Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 Þ að kom mörgum á óvart þegar að Bretar „tóku Brútus“ á Boris John- son forsætisráðherra sinn, er hann var þrælbundinn í báða skó, á tveim- ur heimsráðstefnum í röð. Iðulega eru ráðstefnur æðstu manna ofmetn- ar og allt niður í argasta prump. En það átti ekki við nú. Tækifærið misnotað Hin fyrri var leiðtogafundur sjövelda, þótt einhverjir viðbótar leiðtogar hafi náð að smygla sér inn fyrir dyrakarminn og þegja þar, en komust þó á mynd sem skipti öllu. Seinni fundurinn var í kjölfarið og að minnsta kosti að forminu til var hann mun mikilvægari. Ástæða þessara funda var hin sama á báðum. Okkar heims- hluti var í hættu. Eitt af landmestu ríkjum Evrópu, að Rússlandi frátöldu, stóð í ljósum logum. Í fyrstu hafði litið út fyrir að árásarríkið ætti alls kostar við hitt. En þrátt fyrir það var einsýnt að án öflugs atbeina ríkja sem væru aflögufær með vopn væru úrslitin þegar ráðin. Það var á þessum tíma að flokksbræður og sam- starfsmenn Borisar breyttust í Brútus. Fátt virtist leka út. En það er hugsandi að Boris hafi ekki borist fréttir, grunsemdir eða líklegt hvísl um að eitthvað væri að gerast og það ekki gott. Hitt væri með miklum ólíkindum og einstakur vottur um skelfilegan vina- skort í flokknum sínum, hefði enginn haft manndóm til að koma boðum til Borisar að nú væri bruggað. Einn af fáum stórfundum Natófundur er jafnan og í eðli sínu mikilvægur fyrir sérhvern leiðtoga aðildarríkjanna. Honum er ekki sleppt nema hitt sé ómöguleiki. Það hefði því verið meiriháttar yfirlýsing ef forsætisráðherra Bretlands teldi sig ekki komast hjá að yfirgefa slíkan fund, á öðr- um eins tímum og gæti ekki gefið á því skynsamlega skýringu. Stríð var skollið á við austurjaðar Evrópu og og önnur eins ögrun hafði ekki birst mönnum í ára- tugi. Þótt NATO yrði ekki þvingað til þátttöku með vísun til 5. greinar sáttmála þess, lá í augum uppi að bandalagið myndi þurfa næstu vikur og mánuði að taka óvenjulegar og erfiðar ákvarðanir, bæði með formlegum hætti og eins með trúnaðarsamtölum ein- stakra leiðtoga, um hugsanlega aðkomu hvers og eins og hversu langt skyldi gengið gegn Rússum, þótt bein- um stríðsaðgerðum yrði að halda utan við sérhverja ákvörðun. Þótt samráð hlyti að eiga sér stað á milli leiðtoga NATO var algjörlega óhjákvæmilegt að hver hernaðarleg framlegð í formi búnaðar yrði á ábyrgð hverrar NATO-þjóðar fyrir sig. En auðvitað segir það sig sjálft að einhvers konar óformlegt samráð, og það þétt, yrði að vera til staðar, þó ekki væri nema í upp- lýsingaskyni um hver gerði hvað. Fyrr og nú Leiðtogum NATO hefur fjölgað verulega frá því að bréfritari tók að sækja slíka fundi fyrst. NATO var og er okkar mikilvægasta bandalag, og við getum glaðst yfir því og verið stolt að hafa verið stofnaðilar þar, jafnvel montin ef það hentar. Nú vilja allir þá Lilju kveðið hafa, en það var ekki þá. Þótt þingvilji væri til staðar og það ríkulegur munaði aðeins hársbreidd að öfgaöfl, sem sum voru beinlínis í taumi hins alþjóðlega kommúnisma, hefðu betur. Ef forystumenn Sjálfstæð- isflokksins með vitneskju forystumanna lýðræð- isflokkanna hefðu ekki tryggt sér öfluga hópa ungra manna, sem urðu baksveit hinnar fámennu lögreglu landsins, er ekki að vita hvernig hefði farið. Um þetta hafa verið skrifaðar fróðlegar greinar og bækur sem eru tiltækar. Þótt það skipti ekki öllu nú orðið, þá vek- ur tvennt hvað mesta undrun þegar að horft er til þingviljans: Gylfi