÁTTUM Í OLÍSDEILD KVENNA MARKAHÆSTAR: Katla María Magnúsd., Selfossi ............. 82 Hrafnhildur Hanna Þrastard., ÍBV........ 62 Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum .......... 61 Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val ................ 59 Roberta Stropé, Selfossi .......................... 55 Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni .... 55 Steinunn Björnsdóttir, Fram .................. 54 Lena Margrét Valdimarsd., Stjörn ........ 54 Perla Ruth Albertsdóttir, Fram.............. 47 Thea Imani Sturludóttir, Val................... 44 Mariam Eradze, Val ................................... 41 Sunna Jónsdóttir, ÍBV.............................. 40 Berglind Benediktsdóttir, Haukum ....... 40 Lydía Gunnþórsdóttir, KA/Þór............... 40 Nathalia Soares, KA/Þór......................... 39 Rakel Guðjónsdóttir, Selfossi .................. 39 FLESTAR STOÐSENDINGAR: Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum ......... 40 Hrafnhildur Hanna Þrastard., ÍBV........ 37 Lena Margrét Valdimarsd., Stjörn ........ 35 Elín Rósa Magnúsdóttir, Val .................... 31 Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Selfossi .......... 30 Mariam Eradze, Val .................................. 30 Thea Imani Sturludóttir, Val................... 29 Rut Jónsdóttir, KA/Þór............................ 27 Kristrún Steinþórsdóttir, Fram ............. 27 Sunna Jónsdóttir, ÍBV.............................. 25 Katla María Magnúsd., Selfossi ............. 25 Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni ....... 23 Natasja Hammer, Haukum...................... 22 Erna Guðlaug Gunnarsdóttir, Fram...... 22 Alfa Brá Hagalín, HK................................. 19 Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni ..... 17 FLEST VARIN SKOT: Hafdís Renötudóttir, Fram..................... 139 Matea Lonac, KA/Þór ............................. 123 Darija Zecevic, Stjörnunni ..................... 113 Marta Wawrzykowska, ÍBV .................... 111 Sara Sif Helgadóttir, Val ........................ 105 Cornelia Hermansson, Selfossi ............... 81 Margrét Einarsdóttir, Haukum.............. 75 Ethel Gyða Bjarnasen, HK ...................... 57 HÆSTU EINKUNNIR: Rut Jónsdóttir, KA/Þór......................... 8,57 Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum ...... 8,45 Hrafnhildur Hanna Þrastard., ÍBV..... 8,08 Katla María Magnúsd., Selfossi .......... 8,04 Lena Margrét Valdimarsd., Stjörn. .... 8,03 Sunna Jónsdóttir, ÍBV........................... 7,92 Steinunn Björnsdóttir, Fram ............... 7,82 Thea Imani Sturludóttir, Val................ 7,69 Darija Zecevic, Stjörnunni .................... 7,61 Hafdís Renötudóttir, Fram.................... 7,57 Marta Wawrzykowska, ÍBV ................. 7,27 Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörn ......... 7,25 Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni ..... 7,22 Elín Rósa Magnúsdóttir, Val ................. 7,14 Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val .............. 7,13 Perla Ruth Albertsdóttir, Fram............. 7,11 Mariam Eradze, Val ............................... 7,06 Sara Sif Helgadóttir, Val ....................... 6,85 Berglind Benediktsdóttir, Haukum .... 6,84 Ásdís Þóra Ágústsdóttir, Selfossi ....... 