Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 19.01.2022, Blaðsíða 15
„Ég hef haft mikinn áhuga á myndavélum frá því að ég var tólf ára. Þá fékk ég GoPro myndavél í gjöf frá mömmu og pabba og síðan keypti ég mér glænýja Canon myndavél fyrir allan fermingarpening- inn minn,“ segir Pálmi Rafn Arinbjörnsson, einn yngsti atvinnumaður okkar í knattspyrnu en hann hefur leikið í markinu hjá yngri liðum úrvalsdeildarliðsins Wolves, eða Úlfanna í Englandi. Pálmi fór utan þegar hann var að verða sextán ára og er búinn að vera í tvö ár og gengur vel. Úlfarnir sáu mikla möguleika í markverðinum úr Njarðvík og fyrst um sinn fór móðir hans með honum til ensku borgar­ innar. Nú er okkar maður einn og stundar nám samhliða fótboltanum „Þetta er svokallað B­tech nám, ekki ólíkt afreksbraut í Fjölbrauta­ skóla Suðurnesja. Öll lið í efstu deild í Englandi skaffa yngri leikmönnum sínum þetta nám. Myndavél á milli æfinga Pálmi Rafn stofnaði nýlega síðu á Yo­ uTube þar sem hann hefur nú sett inn nokkur myndbönd. „Ég var alltaf að taka myndbönd eða myndir hér og þar en hætti því þegar ég fór út til Englands, missti áhugann dálítið, held ég hafi verið hræddur um álit annarra – en sein­ ustu mánuði hefur mér verið að leiðast mikið á daginn þar sem ég bý einn og ekki er alltaf hægt að hafa einhvern hjá sér útaf Covid. Ég var kominn í óheilbrigða rútínu að koma beint heim eftir æfingu og sitja í tölvunni þangað til ég fór að fara sofa, þannig ég ákvað að kaupa mér flotta myndavél til að nýta dagana mína betur. Ég sé alveg fyrir mér að þetta er eitthvað sem mig langar að vinna við þegar fótboltinn er búinn. Stefnan var alltaf að mennta mig á þessu sviði áður en mér var boðið út í fótboltann.“ Fótbolti alla daga Pálmi Rafn hefur undanfarið leikið með einu af unglingaliðum Wolves og gengið vel. „Það gengur bara vel í fótboltanum. Við komumst áfram í bikarkeppninni rétt fyrir jól á móti Salford City. Þá lék ég í fyrsta sinn á Molineux leikvanginum. Núna þarf ég bara að ná að spila eins marga leiki og ég get til þess að undirbúa mig fyrir milliriðil á undankeppni EM með U19 landsliðinu – og von­ andi vinna riðilinn og komast áfram á EM.“ Hefurðu sótt leiki hjá úrvalsdeildar- liði Wolves í ensku deildinni? „Ég hef ekki verið svo duglegur að mæta á leiki hjá aðalliðinu. Aðal­ lega út af Covid, fullur leikvangur og enginn með grímur. Ég hef ekki viljað eiga á hættu að þurfa að fórna tíu dögum frá bolta til að horfa á leik hjá þeim – en vonandi lagast ástandið og ég get byrjað að mæta á alla heimaleiki,“ segir Pálmi Rafn. Markvörðurinn myndar í Úlfa-borginni Pálmi Rafn Arinbjörnsson mundar Canon myndavélina á milli æfinga og leikja í í Englandi. Nokkrir Suðurnesjamenn eru meðal stuðningsmanna Íslands á EM í handbolta. Gísli H. Jó- hannsson, verslunarstjóri í Húsa- smiðjunni í Reykjanesbæ og fyrr- verandi handboltadómari hefur verið fastagestur á EM-mótum sem Ísland hefur verið þátttakandi í. „Þetta er alltaf geggjað, svakaleg stemmning. Svo er þetta flott borg þannig að við nýtum dagana sem Ís­ land er ekki að leika til að fara í skoð­ unarferðir, förum í vínsmökkun og út að borða,“ sagði Gísli við VF sem verður alla undankeppnina og ef Ís­ land kemst áfram nær hann allavega fyrsta leik í úrslitakeppninni. Gísli hefur farið á níu af síðustu tólf stórmótum hjá Íslandi, fór fyrst á Evrópumót í Austurríki 2012. Hann segir að Íslandshópurinn horfi á tvo leiki á dag. Núna var til dæmis horft á fyrsta leik heimamanna, Ungverja, gegn Hollandi. „Það var svolítið magnað, 23 þúsund áhorfendur í höllinni og 21 þúsund af þeim heima­ menn, Ungverjar.“ Hvað er eftirminnilegast úr þessum ferðum þínum? Það stendur eiginlega upp úr þegar ég fór til Katar 2015 en þá var ég í hópi stuðningsmanna sem var boðið á mótið. Hver þátttökuþjóð mátti bjóða tuttugu manns. Allt gert til þess að það yrðu einhverjir áhorf­ endur á mótinu. Það var gaman en gengi Íslands ekki mikið, gátum ekki neitt í þessu móti. Annars er hluti af þessu að hitta gamla vini. Þetta er í raun eins og stórt ættarmót hjá Ís­ lendingum,“ segir Gísli. Fleiri Suðurnesjamenn eru á Evrópumótinu. Félagarnir og skóla­ mennirnir Hjálmar Árnason og Ólafur Arnbjörnsson ásamt Magnúsi Guðjónssyni hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja eru saman í Íslandsfjöri í Búdapest. „Við fórnum okkur fyrir liðið. Þetta er bara frábært. Skoðum borgina og merkilega staði á milli leikja,“ sagði Hjálmar í stuttu spjalli við Víkurfréttir. Suðurnesjamenn með stuðningsfólki Íslands á EM í handbolta: Gísli H. Jóhannsson hefur sótt níu af tólf síðustu stórmótum Íslands í handbolta. Vínsmökkun og skoðunarferðir á milli leikja í Búdapest í Ungverjalandi. Gísli, Magnús Guðjónsson, Hjálmar Árnason og Ólafur Arnbjörnsson tilbúnir í leik með Íslandi. Stuð á staðnum eins og hinar myndirnar sýna. Eins og stórt ættarmót Páll Ketilsson pket@vf.is Pálmi Rafn hefur staðið sig vel hjá Úlfunum. YouTube-síða Pálma Rafns vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.