Fréttablaðið - 05.01.2023, Síða 16
Í LHÍ er allt
önnur
áhersla á sjálfstæða
hugsun og vinnu-
brögð sem var
líklegast það
erfiðasta við
námið.
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson,
gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.
is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir,
thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550
5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
K
AV
IT
A
Vintage golluna keypti Halldór í New
York og buxurnar eru frá Craig Green.
Hér klæðist
Halldór vintage
snákaleður-
vesti sem hann
keypt á Ítalíu.
Leðurbux-
urnar hannaði
hann sjálfur og
saumaði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Útskriftarlína Halldórs síðasta vor, að ofan og neðan, bar
nafnið Neon Moon. MYND/BERGLAUG PETRA GARÐARSDÓTTIR
Spurt og svarað
Hvernig fylgist þú helst með tískunni?
Instagram er mjög gott tól. Síðan eru nokkur
blogg sem ég skoða, eins og dieworkwear.com
sem inniheldur mjög gott efni um almenna
herratísku og alls konar fleiri Tumblr-síður sem
er gott að fara í gegnum ef mann vantar inn-
blástur.
Hvar kaupir þú helst fötin?
Ég reyni að kaupa mest notuð föt, þá í Rauða kross-
inum, Hertex eða einhverri „vintage“ búð. Eftir að ég
fór að vinna og eignast meiri pening hef ég keypt
meira á netinu í gegnum Grailed eða Farfetch og
stundum finnur maður eitthvað gott á eBay.
Hvaða litir eru í mestu uppáhaldi?
Ég er til í næstum alla liti. Nýlega
keypti ég neonbleika sokka frá UVU
og svo er ég búinn að vera mikið í gulri
gollu sem ég keypti í New York. Ef það
er einn litur sem ég elska þá er það
mosagrænn litur. Ég þarf að halda
aftur af mér að kaupa ekki of mikið af
fötum í þeim lit.
Áttu minningar um gömul tískuslys?
Ég var stundum að vinna með að
vera í öllu rauðu, skyrtu, slaufu, gler-
augum, buxum, sokkum og skóm, allt í
rauðu. Maður var ófeiminn í gaggó.
Hvaða þekkti einstaklingur er svalur
þegar kemur að fatnaði?
Ég hef undanfarið verið að skoða
mikið tvo goðsagnakennda tónlistar-
menn, Prince og Lenny Kravitz. Þeir eru
báðir með alvöru kynþokka og ófeimnir
við að ögra aðeins staðalímyndum. Svo
eru minna þekktir menn eins og Justin
Boone og Alexander Roth sem eru með virki-
lega flottan fatastíl og duglegir að pósta á
Instagram. Ég fæ mikinn innblástur frá þeim.
Hvaða flíkur hefur þú átt lengst og notar enn?
Woolrich-ullarjakki sem ég keypti á Ítalíu 2017
er líklegast elsta flíkin sem ég nota enn þá. Síðan
fékk ég Chippewa boots frá foreldrum mínum í
útskriftargjöf úr MR sem ég nota enn.
Áttu eina uppáhaldsflík?
Það er gamall Toby Keith-bolur sem vinur minn
Sigurður Darri Björnsson gaf mér eftir að hann kom heim
frá Boston 2019. Toby Keith er einn af mínum uppáhalds
kántrísöngvurum og ég hlustaði mikið á hann þegar ég bjó
í Bandaríkjunum sem barn. Þessi bolur er mér mjög kær
vegna þess að Siggi Darri lést árið 2020 í slysi við Esjuna.
Bolurinn minnir mig á hann og vináttu okkar í gegnum MR
og HÍ.
Notar þú fylgihluti?
Ég verð að vera með góða fylgihluti því þeir gera svo fárán-
lega mikið fyrir lúkkið. Þar má nefna nokkra flotta „vintage“
silfurhringi, silfureyrnalokka og silfurhálsmenn. Síðan er alltaf gott
að vera með eitt stykki „tote bag“ eða góðan „messenger bag“.
starri@frettabladid.is
Halldór Karlsson, sem útskrifaðist
úr fatahönnun frá Listaháskóla
Íslands vorið 2022, segist alla tíð
hafa haft gaman af fötum og um
leið verið ófeiminn við að klæðast
óvenjulegum flíkum í æsku. „Með
tímanum þróaðist svo áhugi minn
enn frekar á fötum og fatahönnun.
Ég ákvað að hefja nám í fata-
hönnun eftir að ég áttaði mig á því
að tíminn sem ég átti að eyða í að
læra í fyrra námi mínu í verkfræði,
fór að mestu í að skoða föt og tísku.
Því fannst mér upplagt að slá tvær
flugur í einu höggi og gera bæði á
sama tíma með því að hefja nám í
fatahönnun.“
Utan fatahönnunar er Halldór
mikill áhugamaður um CrossFit
og stundar það af krafti í
Mjölni. „Ég elska líka góðar
sci-fi bækur, suður-kóreskar
spennumyndir og síðan er
ekkert betra en að lesa gott
Manga (japanskar mynda-
sögur) á sunnudagsmorgni.
Líklegast mun ég þó aldrei
elska neitt eins mikið og
rauða Hilux x cab ’91 pall-
bílinn minn.“
Áhersla á sjálfstæði
Námið í LHÍ reyndist vera
mjög krefjandi. „Þar var ég
að fást við töluvert öðruvísi
verkefni en í verkfræðinni
þar sem allir nemendur fengu
sömu heimadæmin og þar
af leiðandi sömu svörin (eða
villur). Í LHÍ er allt önnur
áhersla á sjálfstæða hugsun og
vinnubrögð sem var líklegast
það erfiðasta við námið en um
leið það sem ég bý mest að í
dag.“
Að kynna eigin hönnun fyrir
nemendum og kennurum er
mjög erfitt að hans sögn og ber-
skjaldar mann ótrúlega mikið. „Þá
skiptir öllu að standa með sjálfum
sér. Það er auðvelt að skoða það
sem er vinsælt núna og fela sig á
bak við það. En að hanna eitthvað
sem þú fílar sjálfur, en ert óviss
með að aðrir geri, þá ertu að stefna
í rétta átt.“
Hraði og stress
Í vetur hefur Halldór starfað við
gerð HBO-sjónvarpsseríunnar
True Detective: Night Country
þar sem hann vinnur í búninga-
deildinni. „Þetta er fyrsta kvik-
myndaverkefnið sem ég tek að mér
og mér finnst þetta vera skemmti-
legur bransi. Hér er mikill hraði
og oft stress en það er bara gaman.
Annars er ég óviss um hvað tekur
við þegar ég klára þetta verkefni.
Annað hvort fer ég í annað kvik-
myndaverkefni ef eitthvað gott
býðst eða þá í smá frí og byrja svo
að hanna og selja eigin föt.“ n
2 kynningarblað A L LT 5. janúar 2023 FIMMTUDAGUR