Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Page 4
L
angþráð verslunarmanna-
helgi rann upp, en þá gátu
landsmenn loksins blandað
geði og fleiru á fjölmennum og tak-
markalausum verslunarmannahelg-
arsamkomum á nýjan leik, en öllu
slíku húllumhæi var aflýst á dögum
plágunnar.
Veðurspár voru raunar lengi vel lítt
til þess fallnar að æsa mannskapinn
til mikilla ferðalaga út í guðsgræna
náttúruna, enn síður þegar það snjó-
aði í aðdraganda helgarinnar. Drógu
því margir að ákveða hvert halda
skyldi eins lengi og þolandi var.
Suðurland varð fyrir valinu hjá
mörgum, en eins létu aðdáendur
Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum sig
ekki vanta.
Almennt má segja að ferðalög og
hátíðahöld hafi gengið vel, þó eitt-
hvað hafi verið um minni háttar
óhöpp í umferðinni, talsverða ölvun
og pústra, en einnig einhver kyn-
ferðisbrot, þó lögregla teldi of
snemmt að kasta tölu á þau.
Veðurstofan hafði þó í ýmsu brýnna
að snúast en að spá fyrir um hvar
yrði helst þurrkur fyrir þá sem vildu
vökva sig, því um liðna helgi hófst
öflug jarðskjálftahrina á Reykja-
nesskaga, sem margir töldu undan-
fara eldgoss.
Samkvæmt tölfræði Evrópusam-
bandsins eru starfandi læknar með
fæsta móti hérlendis, en það kom
Steinunni Þórðardóttur, formanni
Læknafélagsins, ekki á óvart og hún
sagði læknaskort hér á landi, sem
yrði að leysa með fleiri útskriftum
við innlenda háskóla og efaði að
treysta mætti útlenskum lækna-
prófum.
Íslendingadagurinn í Gimli í Kan-
ada var haldinn hátíðlegur í 133.
sinn, en þar flutti Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis-
ráðherra hátíðarræðu. Margt annað
var til gamans og ræktarsemi gert,
en þar bar pönnukökubakstur sjálf-
sagt hæst.
40 skömmtum af apabóluefni var
ráðstafað hér á landi eftir að dönsk
heilbrigðisyfirvöld lánuðu það hing-
að. Ísland er aðili að Evrópusam-
starfi um öflun bóluefna og er von á
1.360 skömmtum til viðbótar á næst-
unni.
Íslensku liðunum gekk vel á Ólymp-
íumótinu í skák, sem haldið er í
Chennai (Madras) á Indlandi, en það
var flutt þangað frá Rússlandi.
. . .
Jarðskjálftar héldu áfram og sumir
harla öflugir, en viðbrögð jarðfræð-
inga voru á ýmsa lund. Sumir
þeirra sögðu jafnvel að stutt væri í
gos, sem er ekki nákvæmt orðalag
hjá stétt sem hugsar í milljónum
ára. Aðrir sögðu þó gos líklegt með
haustinu. Í ljósi tíðarfarsins var
a.m.k. ósennilegt að það gysi á
sumri þetta árið.
Heimamenn í Grindavík voru enn
nákvæmari um gosið í samtölum við
tíðindamann Morgunblaðsins, en
þar hefur skjálftinn verið mestur.
Þar gætti ekki hræðslu, þó menn
játuðu að endalausum skjálftum
fylgdi ónotatilfinning.
Í ljósi fyrri reynslu og áhyggja af af-
leiðingum jarðelda á Reykjanes-
skaga var nokkuð bollalagt um
varnargarða og önnur varnarmann-
virki til þess að aftra því að hraun-
flóð rjúfi vegi, ógni vatnsbólum eða
mannvirkjum.
Borið hefur á auknum tilraunum
svikahrappa til þess að plata fólk til
þess að skrá sig inn á eftirlíkingar af
heimasíðum bankanna, en nota upp-
lýsingarnar síðan til þess að svíkja
út fé af reikningum þess.
Til stendur að taka í gagnið húsnæði
í Háskóla Íslands, sem skemmdist
mikið í vatnstjóni í upphafi árs 2021
þegar vatnslögn við Suðurgötu gaf
sig. Öllum þessum tíma síðar er þó
enn óljóst hver ber bótaábyrgðina.
Verð á korni hvers konar hefur tek-
ið að lækka á ný eftir að samkomu-
lag náðist um kornútflutning frá
Úkraínu. Það hefur víðtæk áhrif á
matvælaverð og linar verðbólgu-
þrýsting hér sem annars staðar.
Samtök iðnaðarins leggja áherslu
á að komið verði á stöðugleika og
jafnvægi á húsnæðismarkaði,
spenna á honum hafi áhrif á allt
efnahagslífið.
Verkalýðsfélag Suðurlands segir
víða pott brotinn í aðbúnaði vinnandi
fólks á starfssvæði sínu, en þar á
meðal séu dæmi um launafólk sem
ekki greiði í neitt stéttarfélag!
. . .