6,80 Natasja Hammer, Haukum................... 6,78 Tölfræðin er frá vefsíðu HBStatz. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Keflavík: Keflavík – Fjölnir ..................... 18.15 Ásvellir: Haukar – Breiðablik ................ 19.15 Skógarsel: ÍR – Grindavík....................... 19.15 Hlíðarendi: Valur – Njarðvík................. 20.15 NBA-deildin Cleveland – Brooklyn............................ 117:125 Detroit – LA Clippers .................. (frl) 131:142 Miami – Minnesota ............................... 113.110 Chicago – Houston ............................... 118:133 New Orleans – Indiana.......................... 113:93 San Antonio – Utah ............................. 126:122 Portland – Charlotte ............................ 124:113 Þýskaland Flensburg –Wetzlar ............................ 34:24 Teitur Örn Einarsson skoraði 1 mark fyrir Flensburg. Füchse Berlín – Leipzig ...................... 28:22 Viggó Kristjánsson skoraði 3 mörk fyrir Leipzig. Rúnar Sigtryggsson þjálfar liðið. Hannover-Burgdorf – Bergischer ... 30:32 Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf. Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Bergischer. Erlangen – Stuttgart ............................ 31:28 Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari Erlangen. Gummersbach – Hamburg ................ 31:30 Elliði Snær Viðarsson skoraði 5 mörk fyrir Gummersbach og Hákon Daði Styrmisson 2. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið. Staðan: Füchse Berlín 31, Kiel 30, RN Löwen 29, Magdeburg 27, Flensburg 26, Melsungen 20, Hamburg 19, Hannover-Burgdorf 19, Gummersbach 18, Erlangen 17, Leipzig 16, Bergischer 16, Lemgo 14, Göppingen 10, Stuttgart 10, Wetzlar 9, Minden 6, Hamm 3. Metzingen – Buxtehuder.................... 30:26 Sandra Erlingsdóttir skoraði 1 mark fyrir Metzingen. Staðan: Bietigheim 16, Thüringer 16, Dortmund 14, Blomberg-Lippe 12, Buxtehuder 11, Metzingen 10, Oldenburg 10, Bensheim 8, Halle-Neustadt 7, Leverkusen 7, Bad Wildungen 6, Neckarsulmer 4, Zwickau 3, Waiblingen 0. Svíþjóð Skövde – Aranäs ................................... 24:26 Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 1 mark fyrir Skövde. Helsingborg – Redbergslid ................ 32:29 Ásgeir Snær Vignisson var ekki með Helsingborg. England Chelsea – Bournemouth............................. 2:0 Manchester Utd – Nottingham F. ............ 3:0 Staðan: Arsenal 15 13 1 1 36:12 40 Newcastle 16 9 6 1 32:11 33 Manch. City 14 10 2 2 40:14 32 Tottenham 16 9 3 4 33:23 30 Manch. Utd 15 9 2 4 23:20 29 Liverpool 15 7 4 4 31:18 25 Brighton 15 7 3 5 26:20 24 Chelsea 15 7 3 5 19:17 24 Fulham 16 6 4 6 27:26 22 Brentford 16 4 8 4 25:27 20 Crystal Palace 15 5 4 6 15:21 19 Aston Villa 16 5 3 8 17:25 18 Leicester 16 5 2 9 25:28 17 Bournemouth 16 4 4 8 18:34 16 Leeds 14 4 3 7 22:26 15 West Ham 16 4 2 10 13:20 14 Everton 16 3 5 8 12:19 14 Wolves 16 3 4 9 10:25 13 Nottingham F. 16 3 4 9 11:33 13 Southampton 16 3 3 10 14:30 12 B-DEILD: Burnley – Birmingham ........................... 3:0 Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á hjá Burnley á 82. mínútu. Reading – Swansea ................................... 