Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Page 12
HINSEGIN DAGAR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 U gla Stefanía býr í Brighton á Englandi og því ekki hægt að hittast í raunheimum yfir góð- um kaffibolla. En við völdum næstbesta kostinn; að „hittast“ í gegnum myndsímtal til að ræða um málefni hinsegin fólks, um æsku Uglu í sveitinni, hvernig var að koma út sem trans, baráttuna fyrir réttindum og hvað er til ráða þegar for- dómar og níðskrif viðgangast í þjóðfélaginu. Engar hinsegin fyrirmyndir Ugla er fædd og uppalin í Austur-Húnavatns- sýslu á litlum sveitabæ. „Að alast upp sem trans manneskja á þess- um tíma í þessari einangrun er ákveðin lífs- reynsla og ábyggilega öðruvísi en trans krakk- ar upplifa í dag. Þegar ég var lítil var ekkert talað um hinsegin fólk, hvað þá trans fólk, hvorki heima né í skólanum. Mín barnæska er lituð af því að vera ein heima í sveit með dýr- unum og tveimur bræðrum,“ segir Ugla og nefnir að foreldrarnir hafi verið frjálslegir og aldrei bannað henni að tjá sig á þann hátt sem hún kaus. „Ég tjáði mig á alls konar hátt sem krakki. Ég var í ímynduðum leikjum og prufaði alls konar. Foreldrar mínir sögðu aldrei við mig að strákar mættu ekki gera hitt eða þetta, en á sama tíma vissi ég ekkert hvað var að vera hin- segin og hafði engar fyrirmyndir. En ég er þakklát að hafa verið alin upp í sveit,“ segir Ugla og segist búa að því alla tíð. Um kynþroskaaldurinn áttaði hún sig á því að „eitthvað var ekki eins og það ætti að vera“ eins og hún orðar það. „Ég gat ekki útskýrt nákvæmlega hvað það væri, og þó ég sæi hinsegin fólk tengdi ég ekki við það og upplifði mig aldrei sem samkyn- hneigðan karlmann,“ segir hún og segir alla vini og fjölskyldu hafa haldið að hún væri hommi. „En það var ekki rétt,“ segir hún og hlær. Hvenær hugsaðir þú fyrst að þú vildir vera kona? „Ég man ekki eftir þessu en systir mömmu segir að ég hafi sagt fjögurra ára að ég væri kona. Ég átti alltaf meiri samleið með konum og stelpum og upplifði mjög snemma að mér fannst ég tilheyra þeim hópi.“ Mikilvægasta ferð lífsins Um átján ára aldur kom Ugla út sem trans. „Fram að því hafði ég spilað mikið tölvuleiki á netinu og í einum þeirra spilaði ég við alls konar fólk úti í heimi. Þar byrjaði ég að prufa mig áfram og það gerðu allir ráð fyrir að ég væri stelpa. Ég leiðrétti það ekkert og fannst það skemmtilegt. Á endanum var ég komin í vinahóp sem vildi hittast í alvöru og þá byrjaði ég á að koma út fyrir vinkonu minni. Við ákváðum að fara til Englands að hitta þennan hóp. Hún hjálpaði mér að finna mig og þar keyptum við á mig ný föt og ég prufaði ým- islegt sem ég hafði aldrei leyft mér áður. Ég fékk að prófa að vera kona í samfélaginu þar sem enginn þekkti mig. Þessi ferð var í raun ein mikilvægasta ferð sem ég hef farið í. Þarna fékk ég tækifæri til að leyfa mér að vera ég, nokkuð sem ég hafði aldrei getað,“ segir hún og segist hafa í lestinni á leiðinni út á flugvöll hitt tvær íslenskar konur og tóku þær tal sam- an. „Þegar við stigum upp í flugvélina voru þær þar flugfreyjur. Ég var þá búin að skipta aftur um föt því í vegabréfinu var ég á gamla nafn- inu mínu. Það var svona augnablik sem ég hugsaði; „jæja, nú verð ég að gera eitthvað í þessu. Þetta geta ekki verið tveir aðskildir heimar.“ Í kjölfarið kom ég svo út úr skápn- um.“ Spurð um persónuleg mál Hvernig var þér tekið af þínum nánustu? „Bara mjög vel. Ég var í raun heppin með hvernig fólk tók þessu. Ég var búin að um- kringja mig fólki sem sumt var hinsegin og vissi að ég væri þar í góðum höndum þegar ég kæmi út. En ég vissi ekki hvernig ég ætti að segja foreldrum mínum frá þessu og ákvað að skrifa þeim bréf. Þar útskýrði ég að ég væri trans og þetta endaði á að vera fimm til sex blaðsíðna leiðbeiningabæklingur sem svaraði helstu spurningum um trans,“ segir hún og hlær. „Ég sagði mömmu að prenta þetta út og lesa og svo gætu þau farið að mjólka beljurnar og hugsa aðeins um þetta. Við gætum svo átt samtal síðar.