Morgunblaðið - 28.12.2022, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2022
Sænska handknattleikskonan Sara
Odden er gengin aftur í raðir Hauka
og mun leika með liðinu eftir áramót.
Hún kemur til félagsins frá Zwickau í
Þýskalandi. Odden lék með Haukum í
þrjú ár, áður en hún hélt til Þýska-
lands. Var hún markahæsti leikmaður
liðsins á síðustu leiktíð með 108
mörk í 21 leik í Olísdeildinni. Hún
gæti leikið með Haukum gegn Fram í
Olísdeildinni 7. janúar næstkomandi.
Haukar eru í fimmta sæti deildarinn-
ar með átta stig eftir tíu leiki.
Harry Kane, sóknarmaður Totten-
ham og fyrirliði enska landsliðsins í
knattspyrnu, náði sögulegum áfanga
á mánudag. Kane skoraði þá annað
marka Tottenham þegar liðið gerði
jafntefli, 2:2, í ensku úrvalsdeildinni.
Þar með hefur hann náð að skora
mark eða mörk hjá öllum þeim 32
félögum sem hann hefur mætt í
deildinni. Þá var þetta 10. markið sem
Kane skorar á öðrum degi jóla og
það er líka met en áður hafði Robbie
Fowler skorað flest mörk í deildinni á
þeim degi, níu talsins.
Enska knattspyrnufélagið Norwich
City hefur sagt knattspyrnustjóran-
um Dean Smith upp störfum. Þetta
er í annað sinn á rúmum 13 mánuðum
sem Smith missir vinnuna. Honum
var sagt upp sem knattspyrnustjóra
Aston Villa 7. nóvember á síðasta ári
en var ráðinn til Norwich átta dögum
síðar. Smith tókst ekki að halda
Norwich í úrvalsdeildinni. Liðið féll í
vor og er nú í fimmta sæti B-deildar-
innar, tólf stigum á eftir toppliðunum
Burnley og Sheffield United.
Daley Blind, landsliðsmaður
Hollands í knattspyrnu, er farinn frá
hollensku meisturunum Ajax sem
tilkynntu í gær að hann væri laus
allra mála hjá félaginu. Tíðindin koma
nokkuð á óvart en hinn 32 ára gamli
Blind hefur samtals leikið með aðal-
liði félagsins í tíu ár, í tveimur hlutum,
og var áður í tíu ár í röðum barna- og
unglingaliðs Ajax. Hin fjögur árin á
ferlinum, frá 2014 til 2018, lék hann
með Manchester United. Blind var
fastamaður í hollenska landsliðinu
á HM í Katar og skoraði m.a. gegn
Bandaríkjunun í sextán liða úrslitum
keppninnar. Hann spilaði sinn 99.
landsleik þegar Holland tapaði fyrir
Argentínu vítaspyrnukeppni eftir
2:2-jafntefli í átta liða úrslitunum.
Nokkur bið verður á því að
pólski markahrókurinn Robert
Lewandowski geti leikið aftur með
félagsliði sínu Barcelona í spænsku 1.
deildinni þar sem hann þarf að taka
út þriggja leikja bann. Lewandowski
fékk tvö gul spjöld og þar með rautt í
síðasta leik Börsunga fyrir HM í Katar
og brást ókvæða við. Upphaflega átti
hann að fá eins leiks bann en vegna
viðbragða sinna, þar sem hann gerði
gys að dómaranum, ákvað spænska
knattspyrnusam-
bandið að lengja
bannið í þrjá leiki.
Barcelona áfrýjaði
banninu til spænska
íþróttadómstóls-
ins en fékk því
ekki hnekkt.
Perla og Guð-
mundur best
Golfsamband Íslands hefur valið
þau Guðmund Ágúst Kristjánsson
úr GKG og Perlu Sól Sigurbrands-
dóttur úr GR kylfinga ársins
2022. Perla varð Íslandsmeist-
ari, aðeins 15 ára gömul, á árinu
og varð einnig Íslandsmeistari
unglinga og valin í Evrópuúrval
ungmenna. Guðmundur Ágúst lék
á Áskorendamótaröð Evrópu og
hafnaði m.a. í þriðja sæti á móti í
Finnlandi. Hann tryggði sér síðan
þátttökurétt á Evrópumótaröðina
í lok árs.
Morgunblaðið/Óttar
Meistari Perla Sól varð Íslands-
meistari fullorðinna í sumar.
Alfons samdi við
Twente í Hollandi
Alfons Sampsted, landsliðsmað-
ur Íslands í fótbolta, hefur gert
þriggja og hálfs árs samning við
hollenska úrvalsdeildarfélagið
Twente. Hann kemur til félagsins
frá Bodø/Glimt í Noregi, þar sem
hann átti þrjú afar góð tímabil.
Alfons gæti leikið sinn fyrsta
leik með Twente 6. janúar er
liðið mætir Emmen á heimavelli.
Twente er í 5. sæti hollensku úr-
valsdeildarinnar með 27 stig, sex
stigum á eftir Feyenoord sem er á
toppnum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bakvörður Alfons gerði þriggja og
hálfs árs samning við Twente.
United nálgast fjórða sætið
lRashford að finna sig hjá ten HaglKærkominn sigur hjá ChelsealHavertz
skoraði og lagði upplJóhann Berg og félagar í góðum málum á toppnum
Manchester United vann afar
sannfærandi 3:0-sigur á Notting-
ham Forest er liðin mættust í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.
