Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.08.2022, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 2022 LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,- EUFOLIA model 3226 L 178 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- L 232 cm Leður ct. 25 Verð 709.000,- TRATTO model 2811 L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,- L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,- L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18 VALZER model 3222 L164-199 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- L188-223 cm Leður ct. 15 Verð 569.000,- Legið hefur fyrir í nokkurn tíma að Tiger Woods stóð til boða að færa sig yfir á hina nýju LIV-mótaröð í golfi sem fjármögnuð er að mestu leyti af fjárfestingarsjóði sádiarabíska ríkisins. Ekki hafði hins vegar verið greint frá því hversu rausnarlega var boðið en Tiger lýsti því yfir að hann hefði hafnað boðinu einfaldlega vegna þess að hann vildi leika áfram á PGA-mótaröðinni bandarísku. Í vikunni greindi Ástralinn Greg Norman frá því í viðtali við FOX að LIV hefði boðið Tiger liðlega 100 milljarða íslenskra króna fyrir að skipta yfir en Norman er framkvæmdastjóri LIV-mótaraðarinnar. Hann nefndi einnig að LIV hefði gert Tiger tilboð áður en Norman hóf þar störf en hann teldi sig vita hver upphæðin var. Fjárfestingarsjóðurinn er einnig eigandi enska knattspyrnu- félagsins Newcastle United og keypti félagið í fyrra. Til saman- burðar má nefna að LIV bauð Tiger Woods tæplega helmingi hærri upphæð en þá sem greidd var fyrir Newcastle. Greg Norman jr., Brooks Koepka, Dustin Johnson og Norman árið 2018. Koepka og Johnson eru nú báðir hjá LIV. AFP/Jason Koerner Svimandi há upphæð Tiger Woods á The Open Championship í júlí. AFP/Andy Buchanan LIV bauð Tiger helmingi hærri upphæð en greidd var fyrir Newcastle United Í Morgunblaðinu laugardaginn 5. ágúst árið 1972 er greint frá því að „nær metdagur í farþegaflutn- ingum Loftleiða“ hafi verið dag- inn áður sem var föstudagur fyrir verslunarmannahelgi. Veltir blaðið því fyrir sér hvort verslunarmannahelgin hafi haft áhrif á þann mikla fjölda sem fékk far með Loftleiðum þann daginn. „Það hefur verið mjög annríkt hjá Loftleiðum að undanförnu og verður áreiðanlega mikið að gera á næstunni. Ég get nefnt til dæmis um það að í dag munu Loftleiðir og Air Bahama flytja samtals 2.417 farþega, eða álíka marga og alla þá, sem eiga nú búsetu á Sel- fossi,“ er haft eftir Sigurði Magn- ússyni blaðafulltrúa flugfélagsins. Tekið er fram að heldur fáir hafi komið til Íslands til að eyða tíma hérlendis. „Tæplega 300 af þessum farþegum komu til dval- ar á Íslandi og mætti sú tala vit- anlega vera hærri,“ er einnig haft eftir Sigurði í fréttinni. GAMLA FRÉTTIN Álíka margir og búa á Selfossi Starfsfólk Loftleiða stillir sér upp fyrir myndatöku. Ártalið liggur ekki fyrir. Úr safni Morgunblaðsins ÞRÍFARAR VIKUNNAR Kris Kristofferson Tónlistarmaður. Gunnar Þorsteinsson Fv. forstöðumaður. Ulrich Thomsen Leikari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.