Þ. Gíslason, síðar einn helsti foringi Alþýðuflokksins og lykilmaður um samstarf um Við- reisn, greiddi (eins og Hannibal Valdimarsson, sem kom minna á óvart), atkvæði gegn því að Ísland yrði aðili að þessu bandalagi lýðræðisþjóða, þegar heims- friður stóð svo tæpt. Og þá var ekki síður undarlegt að forystumaður Framsóknarflokksins, Hermann Jón- asson, skyldi sitja hjá við atkvæðagreiðslu um þetta helsta stórmál samtímans á Íslandi og það þótt þing- menn flokks hans greiddu atkvæði með og sendu þannig rétt skilaboð til þjóðarinnar og skrílsins sem stóð fyrir atlögu að Alþingishúsinu. Svo varð þróunin sú sem við þekkjum og endaði loks á þessu vori með sögulegri umsókn Svía og Finna um aðild að Atlants- hafsbandalaginu! Brútus í mörgum eintökum En svo aftur sé vikið að Boris og „brútusum“ þeim sem brýndu í pukri kuta sína, einmitt um þetta leyti, þegar mest var í húfi. Eftiráspekin, sem er iðulega svo glúrin, segir okkur að Boris Johnson hefði þurft að hraða för sinni heim, vildi hann ná að lifa af pólitískt. En þeir, sem vissu ekki það sem eftiráspekin veit, og Boris var á meðal þeirra, áttu ekki hægt um vik. Hon- um hefði aldrei verið fyrirgefið hefði hann skilið Joe Biden, eins og upplitið var á honum, einan eftir hjá úlf- unum. Sáralítið hafði spurst út um innanflokks samsærið í flokknum. Boris hefur vitað meira um það en almenn- ingur og helstu fjölmiðlarnir, en ekki nóg til þess að réttlæta óðagot heim af fundinum án þess að geta gef- ið á því haldbæra skýringu. Og það má fyrirgefa Boris Johnson það að þykja ásakanir í hans garð vera af- spyrnu fátæklegar. Það voru þær vissulega. En vandinn var sá, að það var búið að fá nægjanlega marga áhrifamenn innan flokks og ríkisstjórnar til að láta eins og öll þessi klaufaspörk og óþekktarefni hefðu verið handan við öll leyfileg mörk og slíkt yrði ekki liðið lengur. Það var hægt að klappa almenningi rétt með því að benda ítrekað á að Boris hefði oftar en einu sinni ofboðið venjulegu fólki, sem bjó við þröngar og hamlandi reglur (hversu fáránlegar, sem þær flest- ar voru) sem Boris hafði látið samþykkja og falið tröll- um að fylgja þeim eftir miskunnarlaust, en hann og hans nánustu lítið gert með þær sjálfir. Meira segja hafði ónefndu handbendi Rishi Sunak fjármálaráð- herra, sem deildi húsi með forsætisráðherranum, tek- ist að ná og svo að leka slíkum myndum í blöð mörgum vikum síðar. Jú, það voru vissulega allir margbólusettir þarna í opnum húsagarði og virtu fjarlægðarmörk og Boris sjálfur hafði auk allra bólusetninga fegnið veirudjöfs- ann og lá illa haldinn á sjúkrahúsi í 19 sólarhringa. Ef eitthvað hefði verið að marka það sem svo kölluð „læknavísindi“ höfðu margtuggið ofan í liðið, þá hefði Boris átt að vera óhætt að hoppa með samstarfsfólki ofan í sundlaug eins og smáhvalur án þess að það gerði nokkuð til. Fáséðir glæpir eða tortryggilegur til- búningur En vandinn er að fráleitt þykir að blanda einhverri heilbrigðri skynsemi í svona mál sem snýst um það, að forsætisráðherra geri það sem hann bannaði okkur hinum að gera. Það þarf ekki að gá að fingraförum Michaels Gove, hins gamla fóstbróður Borisar. Hann vissi nákvæm- Margir keppast um klúður og tekst vel ’ NATO var og er okkar mikilvægasta bandalag, og við getum glaðst yfir því og verið stolt að hafa verið stofnaðilar þar, jafn- vel montin ef það hentar. Nú vilja allir þá Lilju kveðið hafa, en það var ekki þá. Reykjavíkurbréf05.08.22

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.