Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 29
gömlu hátíðarinnar. Þau vildu fá
okkur með. Í Rúnkinu voru krakk-
ar sem áttu eftir að gera garðinn
frægan. Hildur Guðna var söng-
kona hljómsveitarinnar en þarna
voru einnig Prins Póló, Benni
Hemm Hemm, Borko og Óli Björn
Ólafsson.
Var þetta í byrjun júlí 2002 en upp
úr þessu varð til sú hugmynd að
gera innihátíð um verslunarmanna-
helgina sem fékk nafnið Innipúkinn.
Við stóðum því að fyrsta Innipúk-
anum ásamt Rúnk.“
Gáfu út plötu síðasta vetur
Á tuttugu árum hefur ekki verið
samfella í starfsemi hljómsveit-
arinnar Dr. Gunni en meðlimirnir
hafa komið saman af og til. Sveitina
skipa ásamt Gunnari gítarleikarinn
Guðmundur Birgir Halldórsson,
bassaleikarinn Grímur Atlason og
trymbillinn Kristján Freyr Hall-
dórsson.
„Við vorum duglegir fyrstu árin
þegar við gáfum út plötuna Stóri
hvellur og fylgdum henni eftir. Þetta
fjaraði aðeins út eftir það en við
komum stundum fram. Svo var sett-
ur slagkraftur í þetta í upphafi árs í
fyrra og þá byrjuðum við að æfa í
janúar. Stefnan var tekin á að gera
tólf laga plötu sem var í framhaldinu
tekin upp um sumarið og kom út síð-
asta vetur.“
Hefur hjómsveitin þá verið í þéttri
spilamennsku frá því í ársbyrjun
2021?
„Nei nei, alls ekkert þéttri.
Gamlir karlar sem gera eins og þeir
nenna. Það er ósköp eðlilegt að
gamlir karlar séu ekki eins rokk-
hungraðir og tvítugir strákar eða
stelpur. Við hittumst ekki mikið
oftar en einu sinni í viku. Við spil-
uðum á Vagninum á Flateyri síð-
asta sunnudagskvöld og við munum
spila á Akureyri 27. ágúst við opn-
um myndlistarsýningar. Frændi
minn sem kallar sig Drengurinn
fengurinn verður með sýningu í
Listasafninu á Akureyri. Við mun-
um eflaust koma oftar fram síðar í
sumar og í haust.“
Var aðallega leiðinlegt
Í liðlega tvö ár var lítið sem ekkert
hægt að troða upp eins og flestir
þekkja. Margir listamennirnir biðu
óþreyjufullir eftir því að fá aftur
grænt ljós hjá yfirvöldum til að
kynna nýjar afurðir og fá viðbrögð
frá fólki beint í æð. Finnur Gunnar
fyrir leikgleði þegar menn fá aftur
tækifæri til að spila eftir kórónu-
veirupásuna?
„Þetta virðist hafa farið frekar
seint í gang aftur. Maður bjóst al-
veg eins við því að allt yrði brjálað
fyrstu vikurnar eftir afléttingar.
Mér fannst þetta vera frekar lengi
að fara í gamla gírinn. Sem betur
fer eru allir nánast búnir að
gleyma hvernig þetta var. Mér
fannst þessi samkomubönn vera
hálfskrítin og hálfgerð „paranoja“
í gangi þótt ég hafi ekki verið í ein-
hverri heilagri baráttu á móti
þeim. Þetta var aðallega leiðinlegt
og ég er guðslifandi feginn að þetta
sé búið. Vonandi upplifum við
þetta ekki aftur,“ segir Gunnar
Lárus Hjálmarsson.
Hljómsveitin Dr.
Gunni á Vagninum á
Flataeyri á dögunum.
Ljósmynd/Finney Rakel Árnadóttir
7.8. 2022 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
110
HULU Leikkonan Ellen Pompeo
verður í burðarhlutverki í nýrri
þáttaröð sem streymisveitan Hulu
mun framleiða. Pompeo mun hafa
samþykkt að taka hlutverkið að sér
en þáttaröðin mun innihalda átta
þætti. Ekki liggur fyrir nafn þátt-
anna sem byggðir verða á sann-
sögulegum atburðum.
Ellen Pompeo hefur leikið í hin-
um lífseigu þáttum Grey’s Anatomy
frá árinu 2005. Hún mun koma
minna við sögu í nítjándu þáttaröð-
inni vegna þessa.
