Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.01.2023, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 05.01.2023, Qupperneq 32
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Eitt sinn heyrði ég áhugaverða pælingu um muninn á jólum og áramótum. Um jólin staldrar maður við og horfist í augu við samband sitt við það fólk sem maður elskar mest. Maður sýni þeim sem skipta mann mestu máli ást og umhyggju. Jólin séu því hátíð hjartans og kærleik- ans þar sem horft sé inn á við. Við áramót horfum við á líf okkar út frá hinu stóru sjónarhorni þar sem dregin er lína í sandinn, við kveðjum hið liðna og setjum á það ártal og mætum því nýja og setjum stefnu. Við þessi tímamót eru þess vegna oft strengd heit um breytingar, áramótaheit. Þar sem lestir verða skildir eftir með því liðna. Betri hegðun með hinu nýja. Sjálfur strengdi ég þess heit reglulega að hætta notkun nikótíns um áramót. Það tókst fyrir rest fyrir nokkrum árum á miðju ári. Af þeim sökum finnst mér miklu áhugaverðara að horfa til baka við áramót yfir nýliðið ár frekar en að setja fram væntingar um einhverjar sjálfsprottnar breytingar bara af því að það eru áramót. Hvað í hegðun minni árið 2022 hefur breyst frá því sem áður var? Hvað lærði ég á nýliðnu ári um sjálfan mig? Afleiðing þessarar sjálfskoð- unar er að ég hef þetta einfalt og nánast eins öll áramót. Áramóta- heit mín fyrir 2023 eru því líkt og undanfarin ár þessi: Fjárhagslegar skuldbindingar mínar skulu verða umtalsvert lægri við árslok en við upphaf árs. Ég hóf árið allsgáður og ætla að ljúka því með sama hætti og líka hina mánuðina. Síðan ætla ég að muna að ég ætla ekki að telja mér trú um að það geti verið góð hugmynd að ég reyki svona eins og einn vindil með vini mínum. Megi 2023 færa þér gleði og gæfu. n Tímamótaheit Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA 20-50% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM 50% JÓLAVÖRUR 30-50% LEIKFÖNG 30% PLASTBOX 25% INNIMÁLNING, PARKET, FLÍSAR, GROHE OG DAMIXA BLÖNDUNARTÆKI 20% VERKFÆRABOX, JÁRNHILLUR, ÖRYGGISSKÓR 20-50% AF VÖLDUM VÖRUM ÞÚ SÉRÐ ÖLL TILBOÐIN Á BYKO.IS B ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi ll ur o g/ eð a m yn da br en gl . Vítamín- dagar! 5.-8. janúar 25% appsláttur inneign í appinu

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.