“ Varstu strax ákveðin í að fara í kynaðlög- unarferli? „Já, í rauninni var það alltaf stefnan og ég var búin að kynna mér það allt áður en ég kom út. Þegar ég mætti í minn fyrsta tíma hjá geð- lækni, en á þeim tíma var ekki komið trans- teymi, þá var ég byrjuð að lifa sem ég og vissi hvað ég vildi,“ segir hún og segir að vissulega hafi ferlið allt tekið á. „Félagslega var það erfitt; ég þurfti svo mikið að útskýra fyrir öllum allt. Ég þurfti að standa í því að leiðrétta, og auðvitað spyrja margir í góðu en það er erfitt að þurfa sífellt að útskýra hlutina, sérstaklega um svona ótrú- lega persónulega hluti. Hvernig maður upplifir sig, hvaða kyn maður er, er með því persónu- legasta sem við höfum. Fólk gerir sér kannski ekki grein fyrir því að það er erfitt fyrir okkur að þurfa að tala um þessa persónulegu hluti og fólk leyfir sér stundum að fara yfir mörk sem það myndi ekki fara yfir annars. Eins og að spyrja beint út hvort ég sé búin að fara í kyn- færaaðgerð eða hvort ég sé á hormónum. Þetta eru persónulegir hlutir um minn líkama sem mér finnst bara ekki koma fólki við,“ segir Ugla og segist þó alveg skilja forvitnina og veit að oft er það ekki illa meint að spyrja. Hvað er að vera trans? Þegar Ugla kom út úr skápnum í kringum 2008 og vildi hefja sína vegferð sem trans kona fannst henni hún víða rekast á veggi. Hún seg- ist í raun óvart hafa orðið aktívisti. „Það var ótrúlega lítil vitneskja í kerfinu og ég byrjaði á að fara til námsráðgjafa sem reyndist mér mjög vel og hún sá til þess að í skólanum var mitt nýja nafn notað. En við rák- um okkur á veggi með að finna sálfræðinga eða heilbrigðisstarfsfólk sem gæti veitt mér að- gang að heilbrigðiskerfinu. Ég man að ég fór til heimilislæknis og sagði honum að ég væri trans og vildi hefja læknisfræðilegt ferli og hann horfði bara á mig og sagði: „Hvað mein- arðu? Hvað er að vera trans?“ Ég áttaði mig á því að það vantaði mikið upp á. Ég varð í raun aktívisti út frá því. Ég vildi að annað fólk myndi upplifa meiri stuðning og myndi ekki lenda á þessum veggjum í kerfinu,“ segir hún og nefnir að þar sem hún hafi búið fyrir norð- an, hafi verið enn minna talað um málefni trans fólks heldur en í höfuðborginni. „Þarna var hinsegin hópur í tengslum við menntaskólana sem ég fer inn í og við stofnum svo samtökin Hinsegin Norðurland. Það var byrjunin á mínum aktívistaferli og í kjölfarið tek ég þátt í vinnu hjá Trans Ísland og Sam- tökunum ’78. Svo flutti ég suður og fór í há- skóla,“ segir hún og segir ótrúlega mikið hafi breyst í samfélaginu síðan hún kom út. „Ég fór svo í nokkur viðtöl hjá fjölmiðlum og enda á að fara í viðtal í Ísland í dag. Það var fyrsta opinbera viðtalið sem ég fer í um trans málefni. Þá fór boltinn að rúlla og síðan hef ég tekið mikinn þátt í opinberum umræðum um trans málefni.“ Ofbeldi en ekki tjáningarfrelsi Eftir að þú komst út, hefur þú upplifað for- dóma? „Ég hef upplifað meiri fordóma í fjölmiðlum og á netinu, frekar en í eigin persónu. Ég hef ekki orðið fyrir miklum beinum fordómum, þó það hafi alveg gerst. En fólk segir oft ótrúlega niðrandi hluti á netinu, hvort sem það er í kom- mentakerfum eða á samfélagsmiðlum. Það er ótrúlegt hvað fólk leyfir sér að segja. Sem tals- kona sem hefur verið mikið að tala opinberlega og beitt sér fyrir réttindum trans fólks, hef ég oft verið á milli tannanna á fólki,“ segir Ugla og segist hafa sjóast með árunum, en í byrjun hafi hún tekið það inn á sig. „Ég áttaði mig á því tiltölulega fljótt að skoðun einhvers manns í kommentakerfinu er ekkert að fara að breyta því hver ég er eða hvernig ég upplifi mig. Sama hvað einhver seg- ir, er það aldrei að fara að breyta því hver ég er. Ég er að berjast