Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
R
ekstur Iceland Seafood er
fjölbreyttur og rekur
fyrirtækið meðal annars
vinnslur sjávarfangs í
Bretlandi, á Írlandi,
Spáni og í Argentínu. Fyrirtækið er
hins vegar ekki með útgerð-
arstarfsemi og er því viðkvæmt fyr-
ir verðbreytingum á markaði, út-
skýrir Bjarni sem segir mikilvægt
að sjá stöðuna í heildarsamhengi.
„Auðvitað hefur Covid-tímabilið
gert alla hluti óvenjulega og ekki
síst eftirspurn eftir sjávarfangi,
sem á tímabili færðist alfarið úr
veitingageiranum yfir í smásöluna.
Það hafði í för með sér miklar
breytingar á eftirspurnarhliðinni og
samhliða því hafa þær takmarkanir
sem voru innleiddar leitt til verð-
hækkana á dýrapróteini og þar er
fiskurinn engin undantekning
Það er hins vegar alveg ljóst að
frá byrjun þessa árs, þegar hinn
vestræni heimur sá fram á að Covid
faraldurinn væri að fara að lina tök-
in , urðu miklar væntingar um að
eðlilegt ástand væri að komast á
aftur og sölu- og dreinfingaraðilar
sem þjónsuta veitingageirann fóru
á fulla ferð að birgja sig upp í
þeirri trú að jafnvægi væri náð á
ný. Þegar það fer af stað eru allar
birgðargeymslur tómar sem býr til
mikla eftirspurn mjög hratt sem
svo leiddi til verulegrar verðhækk-
anna. Þegar svo stríðið í Úkraínu
brýst út 24. febrúar ýtti það enn
frekar upp verði ásamt viðskipta-
hindrunum við Rússland. […] Þeg-
ar við erum að selja vörur þar sem
hráefnishlutfallið er hátt má verð á
hrávöru ekki breytast mikið til þess
að maður sé kominn í rauðar tölur,“
segir hann.
Miklar sveiflur í verði
Sem betur fer hafi verðþróunin
snúist við seint í vor. „Neytandinn
upplifir auðvitað það að þurfa að
borga miklu hærra orkuverð, elds-
neytisverð, hærri vexti og hærra
matvælaverð, svigrúm hans til
neyslu hefur einfaldlega minnkað
og þá verður dýrari vara, eins og
fiskur, að láta undan. Þess vegna
hafa orðið einhverjar verðlækkanir
og verða einhverjar fram undan.
Maður sér þetta best í laxinum sem
er seldur mest sem hrávara til
reykingar eða áframvinnslu. Þar
fóru verðin mjög hratt upp, nánast
tvöfölduðust frá janúar til loka maí
en hafa lækkað um helming frá lok
maí til loka ágúst – sem er þó
hærra verð en það var í lok ágúst í
fyrra,“ útskýrir Bjarni.
Hann kveðst þó ekki eiga von á
því að sjá sambærilegar lækkanir í
þorskinum, þar sem framboð mun
dragast saman og vísar til þess að
samdráttur verður í útgefnum
þorskkvóta á nýju fiskveiðiári hér á
landi og er samhliða því gert ráð
fyrir að heimildir í Barentshafi
verði umtalsvert minni í ár en í
fyrra.
Þörf á aukinni markaðssetningu
Spurður hvort búast megi við því
að verð á hvítfiski almennt verði
áfram há svarar Bjarni því játandi,
en bendir á að það eru nokkrir mót-
verkandi þættir í því samhengi.
„Þegar verð verða svona há byrjar
„Trúum því að góðir hlutir gerist hægt“
Miklar verðhækkanir hráefnis og annarra kostnaðarliða á öðrum ársfjórðungi 2022 urðu til þess að Iceland Seafood skilaði 1,8 millj-
óna evru tapi. Þá hefur reksturinn í Bretlandi verið mikil áskorun og er talið að það muni kosta meira og taka lengri tíma en áður var
áætlað að koma á jafnvægi í rekstrinum. Bjarni Ármannsson, forstjóri fyrirtækisins, segir bjartari tíma í vændum þrátt fyrir mikla
óvissu og telur nauðsynlegt að greinin sé meira samstíga og með markvissari aðgerðir í markaðssetningu.
Ljósmynd/Iceland Seafood
Ljósmynd/Iceland Seafood
„Til lengri tíma litið held ég
að hvítfiskur verði hátt verð-
lagður, eigi að vera hátt
verðlagður og geti jafnvel
hækkað enn meira.“
Fjórðungur af orkuþörf verksmiðj-
unnar í Barselóna verður mætt með
sólarsellum á þaki húsnæðisins.