Morgunblaðið - 28.12.2022, Blaðsíða 28
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 362. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Gustaf Ljunggren og Skúli Sverris-
son með útgáfutónleika í Mengi
Nýverið kom út hljómplatan Floreana með leik sænska
tónlistarmannsins Gustafs Ljunggrens og bassaleik-
arans Skúla Sverrissonar. Á plötunni eru lög eftir
Ljunggren og munu þeir félagar flytja þau á útgáfutón-
leikum í menningarhúsinu Mengi við Óðinsgötu í kvöld,
miðvikudagskvöld, klukkan 21. Platan var hljóðrituð á
Seltjarnarnesi og í Kaupmannahöfn þar sem Ljung-
gren er búsettur. Í tilkynningu segir að um sé að ræða
„ótrúlega tærar og skýrar lagasmíðar með sterkri
skandinavískri skírskotun“.
ÍÞRÓTTIR
Atvinnumennska markmið Elínar
„Markmið mitt er að verða atvinnumaður í handbolta.
Mig hefur alltaf dreymt um það,“ segir hin 18 ára
gamla Elín Klara Þorkelsdóttir úr Haukum sem hefur
verið í hópi bestu leikmanna Olísdeildar kvenna á
þessu tímabili. » 22
Jóga- og grunnskólakennarinn
Anna Rós Lárusdóttir lætur sig
heilsu og hreyfingu varða og hefur
sent frá sér bókina Jógastund með
teikningum eftir Auði Ómarsdóttur
en Sögur útgáfa gefur bókina út.
„Bókin byrjaði í raun sem
mastersverkefni mitt, sem ég lagði
fram við Háskóla Íslands 2015,“
segir Anna Rós. Námsefni um jóga
á íslensku hafi verið af skornum
skammti og jóga hafi almennt ekki
staðið grunnskólabörnum til boða.
Hún hafi viljað bæta úr því og í
verkefninu hafi hún rökstutt hvern-
ig koma mætti jóga inn í hinn al-
menna grunnskóla sem leið til þess
að efla heilbrigði og velferð. Hún sé
nú kennari í Árbæjarskóla en eftir
útskrift hafi hún kennt í Laugarnes-
skóla í sex ár og miðlað af reynslu
sinni. „Þar kenndi ég meðal annars
jóga, betrumbætti efnið reglulega
og nú er það komið út í bók.“
Anna Rós segir að mikil vinna og
ástúð hafi farið í að þróa bókina.
„Það er mín ósk að hún nýtist sem
flestum til þess að skapa gæðastund
með börnum og koma þannig til
dæmis meira jafnvægi á umhverfi
barna.“
Kennsluefni
Í bókinni er farið yfir 50 jógastöð-
ur með skýringum, margar öndun-
ar-, slökunar- og íhugunaræfingar
auk þess sem sögur og leikir eru
notuð til að efla félags- og tilfinn-
ingatengsl. „Með því að tvinna
saman sögur og jóga má vekja
sögurnar til lífs með hreyfingum
og stöðum sem gerðar eru á meðan
þær eru sagðar.“
Bókin er bæði hugsuð fyrir
kennara í leik- og grunnskólum
og fyrir forráðamenn barna og
fjölskyldur með sameiginlegar
gæðasamverustundir, sem ein-
kennast af leik, nánd, sjálfsrækt og
hreyfingu, í huga. Í því sambandi
bendir Anna Rós á að þó hún leggi
áherslu á að útskýra æfingarnar í
máli og myndum skipti sögurnar
og leikirnir í bókinni miklu máli og
ekki síst nándin og samskiptin sem
í þeim felist. „Í raun höfðar bókin
til allra og ég hef heyrt að fullorðið
fólk noti hana líka fyrir sjálft sig,
sem staðfestir það.“
Ræktun líkama og sálar hefur
lengi átt hug Önnu Rósar. „Allt
sem viðkemur heilsu og hreyfingu
er viðamikil ástríða hjá mér,“ segir
hún. Jóga sé liður í reglubundnum
æfingum hjá sér auk þess sem
hún lyfti reglulega lóðum í líkams-
ræktarstöð. Hún sé einnig lærður
liðleikaþjálfari og hafi kennt jóga og
liðleikaþjálfun hjá ýmsum hópum
utan grunnskólans.
Anna Rós segir að þótt jóga sé
ekki komið inn í námskrá grunn-
skólanna sé það sums staðar í boði
og þá oft í svokallaðri hringekju
sem hluti verk- og listgreina eða
sem val. „Þetta er mismunandi eftir
skólum, en ég hugsa bókina líka
sem hjálpargagn fyrir kennara að
grípa í, þó ekki sé um hefðbundinn
jógatíma að ræða. Hún er tilval-
ið kennsluefni til að brjóta upp
hefðbundna kennslustund og koma
þannig betur til móts við fjölbreytt-
an nemendahóp.“
Til stendur hjá Önnu Rós að
kynna bókina og bjóða upp á hug-
myndir í kennslu í skólum fljótlega
eftir áramót og þá segist hún ætla
að bæta um betur. „Ég er með mikið
kennsluefni til viðbótar sem áhuga-
samir kennarar geta nýtt sér.“
lAnnaRós sendir frá sér bókum jóga fyrir alla
Eykur vellíðan og
ræktar líkama og sál
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í Tansaníu Anna Rós kennir jóga sem sjálfboðaliði á Sansibar.
Ljósmynd/Stefano Padoan
Við Kleifarvatn Anna Rós í jóga.