Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Síða 20
Hundrað
klukkustrengir!
Í sumarfríinu dvaldi blaðamaður
nokkra ljúfa daga á Dalvík og
varð heldur betur kátur þegar
hann rakst á auglýsingu á Face-
book um að daginn eftir yrði hald-
in klukkustrengja- og rabarbara-
hátíð á Miðbraut 11 í Hrísey. Þetta
hjómaði spennandi og öðruvísi,
þannig að fjölskyldan var drifin af
stað daginn eftir með á Hríseyj-
arhátíð sem haldin er ár hvert í
júlí, og hélt öll hersingin beint á
Miðbrautina. Þar tók á móti okkur
Svanhildur Daníelsdóttir, en hún á
þar annað heimili. Í húsinu hafði
hún hengt upp til sýnis klukku-
strengi í röðum, bæði innan og ut-
andyra. Og ekki var verra að fá að
smakka úti í garði heimagerða rab-
arbarasultu og saft sem boðið var
upp í dásamlegu veðri.
Fékk illt í hjartað
Nú þegar sumarfríið er á enda var
ekki úr vegi að heyra í Svanhildi
og forvitnast um þessa áráttu
hennar fyrir klukkustrengjum.
Svanhildur, sem er framhalds-
skólakennari í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri, hafði komið sér
vel fyrir á sólbekk á Tenerife þeg-
ar blaðamaður náði tali af henni,
en var til í spjall.
„Það eru um tuttugu ár síðan ég
fór að sjá alls konar vandað og fal-
legt handverk á nytjamörkuðum í
Reykjavík. Ég fékk illt í hjartað
því ég veit hvað liggur mikil vinna
að baki, vinna formæðra okkar,“
segir Svanhildur og segist þá hafa
ákveðið að einblína á að „bjarga“
klukkustrengjum.
Meðferð við áráttunni
Eftir það varð ekki aftur snúið og
á Svanhildur í dag um hundrað
klukkustrengi.
„Mér finnst þeir svo fallegir og
svo er þetta í raun menningar-
arfur. Ég hef fengið þá alla vega
útleikna og tek þá og þvæ og laga,“
segir hún og segir að með tímanum
hafi klukkustrengirnir hlaðist upp.
„Ég var að hugsa um að fara í
meðferð við þessari áráttu; ég vissi
hreinlega ekki hvað ég ætti að
gera við þá,“ segir hún kímin.
„Eina nóttina lá ég andvaka og
datt þá í hug að hengja þá á vegg-
ina og bjóða svo fólki að koma og
sjá,“ segir hún og dreif sig í að
hengja upp alla klukkustrengina
og blása til fyrrnefndar klukku-
strengja- og rabarbarahátíðar.
„Sýningin var þessa einu helgi
en á dagskrá er að hafa klukku-
strengina til sýnis alltaf af og til á
sumrin þegar vel viðrar,“ segir
hún og getur því fólk sem leggur
leið sína til Hríseyjar vonandi
fengið að berja sýninguna augum.
„Okkur hjónin langaði að opna
heimilið okkar til að gleðja fólk og
bæta samfélagið í Hrísey.“
Morgunblaðið/Ásdís
Svanhildur safnar klukkustrengjum
og sýndi þá flesta í sumar í Hrísey.
Svanhvít Daníelsdóttir hefur safnað klukku-
strengjum í tvo áratugi. Hún segist vilja bjarga
handverki formæðra okkar, en klukkustrengina
finnur hún á nytjamörkuðum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Klukkustrengirnir
hanga í röðum í stofunni.
Klukkustrengirnir
eru sannkölluð
listaverk.
Gestir voru vel-
komnir inn að
skoða hjá Svanhildi.
Sumir klukkustrengir
héngu utandyra.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022
HANDVERK
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Gall- og sýruþolnir mjólkursýrugerlar með asídófílus
sem margfalda sig og ná góðri útbreiðslu í þörmum.
Prógastró DDS Plús inniheldur 6 milljarða góðgerla
og Prógastró Gull 15 milljarða.
GÓÐAR FRÉTTIR
FYRIR MELTINGUNA
Loksins
komið
aftur