fyrir því að fólk fái að vera það sjálft, að því sé tekið opnum örmum og að við höfum frelsi til að tjá okkur eins og við er- um. Sama hvað eitthvert ógeð segir, hefur það ekki áhrif á mig, en auðvitað líður sumu hin- segin fólki og trans fólki mjög illa vegna nei- kvæðra ummæla í fréttum eða á netinu. Til dæmis núna nýlega hafi birst greinar gegn trans fólki og það er ótrúlega erfitt fyrir okkar samfélag að horfa upp á það því þetta er svo úr takti við raunveruleikann,“ segir hún. „Þetta snýst ekki lengur um málfrelsi, held- ur er verið að níða fólk. Þegar þitt tjáningar- frelsi er farið að hafa áhrif á velferð fólks, er það ekki lengur tjáningarfrelsi heldur ofbeldi.“ Missti óvart af flugvélinni Árið 2016 fór Ugla á alþjóðlega ráðstefnu á Ítalíu um trans málefni og átti sú ferð eftir að vera örlagarík. „Þar kynntist ég maka mínum Fox. Ég end- aði á að flytja með honum til Bretlands þar sem við búum í dag.“ Var það ást við fyrstu sýn? „Þetta var alveg pínu fyndið. Mér finnst per- sónulega eitthvað hallærislegt við „ást við fyrstu sýn“ en það var alveg augljós tenging,“ segir Ugla og hlær. „Hann var ráðinn þangað til að gera mynd um ráðstefnuna og taka viðtöl. Ég var á við- mælendalistanum og það var alltaf fólk að koma og kynna okkur, aftur og aftur. En við létum alltaf eins og það væri verið að kynna okkur í fyrsta sinn, sem var smá einkahúmor okkar á milli. Við kynntumst svo mjög vel á þessari ráðstefnu og ég enda á því að missa óvart af flugvélinni til Íslands. Enginn trúði að það hefði verið óvart,“ segir hún og hlær. „En ég missti í alvöru af henni; ég fór daga- villt. Þannig að það endaði á að Fox bað mig um að koma með sér til Bretlands því það væri svo auðvelt að fá þaðan flug heim. Ég gerði það og hef svolítið verið þar síðan.“ Ugla og Fox vinna mikið saman að alls kyns verkefnum í þágu hinsegin fólks. „Við erum búin að gera ótrúlega mikið. Í Bretlandi eru að sumu leyti betri tækifæri og stærri markaður til að koma þessum mál- efnum á framfæri, og veitir líka meira af því. Hér er mikil anti-hinsegin áróður, sérstaklega gagnvart trans fólki. Við erum búin að standa í miklum aktívisma, höfum flutt fyrirlestra og gert myndir um trans fólk til að vekja athygli á því að við erum bara eins og annað fólk. Við viljum bara hafa frelsi til að vera við sjálf,“ segir Ugla og nefnir að einnig hafi þau skrifað saman tvær bækur. „Önnur heitir The trans teens survival guide og er sjálfshjálparbók fyrir trans ungmenni. Hin heitir Trans survival workbook, og er meiri vinnubók. Bækurnar ganga út á það að veita fólki ákveðna viðurkenningu og útskýra fyrir fólki að kyn getur verið alls konar. Það er engin ein rétt leið,“ segir Ugla og segir bæk- urnar hafa selst mjög vel, en auk þess er búið að þýða þær á önnur tungumál. „Bækurnar hafa verið vinsælar á Íslandi líka.“ Lög fyrir trans fólk Ugla sat í nefnd sem samdi lög um kynrænt sjálfræði sem samþykkt voru á Alþingi árið 2019, en hún var formaður Trans Ísland þar til í mars 2022. „Þessi lög eru að vissu leyti ákveðinn grunn- ur fyrir réttindastöðu trans fólks á Íslandi og tóku vel á málaflokknum,“ segir Ugla og segir að upphaflega hafi hún verið beðin um að fara yfir þingsályktunartillögu sem sneri að trans fólki. „Við Kitty Anderson settumst niður á kaffi- Við lifum á tvísýnum tímum „Ég trúi ekki öðru en að fólk vilji búa í samfélagi sem byggir á frelsi, umhyggju, kærleik og sem leyfir fólki að vera það sjálft. Ég neita að trúa að fólk vilji það ekki. Við megum aldrei sofna á verðinum,“ segir Ugla Stefanía. Hún er kynjafræðingur, kynsegin greinahöfundur, kvikmyndagerðarmanneskja, rithöfundur og trans aðgerðasinni. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir býr nú í Bretlandi þar sem hún heldur áfram að berjast fyrir réttindum hinsegin fólks. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.