Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 29
gömlu hátíðarinnar. Þau vildu fá okkur með. Í Rúnkinu voru krakk- ar sem áttu eftir að gera garðinn frægan. Hildur Guðna var söng- kona hljómsveitarinnar en þarna voru einnig Prins Póló, Benni Hemm Hemm, Borko og Óli Björn Ólafsson. Var þetta í byrjun júlí 2002 en upp úr þessu varð til sú hugmynd að gera innihátíð um verslunarmanna- helgina sem fékk nafnið Innipúkinn. Við stóðum því að fyrsta Innipúk- anum ásamt Rúnk.“ Gáfu út plötu síðasta vetur Á tuttugu árum hefur ekki verið samfella í starfsemi hljómsveit- arinnar Dr. Gunni en meðlimirnir hafa komið saman af og til. Sveitina skipa ásamt Gunnari gítarleikarinn Guðmundur Birgir Halldórsson, bassaleikarinn Grímur Atlason og trymbillinn Kristján Freyr Hall- dórsson. „Við vorum duglegir fyrstu árin þegar við gáfum út plötuna Stóri hvellur og fylgdum henni eftir. Þetta fjaraði aðeins út eftir það en við komum stundum fram. Svo var sett- ur slagkraftur í þetta í upphafi árs í fyrra og þá byrjuðum við að æfa í janúar. Stefnan var tekin á að gera tólf laga plötu sem var í framhaldinu tekin upp um sumarið og kom út síð- asta vetur.“ Hefur hjómsveitin þá verið í þéttri spilamennsku frá því í ársbyrjun 2021? „Nei nei, alls ekkert þéttri. Gamlir karlar sem gera eins og þeir nenna. Það er ósköp eðlilegt að gamlir karlar séu ekki eins rokk- hungraðir og tvítugir strákar eða stelpur. Við hittumst ekki mikið oftar en einu sinni í viku. Við spil- uðum á Vagninum á Flateyri síð- asta sunnudagskvöld og við munum spila á Akureyri 27. ágúst við opn- um myndlistarsýningar. Frændi minn sem kallar sig Drengurinn fengurinn verður með sýningu í Listasafninu á Akureyri. Við mun- um eflaust koma oftar fram síðar í sumar og í haust.“ Var aðallega leiðinlegt Í liðlega tvö ár var lítið sem ekkert hægt að troða upp eins og flestir þekkja. Margir listamennirnir biðu óþreyjufullir eftir því að fá aftur grænt ljós hjá yfirvöldum til að kynna nýjar afurðir og fá viðbrögð frá fólki beint í æð. Finnur Gunnar fyrir leikgleði þegar menn fá aftur tækifæri til að spila eftir kórónu- veirupásuna? „Þetta virðist hafa farið frekar seint í gang aftur. Maður bjóst al- veg eins við því að allt yrði brjálað fyrstu vikurnar eftir afléttingar. Mér fannst þetta vera frekar lengi að fara í gamla gírinn. Sem betur fer eru allir nánast búnir að gleyma hvernig þetta var. Mér fannst þessi samkomubönn vera hálfskrítin og hálfgerð „paranoja“ í gangi þótt ég hafi ekki verið í ein- hverri heilagri baráttu á móti þeim. Þetta var aðallega leiðinlegt og ég er guðslifandi feginn að þetta sé búið. Vonandi upplifum við þetta ekki aftur,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson. Hljómsveitin Dr. Gunni á Vagninum á Flataeyri á dögunum. Ljósmynd/Finney Rakel Árnadóttir 7.