Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Síða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Síða 17
lega hvar skrokkur Borisar væri viðkvæmastur. Hann gæti nánast blindandi látið hnífsblaðið renna inn um örið sem hann skaffaði Boris síðast. Boris „hefndi“ sín á Gove fyrir það ódæðið með því að gera hann að háttsettum ráðherra í ríkisstjórn sinni! Jú jú, ásökunarefnin sem þó höfðu verið á ferðinni voru skelfilega smáleg, sum næstum minni en ekki neitt. Vissulega var hitt, sem Johnson hafði svo sann- arlega afrekað, annað og meira og gnæfði hátt yfir allt það sem tínt var til honum til áfellis. En það breytti engu. Hitt lá fyrir og það var til umræðu. Boris hafði þann- ig gert það fyrir spúsu sína að láta veggfóðra íbúðina sem þau notuðu á númer 11 fyrir einhver pund sem vissulega urðu fleiri en reglur bókhaldara gerðu ráð fyrir. Það er vissulega ekki eins stórbrotið og það að vinna stórkostlegan og óvæntan sigur í desember 2019. En það hafði ekkert með verkefni bókhalds og endurskoðunar að gera. Og svo það að tryggja að svikahröppum tækist ekki að eyðileggja þjóðarviljann um Brexit, þrátt fyrir ítrekaðar og ósvífnar tilraunir, er auðvitað stórkost- legt í einhverra augum, en hitt er ekki síður alvarlegt, ekki síst fyrir pjattaða, að láta hengja orðu á einhvern Rússa (löngu áður en ráðist var inn í Úkraínu) og það þótt orðuhnoð hafi um aldir verið hluti af daglegu brauði forsætisráðherrans og sjaldan verið gert veður út af slíku. Boris sá að þetta hnjóð var auðvitað fyrir neðan öll mörk. En ef hann færi frá þessum mikilvægu fundum, sem voru jú í orðanna fyllstu merkingu upp á líf og dauða, og skyldi Biden eftir með spjöldin sín, sem hann átti til að lesa af öfugt, þá hefði breski for- sætisráðherrann unnið sér raunverulega til sakar. Staðan var svo sem engin, en þó töpuð frá upphafi Staðan var sú, sem Boris þekkti en ekki almenningur, að ráðamönnunum tveimur sem fóru með fullveldi ESB og þar með annarra þjóða en sinna eigin, var fjarri því að vera treystandi fyrir Biden í því ástandi sem hann er í. Báðir voru að hugsa um þann vanda sem búið var að koma Þýskalandi og Frakklandi í, þannig aðstöðu að það var í rauninni Pútín sem gat veifað hótunum um refsiaðgerðum en ekki þeir sem voru með þau látalæti. Forseti Úkraínu mátti ekki til þess hugsa að raun- besti vinur hans vestan megin yrði, af undarlegum ástæðum, að skrópa þegar að mikilvægustu fundir þeirrar tíðar hrópuðu á hann. Selenskí, sem var með sínu fólki í sprengiregninu allan sólarhringinn, botn- aði ekkert í því sem borið var upp á breska forsætis- ráðherrann til embættismissis!. Þeir Rishi Sunak fjármálaráðherra og Sajid Javid heilbrigðisráðherra réðu ráðum með ráðherranum sem þekkti til verka og þekkti Boris best. Þremenn- ingarnir höfði rifjað upp sín á milli, að sagan sýndi og nú síðast atlagan að frú Thatcher, að sá sem stakk fyrstur foringjann fengi aldrei stöðu erfðaprinsins. Þeir tveir yrðu því að hafa algjört samflot, annars átti hvorugur möguleika. Javid er dottinn út fyrir nokkru og Rishi Sunak, ríkisbubbinn í stól fjár- málaráðherra, keppir við Liz Truss utanríkisráðherra. Nú skulu 200 þúsund flokksbundnir Íhaldsmenn eiga síðasta orðið. Slagurinn hefur þegar staðið í heilan mánuð og það er enn mánuður eftir. Þessi slagur hefur ekki gert flokksandanum neitt gott. Fjarri því. „Var Boris virki- lega svona svakalegur að við þurfum að velja á milli þessara tveggja?“ spyrja flokksmenn sig. Cruddas og Forsyth Cruddas lávarður er þungavigtarmaður í Íhalds- flokknum og hefur löngum stutt flokksstarfið með mjög óeigingjörnum hætti. Hann leggur nú til að vegna tækniatvika, sem upp hafa komið og leitt til þess að ekki hefur verið hægt að fylgja almanakinu, sem lá fyrir og lagt var upp með verði atburðarásinni breytt. Cruddas lávarður vill fresta kosningunni. Hann hefur fengið 12.000 undirskriftir flokksbund- inna til að leggja til við flokksráðið að Boris verði feng- in til að verða áfram forsætisráðherra stuttan viðbótar tíma. Lögð verði síðan lögð fram sú spurning við flokksmenn, hvort að Boris eigi að halda áfram eða ekki. Fái sú tillaga að Boris haldi áfram meirihluta stuðning sé vandinn úr sögunni, en ella verði kosið um þessi tvö. Svo er annar með hugmyndir og sá þekkir til sam- særa enda hefur hann skrifað flotta texta um slíkt efni. Það er Frederick Forsyth, spennusagnahöf- undur og um alllangt skeið erindreki bresku leyni- þjónustunnar. Forsyth rifjar upp að það hafi verið sá eilíflega vitri maður, Doktor Johnson (sem sé þó ekk- ert skyldur Boris), sem hafi sagt að „þegar maðurinn veit með öruggri vissu að hann verði tekinn af lífi eftir hálfan mánuð þá verður einbeiting huga hans svo sterk að undrum sætir. Maður ætti að mega ætla að Íhaldsflokkurinn, á sinni löngu og hægu göngu í átt að höggstokki hrikalegs kosningaósigurs, myndi ná að einbeita sér að þeirri hugsun hvernig í ósköpunum megi bjarga sér frá þessari ógæfu.“ Og Forsyth heldur áfram: „Eina svarið, sem íhaldið á, er að höggva á þvæluna og tilkynna flokksbundnum að þeir hafi aðeins 10 daga til að taka sína ákvörðun. Fyrir mér vakir auðvitað að snarstytta tímann til að velja leiðtoga flokksins niður í hressandi formsatriði í stað þess silagangs sem flokksmenn og flokkinn er lif- andi að drepa. Heimurinn býr við óvenjulegt hættu- ástand og þrátt fyrir það höfum við þegar tekið okkur mánuð í að velja nýjan forsætisráðherra og ætlum að eyða mánuði til viðbótar í verkið. Og fyrir alla muni snúið ekki úr orðum mínum svo að ég telji afturhvarf Borisar vera lausnina. Hann hefur svo sannarlega átt eins ríkuleg tækifæri, sem velviljaður guð almáttugur gat framast fært honum síðastliðna 10 mánuði, en klúðraði þeim. Þetta mitt ráð er því eina leið flokksmanna. En gleymnir á ráð dr. Johnsons, þá geta þeir sennilega ekki komið því í gang sem eftir er af heilabúi þeirra, og það þótt byssuhanar aftökusveitanna séu við það að skella á skothylkinu.“ Líklegast er að hvorug hugmyndin þyki tæk úr því sem komið er. Það hafa því fleiri en Boris klúðrað sínum málum herfilega. Morgunblaðið/Ásdís 7.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.