Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 15

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 15
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 MORGUNBLAÐIÐ 15 sem hafa flækst í veiðarfæri sem sitja föst um hálsinn á þeim og þrengja smám saman að þegar sel- irnir vaxa. Það eru ekki bara gömul veiðarfæri og drauganet sem geta skaðað selina, heldur líka alls konar úrgangur úr plasti og öðrum efnum. Hluti af verndun selastofnanna felst í að allir taki ábyrgð á að fara rétt með úrgang.“ Ágengir ferðamenn gætu skaðað stofnana Komur ferðamanna gætu líka haft neikvæð áhrif og segir Sandra að ís- lensk ferðaþjónustufyrirtæki verði að brýna fyrir ferðalöngum að sýna aðgát í kringum seli. „Segja má að með fjölgun ferðamanna sé selurinn orðinn dýrmæt auðlind á ný og margir sem sækja Ísland heim vilja gjarnan sjá seli, rétt eins og lunda og hvali. En selirnir þurfa næði og ef þeir finna fyrir of miklum truflunum vegna ferðamanna er hætta á að þeir færi sig um set, sem svo eykur lík- urnar á að þeir nái ekki að næra kópa sína nógu vel fyrir veturinn. Kópur sem ekki fitnar vel kann að eiga erf- itt með að lifa af fyrsta árið.“ Með réttum vinnubrögðum má lágmarka þau áhrif sem forvitnir ferðamenn hafa á selastofnana og segir Sandra að ætti að láta selina sem mest í friði á vorin þegar land- selir kæpa og haustin þegar útselir kæpa. „Ef selur reisir hausinn, þegar hann verður var við fólk, þá er það vísbending um að hann kunni ekki við gestina og sé orðinn stressaður,“ segir hún. „Ferðaþjónustufyrirtæki ættu að hafa það sem viðmið að halda a.m.k. 50 metra fjarlægð frá selunum og helst a.m.k. 100 metra fjarlægð þegar selirnir kæpa. Ferðamenn ættu líka að reyna að skapa ekki mikinn hávaða, hreyfa sig hægt og vitaskuld má alls ekki henda neinu í átt að selunum.“ Mikilvæg mæling í haust Verður áhugvert að sjá hvernig land- og útselsstofnunum hefur reitt af eft- ir að veiðibannið var sett á. Vísinda- menn bíða spenntir eftir niður- stöðum hausttalningar á útsel. Hvort það tekst að finna ásættanlega lausn, til að draga úr meðaflavandanum, segir Sandra erfitt að segja: „Ég veit að tilraunir með selaheld veiðarfæri hafa gefið góða raun. Þá hafa verið gerðar tilraunir með að banna eða takmarka veiðar á ákveðnum svæð- um umhverfis landið, með selastofn- inn í huga, en áhrif þeirra lokana liggja ekki enn fyrir. Þá röskuðust mælingar á meðafla á meðan á kór- ónuveirufaraldrinum stóð, því eft- irlitsmenn gátu ekki verið um borð í skipum. Þess vegna vitum við ekki með vissu hvernig sjávarútveginum gengur að lágmarka það tjón sem veiðar valda selastofnunum.“ Selir komast í feitt þar sem fiskur hefur safnast saman í neti en forvitnin og græðgin getur komið þeim í vandræði. Hljóðfælur gætu hjálpað. Landselurinn er ekki jafn styggur og útselurinn og hundslegri í framan. Útselurinn reynir að halda sig fjær mannabyggðum. Ungir útselskópar eru hvítir að lit svo þeir sjást vel þegar talning fer fram úr lofti. Gæta þarf að því að ferðamenn trufli ekki seli á þeim tímum árs sem þeir kæpa. Kóparnir þurfa að fitna vel ef þeir eiga að lifa af veturinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.