Fréttablaðið - 05.01.2023, Qupperneq 14
n Halldór
n Frá degi til dags
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Umskiptin
núna eru
alger – og
verða ekki
rakin til
annars en
að rögg-
samur og
trúverðug-
ur foringi
hafi tekið
við stýrinu
…
Borgin
þurfti,
undir for-
ystu borg-
arstjóra, að
draga ríkið
bæði fyrir
héraðsdóm
og Hæsta-
rétt til að fá
það til að
standa við
samkomu-
lagið.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Hjálmar
Sveinsson
borgarfulltrúi
Samfylkingar-
innar
685 fjölskyldur bíða eftir því að f lytja í Nýja
Skerjó. Deiliskipulag byggðarinnar hefur hlotið
lof erlendis og hér heima. Gert er ráð fyrir grænu
neti opinna svæða og skemmtilegum göngu-
leiðum í gegnum hverfið. Áhersla er lögð á forgang
gangandi og hjólandi, hæga bílaumferð og öflugar
tengingar við almenningssamgöngur.
Uppbygging Nýja Skerjó hefur nú verið tafin í
7 mánuði. Fullyrt hefur verið að rekstraröryggi
f lugvallarins skerðist verði af uppbyggingunni.
En samkvæmt rannsóknum verkfræðistofunnar
EFLU er það ekki raunin. Bornar voru brigður
á þær niðurstöður og því fékk Isavia hollensku
f lug- og geimferðastofnunina (NRL) til að skoða
þetta nánar. Niðurstaðan er sú sama. Vandi vegna
vindafars á f lugvellinum er viðráðanlegur.
Ekki eru málefnalegar ástæður til að fresta
uppbyggingunni (e. „However, it is concluded that
the identified risk is manageable and should not
block the development of the Nýi-Skerjafjörður
residential area.“) Málið er á borði innviðaráð-
herra og er búið að vera þar alltof lengi.
Skipulag Nýja Skerjó byggir á samkomulagi
við ríkið frá 2013 sem gerir ráð fyrir að borgin
fái afsal og óskoraðan yfirráðarétt yfir landinu.
Í samkomulaginu stendur að Reykjavíkurborg
kappkosti að „skipulag verði vandað og að nýting
landsins verði góð. Svæðið verður að megin-
stefnu til skipulagt sem íbúðarbyggð“. Borgin
þurfti, undir forystu borgarstjóra, að draga ríkið
bæði fyrir héraðsdóm og Hæstarétt til að fá það
til að standa við samkomulagið. Það er einstakt í
sögunni.
Reykjavíkurborg hefur skrifað undir samkomu-
lag um vilyrði til lóðaúthlutunar í Nýja Skerjó
til Bjargs íbúðafélags verkalýðshreyfingarinnar,
Félagsstofnunar stúdenta og HOOS1, félags stofn-
aðs til að byggja hagkvæmt húsnæði. Þessi áhersla
á félagslega húsnæðisuppbyggingu, í bland við
uppbyggingu á almennum markaði, er í samræmi
við gildandi húsnæðisstefnu ríkis og borgar. n
Tafir í Nýja Skerjó
benediktboas@frettabladid.is
Seinvirkt kerfi
Búið er að ræða og rita alls konar
um snjóinn sem bölvaður veður-
guðinn henti ofan á götur og
gangstíga borgarinnar og ætli
sé ekki búið að stofna starfshóp
til að skoða hvað fór úrskeiðis
þegar átti að moka honum burt.
Nú tekur annað við. Frostið.
Bölvað frostið. Hvað þýðir það?
Jú, að leikskólabörn geti ekki
farið út að leika vegna meng-
unar því gatnakerfið ræður ekki
við umferðina. Borgaryfirvöld
hvetja nú íbúa til að skilja bílinn
eftir heima næstu daga og nýta
sér strætó. Sem þýddi að margi
eru seinir því nýja fína Klapp-
appið er svo seinvirkt.
