Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 4
L angþráð verslunarmanna- helgi rann upp, en þá gátu landsmenn loksins blandað geði og fleiru á fjölmennum og tak- markalausum verslunarmannahelg- arsamkomum á nýjan leik, en öllu slíku húllumhæi var aflýst á dögum plágunnar. Veðurspár voru raunar lengi vel lítt til þess fallnar að æsa mannskapinn til mikilla ferðalaga út í guðsgræna náttúruna, enn síður þegar það snjó- aði í aðdraganda helgarinnar. Drógu því margir að ákveða hvert halda skyldi eins lengi og þolandi var. Suðurland varð fyrir valinu hjá mörgum, en eins létu aðdáendur Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum sig ekki vanta. Almennt má segja að ferðalög og hátíðahöld hafi gengið vel, þó eitt- hvað hafi verið um minni háttar óhöpp í umferðinni, talsverða ölvun og pústra, en einnig einhver kyn- ferðisbrot, þó lögregla teldi of snemmt að kasta tölu á þau. Veðurstofan hafði þó í ýmsu brýnna að snúast en að spá fyrir um hvar yrði helst þurrkur fyrir þá sem vildu vökva sig, því um liðna helgi hófst öflug jarðskjálftahrina á Reykja- nesskaga, sem margir töldu undan- fara eldgoss. Samkvæmt tölfræði Evrópusam- bandsins eru starfandi læknar með fæsta móti hérlendis, en það kom Steinunni Þórðardóttur, formanni Læknafélagsins, ekki á óvart og hún sagði læknaskort hér á landi, sem yrði að leysa með fleiri útskriftum við innlenda háskóla og efaði að treysta mætti útlenskum lækna- prófum. Íslendingadagurinn í Gimli í Kan- ada var haldinn hátíðlegur í 133. sinn, en þar flutti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- ráðherra hátíðarræðu. Margt annað var til gamans og ræktarsemi gert, en þar bar pönnukökubakstur sjálf- sagt hæst. 40 skömmtum af apabóluefni var ráðstafað hér á landi eftir að dönsk heilbrigðisyfirvöld lánuðu það hing- að. Ísland er aðili að Evrópusam- starfi um öflun bóluefna og er von á 1.360 skömmtum til viðbótar á næst- unni. Íslensku liðunum gekk vel á Ólymp- íumótinu í skák, sem haldið er í Chennai (Madras) á Indlandi, en það var flutt þangað frá Rússlandi. . . . Jarðskjálftar héldu áfram og sumir harla öflugir, en viðbrögð jarðfræð- inga voru á ýmsa lund. Sumir þeirra sögðu jafnvel að stutt væri í gos, sem er ekki nákvæmt orðalag hjá stétt sem hugsar í milljónum ára. Aðrir sögðu þó gos líklegt með haustinu. Í ljósi tíðarfarsins var a.m.k. ósennilegt að það gysi á sumri þetta árið. Heimamenn í Grindavík voru enn nákvæmari um gosið í samtölum við tíðindamann Morgunblaðsins, en þar hefur skjálftinn verið mestur. Þar gætti ekki hræðslu, þó menn játuðu að endalausum skjálftum fylgdi ónotatilfinning. Í ljósi fyrri reynslu og áhyggja af af- leiðingum jarðelda á Reykjanes- skaga var nokkuð bollalagt um varnargarða og önnur varnarmann- virki til þess að aftra því að hraun- flóð rjúfi vegi, ógni vatnsbólum eða mannvirkjum. Borið hefur á auknum tilraunum svikahrappa til þess að plata fólk til þess að skrá sig inn á eftirlíkingar af heimasíðum bankanna, en nota upp- lýsingarnar síðan til þess að svíkja út fé af reikningum þess. Til stendur að taka í gagnið húsnæði í Háskóla Íslands, sem skemmdist mikið í vatnstjóni í upphafi árs 2021 þegar vatnslögn við Suðurgötu gaf sig. Öllum þessum tíma síðar er þó enn óljóst hver ber bótaábyrgðina. Verð á korni hvers konar hefur tek- ið að lækka á ný eftir að samkomu- lag náðist um kornútflutning frá Úkraínu. Það hefur víðtæk áhrif á matvælaverð og linar verðbólgu- þrýsting hér sem annars staðar. Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að komið verði á stöðugleika og jafnvægi á húsnæðismarkaði, spenna á honum hafi áhrif á allt efnahagslífið. Verkalýðsfélag Suðurlands segir víða pott brotinn í aðbúnaði vinnandi fólks á starfssvæði sínu, en þar á meðal séu dæmi um launafólk sem ekki greiði í neitt stéttarfélag! . . . Óróinn á Reykjanesskaga sótti í sig veðrið og töldu jarðfræðingar að gos væri í aðsigi á næstu grösum, dögum eða dægrum. Mælingar bentu til þess að kvikan væri mjög nálægt yfirborðinu og tók reyk að leggja upp af yfirborðinu sums staðar. Er náttaði mátti sjá eldglæringar, sem við nánari aðgæslu reyndust vera sinueldar, þó ekki sé ljóst hvernig kviknaði í henni. Myndskeið birtist í fjölmiðlum af lögregluþjón- um á vappi á svæðinu sem leituðu að eldgosi með vasaljósi. Sigurður Ingi Jóhannsson innviða- ráðherra var einnig á vaktinni og velti vöngum um hvort tímabært væri að hugsa samgönguinnviði á Reykjanesskaga upp á nýtt. Ljóst er að ósennilegra er en áður að flug- völlur verði lagður í Hvassahrauni og sumir hafa velt upp spurningum um hversu vel Keflavíkurflugvöllur dugi ef framundan er áratugalangt jarðeldaskeið þar í næsta nágrenni. Það var þó ekki aðeins á Reykjanes- skaga, sem bar á jarðhræringum, því Grímsvötn eru farin að bæra á sér. Þau eru virkasta eldstöð lands- ins og þar gýs að jafnaði á tíu ára fresti, svo gos þar er tímabært. Dr. Ásgeir Jónsson seðlabanka- stjóri varaði aðila vinnumarkaðarins við óraunhæfum samningum, þeir yrðu að vera grundvallaðir á efna- hagslegum forsendum. Minnti á að bankinn yrði að bregðast við með vaxtahækkunum ef samningar kyntu undir verðbólgu. Verkalýðsforystunni virtist koma þetta allt fullkomlega á óvart, gerði sig mjög hissa í framan og andæfði slíkum „hótunum“. Bætti svo um betur með ýmsum hótunum. Hinsegin dagar voru settir í vikunni og ná hámarki með Gleðigöngunni nú um helgina. Metfjöldi sjúkraflugferða var í júlí- mánuði, en þá var flogið með 128 sjúklinga í 120 ferðum. Mest er flog- ið frá Akureyri, en sjúkraflug hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og er jafnan mest á sumrin. Í Vestmannaeyjum eru nú stigin fyrstu skref í átt að gjaldfrjálsum leikskóla, en þar eru nú fyrstu sjö stundirnar í fimm ára deildinni gjaldfrjálsar. Fyrirhugað er að út- víkka þá tilhögun, svo að útsvars- greiðendur borgi kostnaðinn en for- eldrarnir ekki. Víða er kurr vegna breyttrar þjón- ustu Íslandspósts, þar á meðal í Grindavík þar sem til stendur að loka póstafgreiðslunni. Hið sama er upp á teningnum á Suðurlandi, þar sem fara þarf með allar sendingar á Selfoss. Hvalveiðar eru í fullum gangi og hafa gengið vel en búið er að landa ríflega 60 langreyðum í hvalstöð- inni í Hvalfirði. Leyfi er til að veiða 251 hval á tveimur veiðisvæðum um- hverfis landið. Tvo suðræna höfrunga af tegund þvergráma rak á land í Hrútafirði og hafa sennilega villst hingað norð- ur eftir með hlýjum sjávartungum, en örmagnast þegar sjórinn varð kaldari en þeir eiga að venjast. Andrea Sigurðardóttir var kjörin formaður Hvatar, félags sjálfstæð- iskvenna í Reykjavík. . . . Leikið var víða í álfunni í Evr- ópukeppnum félagsliða í knatt- spyrnu karla í vikunni. Ein óvænt- ustu úrslitin urðu í Reykjavík þar sem Íslandsmeistararnir í Víkingi skelltu pólsku meisturunum í Lech Poznan 1:0 í fyrri leik liðanna. Eldgos hófst í vestanverðum Mera- dölum á Reykjanesskaga þegar kvikan náði upp á yfirborðið. Varað var við því að gasmengun væri meiri en í gosinu á síðasta ári. Pantanir í þyrluflug hrúgast inn og gengi flug- félaganna Icelandair og Play hækk- aði í Kauphöllinni. Farþegafjöldi um Keflavíkur- flugvöll í júlímánuði í ár var meiri en í júlí árið 2019 eða áður en kórónu- veiran skall á. Alls fór 852.431 þús- und farþegar um flugvöllinn nú. Aftur gýs á Reykjanesi Jarðeldarnir á Reykjanesskaganum eru tilkomumiklir eins og sjá má á myndum í Morgunblaðinu. Morgunblaðið/Kristófer Liljar 01.08.-05.08. Andrés Magnússon andres@mbl.is FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 TÝR útiljós Íslensk fram leiðsla

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.