Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 20
Hundrað klukkustrengir! Í sumarfríinu dvaldi blaðamaður nokkra ljúfa daga á Dalvík og varð heldur betur kátur þegar hann rakst á auglýsingu á Face- book um að daginn eftir yrði hald- in klukkustrengja- og rabarbara- hátíð á Miðbraut 11 í Hrísey. Þetta hjómaði spennandi og öðruvísi, þannig að fjölskyldan var drifin af stað daginn eftir með á Hríseyj- arhátíð sem haldin er ár hvert í júlí, og hélt öll hersingin beint á Miðbrautina. Þar tók á móti okkur Svanhildur Daníelsdóttir, en hún á þar annað heimili. Í húsinu hafði hún hengt upp til sýnis klukku- strengi í röðum, bæði innan og ut- andyra. Og ekki var verra að fá að smakka úti í garði heimagerða rab- arbarasultu og saft sem boðið var upp í dásamlegu veðri. Fékk illt í hjartað Nú þegar sumarfríið er á enda var ekki úr vegi að heyra í Svanhildi og forvitnast um þessa áráttu hennar fyrir klukkustrengjum. Svanhildur, sem er framhalds- skólakennari í Verkmenntaskól- anum á Akureyri, hafði komið sér vel fyrir á sólbekk á Tenerife þeg- ar blaðamaður náði tali af henni, en var til í spjall. „Það eru um tuttugu ár síðan ég fór að sjá alls konar vandað og fal- legt handverk á nytjamörkuðum í Reykjavík. Ég fékk illt í hjartað því ég veit hvað liggur mikil vinna að baki, vinna formæðra okkar,“ segir Svanhildur og segist þá hafa ákveðið að einblína á að „bjarga“ klukkustrengjum. Meðferð við áráttunni Eftir það varð ekki aftur snúið og á Svanhildur í dag um hundrað klukkustrengi. „Mér finnst þeir svo fallegir og svo er þetta í raun menningar- arfur. Ég hef fengið þá alla vega útleikna og tek þá og þvæ og laga,“ segir hún og segir að með tímanum hafi klukkustrengirnir hlaðist upp. „Ég var að hugsa um að fara í meðferð við þessari áráttu; ég vissi hreinlega ekki hvað ég ætti að gera við þá,“ segir hún kímin. „Eina nóttina lá ég andvaka og datt þá í hug að hengja þá á vegg- ina og bjóða svo fólki að koma og sjá,“ segir hún og dreif sig í að hengja upp alla klukkustrengina og blása til fyrrnefndar klukku- strengja- og rabarbarahátíðar. „Sýningin var þessa einu helgi en á dagskrá er að hafa klukku- strengina til sýnis alltaf af og til á sumrin þegar vel viðrar,“ segir hún og getur því fólk sem leggur leið sína til Hríseyjar vonandi fengið að berja sýninguna augum. „Okkur hjónin langaði að opna heimilið okkar til að gleðja fólk og bæta samfélagið í Hrísey.“ Morgunblaðið/Ásdís Svanhildur safnar klukkustrengjum og sýndi þá flesta í sumar í Hrísey. Svanhvít Daníelsdóttir hefur safnað klukku- strengjum í tvo áratugi. Hún segist vilja bjarga handverki formæðra okkar, en klukkustrengina finnur hún á nytjamörkuðum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Klukkustrengirnir hanga í röðum í stofunni. Klukkustrengirnir eru sannkölluð listaverk. Gestir voru vel- komnir inn að skoða hjá Svanhildi. Sumir klukkustrengir héngu utandyra. 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.8. 2022 HANDVERK Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Gall- og sýruþolnir mjólkursýrugerlar með asídófílus sem margfalda sig og ná góðri útbreiðslu í þörmum. Prógastró DDS Plús inniheldur 6 milljarða góðgerla og Prógastró Gull 15 milljarða. GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR MELTINGUNA Loksins komið aftur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.