Marcus Rashford og Anthony
Martial skoruðu fyrstu tvö mörk
United á fyrstu 22 mínútunum og
var eftirleikurinn auðveldur fyrir
heimamenn. Varamaðurinn Fred
gulltryggði þriggja marka sigur með
marki á 87. mínútu.
Rashford var besti maður United
í leiknum, því hann skoraði fyrsta
markið sjálfur og lagði upp annað
markið á Martial. Enski sóknarmað-
urinn finnur sig mun betur undir
stjórn Eriks ten Hag, en margir
stuðningsmenn United vildu losna
við Rashford eftir síðustu leiktíð er
hann skoraði aðeins fjögur mörk
í deildinni. Hann er kominn með
fimm á þessu tímabili og búinn að
leggja upp þrjú til viðbótar. Þá er
hann búinn að skora sjö mörk í öllum
keppnum í síðustu níu leikjum.
United hefur unnið fjóra leiki í röð
í öllum keppnum og er nú aðeins
einu stigi á eftir Tottenham í fjórða
sæti. Ljóst er að liðið ætlar sér ekki
annað tímabil í Evrópudeildinni. Þá
virðist spilamennskan betri eftir að
Cristiano Ronaldo yfirgaf félagið og
aðrir leikmenn fengið að blómstra í
staðinn.
Nottingham Forest hefur aðeins
skorað eitt mark á útivelli á allri
leiktíðinni og er með verstu marka-
töluna í deildinni. Liðið er þó aðeins
einu stigi frá öruggu sæti og tímabil
nýliðanna ræðst ekki á leikjum á
útivelli gegn Manchester United.
Fríið kom á góðum tíma
HM-fríið virtist koma á hárréttum
tíma fyrir Chelsea, því liðið tapaði
þremur leikjum í röð fyrir hléið, en
vann sannfærandi 2:0-sigur á Bo-
urnemouth í gær. Kai Havertz kom
Chelsea yfir á 16. mínútu og lagði upp
annað markið á Mason Mount, átta
mínútum síðar. Þrátt fyrir sigurinn
er Chelsea í áttunda sæti með 24
stig, fimm stigum á eftir Manchester
United.
Leikurinn í gær gaf hins vegar
góð fyrirheit fyrir framhaldið hjá
Chelsea, þar sem frammistaðan var
góð, þótt andstæðingurinn hafi vissu-
lega ekki verið í hæsta gæðaflokki.
Ljóst er að Jóhann Berg Guð-
mundsson og félagar í Burnley ætla
að vera með í deildinni á næstu
leiktíð. Burnley vann sannfærandi
3:0-sigur á Birmingham á heimavelli
í B-deildinni. Liðið hefur unnið fjóra
leiki í röð, og skorað þrjú mörk í
þeim öllum. Burnley er í toppsætinu
með 50 stig, ellefu stigum fyrir ofan
þriðja sæti, en efstu tvö liðin fara
beint upp í úrvalsdeildina. Jóhann
Berg kom inn á undir lokin í gær, en
hann hefur verið notaður nokkuð
sparlega á tímabilinu, enda mikið
glímt við meiðsli.
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórss
johanningi@mbl.is
on
AFP/Oli Scarff
Rigning Markaskorararnir Marcus Rashford og Anthony Martial fagna á Old Trafford í gærkvöldi.
Elliði skæður í endur-
komu Gummersbach
Gummersbach hafði betur
gegn Hamburg, 31:30, í þýsku 1.
deildinni í handbolta gærkvöldi,
er síðustu leikir deildarinnar fyrir
HM í Póllandi og Svíþjóð í upphafi
næsta árs voru leiknir.
Hamburg var með 27:24-for-
skot, þegar tíu mínútur voru
til leiksloka, en Gummersbach
neitaði að gefast upp og fagnaði
sætum sigri. Elliði Snær Viðarsson
skoraði fimm mörk fyrir Gum-
mersbach og Hákon Daði Styrmis-
son tvö. Guðjón Valur Sigurðsson
þjálfar liðið.
Guðjón stýrði liðinu upp í efstu
deild á síðustu leiktíð og hefur
Gummersbach komið skemmtilega
á óvart í vetur. Liðið situr í níunda
sæti með 18 stig eftir 18 leiki.
Arnór Þór Gunnarsson skor-
aði tvö fyrir Bergischer, er liðið
fagnaði 32:30-útisigri á Hannover-
Burgdorf. Heiðmar Felixson er að-
stoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Bergsicher er í 12. sæti deildarinn-
ar með 16 stig, eftir tvo sigra í röð.
Hannover-Burgdorf er í áttunda
sæti með 19 stig, eftir tvö töp í röð.
Teitur Örn Einarsson gerði
eitt mark fyrir Flensburg í
34:24-heimasigri á Wetzlar. Flens-
burg hefur unnið þrjá leiki í röð,
og er liðið í fimmta sæti með 26
stig, fimm stigum á eftir toppliði
Füchse Berlín.
Lærisveinar Rúnars Sigtryggs-
sonar máttu þola 22:28-tap á úti-
velli gegn Füchse í höfuðborginni.
Viggó Kristjánsson skoraði þrjú
mörk fyrir Leipzig. Liðið er í 11.
sæti með 16 stig.
Þá vann Erlangen 31:28-heima-
sigur á Stuttgart. Ólafur Stefáns-
son er aðstoðarþjálfari Erlangen.
Erlangen er í 10. sæti með 17 stig.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Skæður Elliði Snær Viðarsson átti góðan leik fyrir Gummersbach í
endurkomu Íslendingaliðsins gegn Hamburg á heimavelli í gærkvöldi.