Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 1
VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ.
ÁSTA MARÍA
JÓNASDÓTTIR
A S TA@A L LT.I S | 560-5507
UNNUR SVAVA
SVERRISDÓTTIR
U N N U R@A L LT.I S | 560-5506
SIGRÍÐUR
GUÐBRANDSDÓTTIR
S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520
JÓHANN INGI
KJÆRNESTED
J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508
DÍSA EDWARDS
D I S A E@A L LT.I S | 560-5510
ELÍNBORG ÓSK
JENSDÓTTIR
E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509
PÁLL
ÞOR BJÖRNSSON
PA L L@A L LT.I S | 560-5501
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Lambalæri
1.379KR/KG
ÁÐUR: 1.839 KR/KG
25%
AFSLÁTTUR
Ananas
Ferskur
251KR/KG
ÁÐUR: 358 KR/KG
30%
AFSLÁTTUR
GOTT
FYRIR
HELGINA
20.--23. JANÚAR
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á Arion banka að falla frá áformum um endurræsingu
kísilversins í Helguvík og hefja viðræður við sveitarfélagið um aðrar og grænni leiðir. Þetta
kemur fram í bókun sem samþykkt var á bæjarstjórnarfundi í vikunni.
„Bæjaryfirvöld hafa áður lýst neikvæðri afstöðu
sinni til endurræsingar og vilja til samstarfs um
aðrar leiðir. Þá liggur það einnig fyrir að stærstur
hluti íbúa er því algjörlega mótfallinn að verk
smiðjan verði endurræst.
Nýtt mat á umhverfisáhrifum gerir lítið til þess
að breyta skoðun bæjaryfirvalda og íbúa sveitar
félagsins. Það er því ljóst að framundan gætu verið
harðar langvarandi deilur milli aðila, verði áfram
haldið með þessi áform, sem gera ekkert annað en
að valda öllum aðilum verulegum skaða,“ segir í
bókunni en í síðustu viku kom einnig fram að PCC
BakkiSilicon hf. á Húsavík hafi áhuga á að skoða
kaup á verksmiðjuni.
Í umfjöllun Víkurfrétta á bls. 2 er rýnt í álit
Skipulagsstofnunar þar sem fram kemur að
Stakksberg, dótturfélag Arion banka, hyggur á
endurræsingu kísilverksmiðjunnar í Helguvík eftir
verulegar endurbætur sem fela m.a. í sér byggingu
52 metra hás skorsteins.
Bæjarstjórnin vill
ekki kísilverið aftur
SMÁÝSAN
Trillukarlar verka einn
besta harðfisk landsins
Heimsókn í Tónlistar-
skóla Sandgerðis
Stafnes harðfiskur
verður að
hollu snakki
Tónlist
eykur
lífsgæði
RIFF - Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík hefur í þessari viku staðið
fyrir námskeiði í Reykjanesbæ sem heitir
Stelpur filma. Á námskeiðinu hafa stelpur
í áttunda og níunda bekk grunnskóla í
Reykjanesbæ fengið fræðslu um allt sem
við kemur kvikmyndagerð og unnið að
stuttmyndum.
Leikstjórinn Baltasar Kormákur mætti á
námskeið hjá stelpunum á þriðjudaginn og
ræddi við þær um kvikmyndagerð og hvatti
þær áfram í því sem þær eru að gera en stutt
myndirnar sem verða til á námskeiðinu í
Reykjanebæ verða sýndar á RIFF á næsta
ári. Nánar verður fjallað um Stelpur filma í
Suðurnesjamagasíni í næstu viku.
Stelpur filma
í Reykjanesbæ
Stelpur úr 8. og 9. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar hafa verið á námskeiðinu Stelpur filma á vegum RIFF-kvikmyndahátíðarinnar.
Hér er hópurinn ásamt fulltrúum RIFF, starfsfólki Fjörheima í Reykjanesbæ og kvikmyndaleikstjóranum Baltasar Kormáki. VF-mynd: Páll Ketilsson.
Miðvikudagur 19. janúar 2022 // 3. tbl. // 43. árg.