Óróinn á Reykjanesskaga sótti í sig
veðrið og töldu jarðfræðingar að
gos væri í aðsigi á næstu grösum,
dögum eða dægrum. Mælingar
bentu til þess að kvikan væri mjög
nálægt yfirborðinu og tók reyk að
leggja upp af yfirborðinu sums
staðar.
Er náttaði mátti sjá eldglæringar,
sem við nánari aðgæslu reyndust
vera sinueldar, þó ekki sé ljóst
hvernig kviknaði í henni. Myndskeið
birtist í fjölmiðlum af lögregluþjón-
um á vappi á svæðinu sem leituðu að
eldgosi með vasaljósi.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviða-
ráðherra var einnig á vaktinni og
velti vöngum um hvort tímabært
væri að hugsa samgönguinnviði á
Reykjanesskaga upp á nýtt. Ljóst er
að ósennilegra er en áður að flug-
völlur verði lagður í Hvassahrauni
og sumir hafa velt upp spurningum
um hversu vel Keflavíkurflugvöllur
dugi ef framundan er áratugalangt
jarðeldaskeið þar í næsta nágrenni.
Það var þó ekki aðeins á Reykjanes-
skaga, sem bar á jarðhræringum,
því Grímsvötn eru farin að bæra á
sér. Þau eru virkasta eldstöð lands-
ins og þar gýs að jafnaði á tíu ára
fresti, svo gos þar er tímabært.
Dr. Ásgeir Jónsson seðlabanka-
stjóri varaði aðila vinnumarkaðarins
við óraunhæfum samningum, þeir
yrðu að vera grundvallaðir á efna-
hagslegum forsendum. Minnti á að
bankinn yrði að bregðast við með
vaxtahækkunum ef samningar
kyntu undir verðbólgu.
Verkalýðsforystunni virtist koma
þetta allt fullkomlega á óvart, gerði
sig mjög hissa í framan og andæfði
slíkum „hótunum“. Bætti svo um
betur með ýmsum hótunum.
Hinsegin dagar voru settir í vikunni
og ná hámarki með Gleðigöngunni
nú um helgina.
Metfjöldi sjúkraflugferða var í júlí-
mánuði, en þá var flogið með 128
sjúklinga í 120 ferðum. Mest er flog-
ið frá Akureyri, en sjúkraflug hefur
aukist jafnt og þétt undanfarin ár og
er jafnan mest á sumrin.
Í Vestmannaeyjum eru nú stigin
fyrstu skref í átt að gjaldfrjálsum
leikskóla, en þar eru nú fyrstu sjö
stundirnar í fimm ára deildinni
gjaldfrjálsar. Fyrirhugað er að út-
víkka þá tilhögun, svo að útsvars-
greiðendur borgi kostnaðinn en for-
eldrarnir ekki.
Víða er kurr vegna breyttrar þjón-
ustu Íslandspósts, þar á meðal í
Grindavík þar sem til stendur að
loka póstafgreiðslunni. Hið sama er
upp á teningnum á Suðurlandi, þar
sem fara þarf með allar sendingar á
Selfoss.
Hvalveiðar eru í fullum gangi og
hafa gengið vel en búið er að landa
ríflega 60 langreyðum í hvalstöð-
inni í Hvalfirði. Leyfi er til að veiða
251 hval á tveimur veiðisvæðum um-
hverfis landið.
Tvo suðræna höfrunga af tegund
þvergráma rak á land í Hrútafirði
og hafa sennilega villst hingað norð-
ur eftir með hlýjum sjávartungum,
en örmagnast þegar sjórinn varð
kaldari en þeir eiga að venjast.
Andrea Sigurðardóttir var kjörin
formaður Hvatar, félags sjálfstæð-
iskvenna í Reykjavík.
. . .
Leikið var víða í álfunni í Evr-
ópukeppnum félagsliða í knatt-
spyrnu karla í vikunni. Ein óvænt-
ustu úrslitin urðu í Reykjavík þar
sem Íslandsmeistararnir í Víkingi
skelltu pólsku meisturunum í Lech
Poznan 1:0 í fyrri leik liðanna.
Eldgos hófst í vestanverðum Mera-
dölum á Reykjanesskaga þegar
kvikan náði upp á yfirborðið. Varað
var við því að gasmengun væri meiri
en í gosinu á síðasta ári. Pantanir í
þyrluflug hrúgast inn og gengi flug-
félaganna Icelandair og Play hækk-
aði í Kauphöllinni.
Farþegafjöldi um Keflavíkur-
flugvöll í júlímánuði í ár var meiri en
í júlí árið 2019 eða áður en kórónu-
veiran skall á. Alls fór 852.431 þús-
und farþegar um flugvöllinn nú.
Aftur gýs
á Reykjanesi
Jarðeldarnir á Reykjanesskaganum eru tilkomumiklir eins og sjá má á myndum í Morgunblaðinu.
Morgunblaðið/Kristófer Liljar
01.08.-05.08.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
TÝR útiljós
Íslensk
fram
leiðsla