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 110 HULU Leikkonan Ellen Pompeo verður í burðarhlutverki í nýrri þáttaröð sem streymisveitan Hulu mun framleiða. Pompeo mun hafa samþykkt að taka hlutverkið að sér en þáttaröðin mun innihalda átta þætti. Ekki liggur fyrir nafn þátt- anna sem byggðir verða á sann- sögulegum atburðum. Ellen Pompeo hefur leikið í hin- um lífseigu þáttum Grey’s Anatomy frá árinu 2005. Hún mun koma minna við sögu í nítjándu þáttaröð- inni vegna þessa. Pompeo í nýrri þáttaröð Ellen Pompeo leikur Dr. Meredith Grey í Grey’s Anatomy. AFP/Jon Kopaloff BÓKSALA Í JÚLÍ Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Leyndarmálið Kathryn Hughes 2 500 mílur frá mér til þín Jenny Colgan 3 Þín eigin saga – sæskrímsli Ævar Þór Benediktsson 4 Krossgátur 10 Morgunblaðið 5 Hanni granni dansari Gunnar Helgason 6 Þessu lýkur hér Colleen Hoover 7 Liðin tíð Lee Child 8 Engin heimilisgyðja Sophie Kinsella 9 Nágrannavarsla Unni Lindell 10 Hvað er drottinn að drolla? Auður Haralds 11 Ofsóttur Bill Browder 12 Inngangur að efnafræði Bonnie Garmus 13 Handbók fyrir ofurhetjur 7 – endurheimt EliasVahlund 14 Hin óhæfu Hjorth & Rosenfeldt 15 Hönnunarbók – blómalínan 16 Undir yfirborðinu Freida McFadden 17 Hin systirin Mohlin & Nyström 18 Gísl Clare Mackintosh 19 Litlir lærdómshestar – stafir Elisabeth Golding 20 Sápufuglinn María Elísabet Bragadóttir Allar bækur Árið 2019 skellti ég mér í meist- aranám í íþróttavísindum í Há- skólanum í Reykjavík. Það er aldrei of seint að fara að læra eitthvað nýtt ef áhuginn er til staðar. Þar las ég margar virkilega áhugaverðar bæk- ur. Ein þeirra var One Goal – The mindset of winn- ing soccer teams eftir Bill Beswick. Bill var einn af nánustu sam- starfsmönnum Sir Alex Fergu- sons á einu mesta velgengn- isskeiði Manchester United. Bill var fyrsti sálfræðingurinn sem var ráðinn í fullt starf hjá knatt- spyrnuliði í ensku úrvalsdeildinni. Bókin ætti að vera skyldulesning hjá öllum knatt- spyrnuþjálfurum. Önnur mögnuð bók sem ég las fyrir nokkrum ár- um er Search in- side yourself eða Núvitund – Leitaðu inn á við í þýðingu Guðna Kolbeinssonar. Bókin spratt upp frá vinsælu námskeiði sem haldið hefur verið innan Google-fyrirtækisins um árabil. Námskeiðið vakti mikla athygli og gjörbreytti lífi margra þátttak- enda, bæði í starfi og einkalífi. Bókin kenndi mér hvað það er mikilvægt að vera greindur á eig- in tilfinningar. Á náttborðinu núna er bókin The Energy Plan eftir James Coll- ins en James þessi Collins hefur unnið með mörgum af fremstu íþróttamönnum og íþróttaliðum heims. James var einn af þeim fyrstu sem Arsene Wenger réð til starfa hjá Arsenal á sínum tíma. Hann var fengin til að breyta mat- aræði leik- manna og há- marka þannig getu þeirra. En bókin fjallar einmitt um það hvernig íþróttafólk getur há- markað árangur sinn með réttu mataræði. Einnig vil ég nefna eina íslenska bók en hún er af allt öðrum toga. Er það bókin Gísli á Uppsölum eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Ég heillaðist algerlega af Gísla þegar ég sá Stiklur, þætti Ómars Ragnarssonar, á sínum tíma þótt ég hafi verið ung- ur. Þegar bók Ingi- bjargar um Gísla kom út árið 2012 las ég bókina á einni kvöldstund. Svo spenntur var ég. Bókin fjallar um lífshlaup Gísla sem var svo einstakt. Það er ótrúlegt að saga hans gerist á 20. öldinni því hann hafði hvorki rafmagn né rennandi vatn eða hitaveitu. Að mínu mati verða allir að lesa ævisögu Gísla að minnsta kosti einu sinni. HARALD PÉTURSSON ER AÐ LESA Las bókina um Gísla á einni kvöldstund Harald Pét- ursson er með meistaragráðu í íþróttavís- indum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.