Skipun að ofan
Flestir íbúar borgarinnar og
jafnvel gestir hennar einn-
ig hafa ekkert verið alltof
sáttir við hvernig borgin hefur
tæklað snjóinn. Íbúagrúppur á
Facebook loga stafnanna á milli
af Indriðum úr Fóstbræðrum
sem spyrja: Hver á að moka
bílinn minn út? Er það ég? En nú
hefur borgin beðið þessa sömu
Indriða að skilja bílinn bara
eftir svo mengunin fari ekki yfir
heilsufarsmörk. Vinna helst bara
heima, prófa að sameinast um
bíla, nú eða nota aðra vistvæna
samgöngumáta. Gallinn er að
það er ekki hægt að notast við
aðra vistvæna samgöngumáta.
Stígarnir eru nefnilega ófærir. n
FRÉTTAVAKTIN
KL. 18.30
Fréttaumfjöllun fyrir alla.
í opinni dagskrá á virkum dögum
á Hringbraut og frettabladid.is
Hver skoðanakönnunin af annarri
sýnir fram á mikla fylgisaukningu
Samfylkingarinnar eftir að Krist-
rún Frostadóttir tók við stjórnar-
taumunum í jafnaðarflokknum
þeim arna, en í sumum þeirra er flokkurinn
ýmist á pari við Sjálfstæðisflokkinn eða jafnvel
fyrir ofan hann í vinsældum.
Þetta eru viðbrigði fyrir Samfylkingar-
fólk sem hefur horft upp á flokk sinn í sárum
um árabil, einkum og sér í lagi eftir þing-
kosningarnar 2016 þegar innan við sex prósent
kjósenda greiddu flokknum atkvæði sitt og
eftirtekjan var þrír þingmenn, þar af enginn á
höfuðborgarsvæðinu.
Lengi vel eftir þær búsifjar í koti kratanna
virtist Eyjólfur bóndi ekkert ætla að hressast.
Mannaskipti í brúnni skiptu litlu sem engu, en
fimm árum eftir þennan téða kosningaósigur
mældist flokkurinn enn þá undir tíu prósentum
í fylgiskönnunum.
Umskiptin núna eru alger – og verða ekki
rakin til annars en að röggsamur og trúverðugur
foringi hafi tekið við stýrinu með athyglis-
verðum áherslubreytingum sem öðru fremur
opna og víkka málefnaskrá fylkingarinnar í stað
þess að hlaða hana afarkostum.
Þessi tilraun Kristrúnar Frostadóttur, sem
ýmsum þótti býsna áræðin, ef ekki bíræfin, og
vera líka til marks um að hún hefði tekið hressi-
lega í hnakkadrambið á flokknum, hefur, að því
er virðist, tekist með ágætum.
Og það er auðvitað til marks um ferskleikann
sem henni fylgir að hún segist ekki vilja laða
til sín óánægjufylgi heldur ánægjufylgi. Hér er
talað á nýjum nótum.
En það er langt til næstu þingkosninga, að
öllum líkindum. Og þó ekki væri sakir annars en
að stjórnarflokkarnir eru að berjast við innan-
tökur. Þeir hafa enga hagsmuni af því að kljúfa
sig hver frá öðrum. Samkvæmt hverri könnun-
inni af annarri hafa þeir klárlega tapað meiri-
hlutafylgi sínu á þingi – og að minnsta kosti tveir
þeirra, Framsókn og VG, eru augljóslega að sjá á
eftir kjósendum sínum yfir til Samfylkingarinn-
ar, sem aukinheldur er að gera Viðreisn lífið leitt.
Þessar síðustu kannanir sýna ekki einasta
að tveggja turna mynstrið er aftur komið til
sögunnar í íslenskri pólitík, að minnsta kosti um
stundarsakir, með tvo flokka með yfir tuttugu
prósenta fylgi, nokkra flokka í kringum tíu pró-
sentin og annan eins slatta við fimm prósentin.
Þær sýna líka ítrekað að samanlagt fylgi
hægri flokka á Íslandi, Sjálfstæðisflokks og Við-
reisnar, mælist undir þrjátíu prósentum. Það
eru tíðindi. n
Pólitísk tíðindi
Skoðun FréTTablaðið 5. janúar 2023 FIMMTuDAGuR