Pompeo í nýrri þáttaröð
Ellen Pompeo leikur Dr. Meredith
Grey í Grey’s Anatomy.
AFP/Jon Kopaloff
BÓKSALA Í JÚLÍ
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Leyndarmálið
Kathryn Hughes
2 500 mílur frá mér til þín
Jenny Colgan
3
Þín eigin saga
– sæskrímsli
Ævar Þór Benediktsson
4 Krossgátur 10
Morgunblaðið
5 Hanni granni dansari
Gunnar Helgason
6 Þessu lýkur hér
Colleen Hoover
7 Liðin tíð
Lee Child
8 Engin heimilisgyðja
Sophie Kinsella
9 Nágrannavarsla
Unni Lindell
10
Hvað er drottinn að
drolla?
Auður Haralds
11 Ofsóttur
Bill Browder
12 Inngangur að efnafræði
Bonnie Garmus
13
Handbók fyrir ofurhetjur 7
– endurheimt
EliasVahlund
14 Hin óhæfu
Hjorth & Rosenfeldt
15 Hönnunarbók
– blómalínan
16 Undir yfirborðinu
Freida McFadden
17 Hin systirin
Mohlin & Nyström
18 Gísl
Clare Mackintosh
19
Litlir lærdómshestar
– stafir
Elisabeth Golding
20 Sápufuglinn
María Elísabet Bragadóttir
Allar bækur
Árið 2019 skellti ég mér í meist-
aranám í íþróttavísindum í Há-
skólanum í Reykjavík. Það er
aldrei of seint að fara að læra
eitthvað nýtt ef
áhuginn er til
staðar. Þar las ég
margar virkilega
áhugaverðar bæk-
ur. Ein þeirra var
One Goal – The
mindset of winn-
ing soccer teams
eftir Bill Beswick.
Bill var einn af nánustu sam-
starfsmönnum Sir Alex Fergu-
sons á einu mesta velgengn-
isskeiði Manchester United. Bill
var fyrsti sálfræðingurinn sem var
ráðinn í fullt starf hjá knatt-
spyrnuliði í ensku úrvalsdeildinni.
Bókin ætti að
vera skyldulesning
hjá öllum knatt-
spyrnuþjálfurum.
Önnur mögnuð
bók sem ég las
fyrir nokkrum ár-
um er Search in-
side yourself eða
Núvitund – Leitaðu inn á við í
þýðingu Guðna Kolbeinssonar.
Bókin spratt upp frá vinsælu
námskeiði sem haldið hefur verið
innan Google-fyrirtækisins um
árabil.
Námskeiðið vakti mikla athygli
og gjörbreytti lífi margra þátttak-
enda, bæði í starfi og einkalífi.
Bókin kenndi mér hvað það er
mikilvægt að vera greindur á eig-
in tilfinningar.
Á náttborðinu núna er bókin
The Energy Plan eftir James Coll-
ins en James þessi Collins hefur
unnið með mörgum af fremstu
íþróttamönnum og íþróttaliðum
heims. James var einn af þeim
fyrstu sem Arsene Wenger réð
til starfa hjá Arsenal á sínum
tíma. Hann var
fengin til að
breyta mat-
aræði leik-
manna og há-
marka þannig
getu þeirra. En
bókin fjallar
einmitt um það
hvernig íþróttafólk getur há-
markað árangur sinn með réttu
mataræði.
Einnig vil ég nefna eina íslenska
bók en hún er af allt öðrum toga.
Er það bókin Gísli á Uppsölum
eftir Ingibjörgu Reynisdóttur. Ég
heillaðist algerlega af Gísla þegar
ég sá Stiklur,
þætti Ómars
Ragnarssonar, á
sínum tíma þótt
ég hafi verið ung-
ur. Þegar bók Ingi-
bjargar um Gísla
kom út árið 2012
las ég bókina á
einni kvöldstund.
Svo spenntur var ég. Bókin fjallar
um lífshlaup Gísla sem var svo
einstakt. Það er ótrúlegt að saga
hans gerist á 20. öldinni því hann
hafði hvorki rafmagn né rennandi
vatn eða hitaveitu. Að mínu mati
verða allir að lesa ævisögu Gísla
að minnsta kosti einu sinni.
HARALD PÉTURSSON ER AÐ LESA
Las bókina um Gísla á
einni kvöldstund
Harald Pét-
ursson er með
meistaragráðu
í íþróttavís-
indum.