Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 13
7.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 húsi og fórum yfir þessa þingsályktunartillögu sem var ekki sú besta, en vel meinandi. Þannig að við ákváðum að finna stuðning innan flokka á Alþingi til að setja lög fyrir trans fólk. Við blésum til fundar með öllum stjórnmálaflokk- um og buðum þeim að koma að ræða réttar- stöðu trans fólks og intersex fólks, en intersex fólk er fólk sem fæðist með ódæmigerð kyn- einkenni. Lögin áttu að vernda þau fyrir óþarfa læknisfræðilegum inngripum. Sá hluti frumvarpsins átti aðeins erfiðara ferli innan Alþingis, og á að vera endurskoðaður bráð- lega,“ segir hún. „Þá myndaðist hópur af fólki úr hinsegin samfélaginu og Vinstri grænir tóku málið upp. Og úr varð þetta frumvarp sem er brautryðj- andi fyrir trans fólk. Þetta var í fyrsta sinn sem trans ungmenni fengu einhvers konar lagaramma, og lögin auðvelda fólki að breyta um nafn og kyn í þjóðskrá,“ segir hún og segir að gömlu lögin hafi verið orðin úrelt. „Þessi lög leystu mörg vandamál sem voru í raun kvíðavaldandi fyrir trans fólk og þau vernda þau fyrir alls konar mismunun. Þetta var mikill sigur,“ segir hún og segir þessi lög svo framsækin að það þurfi að laga ýmis önnur lög til samræmis við þau. „Þannig að lögin eru eins og ég sagði ákveð- inn grunnur sem leiðir svo af sér stærri og frekari breytingar. Það er enn margt sem við þurfum að vinna að,“ segir Ugla og nefnir að enn þurfi að setja lög varðandi flóttafólk og hælisleitendur sem eru hinsegin eða trans. „Svo er fólk sem á að standa vörð um rétt- indi fólks að láta út úr sér ummæli, eins og vararíkissaksóknari, sem sýnir að það er eng- an veginn í stakk búið til að vernda hinsegin fólk ef það þarf á því að halda.“ Árásir í beinni útsendingu Störf Uglu í þágu hinsegin fólks í Bretlandi hafa vakið verðskuldaða athygli og var hún valin af BBC ein af hundrað áhrifamestu kon- um heims árið 2019. „Það er viðburður á hverju ári þar sem sett- ur er saman listi og þetta árið var ég á honum, sem kom mér mjög á óvart! Þarna á listanum voru ótrúlega flottar konur. Stuttu áður hafði ég verið í viðtali hjá Piers Morgan í Good Morning Britain sem allt Bretland horfir á. Í því viðtali var hann með ótrúlegar blamm- eringar,“ segir hún. „Við Fox fórum saman í þetta viðtal að tala um kynsegin málefni og Piers gerði lítið úr okkur og talaði niður til okkar, í beinni útsend- ingu,“ segir hún og segir hann hafa verið veru- lega dónalegan, jafnvel áður en myndavélin fór að rúlla. Viðtalið vakti mikla athygli, en Ugla og Fox héldu ró sinni þrátt fyrir að sitja undir þessum árásum Morgans. „Sem betur fer sá fólk hvað hann kom illa fram við okkur. Jafnvel þótt fólk skildi ekki allt sem við vorum að reyna að útskýra, sá það að það væri augljóst að hann væri að níða okkur. En í rauninni gerði þessi þáttur mál- efninu gott því við áttum að vera í fjórar mín- útur í útsendingu en enduðum á að vera kort- er, því hann bara hætti ekki,“ segir hún og hlær. Að búa sig undir það versta Að hverju eruð þið Fox að vinna þessa dagana? „Við erum að búa til mikið af fyrirlestrum og erum að vinna að annarri bók. Ég er að skrifa pistla í dálk í blaðið Metro, aðra hverja viku,“ segir Ugla og segir gott að búa í Brighton. „Brighton er í raun besti staðurinn til að búa á í Bretlandi, en ég er að verða pínu þreytt á Bretlandi. Pólitíska landslagið er svo ótrúlega erfitt og það eru miklu meiri fordómar hér gagnvart hinsegin fólki. Við erum að ræða það að flytja til Íslands,“ segir hún og segir Íslend- inga vera komna mikið lengra hvað varðar lagaleg réttindi hinsegin fólks sem og fé- lagslega viðurkenningu. „Auðvitað eru enn fordómar á Íslandi og margt sem þarf að berjast fyrir en það er samt engan veginn á sama plani og í Bret- landi. Það er mikill munur til dæmis að koma fram í fjölmiðlum í Bretlandi og á Íslandi. Á Íslandi upplifi ég miklu meiri skilning og fólk sem tekur viðtölin vill gera gott og fræða og vinnur af einlægni, en í Bretlandi er frekar að fólk vilji rífast við þig eða gera lítið úr þér. Ég þarf alltaf að búa mig undir það versta.“ Nú hefur verið bakslag í baráttu hinsegin fólks víða. Hvað veldur? „Það er erfitt að segja, en ég held að það sé vegna þess að við höfum aldrei staðið framar þegar kemur að mannréttindamálum og rétt- indum hinsegin fólks. Hinsegin fólk er að fá ákveðinn sýnileika og það er vitundarvakning núna sem aldrei hefur átt sér stað áður. Og á sama tíma og við erum sífellt að færast framar eru ákveðin öfl sem rísa upp og mótmæla því. Við lifum á tvísýnum tímum; ákveðnir öfga- hópar eru að beita sér gegn réttindum hinseg- in fólks, og ekki bara þeirra réttindum eins og sjá má af banni þungunarrofs í Bandaríkj- unum, Póllandi og fleiri stöðum. Þarna er verið að taka í burtu ákveðin mannréttindi sem við héldum að væru í höfn. Það er sama með rétt- indi hinsegin fólks víða um heim; það er verið að reyna að troða á þeim. Á Íslandi erum við kannski ekki á þeim stað en samt sem áður er- um við að upplifa aukningu í mjög fordóma- fullri og hatursfullri orðræðu, í fjölmiðlum og á Alþingi. Miðflokkurinn hefur til að mynda beitt sér gagngert gegn réttindum trans fólks.“ Aldrei sofna á verðinum Hvernig sérðu fyrir þér framtíð hinsegin fólks? „Það fer eftir því hvernig við tökum á þessu bakslagi því það er svo auðvelt að hlutirnir fari í ranga átt. Það er þegar byrjuð ákveðin aftur- för. Á Íslandi þurfum við að ákveða hvernig samfélag við viljum skapa og hvers konar orð- ræðu ætlum við að samþykkja. Við getum ekki samþykkt endalaust fordómafulla orðræðu, hvort sem hún er í blaðagreinum eða á netinu. Við getum ekki verið umburðarlynd gagnvart fólki sem sýnir ekki umburðarlyndi. Ég trúi ekki öðru en að fólk vilji búa í samfélagi sem byggir á frelsi, umhyggju, kærleik og sem leyfir fólki að vera það sjálft. Ég neita að trúa að fólk vilji það ekki. Við megum aldrei sofna á verðinum og baráttunni er hvergi nærri lokið og mikið sem þarf að berjast fyrir. Ég er sann- færð um að við getum gert það, en þá verða all- ir að taka þátt.“ Ljósmynd/Móa Hjartardóttir ’ Þetta snýst ekki lengur um málfrelsi, heldur er verið að níða fólk. Þegar þitt tjáning- arfrelsi er farið að hafa áhrif á velferð fólks, er það ekki lengur tjáningarfrelsi heldur ofbeldi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.