2:1 Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hópi Reading. Staða efstu liða: Burnley 24 14 8 2 49:24 50 Sheffield Utd 24 14 5 5 41:21 47 Blackburn 24 13 0 11 28:28 39 Watford 24 10 7 7 30:24 37 Norwich 24 10 5 9 31:27 35 Millwall 23 10 5 8 29:26 35 QPR 24 10 5 9 27:27 35 Reading 24 11 2 11 28:34 35 Sunderland 24 9 7 8 33:27 34 Preston 24 9 7 8 23:24 34 C-DEILD: Bolton – Derby........................................... 0:0 Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Bolton á 85. mínútu. Staða efstu liða: Plymouth 23 15 5 3 42:25 50 Ipswich 23 14 6 3 44:22 48 Sheffield Wed. 23 13 7 3 38:18 46 Barnsley 21 11 4 6 28:17 37 Bolton 22 10 6 6 26:19 36 Derby 22 9 8 5 28:17 35 Wycombe W. 23 10 5 8 30:25 35 Messi sleppir tveimur leikjum Lionel Messi verður ekki með París SG í næstu tveimur leikjum liðsins í frönsku 1. deildinni. Christophe Galtier knattspyrnu- stjóri PSG skýrði frá því í viðtali við RMC Sport að Messi hefði fengið frí til 1. janúar eftir að hafa orðið heimsmeistari með Argent- ínu 18. desember. PSGmætir Strasbourg í deildinni í kvöld og mætir Lens á nýársdag. Fyrsti leikur Messi eftir heimsmeistara- titilinn verður því væntanlega gegn Angers 11. janúar. AFP/Anne-Christine Poujoulag Meistari Lionel Messi fær hálfan mánuð til að hvíla sig eftir HM. Gakpo á leiðinni til Liverpool Hollenski knattspyrnumaðurinn Cody Gakpo er á leiðinni frá PSV Eindhoven til enska félagsins Liverpool en PSV skýrði frá því að samkomulag hefði náðst um fé- lagaskiptin. Talið er að Liverpool greiði um 37 milljónir punda fyrir þennan 23 ára gamla sóknarmann og upphæðin geti farið samtals í 50 milljónir. Gakpo skoraði þrjú mörk fyrir Holland á HM í Katar og hefur í vetur skoraði 9 mörk og átt 12 stoðsendingar fyrir PSV í hollensku deildinni. AFP/Alberto Pizzoli Skorar Cody Gakpo hefur skorað 55 mörk í 159 leikjum fyrir PSV. Nokkuð sátt en vill alltaf gera betur lElín hefur leikið frábærlegameð HaukumlEin af þeimbestu í deildinni Elín Klara Þorkelsdóttir, leikstjórn- andi Hauka, hefur verið einn besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, á yfirstandandi tímabili. Elín er efst í flestum tölfræðiþáttum í deildinni og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu, en hún er aðeins 18 ára gömul og var til að mynda valin efnilegasti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili. „Ég er nokkuð sátt við þetta en ég vil einhvern veginn alltaf gera betur. Svona heilt yfir er ég mjög sátt við þetta. Eins og með þessa tölfræði, ég æfi aukalega og það skilar sér alltaf inni á vellinum,“ sagði Elín í samtali við Morgunblaðið er hún var spurð út í eigin frammistöðu á tímabilinu. Mikill heiður fyrir mig Góð frammistaða Elínar skilaði henni sæti í A-landsliði kvenna þar sem hún lék sína fyrstu landsleiki í vináttuleikjum gegn Færeyjum undir lok október og í forkeppni HM gegn Ísrael í byrjun nóvember og skoraði þar um leið sín fyrstu landsliðsmörk. „Það var mjög skemmtilegt verk- efni og mikill heiður fyrir mig að fá að taka þátt í því, spila fyrir Íslands hönd. Svo var ótrúlega góð reynsla að æfa með bestu handboltakonum landsins. Maður lærir ótrúlega mikið á því og ég myndi segja að ég hafi líka bætt mig hugarfarslega séð á þessum stutta tíma sem ég æfði með A-landsliðinu,“ sagði Elín. Eftir sérlega gott ár sagði hún framtíðarmarkmið sín skýr. „Mark- mið mitt er að verða atvinnumaður í handbolta. Mig hefur alltaf dreymt um það að verða atvinnumaður, að vinna við að spila íþróttina. Svo náttúrlega líka að vera í A-lands- liðinu og spila með því.