Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Side 32
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2022
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,-
EUFOLIA model 3226
L 178 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,-
L 232 cm Leður ct. 25 Verð 709.000,-
TRATTO model 2811
L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,-
L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18
VALZER model 3222
L164-199 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
L188-223 cm Leður ct. 15 Verð 569.000,-
Legið hefur fyrir í nokkurn tíma að Tiger Woods stóð til boða að
færa sig yfir á hina nýju LIV-mótaröð í golfi sem fjármögnuð er að
mestu leyti af fjárfestingarsjóði sádiarabíska ríkisins.
Ekki hafði hins vegar verið greint frá því hversu rausnarlega var
boðið en Tiger lýsti því yfir að hann hefði hafnað boðinu einfaldlega
vegna þess að hann vildi leika áfram á PGA-mótaröðinni bandarísku.
Í vikunni greindi Ástralinn Greg Norman frá því í viðtali við FOX að
LIV hefði boðið Tiger liðlega 100 milljarða íslenskra króna fyrir að
skipta yfir en Norman er framkvæmdastjóri LIV-mótaraðarinnar.
Hann nefndi einnig að LIV hefði gert Tiger tilboð áður en Norman
hóf þar störf en hann teldi sig vita hver upphæðin var.
Fjárfestingarsjóðurinn er einnig eigandi enska knattspyrnu-
félagsins Newcastle United og keypti félagið í fyrra. Til saman-
burðar má nefna að LIV bauð Tiger Woods tæplega helmingi hærri
upphæð en þá sem greidd var fyrir Newcastle.
Greg Norman jr., Brooks Koepka, Dustin Johnson og Norman árið 2018. Koepka og Johnson eru nú báðir hjá LIV.
AFP/Jason Koerner
Svimandi há upphæð
Tiger Woods á The Open Championship í júlí.
AFP/Andy Buchanan
LIV bauð Tiger helmingi hærri upphæð
en greidd var fyrir Newcastle United
Í Morgunblaðinu laugardaginn 5.
ágúst árið 1972 er greint frá því
að „nær metdagur í farþegaflutn-
ingum Loftleiða“ hafi verið dag-
inn áður sem var föstudagur fyrir
verslunarmannahelgi.
Veltir blaðið því fyrir sér hvort
verslunarmannahelgin hafi haft
áhrif á þann mikla fjölda sem fékk
far með Loftleiðum þann daginn.
„Það hefur verið mjög annríkt
hjá Loftleiðum að undanförnu og
verður áreiðanlega mikið að gera
á næstunni. Ég get nefnt til dæmis
um það að í dag munu Loftleiðir
og Air Bahama flytja samtals
2.417 farþega, eða álíka marga og
alla þá, sem eiga nú búsetu á Sel-
fossi,“ er haft eftir Sigurði Magn-
ússyni blaðafulltrúa flugfélagsins.
Tekið er fram að heldur fáir
hafi komið til Íslands til að eyða
tíma hérlendis. „Tæplega 300 af
þessum farþegum komu til dval-
ar á Íslandi og mætti sú tala vit-
anlega vera hærri,“ er einnig haft
eftir Sigurði í fréttinni.
GAMLA FRÉTTIN
Álíka margir og búa á Selfossi
Starfsfólk Loftleiða stillir
sér upp fyrir myndatöku.
Ártalið liggur ekki fyrir.
Úr safni Morgunblaðsins
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kris Kristofferson
Tónlistarmaður.
Gunnar Þorsteinsson
Fv. forstöðumaður.
Ulrich Thomsen
Leikari.