Morgunblaðið - 27.08.2022, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 MORGUNBLAÐIÐ 15
sem hafa flækst í veiðarfæri sem
sitja föst um hálsinn á þeim og
þrengja smám saman að þegar sel-
irnir vaxa. Það eru ekki bara gömul
veiðarfæri og drauganet sem geta
skaðað selina, heldur líka alls konar
úrgangur úr plasti og öðrum efnum.
Hluti af verndun selastofnanna felst í
að allir taki ábyrgð á að fara rétt með
úrgang.“
Ágengir ferðamenn
gætu skaðað stofnana
Komur ferðamanna gætu líka haft
neikvæð áhrif og segir Sandra að ís-
lensk ferðaþjónustufyrirtæki verði
að brýna fyrir ferðalöngum að sýna
aðgát í kringum seli. „Segja má að
með fjölgun ferðamanna sé selurinn
orðinn dýrmæt auðlind á ný og
margir sem sækja Ísland heim vilja
gjarnan sjá seli, rétt eins og lunda og
hvali. En selirnir þurfa næði og ef
þeir finna fyrir of miklum truflunum
vegna ferðamanna er hætta á að þeir
færi sig um set, sem svo eykur lík-
urnar á að þeir nái ekki að næra kópa
sína nógu vel fyrir veturinn. Kópur
sem ekki fitnar vel kann að eiga erf-
itt með að lifa af fyrsta árið.“
Með réttum vinnubrögðum má
lágmarka þau áhrif sem forvitnir
ferðamenn hafa á selastofnana og
segir Sandra að ætti að láta selina
sem mest í friði á vorin þegar land-
selir kæpa og haustin þegar útselir
kæpa. „Ef selur reisir hausinn, þegar
hann verður var við fólk, þá er það
vísbending um að hann kunni ekki
við gestina og sé orðinn stressaður,“
segir hún. „Ferðaþjónustufyrirtæki
ættu að hafa það sem viðmið að halda
a.m.k. 50 metra fjarlægð frá selunum
og helst a.m.k. 100 metra fjarlægð
þegar selirnir kæpa. Ferðamenn
ættu líka að reyna að skapa ekki
mikinn hávaða, hreyfa sig hægt og
vitaskuld má alls ekki henda neinu í
átt að selunum.“
Mikilvæg mæling í haust
Verður áhugvert að sjá hvernig land-
og útselsstofnunum hefur reitt af eft-
ir að veiðibannið var sett á. Vísinda-
menn bíða spenntir eftir niður-
stöðum hausttalningar á útsel. Hvort
það tekst að finna ásættanlega lausn,
til að draga úr meðaflavandanum,
segir Sandra erfitt að segja: „Ég veit
að tilraunir með selaheld veiðarfæri
hafa gefið góða raun. Þá hafa verið
gerðar tilraunir með að banna eða
takmarka veiðar á ákveðnum svæð-
um umhverfis landið, með selastofn-
inn í huga, en áhrif þeirra lokana
liggja ekki enn fyrir. Þá röskuðust
mælingar á meðafla á meðan á kór-
ónuveirufaraldrinum stóð, því eft-
irlitsmenn gátu ekki verið um borð í
skipum. Þess vegna vitum við ekki
með vissu hvernig sjávarútveginum
gengur að lágmarka það tjón sem
veiðar valda selastofnunum.“
Selir komast í feitt þar sem fiskur hefur safnast saman í neti en forvitnin og
græðgin getur komið þeim í vandræði. Hljóðfælur gætu hjálpað.
Landselurinn er ekki jafn styggur og útselurinn og hundslegri í framan. Útselurinn reynir að halda sig fjær mannabyggðum. Ungir útselskópar eru hvítir að lit svo þeir sjást vel þegar talning fer fram úr lofti.
Gæta þarf að því að ferðamenn trufli ekki seli á þeim tímum árs sem þeir kæpa.
Kóparnir þurfa að fitna vel ef þeir eiga að lifa af veturinn.