“ Engin pressa frá fjölskyldunni Hún tilheyrir mikilli handbolta- fjölskyldu en æfði lengi vel fótbolta samhliða handboltanum og þótti einnig efnileg í þeirri íþrótt. Orri Freyr Þorkelsson, landsliðsmaður og atvinnumaður hjá Noregsmeist- urum Elverum, er bróðir hennar og faðir Elínar, Þorkell Magnússon, lék handbolta með Haukum um árabil og er í stjórn handknattleiksdeildar félagsins. Hún kvaðst þó ekki hafa fundið fyrir neinni pressu frá fjöl- skyldunni um að velja handboltann. „Þau vildu bara að ég gerði ná- kvæmlega það sem ég vildi. Það var engin pressa og alveg sama hvað ég myndi velja þá hvöttu þau mig í því. Þau voru ekkert á móti því að ég myndi velja fótboltann, þeim fannst hvort tveggja spennandi. Pabbi var náttúrlega bæði í hand- bolta og fótbolta og bróðir minn líka, en valdi handboltann. Ég fann allavega ekki fyrir neinni pressu. Ég var með markmið um að komast í landsliðið í fótbolta og ætlaði að verða atvinnumaður í fótbolta en svo breyttist það alveg,“ sagði Elín sem var komin kornung í meistara- flokkslið Hauka í fótboltanum. Jafnari deild en í fyrra Haukar eru sem stendur í fimmta sæti Olísdeildarinnar með 8 stig eftir tíu leiki, þremur stigum á eftir Íslandsmeisturum Fram í fjórða sæti, en átta lið skipa deildina. „Mér finnst hafa verið nokkuð óvænt úrslit í nokkrum leikjum og finnst eins og allir geti unnið alla. Það er svona mín tilfinning. Við erum núna í fimmta sætinu og erum búnar að vera mjög nálægt því að vinna leiki á móti liðunum sem eru í efri hluta deildarinnar. Ég myndi segja að deildin sé jafnari núna en hún var í fyrra, sem er gaman. Við setjum okkur þau markmið að vinna alla leiki og langar að vinna þessi lið sem eru fyrir ofan okkur. Við erum með ungt lið núna og það er aðeins öðruvísi frá því í fyrra. Við misstum marga leikmenn og erum núna að byggja upp á uppöldum leikmönnum. Það hefur bara gengið mjög vel og mér finnst liðið okkar vera búið að bæta sig mjög mikið á stuttum tíma. Það er líka bara kredit á þjálfarateymið okkar, sem er búið að standa sig mjög vel,“ sagði Elín, spurð hvernig henni hafi þótt deildin spilast hingað til. Vantar smávegis upp á Hvað vantar upp á hjá Haukum til þess að blanda sér í þessa baráttu í efri hlutanum? „Það vantar smá herslumun, reynslu og kannski aðeins upp á breiddina hjá okkur. Leikir eru kannski búnir að vera jafnir og svo á síðustu 5-10 mínútunum kemur slæmur kafli hjá okkur. Við þurfum að reyna að fækka slæmu köflun- um í okkar leik og reyna að klára leikina, það er málið. Við erum náttúrlega með ótrúlega ungt lið og ekki eins mikil reynsla í því þó við séum alveg með leikmenn sem hafa spilað í Olísdeildinni í mörg ár. Það eru ekki margir leik- menn okkar með mikla reynslu en það kemur,“ sagði Elín að lokum. Eins og sjá má hér fyrir neðan hefur Elín átt flestar stoðsendingar allra leikmanna í deildinni í vetur en hún er auk þess með næsthæsta meðaleinkunn í deildinni hjá HBSta- tz og er sú þriðja markahæsta. HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Morgunblaðið/Óttar Geirsson Öflug Elín Klara Þorkelsdóttir hefur, þrátt fyrir ungan aldur, farið fyrir Haukum á tímabilinu og lék í haust sína fyrstu A-landsleiki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.